Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. APRlL 1992. 9 Utlönd Refsiaðgeröir SÞ gegn Líbíu gengu í gildi 1 nótt: Flugfélag Líbíu blæs á f lugbann Framkvæmdastjóri líbíska flugfé- lagsins sagði í morgun að félagið áformaði að halda áfram millilanda- flugi sínu þrátt fyrir að bann Samein- uðu þjóðanna á öllu flugi til og frá landinu hafi gengið í gildi í nótt. „Innanlands- og millilandaflug okkar verður með eðlilegum hætti í dag,“ sagði Saleh Sirjani fram- kvæmdastjóri 4 samtali við Reuters- fréttastofuna. Líbísk stjórnvöld brenndu allar brýr að baki sér í deilunni við Vestur- lönd þegar refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna gengu í gildi í dögun. Þá rann út frestur sá sem Gaddafi Líbíu- leiðtoga haíði verið veittur til að framselja tvo hbíska borgara sem hafa verið ákærðir í Bretlandi og Bandaríkjunum fyrir sprengjutil- ræðið gegn flugvél frá bandaríska flugfélaginu Pan Am yfir Lockerbie í Skotlandi í desember 1988. Tvö hundruð og sjötíu manns fórust í til- ræðinu, farþegar og áhöfn vélarinn- ar, svo og fólk á jörðu niðri. Refsiaðgerðirnar kveða á um að öll ríki hætti öllu flugi til og frá Líbíu, stöðvi vopnasölu þangað og fækki í sendinefndum Líbíu. Refsiaðgerðirn- ar hafa ekki áhrif á olíusölu Líbíu, helstu tekjulind landsins. Með aðgeröunum á að þvinga Líb- íustjórn til að framselja mennina tvo og einnig til að taka þátt í rannsókn á því þegar flugvél frá franska flugfé- laginu UTA var sprengd í loft upp yfir Afríkuríkinu Níger í september 1989. Með henni fórust 189 menn. Samþykkt Öryggisráðsins fyrirskip- ar Líbíumönnum að veita frönskum stjórnvöldum aðgang að íjórum mönnum, þar á meðal mági Gaddaf- is, sem grunaðir eru um að vera við- riðnir sprenginguna í frönsku flug- vélinni. Þegar refsiaðgerðirnar tóku gildi voru götur Tripolí, höfuðborgar Líb- íu, nánast mannlausar. í gærkvöldi tóku hundruð Líbíumanna þátt í mótmælaaðgerðum gegn Öryggis- ráði SÞ sem hafnaði boði Gaddafis á síðustu stundu um að mennirnir yrðu framseldir til Möltu. Bílstjóri, sem var einn á ferð um götur Trípolí, var spurður hvað hon- um fyndist um refsiaðgerðirnar. „Það skiptir ekki máh hvað mér finnst. Það eina sem skiptir máU er hvað Bush finnst." Embættismaður, sem var vakinn í morgun, sagði að vopnasölu- og flug- bannið mundi ekki hafa nein áhrif. Reuter Umhverfisráöstefnan í Ríó: Bandaríkin gefa sig ekki ÓUklegt er talið að bandarísk stjórnvöld muni faUast á samkomu- lag um að draga úr gróðarhúsaáhrif- unum svokölluðu á umhverfisráð- stefnu Sameinuðu þjóöanna í Rio de Janeiro í júní vegna þess að enn er mörgum spurningum um loftslags- breytingar ósvarað. „Síðastliðin tvö ár hafa kennt okk- ur að vera ekki of viss þegar lofts- lagsbreytingar eru annars vegar,“ sagði Teresa Gorman, háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu í Washington. Bandarísk stjórnvöld hafa verið helsta ljónið í veginum í samninga- viðræðunum um samkomulag tU að draga úr gróðurhúsaáhrifunum sem þjóðaleiðtogar heimsins vonast til að undirrita í Ríó. Þau segjast ekki munu undirrita samkomulag sem kveður á um að árið 2000 verði losun koltvísýrings út í andrúmsloftið komin niður á sama stig og hún var 1990 þar sem slíkt muni draga úr vexti og viðgangi efnahagslífsins. Bandarísk iðnfyrirtæki eru mjög háð jarðefnaeldsneyti sem gefa af sér koltvísýring en hann er talinn stuðla að gróðurhúsaáhrifunum. Gorman sagði að ríki sem hefðu fallist á að draga úr losun koltvísýr- ings