Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 62
74
LAUGARDAGUÍl 7. ÖESEMBER 1991.
Afmæli
Jón Sigurðsson
Jón Sigurösson framkvæmdastjóri,
Rituhólum 3, Reykjavík, verður
fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Jón fæddist í Ólafsvík en ólst upp
í Borgamesi og á Hvítárvöllum.
Hann lauk námi frá VÍ1962 og fram-
haldsnámi á Englandi áriö eftir.
Á skólaárunum vann Jón viö ýmis
landbúnaöarstörf, verslun og sjó-
mennsku en að námi loknu stundaöi
hann ýmis verslunar- og skrifstofu-
störf. Hann var fulltrúi viö Verslun-
arráð íslands 1967-68, hjá The Un-
ited Nation Conference on Trade
and Development í Genf 1968-70,
framkvæmdastjóri íslensks mark-
aöar hf. á Keflavíkurflugvelli
1970-82, skipufagöi og stjórnaöi
stofnun Miklagarðs hf. og fram-
kvæmdastjórifyrirtækisins 1982-88,
framkvæmdastjóri íslenska sjón-
varpsfélagsins hf. - Stöövar 2 -
1988-90 og hluthafi og framkvæmda-
stjóri Rammageröarinnar hf. frá
1990.
Jón hefur tekiö virkan þátt í hin-
um ýmsu félagsstörfum. Hann var
varaþingmaöur fyrir Sjálfstæöis-
flokkinn í Vesturlandskjördæmi
1974-78, sat í stjórn Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
sinnti formennsku í sjálfstæðisfé-
lögum og stjórnum auk ýmissa ann-
arra starfa fyrir Sjálfstæöisflokk-
inn.^ar fyrsti sóknarnefndarfor-
maður Hólabrekkusóknar, formaö-
ur Foreldra- og kennarafélags Hóla-
brekkuskóla, stöðvarstjóri alþjóða
radíóáhugamannastöövarinnar 4UI
ITU, í stjórn International Amateur
Club í Genf og í stjórn International
DX Organization í Genf 1969-70, hef-
ur starfað í Rotary síöan 1978 eftir
fyrirlestra og kynnisferö til Ástralíu
á vegum Rotary International en
Jón er nú forseti Rotaryklúbbsins
Reykj avík - Austurbær.
Fjölskylda
Jónkvæntist 14.11.1964Ólöfu J.
Sigurgeirsdóttur, f. 16.9.1944. For-
eldar hennar eru Sigurgeir Ólafs-
son, fyrrv. skipstjóri, og Elísa G.
Jónsdóttir frá Vestmannaeyjum.
Böm Jóns og Ólafar eru Olafur
Jón, f. 5.8.1966, tölvuforritari,
kvæntur Gerði P. Guðlaugsdóttur,
f. 29.6.1966, og eiga þau einn son,
Guðjón Bjarka, f. 26.3.1989; Asgeir,
f. 1.10.1967, nemi í Myndlista- og
handíðaskólanum; Elísa Guölaug, f.
16.4.1973, nemi viö Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti.
Systkini Jóns eru Ingibjörg Sig-
uröardóttir, f. 13.1.1940, banka-
starfsmaður á Akranesi, gift Helga
Björgvinssyni og eiga þau fjögur
börn; Gústav Hannesson, f. 18.6.
1949, sölustjóri, í sambúð meö Svönu
Ingvaldsdóttur og á Gústav fjögur
börn; Ingólfur Hannesson, f. 23.6.
1954, íþróttafréttamaöur, kvæntur
Guðrúnu Bjarnadóttur og eiga þau
tvö börn.
Foreldrar Jóns: Siguröur Jó-
hannsson, f. 1.11.1904, d. 8.2.1965,
framkvæmdastjóri í Reykjavík og
Borgarnesi, og Ása Bjömsson, f.
14.9.1913, húsfreyja. Sigurður og
Ása skildu en fóstri Jóns var Hann-
es Ólafsson, laxveiðib. frá Hvítár-
völlum.
