Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 52
60 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. Menning Mozart kvöldlokka Blásarakvintett Reykjavíkur hélt tónleika í Krists- kirkju á laugardag. Flutt var Kvöldlokka eftir Wolf- gang Amadeus Mozart. Stjórnandi var Bernharður Wilkinsson. Félagar Blásarakvintettsins eru auk Bern- harðs þeir Einar Jóhannesson, klarínett, Daði Kol- beinsson, óbó, Jósef Ognibene, hom, og Hafsteinn Guðmundsson, fagott. Kvöldlokka Mozarts er fyrir 13 blásara og voru á þessum tónleikum kvaddir til aðstoð- ar þeir Peter Tompkins, óbó, Ármann Helgason, klarí- nett, Kjartan Óskarsson, bassetthom, Sigurður I. Snorrason, bassetthorn, Bijánn Ingason, fagott, Rúnar Vilbergsson, kontrafagott, Lilja Valdimarsdóttir, horn, Þorkell Jóelsson, hom, Anna Sigurbjörnsdóttir, hom og Dean Farrell, kontrabassi. Kvöldlokkan er um margt sérkennilegt verk. Yfir- leitt má búast við tónbst af léttara tagi þegar verk með þessu heiti ber fyrir eym. Þaö hefur og áreiðan- lega verið ætlun Mozarts að ná vel til fólks með þessu verki. Á ytra borði hefur það öll venjuleg einkenni kvöldlokkunnar. Þættir eru 7 talsins og töluvert er um endurtekningar. Hins vegar er hér mun dýrar kveðið en venjulegt er um svona verk. Þá er verkið langt, um 55 mínútur í flutningi. Merkilegast er verk- ið fyrir það hve fagurt það er og vel gert að öllu leyti. Ef ekki væri hin sérkennilega hljóðfæraskipun mætti ímynda sér að um meiri háttar hljómsveitarverk væri að ræða. Hljóðfæraskipunin gefur verkinu sérkenni- legan blæ og á ríkan þátt í því hve það er áhrifaríkt. Það er athyglisvert að engin flauta er notuð í verkinu en öll hin tréblásturshljóðfærin og þar með talin tvö bassetthom. Þetta gefur óbóinu sérstakt tækifæri til að njóta sín og Daði Kolbeinsson, fyrsti óbóleikari, greip það á lofti og spilaði eins og engill á tónleikun- Tónlist Finnur Torfi Stefánsson um. í þessum flutningi var notað bæði kontrafagott og kontrabassi til að sjá um dýpstu röddina en Mozart gerði aöeins ráð fyrir kontrabassa. Þetta gaf botninum sérstaka fyllingu sem naut sín vel í kirkjunni. Sá kafli verksins, sem býr yfir mestri fegurð, er Adagio-kaflinn, þar sem Mozart fer á kostum. Loka- kaflinn er sérkennilegur, í eins konar furðustíl með yflrbragði þjóðlags. Flutningur þessarar myndarlegu blásarasveitar var mjög góður og Bemharður stóð sig mjög vel í stjómuninni. Tókust þessir tónleikar með miklum ágætum. Tónleikar Operusmiðjunnar í gærkvöldi yoru tónleikar í Langholtskirkju þar sem meðlimir Óperusmiðjunnar sungu ýmis lög við píanóundirleik. Söngvararnir, sem fram komu, voru Ingveldur Ólafsdóttir messósópran, Magnús Steinn Loftsson tenór, Sigurður Bragason baríton, Jóhanna Linnet sópran, Jóhann Smári Sævarsson bassi, Björn Bjömsson baríton, Þórunn Guðmundsdóttir sópran og Inga Backman sópran. Undirleikari á píanó var Þorsteinn Gauti Sigurðsson og í nokkrum laganna lék Hallfríður Ólafsdóttir með á flautu. Efnisvalið á þessum tónleikum var fjölbreytt, allt frá aríum eftir Bach og Hándel til atónal jólalaga eftir Frank Martin. Það síðastnefnda var sungið af Þómnni Guðmundsdóttur með miklum ágætum. Oft er talað um grósku í söngmálum íslendinga og var forvitnilegt að fara á þessa tónleika með það fyrir augum að kynn- ast breiddinni meðal söngvara. I Óperusmiðjunni er söngfólk sem búast má við að láti til sín taka í tónleika- lífi á næstu ámm og sumt hefur þegar skapað sér nafn. Ekki er rúm til að fjalla sérstaklega um hvem söngvara sem þarna kom fram en óhætt er að segja að menn geti verið bjartsýnir um framtiðína. í heild var söngurinn á þessum tónleikum góður og sumir söngvaranna sungu framúrskarandi vel. Aðrir eru efni sem gefa góðar vonir. Ópemsmiðjan mun hafa á Tónlist Finnur Torfi Stefánsson pijónunum að setja upp óperu í Borgarleikhúsinu seinna í vetur og verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig það mun takast. Þorsteinn Gauti hefur ekki látið mikið fyrir sér fara sem undirleikari hingað til. Hann stóð sig mjög vel í því hlutverki og var mjög vakandi fyrir þörfum söngv- aranna auk þess að leika sitt eigið efni vel. Hallfríður flautuleikari komst einnig vel frá sínu. Jólatónleikar Tónlistar skóla Kópavogs Seinni jóíatónleikar Tónlistarskóla 18. desember kl. 20.30 í Kópavogskirkju. Kópavogs veröa haldnir miövikudaginn Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Andlát