Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Qupperneq 24
.32. FI,MMTODAffgft:5. DEjSEMBEfi 1991/ Menning Óraunveruleikablær í fallegum boðskap Sögusvið bókarinnar Dýrið gengur laust er lítið sjávar- þorp úti á landsbyggðinni og næsta umhverfi þess. Sagan segir frá unglingsstráknum Gústa, vinum hans og hópi kvikmyndatökufólks sem kemur í þorpiö til að gera kvikmynd byggða á gamalli þjóðsögu. Það verður þó ýmislegt til að tefja töku myndarinn- , ar. Forsmekkinn af því er að finna í spádómi nornar- innar Línu sem segir að myndatakan muni ganga á afturfótunum enda verður það raunin. Álfar taka til sinna ráða og tefja verkið með ýmsu móti. Ástin er ekki langt undan því sagan er öðrum þræði ástarsaga paranna Gústa og Rósar, Grjóna og Þuru, og Höllu og Braga. Sagan hefur yfir sér óraunveruleikablæ sem kemur glöggt fram í upphafi sögunnar þegar áhrifum af komu kvikmyndagerðarfólksins á þorpsbúa er lýst: (bls. 25) Fáir þorpsbúar fóru að sofa þetta kvöld og allir voru í viðbragðsstöðu. Og loks rann stundin upp; gamall og skræpóttur rútubíll skrölti eftir veginum inn í þorp- ið. Fólkið raðaði sér upp meðfram veginum og æpti af fögnuði... Leikararnir voru skoðaöir í krók og kring og auðséð var að þeir voru orðnir þreyttir á því að þvælast í rútu. Einn var frægastur og svo var þarna annar sem var rosalega vinsæll í auglýsingum og... Ekki er hér látið staðar numið við að lýsa viðbrögð- um þorpsbúa því þess er jafnframt getið að fólk úr nærhggjandi byggðarlögum hafi komið og tjaldað i nágrenni þorpsins til að fylgjast með fólkinu að sunn- an. Ef verið væri að lýsa lendingu mannaðrar eldflaugar sem hefði farið til Mars væri lýsingin ef til vill trúverö- ug en þetta er of langt gengið, allt of langt. Eins og áður sagði er sögusviðið ótiltekið sjávarþorp án þess að því sé á nokkrum stað lýst svo nokkru nemi. Ekki er heldur veriö að fjalla um kjör þess fólks sem byggir þorpið. Fjölskylda Gústa er burðarás sögunnar. Þau búa rétt fyrir utan þorpið. Höfundi tekst að draga upp þokkalega heiidarmynd af þessu fólki. Fjölskyldufaðir- inn er veiðimaður sem lifir af landsins gögnum og gæðum og ræktar auk þess hunda og hesta. Þau eru fremur illa sett efnalega en sú eina sem fettir fingur út f félagslega stöðu fjölskyldunnar er móðirin sem gerir kröfur um að húsinu sé haldið sómasamlega við og hún fái eitthvað af heimilistækjum til að létta sér störf- in. (bls. 15) Hann er svo sem nógu bjartur og fagur til að veröa kvikmyndastjarna hann faðir þinn, það vantar ekki, glæsimenni, það er hann, en hann mætti hugsa svolít- ið betur um fjölskyldu sína. Ónýt þvottavél, ónýtt þak Hrafnhildur Valgarðsdóttir. Bókmenntir Jóhanna Margrét Einarsdóttir á húsinu sem gerir náttúrlega ekkert til því húsið er allt ónýtt hvort sem er. Elsti bróðirinn Bragi er hálfgerður utangarðsmaður innan fjölskyldunnar þar sem hann hefur önnur áhugamál en systkini hans og foreldrar og tekst höf- undi á stundum vel upp í persónulýsingum hans. Persónur sögunnar eru hins vegar flestar því marki brenndar að vera einslitar og grunnar. Ein sú eftir- minnilegasta er Lína lausa, spákonan, sem áður var minnst á. Gömul einstæðingskona sem sér fleira en flestir aðrir. Það hefði verið auðvelt að gera persónu hennar mun betur úr garði til dæmis með því að leyfa lesndanum að kynnast henni ögn nánar og félagslegum aðstæðum hennar. Það er hins vegar ekki gert og sú gamla deyr í sögulok. Þorpsbúar sakna hennar ekki en skammast sín í aðra röndina fyrir að hafa ekki verið henni betri. Ríki maðurinn í þorpinu er vondur kall sem hugsar um það eitt að græða meiri peninga. Hann er svona vegna þess aö þegar hann var bam átti hann í erfiðleik- um með að læra að lesa og honum var strítt á því. Dóttir hans Halla verður svo slæm manneskja af því að hún er dekurrófa sem hefur fengið allt upp í hend- urnar. Grjóni er viðkvæmur en góður drengur sem þarf aö þola ágengni hinnar ástjúku eggjandi Þuru. Rós er sömuleiðis góð stelpa sem kennir sjálfri sér um dauða yngri'systur sinnar. Hún hefur átt í erfiðri baráttu við að sætta sig við atburðinn