Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992. Fréttir Verkalýös- og sjómannafélag Keflavíkur: Framboðslisti úr- skurðaður ólöglegur Miðstjóm Alþýðusambands ís- lands, ASÍ, staðfesti í gær niðurstöðu kjörstjómar um að listi Ágústs ís- flörð, formannsefnis mótframbjóð- enda til stjómar í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflayíkur, skuli met- inn ógildur. Ágúst ísfjörð hafði kært niðurstöðu kjörstjómar til ASÍ. Full- yrti hann að stuðningsmenn hans hefðu verið þvingaðir til að draga nöfn sín til baka. Nefnd sú er fjallaði um kæm Ág- ústs gerði það að tillögu sinni að miðstjóm ÁSÍ staðfesti niðurstöðu kjörstjómar þar sem þess grundvall- aratriðis hafði ekki verið gætt að fá samþykki allra sem stillt var upp. í úrskurði kjörstjómar sagði að stillt hefði verið upp manni í trúnað- armannaráð sem ekki væri löglegur félagi í Verkalýðs- og sjómannafélag- inu. Kjörstjóm barst bréf frá aðila þess efnis að hann hefði aldrei gefið samþykki sitt til framboös á listan- um. Kjörstjóm taldi einnig að listinn uppfyllti ekki tilskilinn fjölda lög- legra félagsmanna. I kæru sinni til miðstjómar ASÍ benti Ágúst á að aðilinn sem stillt var upp í trúnaðarmannaráð væri á atvinnuleysisbótum og því hlyti hann að vera löglegur. Ágúst benti einnig á að honum hefði verið mein- aður aðgangur að félagatalinu. Nefnd ASÍ telur ýmislegt að- fmnsluvert við framboðsmálin í Keflavík. Bendir nefndin á að kjör- stjóm hafi ekki verið skipuð og kvödd saman fyrr en eftir að fram- boðsfrestur rann út. Því hafi laga- nefnd félagsins tekið við mótfram- boðsgögnum. Nefndin bendir einnig á að ákvæði í lögum verkalýðsfélags- ins um fjölda frambjóðenda séu óljós og því valdið óþarfa misskilningi. Ekki viröist vera hægt að reiða sig á tölvu félagsins varðandi félagatal, segir í greinargerð nefndarinnar. Nefnd ASÍ úrskurðaði að aðili sá er stillt var upp í trúnaðarmannaráð hlyti að teljast fullgildur félagsmaður þar sem þaö væri ófrávíkjanlegt skil- yrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta. Ennfremur úrskurðaði nefndin að nægilega margir félagsmenn reynd- ust vera fylgjandi framboði Ágústs ísfjörð. Við eftirgrennslan nefndar- innar kom hins vegar í ljós aö nokk- ur hópur manna kannaðist ekki við framboð sitt á lista Ágústs ísfjörð. -IBS Kj ararannsóknamefnd: Kaupmátturinn stóð í stað Tímakaup landverkafólks hækk- aði að meðaltali um 7,4 prósent frá þriðja ársfjórðungi 1990 til sama ársfjórðungs 1990 samkvæmt út- reikningum Kjararannsóknar- nefndar. Á tímahilinu hækkaði framfærsluvísitalan um sama hlut- fall á tímabili og þvi breyttist kaup- mátturinn ekki. í þessum útreikningum Kjara- rannsóknamefndar er ekki tekið tillit til þeirrar 6300 króna ein- greiðslu sem samið var um á liðnu vori vegna viðskiptakjarabata irni- fram forsendur kjarasamninga. Að teknu tilliti til hennar kemst nefnd- in að þeirri niöurstööu að kaup- máttur hafi aukist um 2 prósent. -kaa Myndgáta dv Andlát Anna Jónsdóttir lést í Landspítal- anum laugardaginn 25. janúar. Sigríður Friðfinnsdóttir, áður Gunn- arsbraut 34, lést sunnudaginn 26. jan- úar. Kristinn Gíslason, Hlíð, Garðabæ, lést 24. janúar. Bergrín Gyða Kristjánsdóttir lést á vökudeild Landspítalans 17. janúar sl. Jarðarfórin hefur farið fram. Jóna Hjálmtýsdóttir, Mávabraut 1B, Keflavík, andaðist í sjúkrahúsinu í Keflavík sunnudaginn 26. janúar. Bergljót Sturludóttir, Yrsufelli 11, Reykjavík, lést á hjartadeild Borgar- spítalans laugardaginn 25. janúar. Lilja Friðfinnsdóttir, Hjarðarhaga 64, ReyKjavík, andaðist í Landakotsspít- ala sunnudaginn 26. janúar. ] arðarfarir Magnús Grímsson, Furugerði 1, áður Háagerði 35, verður jarðsungiun frá Já... en ég nota nú yfirleitt beltiö! Fossvogskirkju í dag, þriðjudag 28. janúar, kl. 15. Sigríður Hallgrímsdóttir, Bogahlíð 15, verður jarðsimgin frá Dómkirkj- uimi í Reykjavík fimmtudaginn 30. janúar kl. 15. Jónas Friðgeir Elisson, sem lést 21. janúar sL, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.30. Birgir Ólafur Helgason, Ásgarði 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins við Há- teigsveg fóstudaginn 31. janúar kl. 13.30. Svava Halldóra Pétursdóttir, Póst- hússtræti 13, sem lést