Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 4
ropt íTISHM.'íRflfT V HIÍDAnHAOlIA.T
4 ' - ^ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1991.
Fréttir
Nær ekkert
af tillögum
Þorsteins
er í band-
orminum
Þaö vakti athygli, þegar forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson, flutti
bandormsræðu sína í gær og vék að
ýmsum nauðsynlegum efnahagsað-
gerðum, að hann nefndi enga af þeim
tillögum tíl aðstoðar sjávarútvegin-
um sem Þorsteinn Pálsson hefur ver-
ið með nema að fella niður greiðslur
í verðjöfnunarsjóð á næsta ári.
Davíð sagði að afkoma fyrirtækja
í sjávarútvegi verði væntanlega 3
miiljörðum króna lakari á næsta ári
en í ár vegna aflasamdráttar. Hann
sagði að vanda sjávarútvegsins
mætti rekja til tveggja ástæðna. Ann-
ars vegar tekjuskiptingavandamál
milli útgerðar og fiskvinnslu í landi.
Hins vegar fjárfestingu í sjávarút-
vegi, fjölda veiöiskipa og vinnslu-
stöðva sem miðast við meiri afla en
nemur afrakstursgetu fiskimiðanna
nú og í framtíðinni.
Almennar skuldbreytingar
Síðan sagði Davíð:
„Aðgerðir . stjómvalda verða að
taka miö af þessum orsökum. Annars
vegar verða aðgerðimar að miðast
við aö jafna afkomumöguleika í veið-
um og vinnslu, meðal annars með
eflingu fiskmarkaða og aðgerðum til
að bæta samkeppnisstöðu fisk-
vinnslu í landi miðað við fiskvinnslu
á hafi úti og útflutning á óunnum
fiski. Hins vegar verða aliar aðgerðir
stjómvalda til skamms tíma, t.d.
hugsanlegar lánveitingar eða frestun
á afborgunum lána, að taka mið af
því að þær torveldi ekki óhjákvæmi-
lega hagræðingu í sjávarútvegi þar
sem atvinnugreinin lagar sig að af-
kastagetu fiskimiðanna með því aö
fækka fiskiskipum og vinnslustöðv-
um.
Hann sagði aö skuidbreytingar þær
sem gripið yrði til yrðu að vera al-
mennar og ekki bundnar eingöngu
við atvinnutryggingadeild Byggöa-
stbfnunar. -S.dór
Forsætisráðherra boðar frekari niðurskurð:
Framkvæmdir og
landbúnaður í sigti
Davíð Oddsson forsætisráðherra
boöaði enn frekari niðurskurð ríkis-
útgjalda en fram komu í frumvarpi
til laga um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um sem hann mælti fyrir í gær. í því
fmmvarpi er gert ráð fyrir niöur-
skurði upp á 1,8 milljarða króna.
Skera þarf niður um 2 til 3 milljarða
í viðbót.
Forsætisráðherra skýrði ekki frá
því í ræðu sinni hvað yrði skorið
niður til viðbótar enda mun það ekki
endanlega frá gengið. Á næturfundi
ríkisstjómarinnar í fyrrinótt var
þetta mál til meðferðar. Enn frekari
vinnufundir ríkisstjómarinnar um
niðurskurðinn verða um þessa helgi.
Þaö sem helst er rætt um núna er
niðurskurður á opinberum fram-
kvæmdum. Þar em vegafram-
kvæmdir hvers konar ofarlega á
blaði, enda dýr og stórtækur mála-
flokkur. Nefnt hefur verið að fresta
jarðgangagerð á Vestfjörðum en það
mætir þó harðri andstöðu víða.
Frestun annarra vegaframkvæmda
er einnig inni í myndinni.
Þá er litið til landbúnaðarins, enda
af hárri upphæð að skera. Þar ræða
menn um aö afnema útflutningsbæt-
ur á osta og ýmsar aðrar útflutnings-
bætur. Þá er verið að skoða enn frek-
ari niðurskurð í heilbrigðiskerfinu
en þar hefur þegar mikið verið af
tekið og því myndi frekari niður-
skurður mæta harðri andstööu víða.