en er sem óðast að jafna sig eftir að Gijóni og móðir hans tóku hana upp á sína arma. Gústi er sömuieiðis ósköp indæll drengur sem verð- ur ástfanginn upp fyrir haus af Rós sem raunar heitir Lilja í raunveruleikanum. Hann glímir viö ráögáturn- ar sem koma upp við töku myndarinnar og dularfullan dauöa hunda fööur síns. Honum tekst að leysa málin og allt fellur í ljúfa löð. Það virkar dálitið annkannalega eftir allt fjaðrafokið sem verður við komu kvimyndatökufólksins til þorps- ins að allt skuli falla í ljúfa löð þegar þaö er farið. Það hefur ekkert breyst. (bls. 78) Hann hafði útlitið og hæfileikana til aö verða stjarna en hjarta hans sló með náttúrunni, líf hans gæti aldr- ei fengið fullnægju í neinu öðru en veiðimannslífinu. Gústa létti. Þannig hafði það verið þar til í sumar en nú yrðu allt aftur eins og það átti aö vera. Þau yrðu áfram blönk, en pabbi hans færi á veiöar og kæmi heim þreyttur og stoltur yfir fengnum. Fjölslyldan myndi aftur fara að tala um hunda og hesta, verð á refaskinni og ástand hreindýrastofnsins í staðinn fyrir kvikmyndir, filmur og tökur. Boðskapur bókarinnar er fallegur. Fólk á að lifa í sátt og samlyndi við náttúruna og að ástin spillir engu eins og endurspeglast í orðum Gijóna við þau Rós og Gústa:(122) „Haldið bara áfram að vera góö hvort við annað. Heimurinn verður ekki verri fyrir það.“ Fallegur boðskapur er hins vegar ekki nóg til að bók verði góð. Dýrið gengur laust: Hrafnhildur Valgarðsdóttir Æskan 1991 Rusladraslið sent út í buskann Snæland er fegursti staður á jarðríki. Hvergi var himinninn jafnblár né snjórinn jafn skjannahvítur. Þannig hafði það alltaf verið, alveg frá upphafi tímans, segir í byijun sögimnar um Georg í mannheimupi- Það var líf og fjör á þessari paradis á jörðu þangað til rusl og úrgangur fór að berast frá mannheimum. Dýrin flúðu öll nema litla hugrakka mörgæsin Gegorg sem elskaði friðsælu víkina sína öllu öðru meira. Hann stritar við að hreinsa upp drashð en það ber lítinn árangur, steininn svo tekur úr þegar ruslarakettan kemur fljúgandi af himnum ofan og lendir á húsinu hans. En mörgæsin bugast ekki. Hún leggur af stað til Fögruborgar sem eins og nafnið bendir til var eitt sinn hrein og fögur en er nú sokkinn í ruslapytt. Hann nær tali af borgarstjóranum og ráðgjafa hans en þeir sparka honum beinustu leið í dýragaröinn. Dýrin taka til sinna ráð. Þau ákveða að fara í verk- fall til að láta mennina sjá að sér. Verkfalliö endar svo með stríði sem dýrin vinna og ná samningum við mennina. (bls. 30) Mennimir eiga strax að hreinsa upp allt rusladrasl á jörðinni. í framtíðinni eiga þeir að endurvinna það og búa til úr því nýtilega hluti. Það sem ekki er endur- unnið á að geyma þar sem það veldur engum skaða né óþægindum. Þetta er boöskapur bókarinnar í hnotskurn og allir hjálpast að við að hreinsa til og gróðursetja blóm og tré. Georg í mannheimum er teiknimyndasaga ætluð yngri bömum. Texti bókarinnar er einfaldur en skýr. Bókmenntir Jóhanna Margrét Einarsdóttir Á köflum er hann launfyndinn og skemmtilegur. Myndimar styöja vel við textann. Þær em htríkar og svipbrigði dýranna em oft á tíðum kostuleg, þær bæta því ýmsu viö sem ekki kemur fram í textanum. Georg í mannheimum er skemmtileg bók sem ætti að vera vel til þess fallin að vekja unga lesendur til umhugsunar um gildi þess að halda jörðinni hreinni. Það er því sem best hægt að mæla með bókinni. Georg I mannheimum Jón Marinósson, Jón Ármann Steinsson Mál og menning, Reykjavik 1991 Mengun í mörgum stórborgum er mjög mikil. Mynd þessi er frá Sao Paulo I Brasiliu en þar er loftmengun óhugnanleg. Þykkur mökkur reyk- mettaörar þoku getur legiö yfir borginni dögum saman og valdið heilsu- tjóni. Að bjarga jörðinni Umhverfismál hafa verið mikið í brennideph um allan heim á síöustu árum. Menn óttast að þeir hafi með ógætilegri umgengni um náttúru- auðævi heimsins stofnað tilveru sinni á jörðinni í hættu. Og mörg teikn eru á lofti um aö svo sé og því vilja menn spyma við fótum. Og hvað er til ráða? Er sá skaði sem er skeður kannski óbætanlegur? Víst er að ýmislegt af því sem orðiðhefurfyrirskaðaínáttúrunni tj ,• er erfitt að bæta. Ósonlagið hefur 1JOJ^3m0nntlX verið ofarlega á baugi, ofveiði á ---------------------- ýmsum fisktegundum hefur haft Siqurdur HelqaSOn slæmar afleiðingar og þannig hafa ___________.