Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 15
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991, 15 Svartidauði og rjúpur Nú strýkur maður kviðinn sæll og glaður. Rjúpumar smökkuðust vel á aðfangadag og ekki sveik hangiketið á jóladag. Með hafa fylgt sætindi, kaffi og koníakstár. Allt er þetta gott og blessað og betra að safna fitulagi til þess að mæta þeim mögru dögum sem Davíð hefur boðað. Og enn er bara hálfleikur. Við eigum eftir að raða í okkur nú um helgrna og ekki síður um ára- mótin. Ég sé fyrir mér kalkúninn sem bíður þess eins að verða étinn upp til agna. Tröllhænsn þetta fær væntanlega viðeigandi meðferð þegar gamla árið verður kvatt og því nýja fagnað. Að höggva af hausa En það er ekki nóg að borða öll þessi ósköp. Þessar herlegu veislur kosta sinn undirbúning. Allt lendir það meira og minna á mínum betri helmingi fyrir utan eitt. Það er að reyta rjúpumar. Raunar get ég ekki montað mig af því að reyta ijúpurnar. Ég er aðeins aðstoðar- maður eða lærisveinn hjá tengda- föður mínum. Hann reytir eða hamflettir öllu heldur. Ég hegg hins vegar hausinn af hveijum fugli og sömu meðferð fá lappirnar. Þá hefur mér lærst með þrautseigju að fara innan í fughnn og tæta úr honum fóhomið. Það er víst ómiss- andi í sósuna. Flaska af svartadauða Framan af sá tengdapabbi einn um að reyta rjúpumar. Við nutum góðs af og fengum þær tilbúnar. Fyrir nokkram áram sá ég að við svo búið mátti ekki standa. Ég varð að sýna lit og hjálpa til. Ég boðaði því komu mína þegar ég vissi að átti að reyta. Til þess að mæta ekki tómhentur til þessa verknaðar hafði ég með mér nokkuð marga bjóra og eina flösku af .svarta- dauða. Bjórinn var danskur Elep- hant og þvi fílsterkur. Þetta þótti mér öryggisatriði. Fyrirfram vissi ég ekki hvernig mér gengi við þessa krafningu, enda óvanur. Mér var það líka minnisstætt að einn skóla- félagi minn í menntaskóla féll í öngvit þegar fugl var krufmn í líf- fræðitíma. Hrollurinn tekinn úr Eftir að ég birtist með bijóstbirt- una þótti tengdamúttu vissara að koma okkur tengdafeðgum fyrir á Öruggu svæði í sólstofu hússins. Við sóttum hnífa og klippur og fleiri sjúkrááhöld. Tengdapabbi kenndi mér að hálshöggva og tók við að hamfletta. Þetta voru all- margir fuglar, enda fyrir fleiri fjöl- skyldur en okkar. Ég náði því fljótt góðri æfingu. Hausar þutu af og engin fyrirstaða var í löppunum. Fiðrið þyrlaðist um allt og blóðið lak. Aðkoman var ófögur. Til þess að fyrirbyggja allan flök- urleika opnaði ég tvær bjórflöskur. Við supum stóra sopa eins og menn gera þegar þeir eru í ham. Við kipptum okkur ekki upp við spíra- bragðið sem alltaf fmnst af elefant- inum. Til enn frekara öryggis stakk ég upp á því að við tækjum úr okk- ur hrollinn með sitt hvoru staup- inu af svartadauða. Það tók vel í. Sungið yfir fjallarjúpunni Upp frá þessu skiptist nokkuð á ijúpa, bjór og snafs. Nokkuð gekk á svartadauðann og þegar frá leið fannst okkur elefantinn eins og hvert annað lindarvatn. Við nánast létum tunguna lafa ofan í bjórinn til slökunar og undirbúnings fyrir enn meiri svartadauða. Nokkur hávaði varð í okkur félögunum um leið og hver fugl fékk heldur lengri meðferð. Tengdapabbi er góður söngmaður og tók nú að syngja yfir fjallaijúpunni. Ég stend hon- um nokkuð að baki i söngmennt- inni en vera kann að ég hafí látið nokkrar melódíur fjúka, kominn í þetta fína jólastuð. Tengdamamma lét aftur millihurðina. Einkennilegt kann það að virðast að vilja ekki njóta söngsins, eins innilega og hann var þó sunginn. Ég ber þó sennilega ábyrgð á þess- ari meðferð hurðarinnar frekar en tengdapabbi. Hann hefur sungið í Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri kór og er vanur. Ég hef hins vegar aðra sögu að segja. Eitt sinn var mér til dæmis boðið í samkvæmi heima hjá vinnufélaga mínum og hans