Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992. Fréttir Davíð Oddsson forsætisráðherra: Viðræður aðila komist lengra - áður.en rætt verði við ríkisstjóm FuUtrúar verkalýðshreyfingarinn- ar leggja nú á það höfuðáherslu að fá ríkisstjórnina til að draga til baka eða milda þann niðurskurð sem átt hefur sér stað á velferðarkerfmu. Davíð Oddsson forsætisráðherra var spurður hvort ríkisstjómin væri til- búin að ræða við verkalýðshreyfing- una um einhverja mildun eða aftur- kalla eitthvað af því sem skorið hefur verið niður í velferðarkerfinu. „Það er langeðlilegast að við ræð- um það við þá án milligöngu blaða eða annarra flölmiðla. Formlegar óskir um það hafa ekki verið lagðar fram. Fyrir einliveijum vikum var lögð fram athugasemd frá Alþýðu- sambandi íslands en formlegar við- ræður hafa ekki átt sér stað. Ég held að menn séu sammála um að viðræð- ur aðila vinnumarkaðarins þurfi að vera lengra komnar en raun ber vitni áður en þeir fara að ræða við ríkis- stjómina um slík mál.“ - Nú hefur slitnaö upp úr viðræðum Alþýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins, breytir það ein- hveiju? „Það hefur gerst áður að slitni upp úr viðræðum þessara aðila, komið hlé í viðræðumar. Ef aðilar meta þaö svo að rétt sé að gera hlé á viðræðum og að þeir skoði málin hvor í sínum hópi þá er svo sém ekkert við því að segja,“ sagði Davíð Oddsson. Aðilar vinnumarkaðarins, einkum fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, halda því fram að þeir nái ekki sam- bandi við ríkisstjómina með sama hætti og veriö hefur viö kjarasamn- inga mörg undanfarin ár. „Það er ekki rétt að aðilar vinnu- markaðarins eigi ekki greiðan að- gang að ríkisstjóminni til viðræðna. Þeir eiga mjög greiðan aðgang að okkur um leið og þeir biðja um það. Við höfum og rætt óformlega við ýmsa menn. Það er því enginn vafi á því að allt það sem aðilar vinnu- markaðarins, saman eða hvor í sínu lagi, vilja við okkur ræða þegar þeir telja til þess tíma kominn þá eram við ipjög opnir og aðgengilegir gagn- vant þeim,“ sagði Davíð Oddsson. Hann tók þaö skýrt fram að aðilum vinnumarkaðarins hefði aldrei verið neitað um viðræöur við ráðherra eða ríkisstjómina. -S.dór SigluQörður: íslandsbanki með hæsta tilboðið í Hótel Höfn öm Þórarinsson, DV, Fljótum; íslandsbanki hf. átti hæsta tilboð í Hótel Höfn á Siglufirði en nauðung- araþpboð fór fram á hótelinu sl. fóstudag, 7. febrúar. Bankinn bauö 7,4 milljónir króna í hótelið og eignir þess. Það era því mestar líkur á að Islandsbanki eignist hótelið þótt kröfuhafar eigi eftir aö samþykkja tilboð bankans. Hótel Höfn var lýst gjaldþrota á síöasta ári. Hlutafélagið Höfti hefur síðan haft reksturinn á leigu og renn- ur leigusamningur þess út 1. júní nk. Stærstu kröfuhafar í þrotabúið vora Byggðastofnun með um níu milljónir króna og Ferðamálasjóður með 4,5 milljónir. Útreiknaðar kröf- ur námu um 18 milljónum króna, að sögn bæjarfógetans á Siglufirði. Hótel Höfn gegnir veigamiklu hlut- verki í bæjarlífinu á Siglufirði. Það er og hefur verið helsti samkomu- staður bæjarbúa hvað varðar fundi, skemmtanir og allar fjölmennari samkomur í bænum. Hlutfallsleg breyting þjóðarútgjalda og landsframleiðslu — frá fyrra ári og viðskiptajöfnuður sem hlutfall af landsframleiðslu 1980-1992 — Grafið sýnir efnahagsstærðir, eftir að ný drög Þjóöhagsstofnunar að þjóðhagsspá liggja fyrir. Eins og sjá má verður viðskiptahallinn enn mikill í ár og samdráttur framleiðslu, þótt spánni hafi verið breytt. Spáin sem Þjóðhags- stof nun hirtir ekki Það er undarleg ráðstöfun, aö Þjóð- hagsstofnun birtir ekki þjóðhagsspá, sem hefur verið unnin að mestu. Nið- urstöður hafa verið kynntar aðilum í kjarasamningunum