Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 10
10 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991. Myndbönd Bræður á ferð COUPE DE VILLE Útgefandi: Kvikmynd. Leikstjóri: Joe Roth. Aðalhlutverk: Patrick Dempsey, Arye Gross, Daniel Stern og Alan Arkln. Bandarisk, 1990-sýningartimi 99mín. Leyfð öllum aldurshópum. Coupe de Ville fjallar um þijá bræöur sem hafa ekki haft sam- band hvor við annan í nokkur ár. Faðir þeirra stefnir þeim saman í Detroit án þess að þeir viti hvor af öðrum og eiga þeir að feija fyrir gamla manninn bíl niður til Miami á Flórída. Bræðrunum hefur ávallt komið illa saman og er þetta tilraun fóður þeirra til að ná upp samheldni inn- an fjölskyldunnar. Samband bræðranna er stirt í byijun en ýmsar endurminningar og atvik sem gerast á leiðinni verða til að treysta bönd þeirra. Coupe De Ville er látin gerast 1963 og er tilheyrandi tónhst frá þeim tíma í hávegum höíð. Þessi tónlist gerir það að verkum að myndin rennur saman við margar aðrar og þótt einstaka atriði séu nokkuð skondin þá er heildin lang- dregin enda htið að gerast. í laganna nafhi LAW & ORDER - THE TORRENTS OF GREED Útgefandi: ClC-myndbönd. Leiksljóri: E.W. Swackhamer. Aðalhlutverk: George Dzundza, Michael Moriarty og Steven Hill. Bandarísk, 1991 -sýningartimi: 96 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Law & Order er sjónvarpsmynda- flokkur sem segir frá störfum tveggja hópa sem rembast við að koma glæpamönnum undir lás og slá í New York þar sem eitt morð á dag þykir ekki mikið. Hóparnir eru deild innan lögreglunnar og saksóknarinn og hð hans. Myndin, sem hér um ræðir, heitir The Torr- ents of Greed og í henni gefst lag- anna vörðum einstakt tækifæri að handtaka grimman glæpaforingja en mörg ljón eru í veginum, enda um sérlega slægan glæpamann að ræða sem kemur ekki nærri neinu voðaverki sjálfur heldur hefur tug manna til aö sjá um slíka hluti. Ekki bætir úr að oft ríkir mikil tor- tryggni mihi þessara tveggja hópa og veldur það stundum miklum mistökum. Sjónvarpmynd þessi er nokkuð yfir meðallag miðað við slíkar myndir. Handritið er ágætlega skrifað, er raunsætt en kryddað smádramtík til að lyfta myndinni upp. Leikur er ahur til fyrirmynd- ar. Al Pacino leikur Michael Corleone í þriðja og síðasta skiptið. Yerðugur lokakafli THE GODFATHER III Útgefandl: ClC-myndbönd. Lelkstjóri: Francis Ford Coppola. Aðalhlutverk: Al Pacino, Diane Keaton, Talia Shire og Andy Garcia. Bandarísk, 1990 - sýningartími 171 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Meö Guðfóðumum III lauk eftir- minnilegum kafla í kvikmyndasög- unni, sögu Corleone-fjölskyldunn- ar sem Mario Puzo skapaði fyrst í skáldsögu sinni en Coppola hefur gert ódauðlega í þremur kvik- myndum sem eru allar mikh stór- virki. The Godfather III byijar tuttugu árum á eftir þeim atburðum sem enduðu annan hlutann. Árið er 1979 og sem fyrr er aðalpersónan Michael Corleone sem nú er á sjö- tugsaldri. Hann er ókrýndur kon- ungur Mafiunnar en eyðir samt miklum tíma í að reyna að koma ættarauðnum fyrir í lögmætum fyrirtækjum, öðrum Mafíuforingj- um th mikillar gremju. Þessar f]ár- festingar verða th þess að leiða enn á ný dramatíska atburði yfir fjöl- skylduna. Sá Michael Corleone sem við fáum að sjá nú er ekki sá sami og við skhdum við. Þar var hann ný- tekinn við völdum og treysti eng- um. Nú hefur hann mhdast og þótt enginn efist um visku hans er viss kraftur farinn úr honum. Þegar Michael sér að ekki er annað fært en að gera út um hlutina að göml- um Mafíusiðum fær hann völdin í hendur frænda sínum, Vincent Mancini. í hehd er Godfather III sterk kvikmynd sem snertir mann og er verðugur lokakafli þessarar miklu kvikmyndaseríu. Hún er samt ekki gallalaus en snhld Coppola kemur samt fram og hvergi eins vel og í mögnuðu lokaatriði sem gerist undir sýningu á óperunni Caval- leria Rusticana og má segja að það atriði bæti upp þau mistök sem finna má í þessu stórvirki. Mistök sem kannski koma skýrast fram í máttlausum leik dóttur Coppola, Sophiu Coppola, sem veldur alls ekki erfiðu hlutverki dóttur Micha- els. A1 Pacino, Diane Keaton og Taha Shire, sem hafa verið í öhum myndunum, eru öll frábær og það má einnig segja um Andy Garcia og Eh Wallac, en það gustar af hon- um í hlutverki slægs Mafíufor- ingja. Guðfaðirinn III er mikh kvik- mynd, stórmynd í þess orðs bestu merkingu. Hnökrar sem finna má skemma ekki hehdaráhrifin. Er ekki laust við að maður finni til saknaðar þegar Corleone fjölskyld- an er kvödd fvrir fullt og allt. -HK Þjóðsagan lifir enn HRÓI HÖTTUR - PRINS