Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Blaðsíða 26
KiÚV'-í^í' CTlr 34 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991. Helgarpopp_____________________________________pv U2 aldrei betri - Achtung Baby sýnir bestu rokksveit veraldar að verki Bono, söngvari hljómsveitarinnar. Þaö blandast fáum hugur um að U2 er sú rokksveit sem mestrar lýðhylli hefur notið sl. áratug eða svo. Fjórmenningarnir frá Dublin voru krýndir konungar rokksins eftir útkomu plötunnar The Joshua Tree árið 1987 og þá þymikórónu hefur hljómsveitin borið með sæmd síðan. Þrátt fyrir hrakspár og efasemdir um að U2 gæti staðist þær væntingar sem til krúnunnar eru gerðar hefur hljómsveitin styrkst eftir því sem árin hafa hðið. Hljómsveitin á það sammerkt með Bítlunum að hafa beint tónhst sinni inn á ókannaðar og tormeltar slóð- ir eftir því sem vegur hennar hefur vaxið og fyrir það nýtur hún virð- ingar rokkáhugamanna. Nýjasta afurð U2, Achtung Baby, sýnir hljómsveitina í nýjum dansi. Hún stígur fastar á fjöl. Þeir sem hafa fylgst með hljóm- sveitinni frá upphafi fuhyrða með réttu að hún hafi ekki sent frá sér betri smíð. Poppsíða dagsins er helguð U2 en um þessar mundir eru hðin 12 ár frá því hljómsveitin sendi fyrstu afurðina frá sér á plasti. Hæfileikakeppnin stökkpallur Sögu U2 má rekja aftur til ársins 1976 en þá kviknaði hugmynd hjá íjórum skólabræðrum úr Mount Temple skólanum að sniðugt væri að tjasla saman hljómsveit. Sá galli var þó á gjöf Njarðar að enginn fjórmenninganna kunni á hljóð- færi. Shkir smámunir voru þó ekki steinn í götu hugmyndarinnar og urðu félagarnir sér úti um grunn- hljóðfærin, trommur, bassa og gít- ar. Piltarnir voru Paul Hewson, kallaður Bono Vox (þýðir mikil rödd á latínu), vandræðagemsinn Adam Clayton, námshesturinn Dave Evans, sem síðar fékk viður- nefnið The Edge vegna sérstæðs gítarleiks, og hinn hlédrægi Larry Muhen sem var plantað bak við strekktar húðir. Á þremur árum tókst hljómsveit- inni að ná þokkalegum tökum á hljóðfærunum og árið 1979 var svo komið að þeir vildu reyna fyrir sér á opinberum vettvangi. Þegar Gu- innes-bjórfyrirtækið auglýsti hæfi- leikakeppni sáu piltamir sæng sína uppreidda og skráðu sig tii þátt- töku. Þegar hér var komið stundaði hljómsveitin hljóðfæraslátt á öld- urhúsum í Dubhn, þó að allir væru þeir undir lögaldri. Þeir ætluðu ekki að kemba hærumar á pöbbun- um og því sáu þeir í hæfileika- keppninni ákveðinn möguleika á þvi að komast frá þeim og spila á „æðri stöðum". Til að gera langa sögu stutta þá bám þeir sigur úr býtum í keppninni. Sigurlaunin vom fimm þúsund írsk pund sem ætluð voru til hljóðfærakaupa og reynslusamningur við írlandsdeild CBS hljómplötufyrirtækisins. í nóvember kom þriggja laga plata með Out of Control sem aðahag út á írlandi og í kjölfarið fylgdi smá- skífa með laginu Another Day. Báðar gengu þessar útgáfur vel og lögin uröu vinsæl á írlandi. í des- ember 1979 fór U2 í tónleikaferð til London sem kom piltunum kirfi- lega niður á jörðina. Aðsókn var vægast sagt dræm og á eina tón- leikana mættu níu áheyrendur. Útgáfurisarnir í Englandi höfðu þó vaknað til vitundar um að eitthvað óvenjulegt væri á seyði í Dubhn í kjölfar vinsælda laganna. Risamir bitust um bráðina í nokkrar vikur og í apríl árið 1980 undirritaði hljómsveitin samning við Island Records. Fjölbreytt yrkisefni Fyrsta verk U2 á hinu nýja merki kom út aðeins mánuði eftir undir- ritun samningsins og var þar á ferð eitt elsta lag hljómsveitarinnar sem samið var árið 1978 og hét þá Shver Lining en var nú útgefið sem 11 O’Clock Tick Tock. í október kom fyrsta breiðskífa U2 á markað og kailaðist hún Boy. Þar var á ferð sterk rokkskífa þar sem byrjendakraftur og ferskleiki voru aðalsmerkið. Textarnir voru á vitrænum nótum og hljóðfæra- leikur grófur án þess að vera ruddafenginn. Breskir gagnrýn- endur bám lof á gripinn