Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991 Teikning eftir Jörgen Mogensen Ruth Gunnarsen í raun er Jesús vart fæddur í desember. Jólin eru nokkurs konar samruni heiðinnar sól- hvarfahátíðar og kristinnar há- tíðar til aö minnast fæðingar Jesú. Og í jólahaldi okkar gætir enn leifa af gamalli hjátrú. Orðið jól kemurfyrst fyrir í Haraldardrápu (ort um árið 870) þar sem Þorbjöm homklofi segir um Harald hárfagra. Úti á hafi vildi hann drekka jólaskálina, konungurinn kappsmikli sem hugsanlega mun ríkja Af þessu og öðrum gögnum, sem síðar komu fram, er ljóst að jóhn í fornöld og á miðöldum hafa verið sólhvarfahátíð, þar sem að minnsta kosti yfirstéttin fagnaði afturkomu ljóssins með drykkjarveislu. Víkingamir „blótuðu jóhn“, færðu heiðnu guðunum fórnir og drukku þeim til heiðurs, meðal annars til að tryggja góða uppskeru og góðan feng í víkingaferðum komandiárs. Þegar um 400 segir Jóhannes Chrysostomos kirkjufaðir frá kristnum jólum sem „hátíð ahra hátíða“ og þegar hugsað er tíl þess að jóhn í kristni eru th að minnast fæðingar Jesú er ekki erfitt að skilja þetta. í raun er Jesús þó tæplega fæddur í desember en jafnvel fyrstu leiðtogar kirkjunnar gerðu sér grein fyrir því að auð- veldara yrði að boða kristna trú ef sýnt væri umburðarlyndi vegna siða og hefða sem heiðiö fólk hafi þekkt kynslóö eftir kynslóð. Þess vegna var róm- verska Satúmhátíðin, sem haldin var í lok desember, árið 354 látin renna saman við fæð- ingarhátíð Jesú og þar með gerð aðkristinnihátíð. 24. desember, aðfangadagskvöld í Danmörku varð heiðna sól-" hvarfahátíðin að jólahátíð um árið 1000. Kirkan boðaði ein- faldlega að halda skyldi fæðing- arhátíð jesú 25. desember. Og eins og venja var með flestar aðrar hátíðir var hún látin hefj- ast kvöldið áður. Þannig kom aðfangadagskvöldið til. Menn héldu þó áfram að halda „gam- aldags" jólahátíðir þar sem oft var bæði mikið um leiki og drykkju. Þetta leiddi til elstu kirkjutil- skipana danskra sem varðveist hafa. Þær eru frá því eftir 1100. Þaö eru ströng lög sem kveða á um algeran frið og ró jóladag- Jólasaga nr. 2 ana, það er frá 25. desember til 6. janúar. Almenningur átti hins vegar erfitt með að skilja höft kirkjunnar því fólk hafði ætíö borðað, drukkið og gert sér glaöan dag á jólunum, og hvað gat verið rangt við það? Andlegu leiðtogamir reyndu einnig að fá nafni j ólanna brey tt í Kristsmessu. En það tókst ekki í Danmörku. Við héldum fast við nafnið jól. Um þetta leyti gekk kirkjunni betur á Eng- landi þar sem almenningur fór, um 1200, að kalla jóhn Christ- mas. Þegar á allt er litið vom dönsku jóhn nokkurs konar samruni af heiðnum og kristn- um sið. Fólk sótti kirkju eins og prestar mæltu fyrir um og á eftir fór það heim til sín og hélt sólhvarfahátíð að gömlum og góðum sið. En árið 1536 kom siðabótin og í kjölfarið, um 15 árum síðar, fylgdi svo heittrúarstefnan, hin stranga guðhræðslustefna. Það var fyrst þá að hin gömlu jól, sem einkenndust svo mjög af heiðnum siö, tóku breyting- um. Hjátrú og viðvaranir Á aðfangadagskvöld var gert hreint í fjárhúsinu og séð til að þar væri nóg af hreinum hálmi og dýrum gefið rausnarlega. Fólk trúði því nefnilega að dýr- in gætu talaö á jólanótt. Og væri ekki allt eins og það ætti að vera myndu þau tcda illa um húsbóndann og heimafólkið. Þá þurfti einnig að taka tillit til „neðanjarðarbúanna". Margt og mikið varð á sig aö leggja til að forðast eyðilegging- armátt þeirra. Húsbóndinn varö til dæmis aö setja stál fyr- ir fjárhúshurðina og núa átti tennur nautpeningsins með salti og sóta því þá gætu neðan- jarðarhúamir ekki gert dýrun- um mein. Og flytja varð plóga, herfi og önnur laus tæki í hús þar eð skósmiðurinn frá Jerú- salem - gyðingurinn gangandi - var á ferð þessa nótt. Settist hann á eitthvert tæki til að hvíla lúin bein yxi ekkert á þeim akri áriö eftir. Allt úr jámi bjó yfir miklum mætti, svo að fyrir utan stáhð á fjárhúshurðinni átti að setja ljá í komið, exi í mykjuhauginn oghnífíþakskeggiö. Hvar sem var mátti búast við að hættulegar vemr væm á ferð. Sagðar voru óteljandi sög- ur af helfákum, tröllum, norn- um, ihskeyttum búálfum, vætt- um og öðrum hættulegum neð- anjarðarbúum sem oUu slysum á fólki sýndi það ekki þá varúð að grípa til réttra úrræða. Húsmæðurnar og stúlkurnar áttu meðal annars að sjá til þess að þvottur væri hreinn og þurr fyrir jólin. Þá mátti aUs engin flík úti hanga - af því: Sá sem þurrkar tau á jólunum mun klæða lík áöur en árið er úti. Á aðfangadagskvöld var „sláttukerlingin", síðasta bind- ið af akrinum, aftur tekin fram. Það skyldi vera gjöf bóndans til fuglanna. Þegar kirkjuklukk- umar hringdu jólin inn gekk hann út og kom bindinu fyrir á háumstað. Við jólaborðið varð einnig að fylgja siðum. Áður en jólatréð kom almennt til sögunnar á dönskum heimUum um 1900 stóð máltíðin á aðfangadags- kvöld mjög lengi því fólk trúði því að sá sem fyrstur hætti að borða myndi deyja áður en næsta ár yrði á enda. Aðfanga- dagskvöld var líka sérstakt því aUir sátu til borðs í einu og var áþvíhafðurdúkur. Að máltíðinni lokinni mátti ekki taka dúkinn af borðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.