hefðu ekki sýnt fram á hvernig þau ætluðu að ná settum markmið- um. Hún sagði að stjórn sín vonaði að ráðstefnan yrði árangursrík, þrátt fyrir ágreininginn um gróðurhúsa- áhrifin. Reuter Bandaríska Ijósmyndafyrirsætan Cindy Crawford er stödd i ísrael og var þessi mynd tekin í Júdeueyðimörkinni þar sem hún sat fyrir í töskuauglýs- ingu með þessum hermannaklæddu piltum. Eiginmaður Cindyar, leikarinn Richard Gere, er ekki með i för. Simamynd Reuter Gorbatsjov f agnar sigri Borís Jeltsíns í þinginu Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, fagnaði sigri ríkisstjómar Borís Jeltsíns Rúss- landsforseta og róttækrar umbóta- stefnu hennar í efnahagsmálum yfir íhaldssömum þingmönnum. Rússneska fulltrúaþingið sam- þykkti í gær yfirlýsingu þar sem það afneitar í raun ráðstöfunum sem gengu í berhögg við umbótastefnuna og íhaldsmönnum tókst að koma í gegn. „Ákvörðun þingsins gerir Jeltsín forseta kleift að taka á efnahags- vanda landsins af raunsæi, þó sva að ríkisstjórnin hafi viðurkennt að nokkurra lagfæringa er þörf,“ sagði Gorbatsjov á blaðamannafundi í Tokyo þar sem hann er í einkaheim- sókn. í yfirlýsingu þingsins segir að það sé reiðubúið að styöja efnahagsum- bætur forsetans og það muni ekki krefjast gagngerra breytinga á ríkis- stjórninni. Orðalagið virtist falla ráð- herrum í geð en þeir buðust til að segja af sér á mánudag. „Þegar á hefldina er litið leyfir þessi yfirlýsing stjóminni að halda áfram með umbætur sínar,“ sagði Jegor Gaidar, aðstoðarforsætisráð- herra og aðalhöfundur umbótaáætl- unar Jeltsíns. Samþykkt þingsins framlengir einnig vald Jeltsíns til að stjóma eig- in ríkisstjórn en harðlínumenn gerðu tilraunir til að draga verulega úr valdi forsetans á næstu þremur mánuðum. Jeltsín var ekki viðstaddur þing- fundinn og hann hefur ekki sést frá því á laugardag þegar allt fór í bál og brand með sigri íhaldsaflanna. Reuter Nýtum sumarið til að gera eitthvað skapandi fyrir okkur sjálf. Ekki fresta því þar til betur stendur á eða þar til þú hefur náð tökum á aðsteðjandi vanda. Láttu kvöldið í kvöld vera fyrstu perluna af mörgum sem þú skapar þér í sumar. Innritun i síma 677323 Fundarboð Framhaldsaðalfundur Húseigendafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl nk. kl. 17.00 í sam- komusal iðnaðarmanna, Skipholti 70, 2. hæð, Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Tillaga til breytinga á samþykktum félagsins. 2. Önnur mál. Stjórnin BRETTA- KANTAR Mitsubishi pickup 1200, M. Pajero, Toyota Hilux, double cab, extra cab, LandCruiser, Fox, Lada. Skyggni á Pajero og Lödu. Útvegum og framleiðum vörubíla- bretti og skyggni á flestar tegundir. Uppl. alla daga í síma 91-677006 - 670043 ÆVINTÝRAFERÐ Á VÉLSLEÐUM í LANDMANNALAUGAR UM PÁSKANA Tvær þriggja daga ferðir, frá fimmtudegi til laugar- dags og laugardegi til mánudags. Gist í skála Ferðafélagsins. Allur búnaður fylgir, s.s. hjálmur, bomsur, galli, vél- sleði og bensín. Pantanir og upplýsingar í síma 682310. SNOWMOBILE EXPEDITIONS Dugguvogi 10 - 704 Reykjavík - Island - Sími (TeD: 354-1-6823W Fax: 354-1-813 W2 - KT: 640192 - 2089 - VSK NR: 32536 Húsbréf I Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 Innlausnardagur 15. apríl 1992 Nafnverð Innlausnarverð 1.000.000 1.159.236 100.000 115.923 10.000 11.592 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. [££] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-696900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.