Valgerður Sigurðardóttir andaðist í Landakotsspítala 13. desember. Steinþóra Þorvaldsdóttir, Norður- brún 1, lést föstudaginn 13. desemb- er. Glúmur Björnsson, Hátúni 4, er lát- inn. David Foss Gisholt andaðist í Osló 12. desember. Björn Björnsson, Kögurseli 20, and- aðist um borð í bv. Gnúpi GK-U fimmtudaginn 12. desember. Victor Jacobsen, Nesvegi 43, andað- ist á heimili sínu 12. desember. Jóhann Marel Jónasson stórkaup- maður, Laugavegi 55, Von, Reykja- vík, lést í Landspítalanum 12. des- ember. Jaröarfarir Ingveldur Valdimarsdóttir útibús- stjóri, Reynigrund 2, Akranesi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 11. des- ember. Útförin fer fram frá Akranes- kirkju þriðjudaginn 17. desember kl. 11. Ingibjörg Gísladóttir, Bárugötu 36, verður jarðsungin miðvikudaginn 18. desember kl. 13.30 frá Fossvogs- kirkju. Bára Björgvinsdóttir, Ofanleiti 5, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 16. desember, kl. 13.30. Björgvin Símonarson, Skúlagötu 68, lést 2. desember sl. Útför hans fer fram frá bænahúsi Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. desember kl. 15. Þorbjörg Pálsdóttir frá Kaldárholti andaðist 4. desember sl. Útfórin hef- ur farið fram. Tilkyimingar Félag eldri borgara Opið hús í Risinu kl. 15-17. Bridge og fijáls spilamennska. Félagsvist A.B.K. Spilað verður í Þinghól, Hamraborg 11, í kvöld, 16. desember, kl. 20.30. Allir vel- komnir. Jólatréssala íþrótta- félags fatlaðra íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík hefur hafið sámstarf við Reykjagarð hf. í Mos- fellsbæ varðandi sölu á jólatrjám til styrktar félaginu. Um er að ræða sérstak- lega fallegan og barrheldinn norðmanns- þin frá Danmörku og verðið með því lægsta sem gerist á markaðnum. Salan fer fram í Bílaborgarhúsinu að Fosshálsi 1. Opiö virka daga kl. 13-22, laugardaga og sunnudaga kl. 10-22. Hjálparstofnun Ananda Marga (Amurt-Ananda Marga Universal Relief Team) stendur fyrir fjársöfnun til handa bágstöddum bömum víða um heim. Tékkareikningsnúmer 180, Búnaðar- banki 7 miðbæjarútibú, og 27052, Lands- banki íslands, Bankastræti. Upplýsingar í síma 674991 og 27050. Landssamtök áhugamanna um flogaveiki Lauf, landssamtök áhugamanna um flogaveiki, gangast fyrir stofnun for- eldradeildar. Markmið deildarinnar verður ráðgjöf, fræðsla og stuðningur viö flogaveik böm og aðstendendur þeirra. Á fundinum mun Pétur Lúðvígsson bama- læknir flyija erindi um flogaveiki hjá bömum. Foreldrar og ættingjar floga- veikra bama em eindregið hvattir til þess að mæta á stofhfundinn, sem verðúr haldinn þriðjudaginn 17. desember kl. 20 í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3b, 2. hæð. Námskeið Prjón- og heklnámskeið hefjast 14. janúar 1992. Hvert námskeið stendur yfir í sex vikur. Skráning er haf- in. Leiðbeinendur verða Amdís Bjöms- dóttir og Inga Þórðardóttir. Allar nánari upplýsingar í síma 11616. Myndgáta -vvv \ui \\* • Z08 /vA EYkol^--A_ Myndgátan hér að ofan lýsir orðatiltæki. Lausn gátu nr. 207: Kornabarn Sérdeild hjá Sævari Karii Nýlega var opnuð sérdeild innan fyrir- tækis Sævars Karls, Bankastræti 9. Deildin sérhæfir sig í imdirfatnaði frá þekktum framleiðendum Þýskalands, ít- alíu og Frakklands í þessari grein. Á myndinni em Erla Þórarinsdóttir versl- unareigandi og Arielle Mabilat starfs- maður í nýju deildinni. Neistaflug Út er komin harmóníkusnælda með hin- um kunna harmóníkuleikara Karh Jón- atanssyni og félögum hans í hljómsveit- inni Neistum, en þeir em Edwin Kaaber, Ingi Karlsson, Sveinn Rúnar Bjömsson og Óm Arason. Snældan inniheldur hefð- bundna harmóníkutónlist og sérgrein Karls: swing og sönleikjastef. Snældan fæst í öllum helstu tónlistarverslunum landsins. Jólasveinar heimsækja Þjóðminjasafnið Á morgun kl. 11 kemur Askasleikir í heimsókn á Þjóðminjasafnið ásamt Bamakór Vesturbæjarskóla. Leikhús [ ÍSLENSKA ÓPERAN I eftir W.A. Mozart Örfáar sýningar eftir. Ath. Breytlng á hlutverkaskipan Næturdrottnlng: Sigrún Hjálmtýsdóttir l.hirðmær: Elisabet Eiriksdottir Papagena: Katrín Sigurðardóttir Föstudaginn 27. des. kl. 20. Sunnudaginn 29. des. kl. 20. Föstudaginn 3. jan. kl. 20. Ósóttar pantanir seldar tveimur dögum fyrir sýningar- dag. Miðasalan opin frá kl. 15-19, simi 11475. Greiðslukortaþjónusta VISA - EURO - SAMKORT Gjafakort -töfrandi jólagjöf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.