og var hann á hstum margra yfir bestu plötur ársins. í október árið 1981 var önnur breiðskífa U2 útgefin og bar hún nafn útgáfumánaðarins. Trúarlegt yfirbragð plötunnar var áberandi, enda hljómsveitarmeðhmir, utan Adam Clayton, aldir upp í ströng- um kaþólskum sið. Á plötunni var guðsorði hampað en pijálsemi kirkjunnar hörmuð og skrípaleik- urinn sem viðgengst innan veggja hennar. Lög plötunnar, sem skír- skotuðu hvaö sterkast í trúna, voru Gloria, Rejoice og Tomorrow en það síðastnefnda samdi Bono um dauða móður sinnar. Frá trúarjátningum á October lá leiðin til óeirðaplötunnar War en hún kom út í febrúar árið 1983. Eins og titih plötunnar ber með sér var efnistakan ófriður í ýmsum myndum, aht frá uppgjöri elskenda til átaka trúarhópa, þjóðarbrota og þjóða. Platan var sú hehsteyptasta sem U2 hafði sent frá sér, rokkið var úr jötnageiranum þar sem tek- ið var í trega á stöku stað. Upptöku- maðurinn Steve Lihywhite lagði sig fram um að halda yfirbragði plötunnar hráu og hann átti ekki htinn heiður af meistaraverkum eins og Two Hearts beat as one, Sunday Bloody Sunday og New Years Day. Nokkrum dögum eftir útkomu War hófst í Edinborg átta mánaða hljómleikaferð U2 um Vesturlönd, Japan og Ástralíu. í þeirri ferð var tónleikaplatan Und- er a Blood Red Sky hljóðrituð en hún er viðurkennd sem einhver almagnaðasta hljómleikaskífa ahra tíma. Samnefndu myndbandi Umsjón: Snorri Már Skúlason var hkt og plötunni tekið með kost- um og kypjum og var í mörg ár í hópi best seldu tónhstarmynd- banda á Bretlandseyjum. Bonoí messuklæðum Eftir kærkomið frí frá tónhstinni sneri hljómsveitin aftur í miðalda kastala fyrir utan Dubhn þar sem upptökur á næstu plötu fóru fram (Slane-kastalinn komst í heims- pressuna í lok nóvember sl. er hann varð eldi að bráð). Nýr upp- tökustjóri var í för með hljómsveit- inni, íjöhistamaðurinn Brian Eno, sem hafði m.a. getið sér gott orð með Roxy Music, David Bowie og Talking Heads. Platan kom á mark- að í október og fékk betri viðtökur en nokkur af fyrri verkum hljóm- sveitarinnar. The Unforgettable Fire var ólík fyrri plötum að mörgu leyti. Hún skar sig úr hinu hefð- bundna poppi þar sem allt er khppt og skorið. Hið mikla rokk-tempó, sem hafði einkennt hljómsveitina, var dempað, tónhstin var rólegri og þyngri, jafnvel sveipuð dulúð. Sterk undiralda hreif menn inn á annað vitundarstig þar sem Bono messaði sem hinn mikh meistari. Lög í léttari kantinum var þó að finna á plötunni og eitt þeirra, Pride (in the name of love), fór á toppa vinsældahsta. í hljómleika- ferð, sem fylgdi í kjölfar plötunnar, var boðskapur U2 svo magnaður að hann kom fram á jarðskjálfta- mælum, eins og frægt varð. Árið 1985 stofnaði U2 eigið hljóm- plötufyrirtæki, Mother Records, þar sem efnilegum nýliðum var gefinn kostur á útgáfu einnar smá- skífu til að komast í sviðsljósið. Þetta gerði hljómsveitin, minnug þess tíma er hún var sjálf að stíga sín fyrstu skref. Hefur fjöldi hljóm- sveita notið góðs af þessu framtaki U2. The Joshua Tree var heiti sjöttu plötu U2 sem var gefin út í mars- mánuði 1987 en þá voru hðin rúm tvö ár frá útkomu The Unfor- gettable Fire. Væntingar voru því miklar og stóð platan fyllilega und- ir þeim. Gagnrýnendur lofuðu skíf- una og almenningur flykktist í hljómplötuverslanir th að verða sér úti um gripinn. Eins og búist var við fór platan beint á toppinn í Englandi en hitt vakti meiri at- hygh að U2 sló nú loks aimennhega í gegn í Bandaríkjunum. Lagið, sem braut ísinn, var With or Without You, fyrsta topplag U2 í Bandaríkj- unum, en það fjallar um það of- beldi sem fylgir því að elska. Um lagið og vinsældir þess sagði Bono: „Við vhjum gjaman koma lögum okkar á vinsældahstana en það verður að gerast samkvæmt okkar skhmálum. Það er spennandi verk- efni að kohvarpa stefnu vinsælda- útvarpsins því flest lög, sem þar em leikin, em okkur htt að skapi. Þetta er hálfgerð lyftutónhst, eitt- hvað th að hafa í bakgrunni. Við vhjum stöðva þessa lyftu. Lögin okkar eiga að höfða th hinna vinn- andi stétta en jafnframt þeirra sem grúska í tónhst og hafa hana að ástríðu. Góður smehur á að koma róti á ímyndunarafl fólks og það held ég að With or Without You geri.