Meöal systkina Siguröar má nefna
Guörúnu skáldkonu, Guömund,
bæjarfulltrúa og formann Varðar í
Reykjavík, og Eyjólf, forstjóra Inn-
kaupastofnunar ríkisins. Siguröur
var sonur Jóhanns, alþingismanns
í Sveinatungu, bróður Sæmundar,
guöfræðings og skálds, forvígis-
mann íslenskrar landgræðslu, og
bróöur Jóns á Háreksstöðum, lang-
afa Pálma Gíslasonar, formanns
Ungmennafélags íslands. Jóhann
var sonur Eyjólfs, skálds í Hvammi
í Hvítársíðu, Jóhannessonar. Móðir
Jóhanns var Helga Guömundsdótt-
ir, b. á Sámsstöðum, bróður Sigurð-
ar, afa Jóns Helgasonar, skálds og
prófessors. Guömundur var sonur
Guömundar, ættfoður Háafellsætt-
arinnar, Hjálmarssonar. Móöir Sig-
urðar framkvæmdastjóra var Ingi-
björg Siguröardóttir, sjómanns í
Geirmundarbæ á Akranesi, Er-
lendssonar.
Ása er dóttir Jóns, kaupmanns í
Borgamesi, bróður Kristjáns, fööur
Þuríðar, prófessors viö KHÍ. Annar
bróðir Jóns var Guömundur, sýslu-
maöur í Borgamesi, afi Ottós J.
Björnssonar dósents. Jón var sonur
Björns, b. á Svarfhóli, Ásmundsson-
ar og Þuríðar Jónsdóttur ljósmóður,
systur Málfríðar ljósmóöur, móður
Málfríðar Ei'narsdóttur rithöfundar.
Móðir Ásu var Ragnhildur, systir
Karls skurðlæknis og Gústavs ráðu-
neytisstjóra. Ragnhildur var dóttir
Jónasar, b. í Sólheimatungu, Jóns-
sonar, stúdents á Leirá og ættföður
Leirárættarinnar, Ámasonar. Móð-
ir Jóns var Halldóra Kolbeinsdóttir,
prests og skálds í Miðdal, Þorsteins-
sonar. Móðir Jónasar var Ragnhild-
ur, systir Ólafs, hreppstjóra í Lund-
um, afa Guðrúnar í Engey, móður
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra. Ragnhildur var dóttir Ólafs,
ættföður Lundaættarinnar, Þor-
bjarnarsonar. MóðirRagnhildar
Jónasdóttur var Guðríður Tómas-
dóttir.
Jón tekur á móti gestum á afmæl-
isdaginn í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109-111, klukkan
16.00-18.00.
Jón Sigurðsson.
Ingimundur Reimarsson
Ingimundur Reimarsson útgerðar-
maður, Árbliki í Ölfusi, verður sex-
tugur á mánudaginn.
Starfsferill ,
Ingimundur fæddist í Víðinesi í
Fossárdal í Suður-Múlasýslu og ólst
þar upp til ellefu ára aldurs en flutti
þá með foreldrum sínum að Núpi í
sömu sveit. Tvítugur fór hann til
vinnu í Vestmannaeyjum og stund-
aöi þar almenn störf til sjós og lands
1951-57. Hann var vinnumaður aö
Hvítárholti í Hrunamannahreppi
1957-61 en flutti þá til Þorlákshafnar
þar sem hann stundaði sjómennsku
og fiskvinnu. Þá flutti hann á Sel-
foss 1972 þar sem hann starfaði við
trésmíðar. Ingimundur hóf sumar-
útgerð á Bakkafirði 1980 og stundar
þar enn útgerð.
Fjölskylda
Ingimundur kvæntist 12.9.1965
Steinunni Hermannsdóttur, f. 11.6.
1939, verkakonu. Hún er dóttir Her-
manns Þorsteinssonar, b. að Lang-
holti í Hraungerðishreppi, og Guð-
bjargar Pétursdóttur húsfreyju.
Böm Ingimundar og Steinunnar
eru Reimar, f. 24.1.1961, vélstjóri í
Þorlákshöfn.kvænturBrynju .
Þrastardóttur, f. 4.7.1965, húsmóður
og eiga þau tvö börn; Sigríður Stein-
unn, f. 11.6.1962, d. 13.4.1983; Guð-
björg Stefanía, f. 29.10.1963, hús-
móðir og verslunarmaður á Sel-
fossi, gift Karli Óskari Agnarssyni,
f. 8.12.1962 og eiga þau tvö böm;
Herdís Halla, f. 10.6.1965, hár-
greiðslunemi á Selfossi, gift Birgi
Hilmarssyni, f. 11.9.1963 og eiga þau
eina dóttur; Jón Hermann, f. 14.7.