Skerðing eða afnám skattaafsláttar
sjómanna er aftur komin upp á borð
ríkisstjómarinnar. Nokkrir þing-
menn Alþýðuflokksins standa þó þar
harðir á móti. Frekari niðurskurður
í menntakerfmu er til umræðu en
þykir þó fremur hæpinn.
Þá er einnig rætt um sölu á fleiri
ríkisfyrirtækjum en gert er ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpinu. Inni í því
dæmi em meðal annars Síldarverk-
smiðjur ríkisins.
Til stendur að taka breytt fjárlaga-
fmmvarp til 2. umræðu næstkom-
andi þriðjudag og þá verða þessar
nýju niðurskurðartillögur að hggja
fyrir.
-S.dór
Bandormurinn:
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra hvíslar hér að Þorsteini Pálssyni sjáv-
arútvegsráöherra undir umræðunum um „bandorminn" í þinginu í gær.
DV-mynd GVA
Fæddist lítil mús
- sagöiSteingrímurHermannsson
Eins og vepja er, þegar ríkisstjórn að taka við hlutverki ríkisábyrgðar-
leggur fram efnahagsmálafrumvarp, innar, sjóð sem atvinnuvegirnir ættu
fann stjómarandstaðan bandorms- aö mynda. Hann sagöist vera sam-
frumvarpinu flest til foráttu. mála Þorsteini Pálssyni um að það
Steingrímur Hermannsson, for- þyrfti handleiðslu til að ná vöxtun-
maður Framsóknarflokksins, sagði um niður.
að Davíð hefði fyrir nokkru verið . Steingrímur J. Sigfússon var tals-
búihn að boða mikið mál sem þetta maður Alþýðubandalagsins. Hann
frumvarp væri og viðtengdar efna- gagnrýndi allt í frumvarpinu og tal-
hagsráðstafanir en svo hefði bara aði vel á þriðju klukkustund. Mest
fæðst lítil mús. gagnrýndi hann niðurskurð í skóla-
Steingrímur gagnrýndi margt í málum, að leggja niöur ríkisábyrgð
frumvarpinu og sagði að aögerða- á laun og niðurskurð á viðhengjum
leysi ríkisstjórnarinnar stefndi nú búvörusamningsins sem síðasta rík-
þjóðarsáttinni í voða. Hún væri að isstjórn gerði.
egna til ófriðar á vinnumarkaði. Talsmaður Kvennalistans var
Mest gagnrýndi Steingrímur þá Kristín Ástgeirsdóttir og talaði á
ákvörðun að leggja niður ríkisábyrgð svipuðum nótum og aðrir stjórnar-
á laun en mynda þess í staö sjóð til andstæðingar. -S.dór
Davíð Oddsson forsætisráðherra 1 bandormsræðu sinni á Alþingi:
Stef nt að enn frekari niður
skurði ríkisútgjaldanna
- staðfesti að ríkisstarfsmönnum yrði fækkað um 600 á næsta ári
Davíð Oddsson forsætisráðherra
mælti í gær á Alþingi fyrir frum-
varpi til laga um ráðstafanir í ríkis-
fjármálum fyrir árið 1992. Þetta laga-
frumvarp er gjarnan kallað band-
ormur vegna þess að í því er safnað
saman fjölmörgum lagabreytingum
til að koma fram sparnaðarráðstöf-
unum ríkisstjómarinnar.
Davíð rædði vítt og breitt um þær
ráðstafanir sem væri búið aö gera
og boðaði enn frekari ráðstafanir.