og hafa komið fram í sumum fjölmiðlum, meðal ann- ars DV. Þjóðhagsstofnun telur, að óvissan vegna kjarasamninganna sé svo mikil, að ekki sé rétt að birta nýju spána. Því verði beðið. Sú biö gæti staðið í marga mánuði, því að senni- lega dragast kjarasamningar á lang- inn. Sjónarhom hefur aukizt með því að Alþingi breytti lögum um Hagræðingarsjóð. Þetta allt veldur því, að samdráttur- inn verður minni en ætlað var. Ýmislegt gæti lagazt í viöskiptakjör- imum. Jafnvel er gert ráð fyrir, að olíuverð lækki á árinu um 10-20 pró- sent. Hins vegar ríkir óvissa um fisk- verðið á okkar fiski erlendis. Mcirgir telja, að verðið lækki, en það er alls- endis óvíst. Lægðinni lokið í OECD Síbreytilegar spár En við þekkjum niðurstöðutölur nýju „spárinnar" eins og kom fram í DV í gær. Þar era töluverðar breytingar á döfinni, frá því að Þjóðhagsstofnun spáði í spilin fyrir áramótin. Spár stofnunarinnar fyrir árið 1992 hafa verið að hoppa, skoppa og hringsnú- ast. Þjóðhagshorfur hafa sjaldan bfeytzt jafmikiö og nú. Þannig spáði stofnim- in framan af ári 1991, að framleiðslan í landinu ykist um 1-2 prósent á árinu 1992, en í lok síðasta árs var hins veg- ar farið að spá yfir 4 prósent sam- drætti í landsframleiðslu árið 1992. Að baki þessari sveiflu frá hagvexti tíl samdráttar liggur einkum þrennt. í fyrsta lagi minni fiskafli í samræmi við úthlutun veiðiheimilda í ágúst, þá frestun álversframkvæmda í nóv- ember og loks afgreiðsla fjárlaga í desembermeðniðurskurði. Skilyrði þjóðarbúsins tóku því miklum breyt- ingum á skömmum tíma og þjóðhags- spár urðu óvissar. Þetta gerðist með spámar, sem unnar vora í fyrra fyrir árið í ár, og þetta er enn aö gerast. Ýmislegt lagast Enn er Þjóðhagsstofnun að breyta spátölunum, sem stofnunin hafði þó áréttað fyrir mánuði. Nú er spáð sam- drætti í framleiðslu um 3-3,5 prósent í stað 4,1 prósents samdráttar, sem áður var spáð. Samdráttur í þjóðar- tekjum yrði þá 4-5 prósent í stað yfir 6 prósenta, sem fyrr var spáð. Munur- inn á „þjóðartekjum" og „landsfram- leiöslu" liggur í því, að líklegar breyt- ingar á viðskiptakjöram era teknar með, þegar rætt er um „þjóðartekjur". Það hefur nefnilega ýmislegt verið að breytast, síðan Þjóðhagsstofnun kom með spá fyrir áramótin. Fiskafli verður líklega meiri en áður var reiknað með. Loðnukvótinn hefur verið aukinn. Sama er að segja um rækjukvótann. Aflakvótinn í heild Gert er ráð fyrir, að umheimurinn sé að komast úr efnahagslægðinni. Hagfræðingar í Efnahags- og framfarastofnuninni OECD gera nú ráð fyrir, að hagvöxtur, vöxtrn- fram- leiðslunnar, verði 2,2 prósent í Banda- ríkjunum í ár og 3,8 prósent á næsta ári. í OECD-löndum í Evrópu aö með- altali er gert ráð fyrir 2 prósent hag- vexti í ár og 2,7 prósent á næsta ári. Og í OECD í heild er reiknað íheð 2,2 prósent hagvexti í ár og 3,3 prósent hagvexti á næsta ári. Þetta ættí að hjálpa okkur í útflutningi og góðu verði á okkar afurðum. Þannig hefur ýmislegt komið okkur til bjargar síðustu vikur. Þó stefnir enn í, aö viðskiptahallinn viö útlönd verði 15-16 milljarðar í ár eða 4-4,5 prósent af framleiðsluimi. Þetta er ekki miklu minna en var í fyrra, en nú era Fokkervélar Flugleiða taldar með útgjöldum þessa árs og þar mun- ar heilu prósenti af framleiðslu, sem viðskiptahallinn í ár eykst fyrir vikið. í dag mælir Dagfari Gaddfrosinn göngumaður Það fór illa fyrir skíðagöngumann- inum okkar á ólympíuleikunum. Hann fraus fastur í brautínni og varð aö hætta keppni. Gerði að vísu heiðarlega og hetjulega tilraun til aö halda áfram en menn geta auð- vitað ekki haldið áfram í göngu- keppni ef þeir era fastir í sömu sporunum og þess vegna gafst hann upp. Þetta var eiginlega synd vegna