Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Qupperneq 6
Úflönd
Það þykir ganga kraftaverki næst að allir 129 um borð í SAS-þotu á leið til Kaupmannahafnar og Varsjár skyldu
sleppa lifandi þegar vélin brotlenti nokkrum mínútum eftir flugtak frá Arlandaflugvelli í Stokkhólmi. Vélarbúkurinn
brotnaði í þrennt við lendinguna og gátu flestir farþegarnir gengið óstuddir út. Símamynd Reuter
Allir sluppu lifandi er SAS-þota brotlenti:
Hén ég hefði IM-
að mín siðustu jél
- sagði flugstjórinn eftir kraftaverkalendingu
„Víst var ég hræddur. Ég hélt satt
að segja að ég hefði lifað mín síðustu
jól. En þetta fór betur en á horfðist.
Ég sá akur fyrir framan mig og ein-
beitti mér að þvi að láta trén taka
mesta hraðann af vélinni. Um leið
varð ég að gæta að tveimur húsum
í nágrenninu," sagði Stafan Ras-
mussen, danskur flugstjóri SAS-
vélarinnar, sem hrapaði vélarvana
til jarðar um 20 kílómetra norður af
Arlandaflugvelli í Stokkhólmi
snemma í gærmorgun.
129 manns voru um borð í vélinni
og sluppu allir lifandi. Átta voru
fluttir á sjúkrahús en aðeins einn
farþegi slasaðist illa. Um 100 farþegar
fóru sjálfir út úr vélinni og komust
fljótt í skjól en vélin brotnaði í þrennt
viö lendinguna. Vængirnir, fullir af
eldsneyti, brotnuðu af er vélin rakst
á trjátoppana og við þaö minnkaði
stórlega hættan á að eldur kæmi upp
í flakinu.
Flugstjórinn sagði að möguleikinn
á að flugstjórar lentu í aðstæðum
sem þessum væri einn á móti millj-
ón. Hann hrósaði áhöfn sinni og far-
þegum sem höguðu sér mjög skyn-
samlega og þakkaöi góðri þjálfun
hvernig fór.
Véhn var endurbætt útgáfa af DC-9
vél. Ekkert var gefið upp um mögu-
legar orsakir vélarbilunarinnar á
blaðamannafundi átta tímum eftir
brotlendinguna. Leiða menn getum
að því að þunn íshúð hafl brotnað
af skrokki vélarinnar og lent í hreyfl-
unum. Ritzau
Bandaríkin opna sendiráð
í fyrrum Sovétlýðveldum
Bandaríkjamenn hafa, ákveðið að
opna hið fyrsta sendiráð í fimm fyrr-
um Sovétlýðveldum auk Rússlands.
Þessi lýöveldi eru Úkraína, Armenía,
Kazakhstan, Hvíta-Rússland og
Kyrgyrstan. Haft var eftir Bush
Bandaríkjaforseta að Bandaríkin
mundu opna sendiráð í fleiri lývðeld-
um þegar þau kæmu upp ábyrgri
öryggisstjóm og lýðræðislegum
stjórnarháttum.
Bandaríkin senda sendinefndir til
lýðveldanna í janúar til að finna
hentugt húsnæði fyrir sendiráðin.
Þá vantar íjármagn til að koma þeim
upp og þjálfað starfsfólk til að vinna
í þeim.
Reuter
Dietrich níræð
Marlene Dletrich varð níræð í gær.
Leik- og söngkonan Marlene Diet-
rich varð niræð í gær, fóstudag.
Marlene er löngu heimsfræg fyrir
hása rödd sína og seiðmagnaðan
söng í kvikmyndum og tónleikahöll-
um víða um heim.
Marlene Dietrich varð snögglega
heimsfræg er hún lék kabarettsöng-
konuna Lolu-Lolu í myndinni Bláa
enghnum frá 1930. Hún varð sérlega
fræg fyrir lögin Falhng in Love again
og Lily Marlene.
Marlene Dietrich lifir mjög lokuðu
lífi í íbúð sinni í miðborg Parísar og
ekki er vitað hvort hún hefur haldið
upp á daginn. Reyndar hefur hún
alla tíð haldið því fram að hún væri
þremur ámm yngri en fæðingarvott-
orðið segir til um.
Marlene Dietrich var mjög á móti
nasistum fyrir og í seinni heimsstyrj-
öldinni. Hún skemmti hermönnum
bandamanna í styrjöldinni og söng
einnig fyrir þýska stríðsfanga.
Reuter
r(;(.( - n it. c«Ttn/ no a r a i
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991.
