Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. Fréttir Efnahagsráðstafanir ríkisstjómarinnar: Barnabætur skert- ar en barnabóta- auki hækkaður Ein þeirra efnahagsráðstafana sem ríkisstjórnin stefnir að við gerð íjár- laga er 10 prósent lækkun á heildar- greiðslum úr ríkissjóði vegna bama- bóta. Á næsta ári lækka því heildar- greiðslur vegna barnabóta og bama- bótaauka úr 5 milljöröum í 4,5 mill- jarða. Að mati starfsmanna íjár- málaráðuneytisins jafngildir þessi lækkun 0,25 prósent lækkun á ráð- stöfunartekjum heimilanna. Breytingin á barnabótagreiðslun- um er tvíþætt. Annars vegar er barnabótaaukinn sem fylgir tekjum sem lækkar úr 68.680 krónum í 20.604 krónur. Hins vegar lækka almennar bamabætur, sem em óháðar tekjum, um 19.570 krónur með fyrsta bami og 15.435 krónur með öðmm bömum. Þessar breytingar hafa í för með sér að bamabætur fólks með tekjur und- ir meðallagi hækka lítillega en bamabætur til fólks með hærri tekj- ur lækka. Samkvæmt útreikningum fjár- málaráðuneytisins kemur skerðing bamabóta nær eingöngu við hjón en flestir einstæðir foreldrar fá hærri bætur. Einungis 10 prósent þeirra, eða þeir sem hafa tekjur yfir 150 þúsund krónur á mánuði, þurfi að þola skerðingu. Hvað varðar hjón þurfa þau ekki að þola skerðingu, samkvæmt út- reikningum fjármálaráðuneytisins, séu samanlagðar árstekjur þeirra minni en 2,1 milljón, eða sem sam- svarar 175 þúsund krónur í mánað- arlaun. Hjón með hærri tekjur þurfi hins vegar að meðaltali að þola um 2000 króna skerðingu á mánuði. -kaa Beðið um ríkisstyrk í tilboðinu í Ríkisskip FuUtrúar undirbúningsnefndar, sem vinnur að stofnun hlutafélags til kaupa á Skipaútgerð ríkisins, Ríkis- skipum, hafa gert skriflegt tilboð í skipafélagið. Það vekur athygli að í tilboðinu er óskaö eftir ríkisstyrk til handa hinu nýja félagi. Hjörtur Emtisson, aðstoðarfor- sfjóri Ríkisskipa, sem er varaformað- ur undirbúningsnefndarinnar, segir um ríkisstyrkinn að um sé að ræða sérstakan þjónustusamning sem boðið er upp á í tilboðinu þannig að hið nýja félag bjóði upp á sömu þjón- ustu og Ríkisskip hafa gert gegn ákveðinni greiðslu. „Við gerum ráð fyrir því að ríkið greiði okkur ákveðinn kostnaö sem hlýst af því að halda uppi þjónustu við ákveðna staði.“ - Gerið þið ráð fyrir aö fá sömu greiðslur og Ríkisskip hafa fengið? „Ég get ekki farið nákvæmlega út í samninginn en við erum að ræða um lægri tölur." Rikisskip hefur fengið gífurlegar upphæðir úr vasa skattborgara á undanfómum árum. Ríkisstyrkur- inn, uppreiknaður til verðlags í dag, nemur tæpum 3,2 mitijörðum króna síðasttiðin tíu ár eða rúmum 800 þús- und krónum á dag. Það samsvarar tveimur til þremur ráðherrabílum á viku. -JGH Þóranni breytt nyrðra í Slippstöðinni á Akureyri Gytfi KristjáiLsaon, DV, Akureyri; Ákveðið hefur verið að breyta tog- skipinu Þórunni Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum í frystiskip og hef- ur útgerðin samið við Slippstöðina á Akureyri um aö breytingamar á skipinu verði unnar þar. Skipiö var byggt hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhent á þessu ári. Keyptur verður frystibúnaður í skip- ið erlendis en Slippstöðin kemur þeim búnaði fyrir, smíðar fisk- vinnslubúnað, breytir rafkerfi og þá verður einnig unnið við breytingar á vistarverum skipveija. Áformað er að hefja vinnu við þessar breytingar á skipinu í febrúar. Breyting barnabóta Kr. — miðað við laun í þúsundum króna — 1000- 0 -1000- -2000- I -3000- -4000- -5000- 2000' 150.000 ~20o:ooo~ 50.000 80.000 zr m 100.000 1 i □ 1 barn 1 □ 2 börn ■ 3 börn ö 180.000 wnsxæorr foreldrar T5Ö7Ö00 Breyting bamabóta á mánuði miðað við tekjur einstæðra foreldra og hjóna. Miðað er við a) eitt bam undir 7 ára aldri, b) tvö böm, annað undir 7 ára aldri og c) þrjú börn, þar af tvö undir 7 ára aldri. Meitillinnhf. Bíða eftir breytingum á reglum um tapf rádrátt „Við erum að bíða eftir væntan- legu lagafrumvarpi sem á að breyta miklu um yfirfærslu á skattalegum frádrætti," sagði Marteinn Friðriks- son, stjómarformaður Meitilsins hf. í Þorlákshöfn. Að undanförnu hefur verið leitað ýmissa leiða til að koma fiárhag fyr- irtækisins á traustari grundvöll. Sala á tapfrádrætti til Samheija hf. á Ak- ureyri var fyrirhuguð „Það var tatin of mikil áhætta að halda þeirri stefnu sem við höfðum sett okkur. Mér skilst að þaö verði aðeins síðustu fimm árin sem gildi varðandi tapfrádráttinn. Hitt fatii niöur. Salan til Samheija myndi rýma verulega með þessu móti. En það er ekki búið að aflýsa henni.