“ The Joshua Tree var af aht öðr- um toga en The Unforgettable Fire en engu að síður ákveðin fuhkomn- un þeirrar stefnu sem hófst á þeirri plötu. Lag eins og A Sort of Homecoming hafði þróast út í In Gods Country og Bad út í Where the Streets Have no Name. Rattle and Hum var heiti tón- leikaplötu og bíómyndar sem sýndi hljómsveitina U2 við leik og störf og kom út haustið 1988. Þar var að finna ýmsa eldri gullmola í nýjum búningum auk þess sem nýjar perl- ur voru þræddar upp á festina. Plata ársins 1991 Achtung Baby er áttunda plata U2 og hefur hennar verið beðið með mikihi óþreyju. Þegar hulu var svipt af verkinu í nóvember sl. önd- uðu margir aðdáenda sveitarinnar léttar. Þeir sem hugðust rakka plöt- una niður (það er siður popppress- unnar ytra að skíta út flest það sem stórstjörnur senda frá sér) létu sig hverfa án þess að mikið bæri á með skottið milli lappanna. Það hefði nefnhega verið hægðar- leikur fyrir U2 að setja saman gríp- andi rokkplötu og raka þannig saman hundruðum milljóna króna í eigin vasa. Það voru margir hræddir við að sú yrði raunin en góðu heilli tók hljómsveitin gagn- stæðan pól í hæðina. Achtung Baby er líklega tormeltasta plata U2 til þessa og á henni eru gerðar ýmsar djarfar thraunir sem gleðja hlust- andann þegar fram í sækir. Það er þykk skelin á Actung Baby en þeg- ar maður kemst inn fyrir hefur maður eignast traustan vin. Achtung Baby var hljóðrituð í Hansa-hljóðverinu í Berlín og í Dublin og tók vinnslan u.þ.b. eitt ár. Seiðkarlarnir Daniei Lanois og Brian Eno útsettu plötuna og skila þeir frábæru verki. Tónhstin er full af óvæntum uppákomum, þétt og vanabindandi. Textasmíðin er í rökréttu fram- haldi af því sem var að gerast á The Joshua Tree. Ekki er lengur stung- ið á þjóðfélagslegum kýlum heldur takmarkar Bono sig við sálartetur mannsins. Platan opinberar skýrar en fyrri verk U2 þá áherslu sem lögð er á hið andlega í textum U2 og hvernig þeir stinga í stúf við hefðbundna rokktexta er byggjast upp á karlmennskuímynd og ung- æðislegri umfjöhun um ástina. Textar Bono sýna þroskaðri um- fjöllun um tilfinningahfið þar sem farið er út fyrir klisjukenndar lýs- ingar á skyndikynnum unghnga. Textarnir gefa tónhstinni aukna vídd, kannski meiri vídd en á nokk- urri plötu U2. Að ætla að taka einhver einstök lög út er óðs manns æði þegar önn- ur eins skífa á í hlut og Achtung Baby. Þó er vert að nefna sérstak- lega lögin One, Unth the End of the World, So Cruel og Mysterious Ways. Meðhmir U2 hafa neitað öllum viðtölum eftir að platan kom út, segja að í tónhstinni sé að finna svör viö öllum spurningunum. Undantekningin, sem sannar regl- una, er stutt spjall sem Bono átti viö stjórnanda útvarpsþáttar á ír- landi fyrir mánuði. Þar sagði Bono aö hann væri eiginlega hissa á því hversu vel platan hljómaði í hans eyrum eftir að hafa unnið að henni meira og minna síðasthðið ár. Hann sagði ennfremur að Larry Mullen og Adam Clayton hefðu unnið sigur á þessari plötu. „Grunnamir í lögunum eru á stundum göldrum líkastir, ég hef sjaldan heyrt jafnþéttan ryþma á nokkurri plötu.“ Bono sagði að af- staða hljómsveitarinnar th tón- leikahalds hefði breyst. Héðan í frá æth hljómsveitin að ganga út frá eigin forsendum. U2 mun ekki halda tónleika nema þegar hljóm- sveitina langar th og þar sem hana langar th að spila. Skylduræknin réð ekki lengur ferðinni. Þess má að lokum geta að fyrir- huguð hljómleikaferð U2 hefst í Bandaríkjunum í mars og næsta sumar verður hljómsveitin í Evr- ópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.