__________ afdrifarík áhrif á aíkomu margra þjóða það Ættum viö íslendingar að skilja. Iðunn hefur gefið út bókina Bjargið jörðinni. Skráður höfundur hennar er Jonathon Porrit, mikill áhugamaður um umhverfismál. Bókin er hins vegar samsett úr greinum eftir mjög marga, bæði sérfræðinga og áhuga- menn á sviði líflræði og um umhverfisverndar. Formáli bókarinnar er eftir Karl Bretaprins, en inngang skrifar Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. Þar fjallar hún um sinnuleysi mannanna gagnvart jörðinni og þá staðreynd að löngum hafa trúarbrögð heimsins gert ráð fyrir eins konar guðlegri ímynd jarðarinnar. Hins vegar hafi mönnunum á einni öld tekist að valda svo miklum skaða á jörðinni, að í raun sé hann óbæt- anlegur. Ákall til mannkyns Segja má að þessi bók sé eins konar ákall til mannkyns um að það leggi sitt af mörkum til að bjarga jörðinni og þeim auðævum sem hún býr yfir. Mikilvægt sé að menn lifi í sátt við jörðina og náttúruauðævin og nýti hana af skynsemi. Auk aðalhöfundar skrifar á annan tug sálfræðinga kafla um einstök svið og auk þess skrifa fjölmargir heimsþekktir einstaklingar stutt ávörp. Má þar nefna stjórnmálamenn, vísindamenn, fiölmiðlamenn og lista- menn. Til að nefna einhver nöfn má minnast á Paul McCartney, Peter Ustinov, Gro Harlem Brundtland og marga fleiri. Þarna er í einni bók gefin nokkuð ljós mynd af ástandi lífheimsins og sums staðar er hún máluð nokkuð sterkum litum enda nauðsynlegt til að vekja athygli á þróun mála. Það vekur athygh íslendings að sjá stutta grein um samtök Grænfrið- unga, Greenpeace þar sem þau eru lofuð í hástert. Einhvem veginn hef • ég á tilfinningunni að ekki séu allir landar mínur á sama máli og kannski er óhætt að fullyrða að þau hafi farið fullgeyst í baráttu sinni. Hugsjóna- menn þurfa nefnilega að fara að öllu með gát og enda þótt virðing fyrir náttúrunni og dýrum sé góðra gjalda verð má það ekki bitna á lífshagmun- um þjóða, eins og raunin var með herferð gegn veiðimennsku þjóðar- brota á norðurslóð. Fyrir þær var afsökunarbeiöni eftir að búið var að setja allt þeirra efnahagskerfi á annan endann heldur lítils virði. Bent er á lausnir Mannkyninu hafa verið færð mikil völd. Það er skylda þess að fara vel með þau og gæta þess aö jörðinni sé ekki eytt. Staðreyndin er nefnilega sú að þetta er sú eina sem við eigum og að hún er óbætanleg. Hún er í raun sú auðlegð sem skapar okkur skilyrði til lífs, bæði í efnahagslegu ot lífíræðilegu tilliti. Eitt af því sem er sérstaklega ánægjulegt varðandi þessa bók er að ekki er eingöngu lýst slæmu ástandi heldur er eirinig bent á lausnir á vandamálum. Þannig er mengum af völdum bifreiöa stórt vandamál víða í stórborgum erlendis og er því vel lýst en einnig er getið um bestu leiðina tft úrbóta í þeim efnum en hún er að efla og bæta þjón- ustu almenningsfarartækja. Með því má án efa draga úr umferð einka- bíla og þar með mengun. En einkabíllinn er kominn til aö vera og því þurfa menn að átta sig á hvernig annars vegar er hægt að draga úr umferð og hins vegar hvernig hægt er að draga úr skaða af völdum bíla. Þar kemur til mengunarvarnabúnaður í bóla og notkun blýlauss bensíns. Bjargið jörðinni er áhugaverð bók. Hún þjónar án efa vel þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar. Það þarf áreiöanlega að íhuga vel það sem þar er sagt en ekki líta á það sem einn stóran sannleika. Þýöingu bókarinnar önnuðust Ásthildur Kjartansdóttir og Óskar Ingi- marsson. Hún er vel unnin. Myndir undirstrika texta bókarinnar og vel valdar. Prentun og allur frágangur gerir bókina í senn fallega og eigu- lega. Og td að misbjóða ekki náttúrunni var reynt að nýta efni sem valda litlum eða engum skaöa við vinnslu hennar. Porrit, Jonathon: Bjargiö jörðinni. Reykjavik, Iðunn, 1991.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.