Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 46
58 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. Ömólfur Ámason á slóð kolkrabbans í nýrri bók: Hertoginn af Ægissíðu sér um háaðalinn ^ - útdráttur úr bókinni þar fjallað er er um íslenskan aðal og flugbjörgunarsveitina í bókinni segir að enginn velkist í vafa um að Halldór H. Jónsson sé „grand old man“ í Eimskipafélagi íslands og þeim fyrirtækjum sem Eimskip ræður fyrir að miklu eða öllu leyti. „Stjórnarformaður íslands" sé þó farinn að minnka við sig stjórnarstörfin, rifa seglin, enda verði hann áttræður á næsta ári. DV-mynd Brynjar Gauti I bókinni, Á slóð kolkrabbans, leitast Ömólfur Ámason við að svara þeirri spumingu hvort nokkrar fjölskyldur ráði háskalega miklu á íslandi í krafti gífurlegra eigna og sam- tengdra hagsmuna. Órnólfur spyr hvort títtnefndur kolkrabbi sé í raun til eða hvort hann sé hugarburður. Samstarfsmaður Örnólfs er Nóri og hann heldur því fram að valdataum- ar í stærstu fyrirtækjum lands- manna, jafnvel heilar atvinnugrein- ar, séu í höndum örfárra einstakl- inga sem fæstir hafa heyrt getið. Við grípum niður í bók Ömólfs þar sem hann fjallar um íslenskan aðai og svo í kaflann Flugbjörgunarsveitin þar > sem Arnarflug kemur við sögu. „Stjórnarformaður íslands" Hall- dór H. Jónsson, er talsvert farinn að minnka við sig stjórnarstörfin enda verður hann áttræður árið 1992. Til dæmis hefur hann látið af stjórnar- formennsku í íslenska álfélaginu en því embætti gegndi hann frá stofnun félagsins. Hann heldur þó áfram í stjómartaumana á Sameinuöum verktökum sem ráða yfir svimandi fjármagni og hafa fjárfest víða á und- anfomum ámm. Halldór H. situr líka __^enn í stjórn Skeljungs og margra annarra fyrirtækja en það má hafa til marks um að hann er farinn að rifa seglin, að hann virðist ekki hafa kært sig um að setjast í stjórnir eign- arhaldsfélaga einkabankanna eða ís- landsbanka enda þótt Eimskip og Sameinaðir verktakar séu meðal stærstu eigertda. Yfirmenn með lotningarsvip Það þarf þó enginn að velkjast í vafa um það hver sé leiðtoginn og ygrand old man“ í Eimskipafélagi fslands og þeim fyrirtækjum sem Eimskip ræður fyrir aö miklu eða öllu leyti. Halldór nýtur hyldjúprar virðingar og yflrmenn Eimskipafé- lagsins fá sérstakan lotningarsvip á andlitið ef þeir taka sér nafn hans í munn. Og svo mikið er víst að í þess- um fyrirtækjum taka menn engar ákvarðanir af mikilvægara tagi, svo sem um meiri háttar fjárfestingar, val æðstu stjómenda eða tilnefningu nýrra manna í stjóm, nema Halldór H. hafi um þær fjahað. Stjóm Eimskips Halldór H. Jónsson (f. 3.10. 