ÞJÓFANNA Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Kevin Reynolds. Aóalhlutvertk: Kevin Costner, Morgan Freeman, Christian Slater. Alan Rick- man og Mary Elizabeth Mastrantonio. Bandarísk, 1991 -sýningartími 144 min. Bönnuð börnum innan 12 ára. Allir kannast við ævintýra- og þjóðsagnapersónuna Hróa hött og útlaga hans í Skírisskógi og hafa nokkrar kvikmyndir verið gerðar eftir ævintýrum hans og sjórp/arps- myndaflokkur um hann gekk í langan tíma en hver var Hrói og hvaðan kom hann. í raun hafa því ekki verið gerð nein skil fyrr en í Hrói höttur - prins þjófanna og þótt fyrsti hlutinn sé í raun viðbót við ævintýrið og nokkrar aukaper- sónur látnar koma til verður Hrói höttur í meðförum Kevins Costners mun meiri manneskja og um leið jarðbundnari. í byrjum myndarinnar erum við stödd í fangelsi hjá Márum. Einn fanganna er aðalsmaðurinn Robin. Honum tekst að sleppa og frelsar í leiðinri Mára sem einnig var í fangelsi. Sá telur skyldu sína að koma Robin til síns heimalands og vernda hann að launum fyrir að bjarga lífi sínu. Þegar heim er komið er hinn ill- ræmdi fógeti í Nottingham búinn að sölsa undir sig ættarsetur Rob- ins og hefur tekið föður hans af lífi. Robin sver þess eið aö hefna föður síns og leggur í fyrstu einn út í þá svaðilför en áður hittir hann æsku- unnustu sína, Marion. Robin er síðan á leið í gegnum Skírisskóg þegar hópur útlaga neyðir hann til að beijast við fremsta stríðsmann þeirra, John, sem síðar verður Litli-Jón. Eftir aö Robin hefur sigrað er hann tekinn í hópinn og Hrói höttur verður til. Eftir þetta fer myndin að taka á sig kunnuglegan söguþráð þar sem hinir kátu útlagar takast á við hinn illræmda fógeta. Það er mikið lagt í að gera Hróa hött sem best úr garði og hefur tek- ist vel að halda þeirri rómantísku hetjudýrkun við lýði. Viðbætur við þjóðsöguna heppnast vel og skemma alls ekki ímyndina. Leik- hópurinn er upp til hópa góður en senuþjófurinn er Alan Rickman í hlutverki fógetans. Hér er fógetinn í raun og veru miklu meira en ill- menni. Hann er maður sem á við ýmis geðræn vandamál aö stríða og er Rickman ógnvekjandi í túlk- un sinni. í heild er Hrói höttur góð skemmtun en ekki mjög sterk kvik- mynd. Þegar sýningu lýkur er búið að afgreiða málið og persónurnar sitja ekki lengi eftir í huga manns. -HK ★★V2 Pappírshjónaband GREEN CARD Útgefandi: Bíómyndir. Leikstjóri: Peter Weir. Aóalhlutvérk: Gerard Depardieu, Andie MacDowell og Robert Prosky. Bandarisk, 1991 -sýningartími 103 mín. Leyfó öllum aldurshópum. Hinn þekkti ástralski leikstjóri Pet- er Weir er þekktur fyrir allt annað en gamansamar kvikmyndir. Hann á að baki margar úrvalsmyndir þar seni gamanið er víðs fjarri. í bestu kvikmyndum sínum eins og Picnic at Hanging Rock, Gallipoli, The Year of Living Dangerously, Wit- ness og Dead Poets Society fæst hann við dramatískan söguþráð sem oft hefur einhveija dulúð sem áhorfandinn skynjar vel. í Green Card kemur Weir aðdá- endum sínum verulega á óvart með lipru og gamansömu handriti sem Gerard Depardieu og Andie MacDowall setja upp bros fyrir myndatoku sem á að sannfæra aöra um að þau lifi saman. hann hefur sjálfur skrifað. Og eins og búast mátti við af jafnfærum kvikmyndagerðarmanni tekst hon- um aö skapa skemmtilega stemn- ingu þar sem kvikmyndavélin leik- ur stórt hlutverk. Aðalhlutverkið leikur franski leikarinn Gerard Depardieu og er þetta fyrsta kvikmyndin með ensku tali sem hann leikur í, leikur hann franskan innflytjanda í New York, George Faure, sem ekki hef- ur atvinnuleyfi. Til að hann fái slíkt leyfi verður hann að gifta sig. Það verður Bronte Parish einnig að gera, en ekki vegna þess að hana vanti atvinnuleyfi heldur vegna þess að hún fær ekki að leigja íbúð sem hún hefur hug á nema hún sé í hjónabandi. Faure og Parish gifta sig og halda svo sitt í hvora áttina, en babb kem- ur í bátinn þegar innflytjendaeftir- litið fær grun um að ekki sé allt með felldu og setur þeim stóhnn fyrir dyrnar nema þau geti sann- fært eftirlitið um að þau búi sam- an. í fyrstu er þetta þeim hin mesta raun enda um óhkar persónur að ræða. Green Card verður aldrei sett viö hlið bestu mynda Peter Weir, til þess skortir dýpt í söguna og kannski einna helst það handbragð meistarans sem sjá má í öðrum myndum hans. Á móti kemur að Green Card er reglulega skemmti- leg kvikmynd og í heild yfir meðal- lagi. Minni kvikmyndagerðarmenn hefðu sjálfsagt klúðrað þvi hárfína sambandi sem myndast milh aðal- persónanna en Weir forðast allar hætturafmikluöryggi. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.