Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 33
r
LAUGARD'AGUR 7. DESESÍBER 1991.
33
Sviðsljós
Stefanía prinsessa syngur rokk:
Iifið er yndislegt
Stefanía prinsessa í Mónakó hefur
veriö á ferðalagi undanfarið með eig-
in rokksýningu. Hún þykir vera afar
sérstök tíl fara og kærir sig kollótta
þótt öllum líki ekki útlit hennar. „Ég
klæðist einungis því sem mér líkar
hverju sinni,“ segir prinsessan og
bætir viö að hún breyti einnig um
greiðslu eftir því hvemig skapi hún
sé í. „Ég hef þó aldrei sett lit í hárið
á mér.“
Stefaníu fmnst ekkert óeðlilegt við
að hún vilji breyta útliti sínu eins
og aðrar stúlkur. „Útlitið skiptir þó
ekki öllu máh heldur hvemig maður
er hið innra," segir hún.
Stefania er 26 ára gömul. Hún seg-
ist elska lífið og tilveruna og njóta
hvers augnabliks. „Það sem mér þyk-
ir vænst um í lífinu getur verið lítill
fugl, tré, bam á götunni sem uilar á
mig. Lífið er unaðslegt allt í kringum
okkur,“ segir þessi lífsglaða prins-
essa í viðtali nýlega.
Hún segist stöðugt vera að upp-
götva eitthvað nýtt hjá sjálfri sér. „Eg
er þakklát fyrir að vera glöð og heil-
brigð og að geta gert allt það sem
mig langar til.“
Stefanía segist lifa fyrir starf sitt
þessa dagana. Hún segist gleyma
allri þreytu og erfiðleikum þegar hún
kemur á svið. „Ég reyni alltaf að sofa
í tíu tíma. Maður verður að sofa mik-
ið til að hafa meira úthald og vinnan
útheimtir mikið. Ég trimma á
morgnana og reyni að byggja mig
upp fyrir þann einn og hálfa tíma
sem ég er á sviðinu."
Stefanía ferðast mikið sem söng-
kona og segist eiginlega hvergi eiga
heima. „Ég kann því ágætlega að
vera á ferðalagi," segir hún. „Hins
vegar þykir mér alltaf vænt um Món-
akó. Þar Uggja rætur rnínar," bætir
hún við. „Einhvemtíma þegar ég hef
fundið mér mann og fer að eignast
börn mun ég búa mér til heimiU á
einum ákveðnum stað. Ég vU gjaman
eignast börn. Eiginmaðurinn verður
að vera ýmsum góðum kostum bú-
inn.“ v
Erlend slúðurblöð hafa margsinnis
bendlað Stefaníu við hina og þessa
karlmenn. Hún segir að blöðin séu
iðin við að búa til ástarsambönd. „Ég
má ekki sitja nálægt manni á strönd-
inni öðruvísi en við séum saman í
blöðum næstu daga á eftir. Ef ég
hefði verið í írak þegar stríðið var
þar hefðu blöðin áreiöanlega sagt
mig vera ástkonu Saddams Hussein."
Stefanía segist hafa yndi af góðum
bókum en hafi ekki mikinn tíma til
að lesa. „Það er helst í Uugvélum sem
ég tek upp bók.“
Hún segist ekki vera hrædd við að
eldast. Og hrukkur eru lítið vanda-
SJÁUMST
MEÐ ENDURSKINI
ll
UMFERDAR
RÁÐ
- syngur prinsessan
mál í hennar augum. „Hrukkur
koma með auknum þroska ef það eru
góðar hrukkur og sýna einungis lífið
sem maður hefur haft ánægju af að
lifa. Ég vU þroskast og grátt hár
finnst mér mjög faUegt."
Þrátt fyrir að sorgin hafi barið að
dyrum í tvígang í Mónakó ber Ste-
fanía sig vel. Hún segir að lífið sé
ekki dans á rósum þótt prinsessur
eigi í hlut. „Þeir sem halda að svo
sé vita ekki neitt og þannig fólk er
mér ekki að skapi. Mér Hkar ekki við
fólk sem stöðugt þarf að búa tU sögur
um aðra. Slíkt er sprottið af öfund
og minnimáttarkennd," segir hún.
Stefanía segir að faðir sinn sé
ánægður með rokksöngkonuna sína.
„Hann er ánægður ef ég er glöð,“
segir hún.
Stefanía prinsessa líkist ekki þeim konunglegu í útliti. Hún er listamaður
og klæðist samkvæmt því.
*
LIJAPIS
Panasonic
ÖRBYLGJUOFN
Nettur og öflugur, 21 lítra, 800 w, með snúningsdiski,
6 mismunandi hitastillingar, 30 mínútna tímastillir.
--:t-.- -- .J-~ '-.V
----—---------“ J
Verum hagsýn þessi jól og verslum í JAPIS
JAPISS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
SÍMI 62 52 00