Fækkað um 600
Meðal þess sem hann nefndi í nið-
urskurðartillögum stjómarinnar er
fækkun ríkisstarfsmanna um 600
eins og skýrt var frá í DV síðastliðinn
þriðjudag. Hann staðfesti hka í ræðu
sinni aht annað sem í þeirri frétt
stóð. Þar má nefna niðurskurð auka-
vinnu ríkisstarfsmánna, engar nýja
mannaráðningar, niðurskurð á risnu
og ferðalögmn opinberra starfs-
manna og lækkun dagpeninga opin-
berra starfsmanna jafnt sem ráð-
herra.
í ræðu sinni boðaði Davíð enn frek-
ari niðurskurð ríkisfjármála á næsta
ári. Hann sagði að frestun álvers-
framkvæmda og frekari rýmun við-
skiptakjara en áður var áætlaö muni
rýra fjárhag ríkissjóðs um 1,5 millj-
arð króna umfram það sem gert var
ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.
„Þessum vanda mun ríkissjóður
mæta með enn frekari samdrætti í
útgjöldum ríkissjóðs en fjárlaga-
fmmvarpið gerir ráð fyrir,“ sagði
Davíð Oddsson.
Forsætisráðherra sagöi að í spá
Þjóðhagsstofnunar væri gert ráö fyr-
ir meiri fjárlagahalla en er í fjárlaga-
fmmvarpinu vegna minni tekna og
meiri útgjalda ríkissjóðs. Hann sagði
ríkisstjórnina staðráðna í að fjár-
lagahahinn yrði ekki meiri en gert
er ráð fyrir í fiárlagafrumvarpinu en
það em 4 mihjarðar króna.
Frjalst ohaö dagblað
277 TBL - 81 og 17. ÁRG - ÞRIOJUDAGUR 3 DESEMBER 1991 VERÐ I UUSASOLU KR. 115
Tillögur um fimm prósent almennan spamaö í rfkisrekstrmuin á næsta áit
Starf smönnum ríkisins
fækki um sex hundruð
- afnám sjómannaafslAtbir aftur innl i myndinni hjá rikisstjáminni - s)á baksiftu
Eins og hér má sjá skýrði DV frá því á þriðjudag að ríkisstjórnin hygðist
fækka starfsmönnum ríkisins um 600. Davíð Oddsson staðfesti þetta í ræðu
sinni í gær.
Skera þrjá milljarða í viðbót
Samtals mun þetta fjárlagagat, sem
forsætisráðherra er að tala um, nema
um 3 milljörðum króna. Nú vinnur
ríkisstjórnin að því að skera ríkisút-
gjöld niður sem þessu nemur.
Davíð Oddsson sagði að nýjasta spá
Þjóðhagsstofnunar gerði ráð fyrir að
landsframleiðslan drægist saman á
næsta ári um 3,6 prósent og að þjóð-
artekjur minnkuðu um 5,7 prósent.
Viðskiptahallinn-yrði 16 mihjarðar
og atvinnuleysi færi í 2,6 prósent.
Hann boðaði stöðugt gengi og að eitt
helsta viðfangsefni ríkisstjómarinn-
ar yrði að treysta stöðugleika þess.
Forsætisráöherra boðaði að th
stæði að beina fjármagni Fiskveiða-
sjóðs frá því aö lána th skipakaupa
í að efla innlendan fiskiðnaö. Átak í
þeim efnum væri nauðsynlegt í ljósi
nýgerðra EES-samninga. Hann boð-
aði hertar reglur varðandi lán th
skipasmíða. Þvi verði útlánareglum
Fiskveiðasjóðs breytt á þann veg að
opin útboö um smíðina fari fram
áður en lán er veitt. Þar með gefist
innlendum skipasmíðaiðnaði tæki-
færi th að bjóða í verkin.
Forsætisráðherra sagði þessa rík-
isstjórn hafa lagt út í meiri spamað-
araðgerðir en nokkur önnur ríkis-
stjórn hefur gert á undan henni.
„Hún hefur lagt út á alveg nýja
braut og tekist á herðar vandasamara
hlutverk en nokkur önnur ríkis-
stjóm,“sagðiDavíðOddsson. -S.dór