1912) hefur setið í stjóm Eimskipafélagsins síðan árið 1965 og tók við for- mennsku árið 1974 af Einari Baldvin ■ Guðmundssyni hrl. sem gegnt hafði því starfi um tuttugu ára skeið. Thor Ó. Thors er fæddur 31. mars 1922, sonur Ólafs Thors, hins glæsi- lega leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, síðar forsætisráðherra. Thor Ó. er framkvæmdastjóri og meðstjórnandi undir formennsku Halldórs H. í Sam- einuðum verktökum en Halldór H. er meðstjórnandi undir formennsku Thors Ó. í íslenskum aðalverktök- um. Þá er Thor Ó. stærri hluthafi en Indriði Pálsson í Skeljungi þar sem Indriði er formaður, Thor 0. vara- Jormaður og Halldór H. meðstjóm- andí. Thor Ó. heitir í höfuðið á afa sínum, Thor Jensen, sem var for- maður undirbúningsnefndar að stofnun Eimskips. Thor Jensen var hins vegar látinn gjalda dansks upp- runa síns og náði ekki kjöri í fyrstu sfjóm félagsins. Sámaði Thor að vonum þetta grunnhyggna ofstæki, því auðvitað var hann íslenskari en flestir Islendingar. Thor mislíkaði svo alvarlega að hann kom aldrei nálægt Eimskipafélaginu upp frá því. Hins vegar var Richard, sonur Thors Jensen, í stjóm Eimskips frá 1930-1962 og tengdasonur hans, Guð- mundur Vilhjálmsson, var forstjóri félagsins lengur en nokkur annar maður, eða 1930-1962. Sonur Ric- hards, Thor R. Thors, tók við ritara- embætti af foður sínum 1962 og sat í stjórn Eimskips til dauðadags árið 1986. Þá kom Thor Ó. í hans stað. Jón Ingvarsson er stjórnarformað- ur Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna sem er næststærsta fyrirtæki landsins og velti 17,5 milljörðum árið 1990. Hann er sonur Ingvars Vil- hjálmssonar útgerðarmanns, sem var einn af stærstu hluthöfum Eim- skips og sat í sfjórn þess til 1984, er hann sagði af sér fyrir aldurs sakir, og var þá Jón tilnefndur í hans stað. Það mun hafa verið Ingvar sem studdi góðvin sinn Halldór H. til stjórnarsetu árið 1964. Eftir að Hall- dór H. var orðinn formaður 1974 gegndi Ingvar varaformennsku um árabil. Jón Ingvarsson er stjómar- maður í stærsta fyrirtækinu í ís- lenskum sjávarútvegi, Granda, sem upphaflega varð til við sameiningu föðurarfs Jóns, ísbjarnarins, sem þá var um það bil að fara á hausinn, og Bæjarútgerðar Reykjavíkur fyrir at- beina Davíðs Oddssonar. Jón er víða annars staðar í sfjóm, svo sem í Tryggingamiðstöðinni og í fjárfestin- arfyrirtækinu Frumkvæði ásamt Ól- afi Ó. Johnson, Benedikt Sveinssyni og Ingimundi Sigfússyni. Þá situr Jón í stjóm Fiskveiðasjóðs sem t.d. er stærsti hluthaíi íslandsbanka. Engeyjarættin Benedikt Sveinsson er elsti sonur Sveins Benediktssonar og núverandi „oddviti" Engeyjarættarinnar í við- skiptalífinu en vegur þeirrar ættar fer enn vaxandi á hinum ýmsu svið- um þjóðlífsins, í stjómmálum, at- vinnulífi og dómskerfi. Halldór Kr. Þorsteinsson í Háteigi, eiginmaður Ragnhildar móðursystur Sveins, sem var nokkurs konar guð- faðir hans á vettvangi atvinnulífsins, sat í stjórn Eimskips allar götur frá 1916 til 1953 og var ein helsta driffjöð- ur félagsins. Þá var Bjami Bene- diktsson, fóðurbróðir Benedikts, varaformaður stjórnarinnar frá 1954 og til ársins 1964 er hann sagði af sér vegna þess að hann hafði verið skip- aður forsætisráðherra. Afi Benedikts og alnafni, Benedikt Sveinsson, alþingismaður og þing- forseti, var ekki stór hluthafi í Eim- skipafélaginu en hann hlýtur að hafa látið sér annt um félagið og notið þar trausts og virðingar því að hann var til dæmis fundarstjóri á aöafundum þess árin 1943 og 1944. Benedikt