Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR'7. DESEMBER 1991
49
Þaö tók Tómas Jónsson, hinn 17
ára kylfing úr Golfklúbbnum Kib
í Mosfellsbæ, aðeins þijú sumur að
ná þeim áfanga að verða íslands-
meistari í golfi. Ljóst er því að hér
er óvenjumikið efni á ferðinni. Þeg-
ar áhuginn kviknaði átti hann
heima í Reykjavík og til marks um
einbeitinguna má nefna að eftir
skólatíma labbaði hann daglega út
á Miklubraut og fór á puttanum
upp í Mosfellsbæ til að æfa. Slíkur
var áhuginn. Árangurinn lét held-
ur ekki á sér standa því að drengur-
inn var einnig valinn í unglinga-
landsliðið fyrir Norðurlandamótið
á Akureyri síðastliðið sumar.
Spilaði í sveitinni
„Ég fór fyrst í golf með vini mín-
um, Arnari Sigurbjömssyni, 1988.
Hann tók mig með sér út á golfvöli-
inn í Mosfellsbæ og við spiluðum
saman í nokkur skipti og fannst
þetta mjög skemmtilegt. Svo fór ég
í sveit og hafði allan varann á. Ég
tók kylfurnar með mér og spilaði
golf úti á túni hvenær sem færi
gafst.
Ég var ekki alveg sáttur við þess-
ar aðstæður í sveitinni og eftir
tveggja vikna dvöl dreif ég mig
heim og hélt beinustu leið út á golf-
völlinn í Mosfellsbæ, skráði mig í
klúbbinn Kjöl í Mosfellsbæ og þar
hef ég síðan átt mjög skemmtilegar
og lærdómsríkar stundir með mín-
um félögum.
Stutta spilið lélegt
Ég æfði í sumar 2-3 tíma á dag
og að auki styrkingaræfingar. Mín-
ar sterkustu hhðar eru upphafs-
höggin og innáhöggin. Stutta spilið
og púttið er lélegt og er meiningin
að reyna að bæta úr því á næst-
unni.
Úlfar Jónsson er fyrirmynd mín
í sambandi við hugsunarhátt og
Sigurjón Arnarsson hefur bestu
Islandsmeistarinn Tómas Jónsson hefur unnið til margra veglegra verðlauna í golfinu. Hannes Þorsteins-
son, umsjónarmaður unglingamála GSÍ, hefur þetta m.a. að segja um Tómas: „Ég tel Tómas í hópi okkar
efnilegustu kylfinga og ef hann stundar golfið eins samviskusamlega og hingað til mun hann ná langt.“
DV-myndir Hson
sjálfur - og þá eftir hans ráðlegg-
ingum.
Langbesta leiðin til þess að laga
sitt golf er að fá teknar vídeómynd-
ir af sveiflunni og reyna síðan að
bæta stílinn. Garner kemur einnig
mjög mikið inn á sálfræðina sem
er mjög mikilvægt að mínu mati.
, Það er gífurleg samkeppni um að
komast í unglingalandsliðið og er
bara af hinu góða. Ekki er ljóst
hvernig liðið verður skipað á næsta
ári. Ef einhveijir nýir skara fram
úr þá koma þeir að sjálfsögðu til
greina í hðið.
NickFaldofrábær
Af erlendum golfleikurum er
Englendingurinn Nick Faldo í
mestu uppáhaldi hjá mér. Sveiflan
hjá honum er alveg frábær, breyt-
ist aldrei, er alltaf eins. Hann er
eins og vél - mjög jafn spilari og
púttin mjög góð.
Það er alveg ótrúlegt hvað maður
kynnist mörgum krökkum í gegn-
um golfið. Maður þekkir svo til alla
strákana i klúbbunurm Ég er búinn
að keppa mikið og maður kynnist
þessum strákum mjög fljótt.
Það tekur svona um 18 holur að
eignast góðan vin í golfinu. Það
bregst aldrei.
Púttin slæm í
íslandsmótinu
Ég var ekki sáttur við púttin hjá
mér á íslandsmótinu í sumar, þar
af leiðandi hefði skorið getað orðið
betra en ég er mjög ánægður með
heildarútkomuna. Hvaleyrarholts-
völlurinn var í mjög góðu ástandi.
Ég var óvanur svona góðum flötum
og það sló mig svolítið út af laginu.
Ég átti, þrátt fyrir allt, nokkuð gott
skor þessa fjóra hringi, 68-70-75-71
en par vallarins er 68.
Það bjuggust ekki margir við því
að ég yrði Islandsmeistari þar sem
Tómas Jónsson, íslandsmeistari í golfi, 15-18 ára:
Stefnan tekin á
atvinnumennsku
- það tekur aðeins 18 holur að eignast góðan vin, segir Tómas
Sandgryfjur hafa aldrei verið nein hindrun fyrir Tómas, eins og sjá má.
sveifluna, að mínu mati.
Þessir tveir golfleikarar eru samt
mjög miklar andstæður. Mér finnst
Úlfar hugsa mjög rökrétt og hann
pæhr rosalega í þessu en Siguijón
er meira eins og vél - hann slær
bara en höggin eru óneitanlega frá-
bær. Úlfar hefur reyndar mjög góða
sveiflu.
