Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992.
5
Fréttir
íslandsbanki:
Brjóstnælur
í jólagjöf
Starfsmenn íslandsbanka skarta
nú nælum úr sUfri og messing sem
þeir fengu í jólagjöf hjá fyrirtækinu.
Konumar fengu barmnælu og karl-
amir bindisnælu og er engin næla
eins. Starfsmenn íslandsbanka em
tæplega eitt þúsund.
„Þaö er nú bara eðlilegt og sjálfsagt
hjá öllum fyrirtækjum, sem vilja
hugsa vel um sitt fólk, aö gefa því
jólagjafir," segir Þórður Sverrisson,
forstjóri markaösdeildar bankans, og
bætir því við að margir hafi hringt
og þakkað sérstaklega fyrir gjöfma.
„Það er alltaf vandi að kaupa jóla-
gjöf sem öllum líkar. Það er greini-
legt að það tókst vel hjá okkur núna.
í fyrra vomm við í vandræðum og
enduðum á fjölskylduspili. Það er svo
sem ágætisgjöf því allir geta spilað.“
Þórður segir að Jens guilsmiður
hafi verið fenginn tii að vinna næl-
urnar út frá merki bankans með
náttúrutáknunum landinu, hafmu
og sóhnni.
Þar sem um jólagjöf er að ræða er
verðánælunumekkigefiðupp. -IBS
Enn deilt um verslunina Karma 1 Neskaupstað:
Fógeti f restar lokunaraðgerðum
- pólitískar ofsóknir, segja eigendumir
Bæjarfógetinn í Neskaupstað hef-
ur ákveðið að fresta lokunaraðgerð-
um hjá versluninni Karma þar til
umhverfisráðuneytið hefur sagt sitt
álit á þeirri ákvörðun bæjaryfirvalda
að heimila ekki starfsemina á núver-
andi stað. Ósk um lokun kom frá
byggingarfulltrúa bæjarins á mánu-
daginn þegar í ljós kom að verslun-
inni hafði ekki verið lokað en þá rann
út sá frestur sem bæjaryfirvöld
höfðu veitt verslunareigendunum til
að loka sjálfviljugir.
Að sögn Hrafns Hallgrímssonar,
deildarstjóra í umhvefisráðuneyt-
inu, geta allt að þrír mánuðir hðið
þar til úrskurður ráðuneytisins ligg-
ur fyrir. Leita verði fyrst umsagna
hjá skipulagsstjórn ríkisins og bygg-
ingarnefnd Neskaupstaðar. Hann
segir málskot verslunareigendanna
fyrst hafa borist inn á sitt borð þann
16. janúar en til ráðuneytisins hafi
það borist mánuði fyrr. Enn hafi
honum því ekki gefist tími til að
ræða við neinn um máhð.
Verslunin Kárma tók th starfa síð-
asthöið vor í íbúðargötu án þess að
fyrir lægi leyfi byggingar- og skipu-
lagsnefndar á staðnum. Þegar ósk
þar um kom síðastliðið haust var
starfsleyfi hafnað með vísan th
þrengsla í götunni og farra bha-
stæða. Þessu vhdu verslunareigend-
urnir ekki una og skutu máhnu til
umhverfisráðuneytisins. Segja þeir
bæjaryfirvöld vera með póhtískar
ofsóknir á hendur sjálfstæðum at-
vinnurekendum á staðnum.
Málið hefur komið th kasta bæjar,-
sfjórnar en þar hefur ríkt póhtísk
samstaða meðal fuhtrúa allra flokka
um að hafna eigendunum um starfs-
leyfi. Meðal sjálfstæðismanna á
staðnum ríkir hins vegar ágreining-
ur um máhð.
-kaa
.
V
Bryndís Svavarsdóttir í Islands-
banka með brjóstnæluna sem hún
fékk i jólagjöf frá vinnuveitendum.
Allir starfsmenn bankans, nær þús-
und manns, fengu ýmist brjóstnælur
eða bindisnælur. DV-mynd GVA
Lærið ensku í Englandi:
„International Language and Sports
Centre",
Swanage, Dorset. Ársskólarfyrir nemend-
ur á öllum aldri, byrjendur sem lengra
komna. Vikulegar ferðir allt árið. Flogið
til London með Flugleiðum.
Ferðaskrifstofa
Kjartans
Helgasonar
Gnoðarvogi 44-104 Reykjavík - Sími 91 -68 62 55
Lærið þýsku í Þýskalandi:
„Deutsch im Deutschland D.I.D."
Ársskólar víðs vegar um Þýskaland. Fyrir
nemendur á öllum aldri, byrjendur sem
lengar komna í þýsku. Flogið með Flug-
leiðum til Frankfurt vikulega.
Lærið frönsku
í Frakklandi:
„Institut D'en-
seignement de
Langue Francaise á
Cote de Azur, Hyer-
és" E.L.F.C.A.
Ársskólar fyrir nem-
endur á öllum aldri.
Hafa þarf grunnþekkingu á frönsku máli
(ekki algjörir byrjendur). Flogið til Parísar
og Toulon með Flugleiðum/Airinter.
Hótel-, veitinga-
og ferðaþjónustu-
skóli í
Bournemouth:
„The Hotel Career
Center"
Ársskóli sem skipu-
leggur námskeið fyrir
byrjendur og nem-
endur sem vilja
auka við menntun sína. Veitir vinnurétt-
indi víðs vegar um heim. Allar nánari upp-
lýsingar veittar í skrifstofunni. Flogið með
Flugleiðum til London.
Á öllum þessum skólum er gist hjá fjölskyldum, borðað þar, en í ungl-
ingaskólum á heimavist og þá borðað þar. Gert er ráð fyrir hálfu fæði
mánudag - föstudags, fullt fæði um helgar. Yfirleitt 30 tíma kennsla á
viku mánudaga - föstudaga. Skoðunarferðir skipulagðar af hálfu skól-
anna. Við sendum bæklinga frá skólunum, lánum videospólur. Verð er
mismunandi eftir skólum, lengd dvalar o.s.frv. Verðlistar eða hugmyndir
fylgja bæklingum.
Við minnum á Kanaríeyjaferðir okkar um Amst-
erdam hverja viku. Mikið úrval gistinga. Flogið
með Flugleiðum og Transavia. Verð samkeppnis-
fært, örugg þjónusta, 24 skrifstofur „Insular s.l."
veita farþegum okkar aðstoð hvar sem er á eyjun-
um.
Kynningarfundur
á skólunum laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00 á Loftleiðahótelinu, gengið inn um anddyri ráðstefnusalar.
Fulltrúar frá ensku skólunum og hótelskólanum mæta og ræða við nemendur. Videomyndir sýndar. Öllum
sem hafa hug á námi í ofangreindum skólum heimill aðgangur. - Verið velkomin.