Sveinsson er stjórnar- formaður Sjóvár-Almennra, lang- stærsta hluthafa Eimskips, en Einar bróðir hans er forstjóri tryggingafé- lagsins. Sjóvá keypti, eins og fyrr segir, hlutabréf ríkisins í skipafélag- inu af Albert Guðmundssyni á sínum tíma og kom Benedikt inn í stjómina á næsta aðalfundi á eftir, árið 1986, í stað Halldórs E. Sigurðssonar sem verið hafði fulltrúi ríkisins. Bergs og Ragnars Jón H. Bergs (f, 14.10.1927) er lög- fræðingur að mennt, fyrrverandi for- stjóri Sláturfélags Suðurlands og að- alræðismaður Kanada á íslandi síð- an 1975. Hann er sonur Helga Bergs, forstjóra Sláturfélags Suðurlands og konu hans Elínar Jónsdóttur Thorst- ensen. Bróðir Jóns H. var Helgi H. Bergs, framámaður í Framsóknar- flokknum, bankastjóri Landsbank- ans. Jón H. Bergs var um langt ára- bil í forystusveit Vinnuveitendasam- bands íslands og um skeið formaður framkvæmdastjómar þess. Hann hefur setiö í stjóm Eimskips frá 1981. Gunnar Ragnars er forstjóri næst- stærsta útgeröarfyrirtækis á íslandi, Útgerðarfélags Akureyringa, fyrr- verandi forstjóri SUppstöðvarinnar á Akureyri og forseti bæjarstjómar Akureyrar. Gunnar er stjómarmað- ur í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og stjómarformaður Umbúðamið- stöðvarinnar sem aðildarfyrirtæki SH eru skylduð til að kaupa allar öskjur af. Gunnar var kjörinn í stjóm Eimskips á aðalfundinum 1987 ásamt Thor Ó. Thors en árið 1986 höfðu tveir stjómarmenn látist, Thor R. Thors og Axel Einarsson hri., sonur Einars B. Guðmundssonar fyrrum stjómarformanns Eimskips, og mág- ur Ólafs B. Thors, forstjóra Sjóvár- Almennra. Hjalti Geir Kristjánsson er sonur Kristjáns Siggeirssonar sem auk umfangsmikillar húsgagnafram- leiðslu og verslunarrekstrar fjárfesti dijúgt í hlutafélögum, einkum og sér í lagi Almennum tryggingum. Hjalti Geir tók við stjórn fyrirtækja fóður síns og var um skeið formaöur Versl- unarráðs íslands. Hjalti Geir var kominn inn í stjóm Eimskips áður en Almennar tryggingar sameinuð- ust Sjóvá. Hann var formaður Al- mennra og gegnir nú eftir samein- inguna embætti varaformanns í stjóm Sjávár-Almennra. Hjalti Geir er ræðismaður Sviss á íslandi. Þvi embætti gegndi Halldór H. Jónsson frá 1964 til 1967 er álverksmiðjan tók til starfa. Eimreiðarhópurinn Baldur Guðlaugsson hæstaréttar- lögmaður tilheyrir svonefndum Eim- reiðarhópi en nær alhr úr þeirri vösku sveit hafa komist til fiár, frama eða frægðar undanfarin ár. Hann rekur málflutningsskrifstofu ásamt Jóni Steinari Gunnlaugssyni sem einnig telst til Eimreiðarhóps- ins. Baldur sat um hríð í stjórn Granda fyrir ísbjöminn, fyrirtæki Jóns Ingvarssonar áður en eignar- hlutur þess minnkaði að hlutfalh. Hann kom inn í stjórn Eimskips á aðalfundinum 1991 og tók við af Pétri Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Landhelgisgæslunnar, sem oröinn var áttræður og hafði setið óshtið í 38 ár. Baldur er stjórnarformaður Hluta- bréfasjóðsins hf. sem var 1991 orðinn 8. stærsti hluthafi Eimskips og hafði keypt u.