Langar til Ameríku
Það sem er framundan hjá mér
er að klára menntaskólann sem
ahra fyrst, drífa námið af og kom-
ast síðan út til Bandaríkjanna, það
er engin spurning - út að spila og
æfa og reyna að ná einhverjum
verulegum árangri. Það er ekki
hægt að vera golfari á íslandi. Það
er ekki möguleiki. Maður nær aldr-
ei neinum árangri með því að æfa
aðeins fjóra mánuði á sumri.
Ég var búinn að æfa mjög vel
fyrir Norðurlandamótið á Akur-
eyri síðasthðið sumar því meining-
in var að reyna að standa mig vel
- til dæmis hljóp ég mikið. Við átt-
um að fara norður á þriðjudegi en
á sunnudagsmorgni fékk ég heift-
arlegt botnlangakast og var drifinn
strax upp á spítala og var kominn
á skurðarborðið á hádegi.
Á mánudeginum jafnaði ég mig
og fór svona að hugleiða hvort ég
ætti ekki bara að drífa mig til Akur-
eyrar. Það væri ómögulegt að hggja
svona - og það varð úr að á þriðju-
dagsmorgni tók ég fyrsta flug norð-
ur. Þegar þangað kom fór ég beint
út á golfvöll að spila og reyna að
styrkja mig. Meiningin var aö
reyna aö vera með, þó það væri
náttúrlega lítill sem enginn mögu-
leiki. Það kom líka á daginn en ég
var þó í hópnum og labbaði með
strákunum og reyndi að styðja við
bakið á þeim eftir megni.
Stefni í
atvinnumennsku
Ég hef tekið stefnuna á atvinnu-
mennsku, þaö er engin spuming.
Þó líkurnar séu kannski ekki mikl-
ar verður maður að setja markið
hátt til að ná einhverjum árangri.
Það þarf mikla þolinmæði th að ná
árangri í golfi og rosalega mikla
æfingu - þetta er alveg ótrúlegt.
Ef maður missir til dæmis viku úr
þá er maður í mjög slæmum mál-
um.
Sjálfsaginn þarf hka að vera í
lagi, að hafa góðan hemh á skapinu
og hugsa rétt. Ef maður er skap-
vondur er aht glatað. Ég hef verið
blessunarlega laus viö það í sumar.
Hið sama er ekki hægt að segja um
tvö árin á undan. Enda ber árang-
urinn hjá mér í sumar þess glöggt
vitni. Það getur oft verið mjög erf-
itt að halda stihingu sinni í golfi
og maður er í sífelldri baráttu við
sjálfan sig.
Það eru mjög margir efnilegir
unghngar að koma upp núna - og
þá einna helst í yngstu flokkunum,
14 ára og þaðan af yngri. Til marks
um það get ég nefnt mörg dæmi
um 12 ára stráka sem eru með 10-11
í forgjöf - sem er alveg ótrúlegt.
Talandi um framfarir held ég að
unghngalandshð á næsta ári verði
það sterkasta frá upphafi. Það hð
fær að öllum líkindum að spreyta
sig á Evrópumótinu og Norður-
landamótinu. Ég er þó ekki alveg
klár á því. Svo eru náttúrlega hin
heíðbundnu mót hér heima mjög
skemmtileg.
John Garner þjálfar
okkur í vetur
Unglingalandshðið mun æfa í
vetur, að öllum líkindum undir
stjórn John Gamers. í vor mun
hann svo hætta með okkur að
mestu leyti. Ég er mjög sáttur við
þetta fyrirkomulag því að mér
finnst alveg nóg að vera í kennslu
yfir veturinn - en ekki vera að
drattast með kennara yfir allt sum-
arið. Frekar aö stúdera þetta bara
aðeins þrjár vikur voru frá því ég
var skorinn upp. En það tókst og
ég er að sjálfsögðu mjög ánægður
með tithinn og reyndar keppnisár-
ið. Ég lækkaði til að mynda í for-
gjöf úr 6,1 í 3,5 og það er mjög við-
unandi þegar hafður er í huga sá
tími sem ég var frá æfingum og
keppni.
Boltinn heillar mest
„Ég hef alltaf hehlast af bolta-
íþróttum og stundað fótbolta,
körfubolta, handbolta, borðtennis,
billard, bowling - og að sjálfsögðu
golfið sem er auðvitað boltaíþrótt.
Golfið er mest spennandi og mest
vegna þess aö það er endalaust
hægt að bæta sig, tölulega og alla
vega - maður er í stöðugri keppni
við sjálfan sig og aðra - og gefur
það íþróttinni mjög mikið ghdi.“
„Við krakkarnir sem erum í golf-
inu skemmtum okkur rosalega
mikið. Viö höldum vel hópinn og
forum mikið út saman. Skemmt-
anagleðin má þó ekki koma niður
á íþróttinni - þá er aht unnið fyrir
gýg,“ sagði Tómas Jónsson að lok-
um.
Unghngasíðan þakkar hinum
unga golfsnihingi kærlega fyrir
spjahið og óskar honum velfarnað-
ar á golfvellinum í framtíðinni.
Foreldrar Tómasar eru þau Gunn-
iha Skaftason og Jón Jónasson.
-Hson