“ Marteinn sagði enn fremur að sú hugmynd að hluthafar keyptu hlut fyrirtækisins af Hlutafiársjóði væri einnig í biðstöðu. „En komi ekkert út úr þessum skattaréttindum er engin ástæða til að henda álíka hárri upphæð inn í ríkisstofhun," sagði hann. -JSS Sjómannslíf - - • --------— - - —"— Sjómönnum er heitt í hamsi. Þeir hóta því að sigla í land. Þeir telja hausana á alþingismönnum eftir því hveijir em með og hveijir era á móti og þeir alþingismenn sem ætla að greiða atkvæði á móti sjó- mönnum eiga ekki sjö dagana sæla. Þeir munu ekki kemba hærumar í þingsölum. Það eitt er víst. Atiur þessi hiti í sjómönnum staf- ar af því tilræði sem ríkisstjómin og meirihlutinn á Alþingi hyggst nú gera gagnvart sjómannastétt- inni varðandi skattana. Sjómenn hafa notið sérstaks frádráttar, svo- kallaðs sjómannaafsláttar, frá tekjuskatti umfram aðra þegna þessa lands. Þessi frádráttur var á sínum tíma settur í lög þegar sjó- menn höfðu bág kjör og fáir feng- ust á sjó. Það var verið aö umbuna sjómönnum fyrir að dvelja lang- dvölum heiman frá sér úti á rúmsjó og þótti sanngjöm og réttlát aðferð til þeirrar stéttar sem dregur björg í bú. Samtals munu afslættir frá tekju- skatti nema einum og hálfum milij- arði króna á hveiju ári enda hefur löggjöfin orðað þetta svo að þeir sem era skráðir með laun hjá út- gerð njóti frádráttarins. Þetta hefur leitt tti þess að beitningarmenn í landi, sem era skráðir í áhöfn, stúikumar sem afgreiða í matsaln- um á Akraborginni og margir fleiri, sem eiga um sárt að binda vegna sjómennsku og þurfa að sinna sín- um störfum til að skipin geti siglt, hafa fengið sjómannaafslátt af sktijanlegum ástæðum. Án beitu veiðir enginn fisk og án matar ferð- ast enginn með Akraborginni. Ríkisstjómin ætlar að taka skattaafsláttinn af þessu fólki. Rík- isstjómin segir: þeir einir fá afslátt sem era á sjó og þá aðeins að þeir séu á sjó. Sem þýðir að í hvert skipti sem sjómaður fer í land, hvort heldur í veikindafrí eða or- lof, nýtur ekki lengur frádráttar- ins. Það sama gtidir um beitningar- menn, sem sjaldnast koma á sjó. Þeir missa afsláttinn, af því að þeir era svo óheppnir að vinna í landi, en ekki út á sjó. Sjómannaafsláttur- inn á sem sagt aðeins að gilda um tekjur sem menn vinna sér inn við það að vera út á sjó. Sjómannastéttin vill ekki una þessu. Hún vtil fá sinn afslátt, hvort heldur hún er í landi eða úti á sjó. Hún vill að hver sá sem þiggur laun hjá útgerðinni borgi minni skatt en aðrir í landinu, vegna þess að þeir eigi það sktiið að greiða minna í ríkissjóð af því að þeir afli meiri tekna en aðrir í ríkissjóð. Þetta er afar lógiskt hjá sjómönn- um og þótt þeir þurfi að taka sér frí og fari ekki alltaf á sjó era þeir útvaldir og sérmunstraöir í þjóðfé- laginu og eiga að halda þeim for- réttindum sínum. Nú er það að vísu þannig að ríkisstjómin gerir ekki ráð fyrir að ná út úr þessari skerð- ingu nema um tvö hundruð millj- ónum króna, en það er tvö hundrað milljónum of mikið, enda hefur af- slátturinn upp á einn og hálfan milljarð hvergi dugað sjómönnum aö fleyta fram lífinu og þeir eiga mjög bágt að þurfa að vera fjarri heimilum sínum og fjölskyldum og það ætti eiginlega aö borga þeim meira fyrir aö vera heima nokkr- um sinnum á ári. Þaö er álag út af fyrir sig að þurfa að vera heima í orlofi eða taka sér frí annan hvem túr og þaö er álag á eiginkonumar að þurfa að hafa sjómanninn heima við og menn eiga ekki að missa tekjuafslátt út á þær fómir. Það er líka fóm fyrir beitningarmennina og aðra þá sem þurfa að vera í landi og sjá um netin og beituna að geta ekki verið úti á sjó og þeir þurfa sinn afslátt fyrir að komast ekki á sjóinn. Þess- ir menn eiga voða, voða bágt og þetta er sultarlíf og svo ætlar ríkis- stjómin að fara að hegna mönnum fyrir aö eiga bágt og taka af þeim afsláttinn! Ef ríkisstjórnin kemst upp með þessar ofsóknir á hendur sjómönn- um sem era í landi, ætla sjómenn sem ekki era í landi aö sigla í land og fara í verkfall. Þeir sætta sig ekki við að vera út á sjó og fá af- slátt, meðan þeir sem ekki era út á sjó, komast ekki á sjó til að fá afslátt. Þeir sætta sig ekki við að vera á sjó tti að fá afsláttinn ef þeir þurfa að vera á sjónum til að fá afsláttinn. Þetta verður ríkisstjóm- in að sktija sem aldrei hefur pissað í saltan sjó og veit ekki hvað það er að vera ekki á sjó án þess aö fá ekki afsláttinn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.