Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991. Erlend bóksjá Friðarverðlauna- hafinn frá Burma Eiginmaður og synir Aung San Suu Kyi frá Burma tóku á móti friðar- verölaunum Nóbels fyrir hennar hönd á dögunum. Sjálf var hún í stofufangelsi á heimili sínu í höfuð- borg Burma, Rangoon, þar sem her- foringjastjómin hefur haldið henni í einangrun frá miðju ári 1989 eða í tvö og hálft ár. Þessi bók hefur séð dagsins ljós í tilefni af veitingu friðarverðlaun- anna. Hér er að flnna safn ritverka Suu - en svo er hún kölluð af vinum sínum og vandamönnum - en einnig nokkrar greinar eftir aðra þar sem fjallað er um hlut hennar í barátt- unni fyrir lýðræði í Burma og gefið yfirlit um þróun mála þar í landi síð- ustu árin. Ritstjórn bókarinnar er í höndum eiginmanns Suu, enska pró- fessorsins Michaels Aris. Dóttir þjóðhetju Það þurfti í sjáifu sér engum að koma á óvart að Suu yrði kölluð til forystu í heimalandi sínu. Faðir hennar, Aung San, er nefninlega ein helsta þjóðhetja Burmamanna. Hann stýrði baráttu þjóðar sinnar gegn bresku nýlenduherrunum á fyrri hluta aldarinnar. í heimsstyijöldinni síðari gerði Aung San bandalag við Japani sem lofuðu þjóðinni sjálfstæði. Þegar í ljós kom að ekki stóð til af hálfu Jap- ana að efna það loforð snerist hann gegn þeim og barðist með Bretum gegn japanska hemámsliðinu. Að stríðinu loknu samdi hann svo við bresku ríkisstjórnina um sjálfstæði Burma. Hann fékk hins vegar ekki að njóta valdanna í sjálfstæðu ríki því að fá- einum mánuðum áður en valdaskipt- in áttu að fara fram var hann myrtur af pólitískum andstæðingum ásamt flestum ráðherrum í bráðabirgða- stjóm landsins. Völdin í landinu lentu fljótlega í höndum herforingja- kliku sem enn heldur dauðahaldi um stjórnartaumana. Kölluð til forystu Suu fæddist 19. júní árið 1945 og man því lítt eftir íoður sínum. Hún hlaut menntun sína einkum erlendis; á Indlandi og Englandi, og hún starf- aði einkum í New York og Buthan. Árið 1972 giftist hún enskum menntamanni, Michael Aris, ogeign- aðist með honum tvö börn. Þau hafa búið lengst af í Oxford. Eins og sumar ritgerðir hennar í þessari bók bera með sér var hugur Suu þó oft á æskuslóðunum. Hún kynnti sér sérstaklega feril föður síns og skrifaði um hann ritgerð sem hér er birt. Það má hins vegar segja að tilviljun hafi ráðið því að hún dróst inn í stjórnmálaátök í heimalandi sínu. Móðir hennar veiktist alvarlega árið 1988 og Suu varð að snúa heim til þess að annast hana. Um sama leyti voru námsmenn og ýmsir aörir í Burma loks reiðubúnir til aö láta í ljósi andúð sína á áratuga einræði herforingjanna í landinu og hörmu- legu efnahagsástandi. Þar sem Suu var komin heim var eðlilegt að til hennar væri leitað um þátttöku í andstöðunni. Það sýndi sig fljótlega að ættarnafnið hafði mikið aðdráttarafl meðal almennings. Suu boðaði þar að auki stefnu og vinnu- brögð sem voru mjög í anda Gandhis og féllu í góðan jarðveg. Hún fór víða um landið og aflaði fylgis við kröfuna um lýðræði og frjálsar kosningar en lagði jafnframt mikla áherslu á að knýja yrði fram slíkar breytingar með friðsömum baráttuaðferðum. Herforingjastjórnin áttaði sig fljótt á því að Suu væri þeim hættulegur