í Borgarspítal- anum 15. janúar sl., verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 28. janúar, kl. 13.30. Svava fæddist 8. janúar 1915 á Ökrum í Mýrum. Hún var mjög fær mat- reiðslukona. Hún kom til Reykjavík- ur 1938 og kynntist þá manni sínum, Hróbjarti Lútherssyni og giftu þau sig 28. júní 1940. Þau eignuðust tvö böm. Tilkynningar Fyrsta þorrablót Tvíburaf élagsi ns veröur haldið laugardaginn 1. febrúar 1992 í sal Málarafélags Reykjavikur í Lágmúla 5, Reykjavík. Hópurinn sem samanstendur af öllum fjölburaforeldr- um sem áhuga hafa á að hittast, kemur saman til skiptis í Fjörgyni í Grafarvogi og Vitanum í Hafnarfirði, síðasta mið- vikudag í mánuði. Næst verður hist í Fjörgyni miðvikudaginn 29. janúar kl. 15-17, þar er hægt að fá nánari upplýs- ingar um þorrablótiö. Félag Eskfirðinga og Reyð- firðinga í Reykjavík heldur árshátíð að Goðheimum, Sigtúni 3, laugardaginn 1. febrúar nk. Hefst hún með borðhaldi kl. 20. Félag eldri borgara Opið hús í dag í Risinu kl. 13-17. Bridge og fijáls spiiamennska. Dansað kl. 20. Fugl í búri, sýning miðvikudag kl. 17. 60 íslendingar ókeypis í Euro Disney í Frakklandi með Sam- vinnuferðum-Landsýn Þátttaka í flölskylduleik, sem Coca Cola, Euro Disney og Samvinnuferðir-Landsýn efiidu tíl í nóvembermánuði, varð miklu meiri en nokkum hafði órað fyrir og vafalitið er hér enn eitt íslandsmetið á SMÁAUGLÝSINGASÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6272 ™ GR>ENI ___ E2I SÍMINN ECI -talandi dæmi um þjónustu! ferðinni. Rúmlega 40 þúsund einstakling- ar sendu inn lausnir en skilafrestur rarrn út 1. desember sl. Verðlaun voru sérlega glæsileg eða ferð fyrir fimmtán fjögurra manna fjölskyldur til vikudvalar í Frankaskógi í Normandí í boði Sam- vinnuferða-Landsýnar með heimsókn í Euro Disney skemmtigarðinn við París. Við verölaunaafhendingu nú um helgina komu verðlaunahafar saman, en þeir eru alls staðar af landinu, hinn yngsti rétt um eins árs en bamafjölskyldur í miklum meirihluta. Helgi Pétursson og Trausti Sigurðsson, markaðsstjórar Samvinnu- ferða-Landsýnar og Vífilfells, afhentu verðlaunin í hófi á Hótel Sögu. Daihatsu Charmant stolið Daihatsu Charmant árg. ’85, ljósgrænn með númer M-1622, hvarf fyrir utan Suð- urhóla 18 á laugardagskvöld 25. janúar. Þeir sem hafa séð til bílsins, vúisamleg- ast látið lögregluna vita. Námskeið Nýtt prjónanámskeið Nýtt pijónanámskeið byrjar miðviku- daginn 29! janúar. Kennari er Amdís Bjömsdóttir. Skráning hafm. Allar nán- ari upplýsingar í síma 11616, eftir hádegi. Fundur Fundur Kvenfélags Hreyfils verður haldinn í kvöld 28. janúar í Hreyf- ilshúsinu. Spilaö verður bingó. Takið með ykkur gesti. Tapaðfundið Svartur, þykkur ullarjakki með svörtum skinnkraga og belti tapaðist á veitingahúsinu Tveir vinir sl. fostu- dagskvöld, 24. janúar. Þeir sem hafa orö- ið jakkans varir hafi vinsamlegast sam- band í vs: 685411 og hs: 812762, Dagbjört. Elísabet er týnd Gulbröndótt læða tapaðist frá Barða- strönd 14, Seltj., sl. fostudag, 24. janúar. Elisabet er ómerkt og sér illa. Vinsamleg- ast látíð vita í símum 616727 og 611343 ef sést hefúr til hennar. Sara er týnd Sara er svört læða með hvita höku, bringu og framan á fótunum. Hún tapað- ist frá Engihjalla í Kópavogi. Hún er ómerkt. Þeir sem hafa séð til hennar vin- samlegast hafi samband í síma 75127. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR 95ÁRA RUGLIÐ eftir Johann Nestroy 8. sýn. mlðvlkud. 29. jan. Brún kortgilda. Fáeln sæti laus. Föstud.31. jan. Sunnud. 2. febr. Fimmtud. 6. febr. ÞÉTTING eftir Sveinbjöm I. Baldvinsson Aukasýningar vegna mikillar aðsóknar: Laugard. 1. febr. Allra siðasta sýnlng. LJÓN í SÍÐBUXUM eftir Bjöm Th. Bjömsson Fimmtud. 30. jan. Laugard. 1. febr. Fáar sýningar eftir. Föstud. 7. febr. Sunnud. 9. febr. ÆVINTÝRIÐ Aukasýning Sunnud. 2. febr. kl. 14.00. Fáeln sæti laus. Allra síðasta sýning Sunnud. 2. febr. kl. 16.00. Miðasala opin alla daga frð kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðapantanir i síma alla virka daga frá kl. 10-12. Siml 680680. Lelkhúslínan 99-1015. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavikur. Borgarlelkhús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.