Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Page 37
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991.
45
Fréttir
Starfsmenn sovéska sendiráðsins í óvissu:
Mig grunar að sendiráðið
starf i nú fyrir Rússland
„Mig grunar að sendiráðið starfi
nú fyrir Rússland en við höfum ekki
fengið nein fyrirmæli þar að lútandi.
Það eru 99 prósent líkur á að þetta
verði sendiráö Rússlands í framtíð-
inni þar sem fyrrum utanríkisráðu-
neyti Sovétríkjanna heyrir nú undir
Rússland. Þetta hefur því í raun ver-
ið ákveðið þannig að það er einungis
formsatriði að tilkynnna okkur
þetta. Við eigum von á opinberri til-
kynningu þess efnis á næstunni,"
segir Leoníd Vakhtim, 2. sendiráðs-
ritari í fyrrum sendiráði Sovétríkj-
- segir Leoníd Vakhtim, 2. sendiráðsritari
anna á Islandi.
Leoníd segir óvissuna um framtíð
sendiráðsins snúast um að hversu
miklu leyti það muni þjóna hags-
munum annarra samveldisríkja en
Rússlands. Hann segir að fulltrúar
ríkjanna muni hittast á fundi þann
30. desember þar sem ákvörðun um
samstarf á sviði utanríkismála verði
á dagskrá. Þá sé formlegrar ákvörð-
unar um þetta samstarf að vænta.
Alls dvelja um 60 manns hér á landi
í tengslum við fyrrum sendiráð Sov-
étríkjanna, þar af 13 diplómatar. All-
flest er þetta fólk Rússar, þar á með-
al Leoníd sem segist vera Rússi í húð
og hár. Sendiherrann, Igor N. Krasa-
vin, mun hins vegar vera að hálfu
Rússi og að hálfu Úkraínumaður.
Að sögn Leoníds voru engin jól
haldin hjá starfsmönnum sendiráðs-
ins nú í desember né fjölskyldum
þeirra. Flest tilheyri þetta fólk rétt-
trúnaðarkirkjunni sem haldi upp á
jólin 7. janúar. Hann segir hátíðar-
höldin hér á landi hins vegar ekki
hafá farið fram hjá sínu fólki og í til-
efni þess hafi menn gert sér daga-
mun. Hann segir efnahagsþrenging-
arnar heima fyrir ekki hafa bitnað á
starfsfólki sendiráðsins fram til
þessa. Laun og önnur aðfong hafl
borist með eðlilegum hætti. Því væsi
ekki um neinn í sendiráðinu.
í íslenska utanríkisráðuneytinu
ríkir ekki vafi á að sendiráð Sovét-
ríkjanna sé nú í þjónustu Rússlands
enda telur það sig hafa fengið stað-
festingu á því. Formlega hefur ísland
hins vegar ekki viðurkennt Rúss-
land. í ráðuneytinu er hins vegar lit-
ið svo á að viðskiptasamningur ís-
lands og Rússlands, sem undirritað-
ur var 5. desember síðasthðinn, sé
ígildi slíkrar viðurkenningar.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar,
skrifstofustjóra í utanríkisráðuneyt-
inu, er það skoðun ráöuneytisins að
Igor N. Krasavin, fyrrum sendiherra
Sovétríkjanna á íslandi, og starfs-
menn sendiráðsins starfi nú sem full-
trúar Rússlands hér á landi. Að-
spurður segist hann búast við að
sendiráðið þjóni til að byrja með öðr-
um þeim ríkjum sem áður mynduðu
Sovétríkin. -kaa
Sameining 1 Eyjum um áramótin:
EHt fjögurra
stærstu sjávarút-
vegsfyrirtækja
- veiðiheimildir jafngilda 12.500 þorskígildistonnum
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Samningar hafa tekist um að sam-
eina ísfélag Vestmannaeyja hf. -
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og
Berg-Huginn hf. Félögin sameinast
frá 1. janúar 1992 undir nafni ísfélags
Vesmannaeyja hf. sem er elsta starf-
andi hlutafélag á íslandi. Firma-
merki hins sameinaða félags verða
Skeifumar sem nú eru merki Hrað-
frystistöðvarinnar. Félagið verður
þriðja til fjórða stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins.
Hið sameinaða félag hefur yfir að
ráða tveimur frystihúsum auk ann-
arra fasteigna, fiskimjöls- og loðnu-
verksmiðju, netagerð, frystitogara,
þremur ísfisktogurum, sex togskip-
um auk þriggja loðnuskipa. Saman-
lagðar fiskiveiðiheimildir þessara
skipa á yfirstandandi fiskveiöiári eru
7.510 þorskígildi eða um 9.000 tonn
af bolfiski. Félagið hefur auk þess
tæplega 500 tonna rækjukvóta, íjóra
síldarkvóta, fjóra loðnukvóta 'og
humarkvóta. Samanlagt má meta
þessar veiðiheimildir sem 12.500
þorskígildistonn.
Samanlagðar skuldir félaganna eru
um tveir milljarðar að frádregnum
veltufjármunum. Stefnt verður að
lækkun skulda með sölu eigna sem
ekki munu nýtast hinu sameinaða
félagi. í samkomulagi um samein-
ingu félaganna er ákveðið að auka
hlutafé sem selt verður á almennum
HREINSIÐ UÚSKERIN
REGLULEGA.
DRÚGUM ÚR HRADA!
IUMFERÐAR
RÁÐ
markaði og verður félagið gert að
almenxúngshlutafélagi.
í tilkynningu frá fyrirtækjunum
segir aö markmið sameiningarinnar
sé aukin hagkvæmni í veiðum og
vinnslu. Færri skip verði gerð út og
því verði einhveijum eldri skipa fé-
lagsins lagt eða þau seld án veiði-
heimilda. Allrar hagræðingar verði
leitað í vinnslu aflans.
Öllu fastráðnu starfsfólki ööru en
verkafólki og undirmönnum á fiski-
skipum verður sagt upp störfum við
sameiningu félaganna. Leitast verð-
ur við að finna sem flestum störf við
hæfi hjá hinu sameinaða fyrirtæki.
Ljóst er þó að einhver fækkun á
starfsmönnum verður eftir samein-
inguna. Forstjóri verður Sigurður
Einarsson og aðstoðarforstjóri
Magnús Kristinsson.
Jólin eru hátíð Ijóss og friðar og þessar ungu hnátur biðu í eftirvæntingu eftir Ijósi á kyndilinn sinn fyrir friðar-
göngu sem þær tóku þátt í um hátíðarnar. DV-mynd S
BRUÐAR
• •• /••
gjofin
3 MANAÐA OKEYPIS ASKRIFT
TIL ALLRA BRÚÐHJÓNA SEM GANGA í ÞAÐ HEILAGA
Allt sem þú þarft að gera er að senda þennan seðil til:
DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík, merkt ,,Brúðargjöfin“.
Sími 91-2 70 22. Fax 91-2 70 79.
Sjá næstu síðu