Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 48
F R Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991. (> Læt hann ekki frá mér „Ég læt drenginn ekki nauðugan frá mér og mun berjast fyrir þvt. Þaö er búiö aö flandra nóg meö hann á síðustu mánuðum. Hann er nánast búinn að halda sér i mig frá því hann kom til mín í síðustu viku," sagði rúmlfiga fertug móðir í viðtali við DV í gær. Konan fer huidu höfði í Reykjavík með tæp- lega 11 ára son sinn sem tekinn var úr urnsjá fósturforeldra á Húsavik í síöustu viku. Pyrrum sambýlismaöui* konunn- ar var handtekinn og settur í fanga- geymslur lögi*eglunnar á Akureyri aðfaranótt aðfangadags vegna brottnáms drengsins. Honum var síöan sieppt aö loknum yfirheyrsi- um. Lögreglan á eftir að yfirheyTa móðurina. Að söp talsmanns hjá Rann- sóknarlögreglu rikisins mun RLR ekki taka drenginn af móðurinni - það verði barnavemdaryfirvöld aö gera. Hins vegar geti veriö aö veitt yrðí aðstoð við það ef þess yrði ósk- að. Konan á íbúð á Akureyri en seg- ist hafa flutt til Reykjavíkur vegna persónulegra haga sinna. Þegar DV tók viðtal við hana og drenginn í gær voru þau ekki í þeirri íbúð sem konan hefur til umráða í Reykjavík heldur í husnæði sem mæðginin fengu afdrep í á meðan þau fara huldu höfði, Menn frá RLR knúðu dyra híá raóðurinni eftir aö barnið kom suður í síðustu viku en þeim var ekki hleypt inn. Síðan hefur Móðfrin skyggð með drenginn, tæplega 11 ára, og 5 mánaða dótt- ur í gær. DV-myndS móðirin verið í felum með dreng- inn. Móöirinn á fimm böm. Eitt þeirra er uppkomíð. Það yngsta er 5 mán- aða stúlka sem móðirin hefur hjá sér. Vegna áfengisvandamála hennar tóku bamaverndaryfirvöld nyrðra drenginn frá móðurinni í vor. Fór hann fyrst á heimih í Eyja- frrði en síðan tíl fósturforeldra á Husavík. Tvær stúlkur, 12 og 14 ára, voru sendar til „foreldra“ í Danmörku. „Ég er viss um að stelpurnar væra líka komnar til min ef þær væra á landinu. Ég talaöí við þær síðast í gær. Þá var greinilega húið að segja þeim að ég hefði rænt hróð- ur þeirra og ég fengi fangelsisdóm. Mér datt aldrei í hug að ég myndi þurfa að standa frammi fyrir því að börnin min yrðu tekhr fyrr en að því kom. Ég átti við áfengis- vandamál að stríða og ég hef staðið mig hvað það varðar eftir að börn- in voru tekin,“ sagði móðirin. Hún hefur gengist undir áfengismeðferð hjá yfirlækni Qórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri. Segist hún reiðubú- in til þess að sætta sig við að bama- verndaryfirvöld í Reykjavík hafi strangt cftirlit með uppeldi hennar á syni sinum. Bamaverndaryfirvöld á Akur- eyri hafa forsjá yfir drengnum. Hjá Félagsmálastofnun Akureyrar fengust þær upplýsingar í gær að þetta mál verði ekki rætt við fjöl- miðla. -ÓTT Veiðamá 35 þús- ~ undlestiraf rækju Leyft verður að veiða sjö þúsund lestum meira af rækju á yfirstand- andi veiðitímabiii, sem nær til ágúst- loka á næsta ári, en áður hafði verið ákveðið. Sjávarútvegsráöuneytið hefur fengið niðurstöður endurmats á rækjustofninum frá Hafrannsókna- stofnun. Samkvæmt þeim er ástand stofnsins betra en áður var talið. Stofnunin lagði því til að heildar- kvótinn fyrir rækju á vertíðinni yrði aukinn úr 28 þúsund lestum í 35 þús- und lestir. ORÝGGISSÍMINN Vandað og viðurkennt öryggistæki fyrir þig og foá sem þér þykir vænt um Sala - Leiga - Þiónusta ' ^ ® 91-29399 Allan sólarhringinn VARI Öryggisþjó'nusta síðan 1 9ó9 LOKI Þannig fór Þorsteinn á einum degi úr hvalnum og í rækjuna! • ' Stórum farmi af óseldum jólatrjám, norðmannsþini, var ekiö á bálköstinn á Seltjarnarnesi í gær. Mál manna er að færri börn safni í brennur en áður tíðkaðist. Nú sjá „bæjarkarlarnir“ yfirleitt um brennurnar. DV-mynd Hanna Mikillviðbúnaður vegnasjúklings Talsverður viðbúnaður var undir kvöld í gær þegar flytja þurfti slasað- an mann í skyndi frá Höfn í Horna- firði til Reykjavíkur. Lunga féll sam- an í manninum vegna rifbrots. Senda átti þyrlu eftir sjúkhngnum. Þyrla Gæslunnar varð hins vegar að snúa við við suðurströndina vegna mjög slæmra flugskilyrða. Þyrlu- menn hjá vamarliðinu treystu sér ekki af stað. Var þá sendur sjúkra- bíll með lækni frá Höfn með mann- inn. Annar bíli, sem sendur var frá Reykjavík, átti að taka sjúklinginn á Suðurlandiígærkvöldi. -ÓTT Trillaíhafvillum Leitað var að trillu í hafvillum með einum manni um borð út af Vest- fjörðum í gærkvöldi. Rafmagn hafði farið af bátnum og vissi sjómaðurinn ekki hvar hann var staddur með óvirk siglingatæki í myrkrinu. Áður en DV fór í prentun fengust þær upplýsingar hjá Landhelgis- gæslunni að bátar væru á leið til að aðstoðatrilluna. -ÓTT Veðrið á sunnudag og mánudag: Suðlægar áttir og hlýindi Á sunnudag veröur suðvestanátt á landinu með skúmm eða éljum um vestanvert landið og með suðausturströndinni. Þurrt verður og sums staðar bjart veður á Norður- og Norðausturlandi. Hiti verður um og yfir frostmarki. Á mánudag verða skil á leið norðaustur yfir landið með hvassri suðaustanátt og rigningu um allt land. Hvöss suðvestanátt og él fylgja í kjölfarið. Hlýtt verður framan af degi en svo fer veður kólnandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.