Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 23
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. 23 Fréttir Suðuriand á 63 milljarða samkvæmt fasteignamati - seldist á um 100 milljarða á fasteignasölu Kristján Einaisson, DV, Selfossi; Samkvæmt nýjum skýrslum Fast- eignamats ríkisins er verðmæti fast- eigna á Suöurlandi tæplega 63 mlllj- arðar króna. Ríkasta sveitarfélagið er Vestmannaeyjar með eignir metn- ar á 11 milljarða, Selfoss kemur næst á eftir með 10,5 og Gnúpverjahreppur í þriðja sæti með eignir upp á 6 millj- arða. Þetta kom fram þegar DV kannaði 10% hækkun á fasteigna- mati íbúðarhúsa og íbúöarlóða á Sel- fossi. Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, sem haldin var nýlega í Reykjavík, kom fram að matsverð íbúðarhúsa og lóða í landinu hækkar milli ára um 6%. Hjá fimm sveitarfélögum hækkar þó matsverð meira, um 10%. Þau eru Selfoss, Keflavik, Njarðvík, Akranes og Höfn í Hornafirði. Á skrifstofu Fasteignamatsins á Selfossi fengust þær upplýsingar hjá Samúel Smára að einungis sé um að ræða íbúöarhúsnæði. Atvinnuhús- næði, atvinnulóðir og bújarðir að undanskildum íbúðarhúsum hækka ekki milli ára. „Ástæðan fyrir þessari hækkun er hærra söluverð á íbúðarhúsnæði, markaðsverö ræður þessari hækk- un. Hér á Selfossi hefur verðið á fast- eignum verið aö stíga síðustu tvö ár, allir sölusamningar eru sendir til okkar og samkvæmt tillögum frá okkur leggur yfirfasteignamatsnefnd til reiknistuðulinn. Reynt er að finna út staðgreiðsluverð. Við höfum séð sölur upp á 45 þús. kr. fyrir hvem m2 í einbýlishúsum og 65 þús. í fjöl- býlishúsum. í Reykjavík er algengt fermetraverð í blokkaríbúð 70-75 þúsund," sagði Samúel. Samkvæmt fasteignamati 1990 var 140 m2 einbýlishús byggt 1978 metið á kr. 5,9 milljónir, að frádregnum afskriftum hækkar matið um 8,5%, Yfirlitsmynd af Selfossi. Hundrað ára öldungur á Akranesi: Læknisdómar alþýðunnar vopnið gegn sjúkdómum Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi: Öldungurinn Þorkell Guðmunds- son, nú til heimilis að Dvalarheimil- inu Höfða á Akranesi, verður 100 ára þann 16. apríl nk. Þrátt fyrir háan aldur er Þorkell vel ern og fer í gönguferðir alla daga þegar færi og veður leyfa. Hann hefur alla tíð verið góður til heilsunnar en síðustu 30 árin hefur hann lifað samkvæmt kenningum bókarinnar Læknisdómar alþýðunn- ar. Þessi bók kom fyrst út árið 1962 en hefur nú verið endurútgefin á vegum Skjaldborgar. í kjölfar veikinda, sem Þorkell átti við að stríða í kringum 1960, keypti hann umrædda bók. „Hún hefur reynst mér ákaflega vel, svo vel að minnsta kosti að enn tóri ég,“ sagði hann í samtali við DV. Einkum er þaö þrennt sem Þorkell notast við til þess að lækna þá kvilla sem á hann heija hveiju sinni: joö, laxerolía og eplaedik. „Finni ég til krankleika set ég tvo eða þijá dropa af joði í bolla, síðan svolítið vatn saman við og drekk svo. Joöið drepur allar bakteríur og hjálpar upp á starfsemi skjaldkirtils- ins. Fái hann ekki nóg joð er manni hætt við kvillum. Laxerolíuna og eplaedikið drekk ég ekki heldur nota sem áburð. Fyrst ber ég olíuna á mig með klút og síðan Þorkell Guðmundsson með bókina. DV-mynd Sigurður renni ég öðrum klút, vættum í epla- ediki, yfir allan skrokkinn. Þetta hit- ar líkamann og veitir mikla vellíöun- artilfinningu. Ég hef stundum átt erfitt vegna hðagigtar en það bregst ekki að með því að bera þetta á mig hverfa allar þrautir á bak og burt.“ verður 6,3 milljónir. „Þetta hús gæti selst á 9,5 millj. miðað við fullfrágengið hús með tvö- fóldum bílskúr," sagði Sigurður Hjaltason, fasteignasali á Selfossi. „Yfirmatsnefnd hefði sennilega mátt fara hærra með prósentuna." Helgi Helgason, bæjarritari á Sel- fossi, taldi að þetta nýja fasteignamat myndi hækka tekjur bæjarsjóös milli ára um 12 milljónir króna miðað við óbreyttar álagningareglur. KÆU- 06 FRYÍTISKÁPAR Gerð: RF 181/80 - Verð kr. 41.900,- stgr, !! I ATLAS *ŒE3 JSKALT HAUSTTILBOÐ 1*033: Rúmmál Hæð Verð ÍSSKÁPAR lítrar cm staðgreitt MR 284 með innbyggðu frystihólfi 280/27 145 36.900 MR 243 með innbyggðu frystihólfi 240/27 122 31.900 VR 156 með innbyggðu frystihólfi 150/15 85 26.900 KÆLISKÁPAR RR 29/ án frystihólfs 280 143 34.900 RR 247 án frystihólfs 240 120 29.900 RR 154 án frystihólfs 150 85 24.900 KÆLI- / FRYSTISKÁPAR RF 365 tviskiptur, frystir að ofan 300/60 160 44.900 MRF 289 tviskiptur, frystir að ofan 280/45 145 39.900 RF 181180 tviskiptur, frystir að neðan 280/80 144 41.900 FRYSTISKÁPAR VF-223 fimm hillur 220 145 39.900 VF 123 fjórar hillur 120 85 29.900 Nýkomin sending af Atlas kælitækjum á einstöku verði! RÖNNING SUNDABORG 15 C9i -685868 KENWOOD Chef er kostagripur Fáanlegir aukahlutir: Innifalið í verði: □ Blandari □ Þeytari 0 □ Grænmetisrifjárn □ Hnoðari □ Hakkavél □ Hrærari □ Safapressa |H| □ Kartöfluflysjari . Verð kr. 22.201 stgr. HEKLA n o fl LAUGAVEGI 174 S. 695500/695550 “v.y'/V ' 'V ''V-í —-1 1" ^ ‘ ' . ••••*• - ' Vv '■ r&l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.