ágætu konu. Þar hittumst við starfsystkinin og komumst innan tíðar í hið besta form. Þá hófum við tveir félagarnir söng og töldum það hæfa tilefni dagsins. Um leið og það gerðist stóð heimilistíkin upp og gekk út. Tíkin haföi annars legið dottandi á stofugólfinu. Við söngmennirnir urðum fyrir nokkru aðkasti vegna þessarar undarlegu hegðunar tíkurinnar. Við lögðum því af sönginn. Tíkin kom samstundis aftur inn í stofuna og lagðist makindalega niður. Okk- ur þótti þetta hart og fannst tó- neyra skepnunnar lítt þróað. Við vildum ekki sitja undir þessu og upphófum því söng á ný. Það þarf ekki að orðlengja það. Tíkin strans- aði á dyr á ný. Við reyndum ekki frekar. Tekinn undir arminn En við tengdafeðgar létum það ekki á okkur fá þótt aðrir heimilis- menn lokuðu okkur af. Við kláruð- um að hamfletta ijúpumar, höggva af hausana og lappimar. Við klár- uðum líka elefantinn og það sem meira var. Við kláruðum svarta- dauðann. Undir það síðasta sá ég að kona mín var mætt á vettvang. Ekki veit ég hvort móðir hennar hefur hringt þegar hún sá meðferö- ina á jólamatnum. Svo mikið er víst að dóttirin tók sinn mann und- ir arminn og fór með hann heim. Á heimleiðinni lét hann vel af dags- verkinu. Konan tók hæfilegt mark á því. Ástandið versnaði hins vegar þegar ijúpnalærlingurinn lagði höfuð á kodda. Þá hringsnerist rúmið og herbergið allt. Svarti- dauðinn stóð undir nafni. Náfölur í skötu Ekki var ástandið betra morgun- inn eftir. Þorláksmessa var runnin upp og jólin í seilingarfjarlægð. Lærhngurinn mátti sig hvergi hræra. Ógleðin, sem hann óttaðist deginum fyrr, lét aldrei á sér kræla en nú kom hún með margföldum þunga. Timburmennska var ógur- leg. Konan gaf lærlingnum frest til hádegis. Þá skyldi hann í búðir á síðasta degi fyrir jól. Til minna varð ekki ætlast. Fyrst ætlaði hún hins vegar með mig til systur sinn- ar, Þorláksmessuskatan beið i pott- inum. Ég gat ekki einu sinni hugs- að um skötu, hvað þá borðað hana. Ég lét mig þó hafa það og fór fram úr og út. Skreiddist farþegamegin inn í bílinn, batt mig niður og dró lappirnar upp undir höku. Konan ók af stað og við fórum í árlega skötuveislu fjölskyldunnar, Eg mætti tengdapabba náfölum á ganginum. Svartidauðinn hafði líka leikið hann grátt. Við borðuð- um sitt hvora kartöfluna til mála- mynda. Nú sungum viö ekki neitt. Eftir matinn gerði konan tilraun til þess að fara með mann sinn i búðir. Hún gafst upp, skilaði hon- um og fór ein. Það var skynsamleg ákvörðun. Heilsan leyföi ekki rétt- stöðu, hvað þá göngu. Fiðringur á ný Þessum hörmungum dagsins eft- ir vorum við tengdafeðgar þó löngu búnir að gleyma þegar hallaði að næstu jólum. Við hlökkuðum því mikið tíl, handlékum ijúpurnar og undirbjuggum aðgerðir. Tengda- mamma var þó minnugri. Hún flutti okkur út í bílskúr. Þar var meiri friður fyrir okkur og minna gerði til þótt fiðrið fyki um allt og blóðið læki. Fréttir höföu þó borist af því hversu skemmtilegt það get- ur verið að undirbúa jólamatinn. Fleiri vildu því vera með. Við höfö- um líka lært svolítið af reynslunni. Ölið var því heldur mildara í þaö skiptið. Talsvert gekk þó á hjá okk- ur í bílskúmum. Það leiddi til þess að þegar enn leið að jólum, ári síð- ar, og rjúpnafiðringur fór að gera vart við sig, þá vorum við fluttir í enn annan bílskúr. Það eru tak- mörk fyrir því hvað eitt heimili getur þolað. Aukinn áhugi Nú í seinni tíð hefur áhugi á þess- ari jólaathöfn aukist mjög. Það á þó eingöngu við um karlpeninginn. Konur krossa sig og fara annað og vona það eitt að jólamaturinn kom- ist heill frá þessari hildi. Jólahátíðin stendur nú sem hæst. Við erum að jafna okkur eftir ijúpnahátíð þessa árs. Og ef satt skaí segja erum við þegar famir að hlakka til þeirrar næstu. Þetta eru nú ekki nema 52 vikur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.