Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 23
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991.
23
Kvikmyndir
Á valdi eiturlyfj a
Leikstjórinn Lili Fini Zanuck ásamt manni sínum, Richard, og Warren Beatty við óskarsverðlaunaafhendinguna fyrir Driving Miss Daisy.
Prófraun Lili Fini Zanuck sem
leikstjóra er myndin Rush. Hún
fjallar um lögregluþjóna sem verða
eiturlyfjum að bráð í starfi sínu.
Það virðist vera staðreynd að all-
ir þeir sem koma nálægt kvik-
myndagerð gangi með það í magan-
um að verða einn góðan veðurdag
leikstjóri. Það hvílir ákveðinn
ljómi yfir því að sjá nafn leikstjór-
ans birtast á hvíta tjaldinu. Leik-
stjórar hafa líka náð að festa sig
vel í sessi í henni Hollywood enda
er ekki óalgengt að í upphafi mynd-
ar birtist titillinn „mynd eftir“
þennan og þennan leikstjóra í stað
þess að segja einfaldlega í lok
myndarinnar „leikstýrð af ‘ og svo
nafn viðkomandi leikstjóra.
En það hafa ekki alhr þá eigin-
leika eða réttara sagt hæfileika sem
þarf til að vera góður leikstjóri. Það
eru því margir kahaðir en fáir út-
valdir. Það eru sérstaklega leikarar
sem eru áhugasamir að fá að
spreyta sig í hlutverki leikstjórans.
Þeir þekktari geta í krafti frægðar-
innar fengið þetta í gegn meðan
hinir verða bara að bíða og vona.
Gott dæmi um þetta er Arnold
Schwarzenegger, sem nýlega tók
að sér að leikstýra kvikmynd. Þessi
dýrasti leikari heims tók ekki nema
brot af því sem hann er vanur að
fá sem leikari í laun til að fá að
leikstýra myndinni. Framleiðand-
inn var hins vegar himinlifandi því
það eitt að nafn Schwarzeneggers
hirtist á hvíta tjaldinu tryggir góða
aðsókn.
Margir góðir
En hvemig sem Schwarzenegger
gengur með þessa mynd sína, þá
hafa margir leikarar komið reglu-
lega á óvart sem leikstjórar. Þar
má nefna Robert Redford sem er
meira eða minna hættur að leika í
kvikmyndnum eftir að hann leik-
stýrði hinni margrómuðu mynd
Ordinary People árið 1980. Eins
má nefna Ronny Howard sem á sjö-
unda áratugnum var ein vinsæl-
asta bamastjama Bandaríkjanna
og lék í myndum eins og The Wild
Country (1971), American Graffiti
(1973) svo og Grand Theft Auto
(1977). Hann hefur leikstýrt hverri
stórmyndinni á fætur annarri eftir
aö hann sló í gegn með Splash
(1984). Af öðmm myndum hans má
nefna Cocoon (1985), Backdraft
(1990), sem fjallaði um líf og störf
slökkvihðsmanna, svo og ævin-
týramyndina Wihow (1988).
En hvaö með framleiðenduma?
Langar þá ekki einnig að verða
leikstjórar? Auðvitað og nýlega var
fmmsýnd myndin Rush sem er
leikstýrð af Lih Fini Zanuck. Lih
er þriðja eiginkona hins þekkta
kvikmyndaframleiðanda, Richard
Zanuck, og þar með tengdadóttir
hins þekkta Darryl F. Zanuck, sem
stofnaöi á sínum tíma kvikmynda-
veriö 20th Century Fox og veitti því
forstöðu um árabh.
Litríkur ferill
Richard Zanuck á Utríkan feril
að baki sem kvikmyndaframleið-
andi. Hann sló í gegn með myndun-
um The Sting (1973) og Jaws (1975)
sem hann framleiddi með sam-
starfsmanni sínum, David Brown.
Þeir félagar framleiddu síðan fjöld-
ann ahan af stórmyndum á þeim
17 árum sem þeir störfuðu saman.
En eftir að Richard giftist Lih Fini
lauk þessu langa samstarfi og tók
eiginkona við hlutverki David
Brown og saman framleiddu þau
myndir eins og Cocoon (sem leikar-
inn Ron Howard leikstýrði) svo og
óskarsverðlaunamyndina Driving
Miss Daisy. En í stað þess að fram-
leiða Cocoon III eða sjónvarps-
þáttaröð byggða á Driving Miss
Daisy ákvað Lih Fini að gerast leik-
stjóri.
Fyrir þremur árum höfðu hjóna-
kornin keypt kvikmyndahandrit
eftir Kim Wozencraft, leynhög-
reglukonu frá Texas, sem hafði
skrifað metsölubók byggða að
hluta á hennar eigin reynslu, þar
sem hún varð ástfangin af sam-
starfsmanni sínum, ánetjaðist eit-
urlyfjum, sem endaði með því að
hún var dregin fyrir dómstóla og
sett i fangelsi.
Þekktur
handritahöfundur
Þau hjónin réðu th sín handrita-
höfundinn Robert Towne th að
endurskrifa handritið sem nú bar
nafnð Rush. Fljótlega eftir að hann
hóf störf kom beiðni frá Tom Cru-
ise hvort hann gæti fengið Towne
lánaðan th að finpússa handritið
að myndinni Days of Thunder.
Towne fékk leyfið en eftir að það
dróst að hann kæmi aftur th starfa
brast þau hjónin þohnmæðina og
fengu Pete Dexter th að ljúka verk-
inu en hann hafði meðal annars
skrifað handritið að Paris Trout.
