Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Side 17
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
17
dv Menning,
Pétur Eggerz. Ást, morð og dulrænir hæfileikar, áttunda bók hans.
Dulræn
áhrif
Pétur Eggerz hefur nú sent frá sér áttundu bókina á tuttugu ára tíma-
bili eða frá því fyrsta bók hans Minningar ríkisstjómaritara kom út árið
1971. Bókin, Ást, morð og dulrænir hæfileikar er skáldsaga, þótt ósjálfr-
átt hvarfli að manni að Pétur hafi raunveruleikann að bakgrunni að ein-
hveijum hluta.
Markús er íslendingur sem starfar fyrir amerískt flugfélag og hefur
aðsetur í Bonn og starfs síns vegna hefur hann talsverð samskipti við
þýsk ráðuneyti. Pétur er því á heimavelli á söguslóðum, hafandi verið
sendiherra íslands í Bonn. Pétur fellir sig vel við nafnið Markús, það
kemur víðar fyrir hjá honum, Markús sendiherra er aðalsöguhetja Pét-
urs í bók hans Sendiherrann frá sagnalandi.
Athyghsvert er að Pétur skrifar bókina ýmist í 1. persónu eða sem áhorf-
andi, sögumaður.
Markús er einmana og auglýsir í blaði eftir að komast í kynni við konu.
Hann fær 20 svör, en velur eitt og er heppinn, Mary, sem er rithöfundur,
og Markús fella hugi saman.
Garðyrkjumaður Markúsar er Asíumaður, Sakon, en Sakon kemur fyr-
ir í fleiri bókum Péturs.
Sakon býr yfir dulrænum hæfileikum, hann er skuggn og sér fyrir
óoröna hluti. Þessi Asíumaður reynist Markúsi hinn besti vinur, beinir
Bókmenntir
Guðmundur G. Þórarinsson
hug hans að dulspeki og segir honum, hvað framtíðin kunni að bera í
skauti sér. Reyndar eru margar persónur, sem fram koma í bókinni eða
sagt er frá, búnar dulrænum hæfileikum. Grímur skipstjóri býr yfir yfir-
skilvitlegri reynslu.
Markús og Mary eru hamingjusöm en Markús skynjar aðógæfan grúf-
ir yfir þeim. Mary er myrt, og þaö syrtir í lífi Markúsar. Hann verður
sem tilfinningalaus, aht hefur misst gildi sitt.
Enn býr Asíumaðurinn Sakon yfir ráðum. Til þess að vekja þær tilfinn-
ingar Markúsar sem sofnaöar eru og fá hann til að lifa, sendir Sakon
hina fihpseysku eiginkonu sína í rúm Markúsar að næturþeli. Vinar-
bragð th þess að bjarga sljóum og andlega dofnum vini. Og árangur er
talsverður.
Markús flytur heim til íslands og einmanakenndin sækir að. Prestam-
ir verða htið til hjálpar. Á erfiðri stundu hringir Sakon frá Þýskalandi.
Hann skynjar gegnum óravíddir að Markús þarf á hjálp að halda.
Enn fer Markús til Þýskalands. Honum þykir til htils lifað, eför aö
Mary hvarf úr hfenda tölu, en er sannfærður um að hitta hana aftur á
æðra tílverustigi.
Sakon segir honum að honum sé ætlað ákveðið verk sem hann veröi
að vinna áður en hann sé ahur.
„Líthl drengur mun beina athygh þinni að síðasta verkefni þínu á þessu
thvistarstigi.“
Og óvænt stingur hthl kaldur lófi sér í hönd Markúsar þar sem hann
stendur á götu í Reykjavík.
Síðasta ævintýrið, verkefnið er hafið.
En endalokin em óvænt. g
Þessi bók Péturs er hpurlega og létt skrifuð. Honum tekst að halda le-
sandanum fóngniun og flestir hygg ég lesi þessa bók i einni lotu. Ég lagði
hana ekki frá mér fyrr en ég hafði lokið henni og svo veit ég að fleirum
hefur farið.
Dulræn áhrif era alls staðar vakandi í þessari bók og þeir sem kunna
að lesa milh hnanna skynja önnur og æðri thvistarstig.
Þessi bók gei ; reynst mörgum ágæt afþreying og sumum talsvert
umhugsunarefn
Pétur Eggerz:
Ást, morö og dulrænlr hæflleikar
Skuggsjá,
Reykjavik, 1991.
EIGINLEIKAR: • Mjög hljóðlátt • Takir þú upp fleiri en einn þátt á spólu merkið tœkið
staðinn. Með því að ýta á DBSS finnur tœkið staðinn sjálft. Ýtirðu tvisvar fœrðu þátt númer
tvö o.s.frv. • 100% skýr kyrrmynd • Þú getur tekið upp átta mismunandi þœtti 365 dagafram í
tímann. • Tvöfaldur og áttfaldur hraði með mynd • Rammi fyrir ramma • Hægspilun •
Móttakari fyrir kapalsjónvarp • Fjölpinnatengi fyrir mynd og hljóð • Tekur spólur bæði fyrir
PAL og SECAM kerfið • Stilling á myndgæðum með fjarstýringu. • Barnalæsing sem tryggir
að skipanir haldi og gerir tækið óvirkt án fjarstýringar.
SJÓNVARPSTÆK/ ///
Eigum fyrirliggjandi á lager takmarkað magn Sharp sjónvarpstækja á verði sem er lægra en
þig grunar. Stærðir; 28, 21, 20, 14 og 3ja tommu!