andstæðingur og settu hana í stofu- fangelsi á miðju ári 1989. En það breytti engu um áhrif hennar á al- menning. Þegar efnt var til frjálsra kosninga árið 1990 hlaut lýðræðis- bandalag hennar yfirgnæfandi fylgi meðal þjóðarinnar. Herforingjaklíkan ákvað hins veg- ar að halda áfram í völdin og láta sem kosningamar heíðu aldrei farið fram. Þannig standa mál enn. Vald hinna valdalausu Boðskapur Suu til þjóðarinnar kemur greinilega fram í þessu riti. Hér eru birtar ræður, greinar og viðtöl þar sem hún lýsir stefnu sinni og baráttu þjóðarinnar fyrir lýðræði og frelsi. Og hún hefur sýnt í verki að hún meinar það sem hún segir. Það var Vaclav Havel, tékkneski andófsmaðurinn sem nú situr á for- setastóh, sem tilnefndi Suu til friðar- verðlauna Nóbels. Hann ritar for- mála að bókinni þar sem hann fer lofsamlegum orðum um baráttu hennar fyrir frelsi og reisn landa siniia og því hvernig hún hefur fórn- að eigin frelsi fyrir málstaðinn. „Hún er glæsilegt dæmi um vald hinna valdalausu," segir hann og á þá ekki hvað síst við sigurinn sem hún vann í kosningunum í fyrra þótt hún væri sjálf lokuð inni og því án beins sam- bands við kjósendur. Lýðræði hefur víða numið land að undanförnu. En það gerist ekki af sjálfu sér. Fórnfús barátta Uggur þar að baki. Og árangurinn er oft óviss. Aung San Suu Kyi er táknræn fyr- ir slíka baráttu fyrir frelsi og lýðræði og þessi bók gefur ágæta mynd af viðhorfum hennar og baráttuaðferð- um. FREEDOM FROM FEAR AND OTHER WRITINGS. Höfundur: Aung San Suu Kyi. Penguin Books, 1991. Aung San Suu Kyi flytur ræðu á utifundi í Rangoon, höfuðborg Burma. Myndin var tekin á miðju ári 1989, skömmu áður en Suu var sett i stofufang- elsi. Simamynd Reuter Metsölukiljur Bretland Skáldságur 1. John le Carré: THE SECRET PILGRIM. 2. Dick Francis: LONGSHOT. 3. Tsrry Pratchott: MOViNQ PICTURES. 4. Caiherine Cookaon; THE GILLYVORS. 5. Stephen Klng: FOUR PAST MIDNIGHT. 6. Maeve Blnchy: CIRCLE OF FRIENDS. 7. Williem Boyd: BRAZZAVILLE BEACH. 8. Thomaa Harrls: THE SILENCE OF THE LAMÐS. 9. Wllbtir Smlth: ELEPHANT SONG. 10. Elteabeth Jane Hotvard: THE LIGHT YEARS. Rit almenns eðlis: 1. Gltes: GILES CARTOONS. 2. Perter Mayle: A YEAR IN PROVENCE. 3. Vlc Reevea & Bob Mortlmer: VIC REEVES BIG NIGHT IN. 4. R. Lelgh & B. Wood: THE ESSEX GIRL JOKE BOOK. 5. Mlcheel Pelln: AROUND THE WORLO IN 80 DAYS. 6. Jeremy Paxman: FRIENOS IN HIGH PLACES. 7. Gary Larson: UNNATURAL SELECTIONS. CARTOONS. 8. Simon Mayo: SIMON MAYO’S CONFESSIONS. 9. Bitl Wstteraon: CALVIN & HOBBES' SCIENTIFIC PROGRESS GOES „BOINK ’ 10. Gary Larson: THE PRE-HISTORY OF THE FAR SIDE. (Byggt á The Sunday Tlmes) Bandaríkin Skáldaögur: 1. Michaol Criqhton: JURASSIC PARK. 2. Dean R. Koontz: COLD FIRE. 3. Jean M. Auel: THE PLAINS OF PASSAGE. 4. Johanna Lindsey: PRISONER OF MY DESIRE. 5. Pal Conroy: THE PRINCE OF TIDES. 6. Marlo Puzo: THE FOURTH K. 7. Davld Eddlngs: THE RUBY KNIGHT. 8. Maeve Blnchy: CIRCLE OF FRIENDS. 10. Forrest Carter: THE EDUCATION OF LITTLE TREE. 11. Howard Weinstein: PERCHANCE TO DREAM. 12. Kurt Vonnegut: HOCUS POCUS. 13. A.S. Byatt: POSSESSION. 14. Stephen King: FOUR PAST MIDNIGHT. 15. Sandra Brown: 22 INDIGO PLACE. Rit almenns eðlis: 1. Deboroh Tannen: YOU JUST DONT UNDERSTAND. 