Áhlaup uppreisnarmanna í Tiblisi:
Frelsuðu leiðtoga
sinn úr f angavist
- Gamsakhurdia neitar enn aö gefast upp
Uppreisnarmenn í Tiblisi, höfuð-
borg lýðveldisins Georgíu, frelsuðu
átta uppreisnarmenn úr fangavist
eftir mikla skothríð á þinghúsið og
aðalstöðvar öryggislögreglunnar,
KGB, í morgun. Meðal þeirra sem
voru frelsaðir var Georgy Chantur-
ia, leiðtogi uppreisnarmanna og
aðalandstæðingur Gamsakhurdia
forseta.
Uppreisnarmenn réðust á aðal-
stöðvar KGB þar sem áttmenning-
arnir höfðu verið í haldi frá því í
október. KGB-menn gáfust strax
upp og engan sakaði í skothriðinni.
Chanturia sagði að oft hefði
kviknað í byggingunni þar sem
þeir voru í haldi og að líf þeirra
hefði oft verið í hættu. Chanturia
sagðist hafa farið sex sinnum í
hungurverkfall meðan á fangavist-
inni stóð.
Uppreisnarmenn hafa setið um
þinghúsið síðan á sunnudag en
Gamsakhurdia heldur þar til ásamt
stuðningsmönnum sínum. Upp-
reisnarmenn krefjast þess að for-
setinn fari frá völdum en hann
neitar að gefast upp. Uppreisnar-
menn saka hann um að standa í
vegi fyrir lýðræðisumbótum í lýð-'
veldinu en forsetinn neitar slíkum
ásökunum.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN óverðtryqgð
Sparisjóðsbækur óbundnar 2,5-3 Landsbanki
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 2,25-5 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 3,25-6 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 2,5-3 Landsbanki
VlSITÖLUBUNONIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 3 Allir
1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5.5 Allir
Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb., Búnaðarb.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb.
Óverðtryggð kjör, hreyfðir 3,25-3,5 Búnb.,Landsb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tfmabils)
Vísitöluby ndnir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki
Gengisbundir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
Óverðtryggö kjör 7-8,25 Sparisjóðir
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 3,25-3,75 Islandsbanki
Sterlingspund 8,5-9 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-8 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 7,25-7,8 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
utlAn óverðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) 1 5-1 5,5 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf 15,75-16,5 Búnaðarbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-18,75 islandsbanki
ÚTLÁN verðtryggð
Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
afurðalAn
Islenskar krónur 15,25-16,5 Allir nema Lb
SDR 8,5-9,25 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,75-7,5 Landsbanki
Sterlingspund 1 2,4-1 2,75 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 11-11,5 Búnaðarbanki
Húsnæölslán 4,9
Lifeyrissióöslén 5-9
Dráttarvextir 25.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf desember 17,9
Verðtryggð lán september 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala janúar 31 96 stig
Lánskjaravísitala desember 31 98 stig
Byggingavísitala desember 599 stig
Byggingavísitala desember 1 87,4 stig
Framfærsluvísitala desember 1 59,8 stig
Húsaleiguvfsitala 1,1% lækkun 1. janúar
V6ROBRÉFASJÖÐIR HLUTABRÉF
Gengi bréfa veröbréfasjóða Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,037 Sjóvá-Almennar hf. 5,05 5,15
Einingabréf 2 3,209 Armannsfell hf. 2,15 2,40
Einingabréf 3 3,968 Eimskip 5,53 5,95
Skammtímabréf 2,012 Flugleiðir 2,03 2,20
Kjarabréf 5,672 Hampiðjan 1,72 1,90
Markbréf 3,047 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10
Tekjubréf 2,149 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1,10
Skyndibréf 1,762 Hlutabréfasjóðurinn 1,63 1,73
Sjóðsbréf 1 2,895 Islandsbanki hf. 1,61 1,74
Sjóðsbréf 2 1,931 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1,71
Sjóðsbréf 3 2,002 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29
Sjóösbréf 4 1,748 * Eignfél. Verslb. 1,41 1,53
Sjóðsbréf 5 1,200 Grandi hf. 2,60 2,80
Vaxtarbréf 2,0400 Olíufélagið hf. 4,50 5,05
Valbréf 1,9120 Olís 2,10 2,28
Islandsbréf 1,264 Skeljungur hf. 4,87 5,45
Fjóröungsbréf 1,147 Skagstrendingur hf. 4,65 5,05
Þingbréf 1,260 Sæplast 7,28 7,60
öndvegisbréf 1,244 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1,12
Sýslubréf 1,284 Útgerðarfélag Ak. 4,50 4,85
Reiðubréf 1,227 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42
Launabréf 1,014 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1,15
Heimsbréf 1,073 Auðlindarbréf 1,03 1,08
Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,30 3,50
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum.