Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992.
3
pv______________________________________________________________________________________Fréttir
Miðar hafa ekki verið endurgreiddir vegna Bryan Adams tónleikanna:
Samt vill Alan Ball f á
að halda fleiri tónleika
Tónleikaumboðsmaðurinn Alan
BaU, sem nýlega stóð að tónleikum
Bryans Adams í Laugardalshöll,
haíði samband við fulltrúa Reykja-
víkurborgar frá New York í síðustu
viku og spurðist fyrir um hvort hægt
væri að fá Höllina aftur fyrir tónleika
á þessu ári. Miðar hafa hins vegar
ekki verið endurgreiddir ennþá
vegna fyrri tónleika Bryans Adams
í desember, en þeir féllu niður. Sömu
sögu er að segja um launagreiðslur
og greiðslur til ýmissa aðila sem tón-
leikahaldarar tengdir Alan BaU
skulda.
AUan BaU hefur verið lýstur gjald-
þrota og bú hans verið gert upp.
Hann hefur engu að síður staðið á
bak við fjölda tónleika á síðustu
tveimur árum - White Snake og Qu-
ire Boys í ReiðhölUnni 1990, tónleik-
um ýmissa hljómsveita og Poison,
sem aldrei kom, í Hafnarfirði í júní
1991, Skidrow 1991 og nú síðast Bryan
Adams. í öUum tilfellum hefur tals-
verður fjöldi fólks, ýmist tónleika-
gestir eða aðrir aðUar, tapað umtals-
verðum fjárhæðum. Hjá Reykjavík-
urborg eru hins vegar skýr skUyrði
fyrir leigu á húsnæði fyrir tónleika
- að gera upp áður en þeir eru haldn-
ir.
Eftir að BaU var lýstur gjaldþrota
hafa ýmsir aðrir aðUar sótt um fyrir
viðkomandi tónleika. Sá sem stóð að
síðustu tónleikum er Smári Hreið-
arsson hjá fyrirtækinu Borgarfossi.
Fjöldi fólks, sem hefur vUjað fá
miða endurgreidda, hefur undanfar-
ið hringt tíl fyrirtáekisins en þar hef-
ur einungis símsvari verið á. Nú er
síminn hins vegar lokaður. Smári
dvelst nú erlendis, samkvæmt upp-
lýsingum DV. Ætlunin er að fá trygg-
ingagreiðslur fyrir fyrri tónleika
Bryans Adams sem féUu niður vegna
skammhlaups í rafmagnskerfi. Ekki
er ljóst ennþá hvort greiðslan fæst.
Til þessa hefur verið beðið eftir
niðurstöðu RafmagnseftirUts um or-
sakir skammhlaupsins. FuUtrúi frá
Lloyds tryggingafélaginu hefur
spurst fyrir um skýrslu sem þar var
verið að útbúa.
Af hverju sló
út í Höllinni?
„Það varð skammhlaup í aðaltöU-
unni. Hvað setti það af stað vitum
við ekki. En biUð milU fasa og jarðar
var of Utið - miklu minna en á að
vera samkvæmt reglum. Hvers
vegna höfum við ekki skýringu á,“
sagði Haukur Ársælsson hjá Raf-
magnseftirUtinu við DV í gær.
„Þetta er búið að vera svona
óbreytt í húsinu síðastUðið ár.
Hljómsveitin var að gera einhverjar
prófanir í húsinu með þessum tækj-
um en við getum ekki sannað að þeir
hafi valdið spennuhækkun. Þeir
Leigjendasamtökin:
Leiguhækkun veld-
urkjararýrnun
„Hækkun á leigu veldur kjararýrn-
un og það er ekki óeðhlegt að stúd-
entar fjaUi um hana eins og hverja
aðra kjaraskerðingu," segir Jón
Kjartansson, formaður Leigjenda-
samtakanna. Jón hafði samband við
blaðið vegna athugasemdar Félags-
stofnunar stúdenta, sem gerð var
vegna fréttar um 10% hækkun á
leigu á Hjónagörðum.
„Það er víðar reynt að hafa í frammi
ýmsar aðferðir tíl að hækka húsa-
leigu á sama tíma og þrengt er að fólki
annars staöar frá,“ segir Jón. „Það
er eðUlegt að þeir sem leigi hjá Félags- •
stofnun vUji endurskoða leiguna þar
sem það virðist í ofanálag vera í bí-
gerð að skerða námslán. “ - VD
voru þama með ákveðinn búnað sem
þeir tengdu ekki eftir okkar reglum
en við getum ekkert sagt til um hvort
það olli nokkra. Það era frekar líkur
til að einhverjar spennubreytingar
hafi orðið vegna búnaðarins en við
getum ekki fuUyrt um það. Þegar ein-
hver spurði mig hvort hugsanlegt
væri að um skemmdarverk hefði
verið að ræða datt mér í hug þegar
Spassky og Fisher voru að tefla og
menn héldu að rafeindabúnaður í
stól sendi hugarorku," sagði Haukur
Ársælsson. -ÓTT
VANDAÐIR
VINNUBÍLAR
Lokaður VW Transporter
6 manna VW Transporter með palli
VOLKSWAGEN
Kjörnir til hverskonar
vöruflutninga og fólksflutninga
□ Án vsk
□ Bensín- eöa Dieselhreyfill
□ Aflstýri/Framhjóladrif
□ 5 gíra handskipting/sjálfskipting
□ Burðargeta 1-1,2 tonn
□ Farþegafjöldi allt að 11 manns
■ Þriggja ára ábyrgð
3 manna VW Transporter með palli
BILL FRA HEKLU BORGAR SIG
_
VV'V.v;=.-';V
_______________