2. Pater Mayle: A YEAR IN PROVENCE. 3. Robert Fulghum: ALL t REALLY NEED TO KNOW I LEARNED IN KtNDERGARTEN. 4. Peler Maas: IN A CHILD’S NAME. 5. M. Scott Pock: THE ROAD LESS TRAVELLED. 6. Chartes Kuralt; A LIFE ON THE ROAD. 7. Kenneth C. Davts: DON’T KNOW MUCH ABOUT HISTORY. 8. Ðlane Ackerman: A NATURAL HISTORY OF THE SENSES. 10. Hendrick Smith: THE NEW RUSSIANS. 11. Jill Ker Conway: THE ROAD FROM COORAIN. (Byggt á New York Times 8ook Revíew) Danmörk Skáldsögur: 1. Atice Walker: HANS TREDJE UV. 2. Jan Gulllou: UEN DEMOKRATISKE TERROR- IST. 3. Betty Mahmoody: tKKE UDEN MIN DATTER. 4. Herbjorg Wassmo: ÐINAS BOG. 5. Stephen King: ONDSKABENS HOTEL. 6. A. de Salnt Exupery: DEN LILLE PRINS. 7. Stephen Ktng: CHRfSTINE. 8. Bjame Reuter: DRENGENE FRA SKT. PETRI. 9. Jean M. Auel: HULEÐJORNENS KLAN. 10. Simon Wiesenthal: RETFÆRDIGHED - IKKE HÆVN. (Byggt á Politlken Sendog) 9. Sldney Sheldon: 9. Robert Fulghum: MEMORIES ÖF MIDNI6HT. IT WAS ON FIRE WHEN I LAY down on rr. Umsjón: Elías Snæland Jónsson Brúðkaups- dagurinn Sachiko Miura er að gifta sig. Brúðkaupsveisla hennar stendur sem hæst á einu dýrasta hótelinu í Tokyo. Þetta er hamingjuríkasti dagurinn í lífl þínu, segir faðir hennar. En Sachiko finnur ekki til neinnar hamingju enda er hún fyrst og fremst að giftast að kröfu fjölskyldunnar og þá ekki nein- um draumaprinsi heldur manni sem faðir hennar hefur valið. Því, eins og höfundurinn segir á einum stað, í Japan eru engar „konur“ - einungis eiginkonur og dætur. í brúðkaupi sínu rifjar Sachiko upp oft sára þroskabraut sína í foreldrahúsum og utan þeirra. Hún minnist námsáranna, karl- mannanna í lífi sínu, gleði og vonþrigða ástarinnar og storma- samra viðskipta þeirra feðgin- anna sem nú hafa endað með því að hún gengst undir það sem tal- in er skylda hennar; gerist eigin- kona. Höfundur þessarar sögu er enskur, en hann dvaldi sem kennari í Japan og þekkir því sögusviðið bærilega. Þetta er san- færandi lýsing af örlögum ungrar stúlku í samfélagi þar sem enn, er litið á dætur sem verslunar- vöru í höndum föðurins. SACHIKO’S WEDDING. Höfundur: Clive Collins. Penguin Books, 1991. KeÚK-KC. Ilr. N.vR.v.:Nx W 4 K»Vt( (y A tn Tcií t * (Ahdfití 5íhya v* ky) Réttarhöld Sinjavskís Árið 1965 efndi sovéska ríkið til réttarhalda gegn tveimur rithöf- undum, Andrei Sinjavskí og Júh Daniel. Glæpur þessara skálda, sem voru í reynd í útgáfubanni í heimalandi sínu, var aö hafa fengið skáldverk sín gefin út á Vesturlöndum - Sinjavskí undir dulnefninu Abram Tertz en Dani- el sem Nikolai Arzhak. Réttar- höldin vöktu mikla athygh á Vesturlöndum og ekki síður þeir höröu dómar sem þeir fengu en Sinjavskí var sendur til margra ára vistar í þrælkunarbúðum. í þessari heimildarskáldsögu fjallar Sinjavskí ekki aðeins um þann farsa sem réttarhöldin yfir honum voru heldur einnig um líf sitt fyrir og eftir dóminn harða. Þetta er forvitnileg lesning frá tímum sem nú tilheyra fortíðinni því að höfundurinn býr í París og kennir við Sorbonne en Sovét- ríkin sjálf eru úr sögunni. GOODNIGHT! Höfundur: Abram Tertz (Andrei Sinjavskí). Penguin Books, 1991.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.