Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 13
LÁlÍGÁÍtDAGÚR 1. DESfetáfrÉR’l99i:
pv_________________________Sviðsljós
Julia Roberts:
Það var ekki
ég sem sleit
trúlofuninni
Kiefer Sutherland og Julia Roberts með-
an allt lék í lyndi.
Julia Roberts hefur nú lýst því yfir
að það hafi verið Kiefer Sutherland
en ekki hún sem sleit trúlofun þeirra.
Mánuðum saman hefur Juha neitað
að tjá sig um hvað gerðist en nú hef-
ur hún loks ákveðið að binda enda á
orðróminn um að það hafi verið hún
sem á síðustu stundu hætti við gift-
ingu í júni síðastliðnum.
„Ég veit ekki af hverju Kiefer vill
láta það líta út sem það hafi veriö
hann sem var fórnarlambið," segir
hún. „Ég held að hann viti að það
var gott fyrir mig að við skyldum
ekki giftast. En hann ætti ekki að
reyna að koma sökinni á mig.“
Juha segir að snuröa hafi komið á
þráðinn eftir að hún kom heim úr
ferðalagi th Arizona. Orðrómur var
á kreiki um að hún hefði hitt þar
fyrrverandi kærasta sinn, Jason
Patrick. Þegar Juha kom heim var
hún ákveðin í að aflýsa brúðkaupinu
en þegar hún ætlaði að segja Kiefer
það varð hann fyrri tiL „Ég var svo-
htið hissa að hann skyldi verða á
undan en ég sagði ekkert. Og hann
sagði það á leiðinlegan hátt en það
hafði ég ekki ætlað að gera. Svo
hringdi hann nokkrum klukku-
stundum seinna og spurði hvort við
ættum að aflýsa brúðkaupinu eða
ekki. Þá sagði ég það sem ég hafði
ætlað að segja áður.“
Juha gefur í skyn að slúðursögur
fjölmiðla um ástarævintýri Kiefers
meö fatafehunni Amanda Rice hafi
átt stóran þátt í því hvernig fór.
Ráðgert hafði verið að halda brúð-
kaupsveislu fyrir tvö hundruð
manns í Paramount stúdíóinu. Að-
eins tveimur sólarhringum áður en
Julia og Kiefer ætluðu að skiptast á
hringum kom tilkynningin sem féll
eins og sprengja í Hollywood: Brúð-
kaupinu er aflýst.
Sama dag og Juha hafði ráðgert að
ganga í hjónaband fór hún með
Patrick, nánum vini Kiefers, til ír-
lands. Þegar þau komu aftur til
Bandaríkjanna Uutti Juha heim til
Patricks.
Hún vísar því á bug að hún sé í
giftingarhugleiðingum en kveðst
samt aldrei hafa verið hamingjusam-
ari.
Diana hættvið
að skilja
Diana Ross og norski skipa-
kóngurinn Ame Naess em hætt
við að skiija. TU þess að halda
hjónabandínu gangandi æUar
Diana nú að sjá til þess að hún
og eiginmaðurinn hittist oftar.
Hann býr nú í London og þegar
Diana hafði sungið þar á tónleik-
um nýlega efndi hun til veislu á
þekktum næturklúbbi. Þar fór
: það ekki fratn þjá neinurn að enn
er líf í glæðunum því faðmlög
hjónakornanna þóttu innUeg.
LÍ JAPIS
Panasonic VHS MOVIE
Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin færir þig nær raunveruleikanum hvað varðar myndgæði og verð.
Hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum fókus, vegur aðeins 900 grömm og er aðeins 3 lux.
Komið og kynnist þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu ríkari.
Verum hagsýn þessi jól og verslum í JAPIS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
SÍMI 62 52 00