þess að íslendingamir vora vel undir þessa keppni búnir. Þeir höfðu skíðin með sér, minnugir þess sem geröist síðast, þegar skíðamaðurinn, sem fór á ólympíu- leikana, gleymdi skíðunum heima eða jafnvel skildi þau eftir og það olli nokkrum úlfaþyt hér heima þegar það fréttist að okkar maður í Calgary hefði ekki skíði til að keppa á. Dagfari las aö vísu frétt um það í Mogganum aö einn svig- maðurinn hefði týnt skíöunum sín- um á leiðinni og verið skíöalaus í tvo daga, en vonandi rætist úr því þannig að hann geti keppt á skíöum með því að vera á skíðunum. Einhveijar deilur vora um það áöur en leikamir hófust hversu margir keppendur skyldu mæta fyrir hönd Islands. Einkum var það hart sótt aö skíðagöngumenn yrðu fleiri en ákveðið var og eftír á að hyggja hefði það verið betri kostur. Tveir vora sendir og tveir kepptu í fyrradag og annar þeirra fraus fastur eins og fyrr segir. Hinn komst í mark og má það teljast frækilegt afrek miðað við frostið í brautinni og ekki er útilokað að þriöji maðurinn hefði sömuleiðis komist í mark og þannig hefðu ís- lendingar fengið tvo menn í mark í staðinn fyrir einn. Auðvitað hefði sá þriðji átt það á hættu að ftjósa fastur eins og félagi hans en þar sem enginn þeirra áttatíu keppnis- manna, sem þátt tóku í göngunni, fraus, nema þessi eini frá íslandi, era líkindin miklu meiri að þriðji íslendingurinn hefði haft það af að komast í mark. Eftir því sem fleiri taka þátt, því meiri líkur era á því aö einhveijir þeirra komist í mark. Til þess fara menn jú á ólympíu- leika aö komast í mark. Auk þess sem frostið háði okkar mönnum, hafa þeir bent á að þeir hefðu þurft að vera lengri tíma fyr- ir keppnina í Frakklandi til aö vonjast þunna loftslaginu og aðlag- ast því. Má eflaust fullyrða að okk- ar menn heföu báðir komist í mark ef þeir hefðu fengið að vera lengur á staðnum áöur en keppnin hófst. Það hefði auðvitað breytt öllu og aldrei aö vita nema okkar menn hefðu jafnvel orðið meðal þeirra fremstu ef þeir hefðu fengiö að byija fyrr með því að koma fyrr á staðinn. íslendingar falla alltaf í sömu gryfjuna og gera sömu skyss- una ólympíuleika eftir ólympíu- leika að byrja um leiö og hinir keppendumir. Nú er þess aö geta að íslenski keppandinn, sem fraus fastur í göngubrautinni, á sér afsökun. Það reyndist kaldara í Albertville en hann hafði reiknað með. Kuldinn var ekki tekinn með í reikninginn og enda þótt kuldinn og frostið hafi ekki orðið til þess að aðrir kepp- endur frusu fastir, þá fraus íslend- ingurinn fastur af því aö hann er óvanur kulda og hann hélt að það mundi hlýna en ekki kólna. Auk þess hefur það án vafa komið hon- um á óvart að hann þyrfti að skíöa í snjó. Enginn haföi sagt göng- manninum íslenska frá snjónum sem er í brautunum og þegar menn þurfa skyndilega að skíða snjó án þess að hafa verið varaðir við snjónum kunna þeir ekki aö smyija skíðin og nota réttan áburð svo skíðin renni. Þetta var sem sagt ekki honum að kenna heldur veðrinu og snjón- um og kannske skíðunum sem frasu. Hann hefði sosum getað far- ið af skíðunum og haldiö áfram skíðalaus en sennilega hafa farar- stjóramir bannað honum að koma skíðalausum í mark og þar sem hann var frosinn fastiu- á skíðun- um varð hann aö hætta keppni. Það verður hins vegar að segja okkar manni til hróss að í stað þess að bíða eftir því að skíðin losnuðu og snjóa leysti ákvað hann að hætta keppni frekar en að bíða eftir hlák- unni og þannig kom hann í veg fyrir að verða síðastur í mark. Það er miklu betra að fara á ólympíu- leika og hætta keppni heldur en að veröa síðastur. Að því leyti var það í rauninni mikil mildi að hann skyldi fijósa fastur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.