1973, starfsmaður í verksmiðjunni
Alpan á Eyrarbakka.
Systkini Ingimundar urðu sextán
og eru fimmtán þeirra á lífi. Systk-
ini Ingimundar: Garðar, f. 8.5.1923,
fiskvinnslumaður á Djúpavogi; Að-
alsteinn, f. 8.5.1924, b. í Kelduskóg-
um; Guðlaugur, f. 24.6.1925, tré-
smiður á Djúpavogi; María, f. 11.8.
1926, d. 1988, húsmóðir á Stöðvar-
firði; Ámý, f. 26.10.1927, húsmóðir
og dagmóðir í Reykjavík; Ingólfur,
f. 18.8.1929, b. á Kleif í Breiðdal;
Hjalti, f. 1.11.1930, búsettur í Hvera-
gerði; Hólmfríður, f. 21.1.1933, hús-
móðir á Egilsstöðum; Margét, f. 19.5.
1934, starfsmaður við sjúkrahús í
Hafnarfirði; Sigríður, f. 8.12.1935,
húsfreyja að Ásgarði í Breiðdal;
Guðbjörg, f. 14.2.1937, fiskvinnslu-
kona á Stöðvarfirði; Sigurbjörg, f.
13.5.1938, verslunarmaður í Reykja-
vík; Gestur, f. 28.6.1940, b. á Skjöld-
Ingimundur Reimarsson.
ólfsstöðum í Breiðdal; Jóna, f. 15.6.
1941, búsett í Reykjavík; Vilborg, f.
10.8.1942, fiskvinnslukona á Akur-
eyri; Reynir, f. 31.1.1944, fisk-
vinnslumaður á Breiðdalsvík.
Foreldrar Ingimundar: Reimar
Magnússon, f. 13.9.1894, d. í júní
1982, b. í Víðinesi, og kona hans,
Stefanía Jónsdóttir, f. 16.4.1900,
húsfreyja í Víðinesi, nú búsett hjá
elsta syni sínum á Djúpavogi.
Ingimundur og Steinunn taka á
móti gestum að heimih sínu sunnu-
daginn 8.12.
Sigfús Þorgrímsson
Sigfús Þorgrímsson verkamaður,
Selnesi 42, Ásbrún, Breiðdalsvík,
verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Sigfús fæddist í Breiðdalsvík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Laugarvatnsskóla 1940-42.
Sigfús hefur stundað almenna
verkamannavinnu til sjós og lands
en þó lengst af starfað í landi. Hann
hefur búið á Breiödalsvík nánast
alla tíð, fyrst á æskuheimili sínu að
Selnesi en hann byggði síðar eigið
hús á Breiðdalsvík 1954, Ásbrún, og
hefur búið þar síðan.
Fjölskylda
Kona Sigfúsar var Ásta Erla
Björgvinsdóttir, f. 13.6.1929, d. 4.8.
1989, húsfreyja og verkakona, en
þau stofnuðu heimili um 1950. Ásta
Erla var dóttir Björgvins Þórðar-
sonar, b. í Jórvík á Breiðdalsvík, og
Guðrúnar Guðmundsdóttur hús-
freyju.
Börn Sigfúsar og Ástu Erlu eru
Sævar Björgvin Sigfússon, f. 1953;
Erlingur Sigfússon, f. 1953, dó í
bernsku; Þorgrímur Sigfússon, f.
1956, kvæntur Berit Hordvik og eiga
þau þrjú börn, Erlu Silfá, Bjarna
Sigfús og Bergá Sonju; Þráinn Sig-
fússon, f. 1959 og á hann eina dótt-
ur, Kristey; Bryndís Ósk Sigfúsdótt-
ir, f. 1962, gift Jakobi Magnússyni
og eiga þau eina dóttur, Ástu Erlu;
Óðinn Elfar Sigfússon, f. 1970.
Systkini Sigfúsar urðu þrettán.
Systkini hans: Guðrún, dó í
bemsku; Guðmundur; Helgi, nú lát-
inn; Sigríður, dó í bemsku; Sigfús;
Erlingur, nú látinn; Valborg; Eirík-
ur; Sverrir, nú látinn; Þórður; Krist-
ín, nú látin; Garöar; Geirlaug; Þröst-
ur.