Þegar komið var að því að velja
leikstjóra stakk Lih Fini einfald-
lega upp á sjálfri sér.
Rush var fnunsýnd í byijun des-
ember. Myndin hlaut góða dóma
þótt gagnrýnendur teldu boðskap
myndarinnar einum of háleitan og
háfleygan th að ná til fjöldans. Það
er hins vegar almenningur sem
hefur síðasta orðið svo það verður
Umsjón
Baldur Hjaltason
gaman að sjá hvemig Rush reiðir
af í jólamyndaflóðinu.
Efnisþráður
Myndin fjallar um Jim, starfs-
mann fíkniefnadeildar lögreglunn-
ar í Texas. Jim er leikinn af Jason
Patric. Hann kynnist nýjum starfs-
manni að nafni Kristen (Jennifer
Jason Leigh), sem virðist taka
starfið alvarlega, og fer fram á að
hún verði samstarfsmaður hans.
Jim leiðir Kristen inn í undirheima
eiturlyfjanna, spennuna og hætt-
una sem fylgir starfi þeirra. Þetta
gengur aht vel í fyrstu en fljótlega
fer Kristen að hafa áhyggjur af því
hve Jim tekur vinnuna alvarlega
og virðist ekki ahtaf gera greinar-
mun á vinnunni og einkalífinu. í
starfinu eru Jim og Kristen daglega
í návígi við eiturlyf og verða stund-
um að neyta þeirra th að sannfæra
seljenduma um hohustu sína. Jim
virðist hins vegar stunda sömu iðju
utan vinnutíma. Kristen reynir að
halda aftur af Jim en það reynist
erfitt, ekki síst vegna þess að hún
er orðin ástfangin af honum. Hún
missir því einnig tökin á raunvem-
leikanum og ánetjast smátt og
smátt eiturlyfjunum.
Viðkvæmt málefni
Eiturlyf em mjög viðkvæmt efni
í kvikmyndum. Það hefur lengi
veriö yfirlýst stefna Bandaríkja-
stjómar að reyna að gera sem
minnst úr eiturlyfjum og eitur-
lyfjaneyslu í öhu afþreyingar- og
skemmtiefni. Zanuck lýsir hins
vegar nokkuð nákvæmlega þessum
þáttum í Rush og dregur upp sterka
mynd af því hvemig þau Jim og
Kristen sogast hægt og rólega inn
í heim eiturlyfjanna, ófær um að
veita sér björg. Að lokum eiga þau
enga að nema sjálfa sig þar sem þau
hafa einangrast frá öllum, m.a. th
að fela vandamál sitt. Þetta er því
mynd með sterkan boðskap sem
líklega höfðar ekki til ahra.
Myndin er látin gerast upp úr
1970 þegar bandaríska þjóðin var
að byrja aö átta sig á hvaða þjóðfé-
lagsatburðir höfðu gerst upp úr
1968. í myndinni sjást einnig
nokkrir sem voru upp á sitt besta
á þessum tíma, eins og Gregg Ah-
man sem leikur eiganda nætur-
klúbbs. Tónhstin, sem notuð er í
myndinni, er einnig í sama sth en
th verksins var fenginn enginn
annar en Eric Clapton.
Góðurleikur
En það er ekki síst stórkostlega
góður leikur þeirra Jason Patric
og Jennfier Jason Leigh sem gerir
Rush að eins góðri mynd og raun
ber vitni. Patric er afskaplega
sannfærandi í hlutverki hins ein-
ræna lögreglumanns sem virðist
svo sterkur á yfirborðinu en reyn-
ist svo veikgeðja þegar vandamálin
koma upp. Þegar Zanuck bauð
Patric aðalhlutverkið hikaði hann
lengi vegna þess að þetta var fyrsta
mynd Lih Fini sem leikstjóra. Þau
Zanuck hjónin buðu síðan fleirum
þetta hlutverk en létu Patric einnig
vita að hann gæti gengið í hlutverk-
ið þar th búið væri að ráða annan.
Sem betur fer ákvað hann að taka
hlutverkið áður en th þess kom.
Max Perlich sýnir einnig góðan
leik sem eiturlyfjasah en hann lék
ekki ósvipað hlutverk í hinni róm-
uðu en jafnframt sorglegu mynd,
Drugstore Cowboy.
Lih Fini Zanuck er bjartsýn á að
myndinni verði tekið vel af áhorf-
endum. Hún gerir sér grein fyrir
því að erfitt verður að auglýsa
mynd um svona viðkvæmt efni án
þess að hafa þekkta leikara í aðal-
hlutverkum, eins og t.d. Tom Cru-
ise eða Judy Foster. Það er spum-
ing hvort áhorfendur vhji forvitn-
ast um þá tíma þegar lög eins og
„Cocaine" og „One Took over the
Line“ voru vinsæl og ekki var litið
eins alvarlega á eiturlyfjaneyslu
meðal unghnga og nú th dags. Lih
Fini hefur meira að segja verið hkt
við Oliver Stone sjöunda áratugar-
ins, þar sem vitnað er í mynd Oh-
vers um hljómsveitina The Doors.
En hvað er fram undan? Lih Fini
Zanuck er þessa dagana að vinna
að næstu mynd þeirra hjóna sem
ber nafnið Rich in Love. Hún hefur
einnig velt því fyrir sér hvort hún
eigi ekki einnig að leikstýra mynd-
um þar sem þau koma ekki við
sögu við framleiðsluna en enn er
ekkert ákveðið.
Helstu heimildir: Movieline, Variety.