Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992.
25
Sviðsljós
Ræðukeppni Versló og MR:
Skammir eru
nauðsynlegar
Forkeppnir standa nú yfir fyrir
hina árlegu Morös-keppni sem gef-
ur framhaldsskólanemum landsins
tækifæri til að spreyta sig í ræðu-
mennsku.
Ein slík fór fram í Versló í síð-
ustu viku þar sem Verslingar
þreyttu kappi við MR og unnu með
15 stiga mun.
Umræðuefnið að þessu sinni var
„skammir" og kom það í hlut
Versló að sannfæra kollega sína um
nauðsyn þeirra í lífinu.
„Þær geta t.d. verið nauðsynlegar
ef fólk tekur ekki tiltali og nær
ekki ábendingum eða leiðbeining-
um. Þá hlýtur að þurfa að skamm-
ir til þess að fólk vakni til meðvit-
undar um það sem það er að gera,“
sagði Gísli Marteinn Baldursson,
ræðumaður kvöldsins og forseti
Nemendafélags Verslunarskóla ís-
lands.
Hátt í 1000 manns voru saman
komin til að fylgjast með keppninni
og stemningin var gífurleg. Hvort
lið um sig hafði með sér sérstakt
klapplið og Verslunarskóhnn haföi
meira að segja litla lúðrasveit sér
til halds og trausts.
Hér sést aftan á ræóulið MR í keppninni en hátt í þúsund manns fylgd-
ust með henni.
Versló var með 30 manna klapplið sem hvatti sina menn dyggilega með aðstoð fólks i salnum.
DV-myndir GVA
Sigurður Pétur Harðarson útvarpsmaður var kynnir kvöldsins. Páli Óskar Hjálmtýsson er einn
DV-myndir JAK söngvaranna i nýja „show-inu“ á
Hótel íslandi.
Ný sýning á Hótel íslandi:
EINN BILL A MANUÐI I
ÁSKRIFTARGETRAUN
1
A FULLRI FERÐ!
OG SIMINN ER 63 27
Aftur til fortíðar
Um helgina hófst nýtt „show“ á
Hótel íslandi sem ber nafnið Aftur
til fortíðar.
Þar koma fram margir af okkar
efnilegustu söngvurum í dag og flytja
vinsælustu dans- og dægurlögin frá
árunum 1950-1980 við undirleik
Dægurlagakombós Jóns Ólafssonar.
Sýningin tekur hátt í tvo tíma þar
sem hver söngvarinn af öðrum birt-
ist á sviðinu og syngur eitt lag í einu.
Áberandi var einstök frammistaða
Móeiðar sem vann hug og hjörtu
áhorfenda með sínum sérstaka söng
og skemmtilegri framkomu.
Einnig sungu þarna þau Páll Óskar
Hjálmtýsson, Sigrún Eva Ármanns-
dóttir, Berglind Björk Jónasdóttir og
Daníel Ágúst Haraldsson og stóðu
þau sig öll með mikilli prýði.
Útvarpsmaðurinn Sigurður Pétur
Harðarson var kynnir kvöldsins.
STOÐVUM BILINN
ef viö þurfum aö
tala í farsímann!
n mIumferðar n
IV j\