Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
29
Merming
Bókmenntir
Sigurdór Sigurdórsson
Omar Ragnarsson. Bernskuminningar úr sveit og Holtum.
í þessari bók, sem hann kallar Heit-
irðu Ómar?, velur höfundur þann
kost að skrifa algert barnamál fram-
an af bókinni. Réttritunin er eðlileg
en málfarið er barnamál. Þetta breyt-
ist örlítið eftir sem hann eldist í bók-
inni. Það má deila um þessa aðferð
Ómars en hann hefur þó fullt vald á
þessu. Maður tekur nefnilega eftir
því hægt og hægt að málfarið breyt-
ist en ekki allt í einu. Það er vandi
að fara þessa leið og gera það vel.
Mér þykir sem Ómari hafi tekist
þetta vel.
Ég neita aftur á móti að trúa því
að Ómar muni eftir sér jafnungum
og hann lætur í veðri vaka í bók-
inni. Að hann muni allt það frá því
hann var lítill angi jafnvel og hann
segir. Ég held að fólk rugli oft saman
hvað það man og hvað það hefur
heyrt um sig af vörum foreldra, frá
því að það var smábarn. Þess vegna
þykja mér frásagnir Ómars frá fyrstu
3 til 4 árum hans ósannfærandi.
Þegar hann svo eldist segir hann
frá þessum venjulegu prakkarastrik-
um sem allir litlir strákar upplifa og
smáóhöppum sem allir verða fyrir.
Þá er sagt frá öfum og ömmum, ein-
staka skrítnum eða skemmtilegum
mönnum, upphafi skólagöngu og
dvöl í sveitinni. Margir strákar
dvöldu í sveit á sumrin á þeim árum
sem Ómar var að alast upp. í raun
bætir Ómar engu við það sem nær
allir fimmtugir karlmenn á íslandi
geta sagt frá æskuárum sínum. Aftur
á móti segir hann frá því hvemig
bíladella og jafnvel flugdella hefur
heltekið hann ungan. En eins og allir
vita er Ómar í dag með bestu Ðug-
mönnum og einn besti ökumaður
þessa lands.
Ómar Ragnarsson segir afskaplega
skemmtilega frá í töluöu máli. Hann
segir líka vel frá í rituðu máh. Þess
vegna held ég að hann hefði átt að
velja þá leið aö setja æskuminningar
sínar upp í sögustíl í stað minninga-
stíls. Hendrik Ottosson útvarpsmað-
ur geröi það fyrir fjörutíu árum eða
svo, í bókunum Gvendur Jóns og
Gvendur Jóns og ég. Enda þótt Ómar
geti ef til viil ekki gert jafnvel og
Hendrik, þá er ég á því að hann geti
farið þá leið gert það vel. Bókin hefði
orðið skemmtilegri fyrir bragðið.
Hitt er svo annað mál að Ómar
Ragnarsson er einhver þekktasti
núlifandi maður þessa lands. Þeir
eru því eflaust margir sem hafa
Ví st heitir
hann Ómar
Æth menn að gefa ævisögu sína
út á bók er vanaleg stefnt að því að
sagan rúmist í einu eða ef th vih
tveimur bindum. Það fer dáhtið eftir
því hve merkilegt lífshlaup manna
hefur verið, hve miklu þeir hafa að
segja frá. Þó eru þeir til sem láta sér
ekki duga minna en ein sex th átta
bindi til að segja ævisögu sína og ná
jafnvel ekki að ljúka henni. Þannig
var Guðmundur Hagalín rithöfund- '
ur ekki nema 18 ára þegar sjötta
bindi ævisögu hans lauk.
Ég er á því að Ómar Ragnarsson,
fréttamaður og skemmtikraftur með
meiru, æth að feta sömu slóð, Hann
hefur nú, maður á miðjum aldri, sent
frá sér fyrsta bindi ævisögu sinnar
og er ekki nema 11 ára þegar maður
lokar bókinni. Alhr hljóta að vera
sammála um að þeim mun eldri sem
Ómar verður hafi hann frá meiru að
segja. Þess vegna gætu bindin verið
orðin sjö þegar hann er tvítugur, ef
hann heldur áfram að rita ævisögu
sína.
áhuga á að lesa frásögn hans af
æskuárunum og ég held að enginn
verði svikinn af þeim lestri ef menn
eru ekki að vonast eftir miklu bók-
menntaverki.
Heitirðu Ómar?
Ómar Ragnarsson
Fróði 1991
Ihr mwitst tuita ð» títt'
frarie*<t ril> iu dte
Httritl.
S
k w k
ÚTGÁFUDAGUR
5.12. '91.
'k'k'k'k'k'k'k'k
DESEMBERTILBOD
ÞAR SEM NYJU MYNDIRNAR FAST
MYNDIR
=399 kr
w tí? rtr w w Yír w
Yír w rtr w w w w w w w w
myndbondoieigur
ÁLFABAKKA14 (MJÓDD)
SKIPHOLT 9
BORGARKRINGLUNNI
REYKJAVÍKURVEGI64 Haln.lj.