Foreldrar Sigfúsar vom Þorgrím-
ur Guðmundsson, f. 1883, d. 1956,
Sigfús Þorgrímsson.
lærður húsgagnasmiður frá Kaup-
mannahöfn en lengst af sjómaður
og bóndi, og kona hans, Oddný Þ.
Erlendsdóttir, f. 1897, d. 1987, hús-
freyja.
Sigfús verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Til hamingju með afmælið 7. desember
90 ára_____________________________ 70 ára________________________
Unnur Sturlaugsdóttir, Guðmundur Georgsson,
Faxabraut 18, Koflavík. Túngötu 24, Bessasíaðahreppi.
Kristin Halldórsdóttir, Pálína Eggertsdóttir,
Ásholtí 34, Reykjavík.
Árni VigfÚBSon,
Kirkjubraut 11, Njarðvík.
Gísli Jónsson,
i Markholti 1. Mosfellsbæ.
Pálmi GuðmundKKon,
Ásholti ;í4. Reykjavik.
60 ára
Safnaðarheimili ----------------------
Bústaðakirkju á afmælisdaginn milli Sigvaldi Kristjánsson,
klukkan 15.00 og 17.00. Skipasundi 12, Reykjavík.
Ailaianm 7,
Reykjavík.
Maður hennar
var Guðjón A.
Kristjánsson, f.
1.7. 1897, d. í fe-
brúar 1967, sjó-
maður.
Kristín tekur á
móti gestum í
Arnþrúður Aspelund,
Torfunesi, Hlif n, ísafirði.
75 ara
Ágúst Birgir Karlsson,
Miðvangi 27, Hafnarfiröi.
Vigfús Aðalsteinsson,
Amartanga 80, Mosfellsbæ.
Guðbjörg Magnúsdóttir, 40 ara
Krókatúni 4, Akranesi. -------------------------------
Jakob Jónsson, Stefán Ásgrímsson,
Varmalæk, Andakílshreppi. Álfatúni 25, Kópavogi-
Sigurður Sigurðsson, Már Elisson,
Prestbákka 5, Reykjavík. Unufelh 21, Reykjavík.
Til hamingju með afmælið 8. desember
95 ára
Margrét Sigurðardóttir,
Lyngheiði 6, Kópavogi
85 ára
Jenný Lúðvíksdóttir,
Bólstaöarhlíö 45, Reykjavík.
80 ára
Helga Sigurðardóttir,.
Skagabraut 28, Akranesi.
Jóhannes Kristjánsson,
Torfnesi, Hlíf B, ísafirði.
Böðvar Jónsson,
Háteigsvegi 54, Reykjavík.
75 ára
Sigurgeir M. Jónsson,
Efri-Engidal, ísafiröi.
Guðbjörg H. Einarsdóttir,
Barmahliö 38, Reykjavík.
60 ára
Óskar Vigfússon,
Álfaskeiði 3, Hafnarfirði.
Vilborg Jónsdóttir,
Dalbraut 42, Sufturfjarðarhreppi.
Dodda Runólfsdóttur,
Byggðarholti 11, Mosfelisbæ.
40 ára
Ceniza G. Munoz,
Stapasíðu 10, Akureyri.
Kristrún Valtýsdóttir,
Engihjalla 9, Kópavogi.
I.iljíi Guðlaugsdóttir,
Espigrund 11, Akranesi.
Borghildu r Viibjálmsdóttír,
Brautarholti 21, Ólafsvík.
Jóna Guðrún Oddsdóttir,
Krókaraýri 40, Garðabæ,
Sigríður HjaUadóttir,
Helgalandi 1, Mosfellsbæ.
Hrefna Torfadóttir,
Suðurbyggö 27, Akureyri.
Einar Hjörleifsson,
Skaftahlíð 34, Reykjavík.
Hólmfríður Jónsdóttir
í afmælisgrein um Hólmfríði
Jónsdóttur, sem birtist mánudaginn
2.12. sl., féll niður nafn einnar
tengdadóttur Hólmfríðar. Sú
tengdadóttir Hólmfríðar og kona
Jóns Þórmundssonar er Jóhanna
Hannesdóttir, f. 11.4.1958, húsmóð-
ir, og eiga þau Jón og Jóhanna þrjá
syni.
Viðkomandi eru þeðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.