þ.b. 1% af hlutafé félagsins milli ára. Baldur er einnig stjómar- formaður Hlutabréfamarkaöarins hf. Með Baldri í stjóm þessara félaga em m.a. Ami Vilhjálmsson prófess- or, Ragnar S. Hahdórsson í ÍSAL, Ami Ámason í BYKÓ, Bragi Hann- esson, forstjóri Iðnlánasjóðs og stjórnarformaður Hampiðjunnar, Jón Halldórsson, sonur stjómar- fornianns Eimskips, Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verð- bréfamarkaðar íslandsbanka og Pét- ur Blöndal. Hlutabréfasjóðurinn var árið 1991 skyndilega orðinn 9. stærsti hluthafi í Skeljungi svo að ef til vill er þess skammt að bíða að Baldur setjist þar í stjórn. Þá yrði hann fjórði maður- inn til að eiga sæti í stjómum beggja þessara félaga. Hinir eru Halldór H. Jónsson, Indriði Pálsson og Thor Ó. Thors. Hörður Sigurgestsson hefur verið forstjóri Eimskips síðan árið 1979. Skammtar mönnum aðalstign í Bretlandi eru aðalstitlar enn þann dag í dag notadijúgir í viðskiptalíf- inu, segir Nóri: Þaö þykir helvíti gott að hafa lávarðanöfn á bréfhausum fyrirtækja. Aðalsmenn eru brúkaðir í stjórn og hsti yfir stjórnarmenn prýðir bréfsefnið. Að komast í stjórn Eimskipafélags íslands er líkast þeirri-sæmd aö vera dubbaður til jarls eða vísigreifa. í Bretlandi er svo líka lágaðall. Riddaralið. Karlamir fá „Sir“ fyrir framan nafnið sitt og kerhngarnar „Lady“. Elísabet drottning hefur það djobb að útdeila öllum þessum ijómakökum, bæði þeim stóru og smáu. En Vigdís Finn- bogadóttir annast bara lægri sæmd- argráðumar hér. Krossfiskana. Á íslandi er það Halldór H. Jónsson, hertogi af Ægissíðu, sem skammtar mönnum aðalstign. Hann sér um háaðahnn. Flugbjörgunarsveitin Ljóst er aö lokaþáttur Arnarflugs, bæði tildrög hans og ef til vih hka margt í atburðarásinni, hlýtur að skrifast að einhveiju leyti á kostnað stjórnvalda. Framsóknarmenn, sem höföu forsæti í ríkisstjóm, þegar sá þáttur hófst, vora auðvitað nyög áhugasamir að bjarga hagsmunum sinna manna, sem höföu lagt mikið undir í Amarflugi og allt komið í strand. Að sögn viðmælenda okkar Nóra, lofaði Steingrímur Hermanns- son forvígismönnum „björgunar- sveitarinnar", nýju hluthöfunum, sem komu inn í Arnarflug 1986, gulh og grænum skógum. Þetta voru aðallega sjálfstæðis- menn. En þeir segja að það hafi orð- ið minna um efndir, „eilífur undan- sláttur og tafir á afgreiðslu". Ekki vegna þess að Steingrímur hafi ekki vhjað hjálpa þeim. Enda vita ahir að Steingrímur er drengur góöur. Held- ur segja þeir að ahs konar aðhar, bæði stjómmálamenn, embættis- menn, bankamenn og menn úr einkageiranum hafi eilíft náð að setja fótinn fyrir aha þá aðstoð sem nægt heföi til að halda Amar- flugi á floti og skapa heilbrigða sam- keppni á sviði farþegaflugs íslend- inga. Aðurnefnd björgunarsveit var skipuð níu kaupsýslumönnum. Þeir vom: Hörður Einarsson, Fijálsri Fjölmiðl- un, DV, Sveinn R. Eyjólfsson, Fijálsri Fjölmiðlun, DV, Helgi Jóhannsson, Samvinnuferðum, Guðlaugur Berg- mann, Karnabæ, Magnús Gunnars- son, fyrrverandi forstjóri Amar- flugs, Skúh Þorvaldsson, Hótel Holti, Böðvar Valgeirsson, Atlantik, Kon-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.