Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992. Sérstæð sakamál Allt frá því aö þau giftu sig höíöu Ruth og Edward Leftwich búið í Las Vegas í Bandaríkjunum og eng- um kom annað í hug en þau liföu hamingjusömu lífi. En þar kom að óhamingjan sótti þau heim. Ruth hvarf að heiman og fannst lík . hennar tólf kílómetra utan borgar- innar. Hafði hún verið stungin mörgum sinnum með hnífi í brjóst- ið og þar að auki kyrkt meö ein- hvers konar nælonstreng. Morðið fékk mikiö á Edward, mann hennar, en þaö leið ekki á löngu þar til honum var aftur kom- ið á óvart, þó ekki illilega í þetta sinn... að honum þótti 'í fyrstu. Bankinn sem kona hans haföi skipt við sendi yfiriit yfir reikning henn- ar og kom þar fram að á honum voru nærri fimmtíu og eitt þúsund dalir. Varð ljóst, þegar Edward fór að kanna bankaviðskipti konu sinnar frekar, að umtalsverðar fjárhæðir höfðu farið um hendur hennar og reikning undangengin þijú ár. George McCradle rannsóknar- lögreglufulltrúi, sem hafði meö höndum rannsókn morðmálsins, fékk vissar grunsemdir þegar hann fékk aö sjá reikningsyfirlitið frá bankanum. Hann gaf enga yfirlýs- ingu um þær en fór að kanna fortíð Ruth Leftwich. Hún haföi áður verið læknaritari en vegna slæmra mígrenekasta haföi hún orðið að hætta störfum þremur árum áöur en hún var myrt. Lögreglan komst einnig að því að Mn haföi leitað ráða hjá ýmsum íæknum til að losna við höfuð- verkjaköstin og höföu þeir allir komið heim til hennar þegar hún var með þau. Það kom svo í ljós að einn lækn- anna haföi framið sjálfsmorð vegna mikils fjárskorts. Fjárkúgun McCradle fulltrúi fékk yfirlit yfir bankareikning læknisins látna og kom þar fram að hann hafði tekið úr stórar upphæðir með jöfnu millibili og þegar litið var á reikn- ingsyfirlit Ruth Leftwich kom í ljós aö degi síðar en hann hafði tekið mest fé út hafði hún lagt tilsvar- andi upphæðir inn á sinn rikning. Þetta gat vart með tilviljun. Þóttist McCradle nú hafa fengið staðfest- ingu á því að grunsemdir hans ættu við rök að styðjast. Þess vegna beindist nú athygli hans að hinum læknunum þremur. Einn nágranna Leftwich-hjón- anna, frú Jessica Wendel, sneri sér skömmu síöar til lögreglunnar með mjög athyglisverðar upplýsingar. Hún kvaðst hafa tekiö eftir því aö í hvert sinn sem frú Leftwich hefði þurft að kalla á lækni heföi það alltaf gerst þegar maöur hennar var ekki heima. Edward var bruna- liðsmaður og vann óreglulega vaktavinnu. „Síðdegis í síðustu viku sá ég Ruth Leftwich. Edythe Straughn. Staughn lækni koma,“ sagði frú Wendel, „og eftir um stundarkorn gekk ég að húsinu og hringdi dyra- bjöllunni til þess aö vita hvort ég gæti gert nokkuð fyrir vesalings Ruth. Það leið nokkur stund áður en hún opnaði. Föt hennar voru öll í óreiðu og hún var eldrauð í fram- an en hún afþakkaði boð mitt um aðstoð." Skuldir Varfæmislegar fyrirspumir í hverfinu sem Alfred Straughn læknir bjó í sýndu að flestir sem hann skipti við áttu fé hjá honum. Einn haföi rukkað hann um greiöslu og fengið þaö svar að hann fengi borgað í mánaðarlokin. Svo hafði læknirinn bætt við: „Og þetta endurtekur sig ekki. Fjárhagsvandamál mín tilheyra senn liðinni tíð.“ Þetta sagði læknirinn tveimur dögum fyrir morðið. Til þess að ekki kæmust af stað sögusagnir um vandamál eins best Uðna læknis í borginni hringdi McCradle til hans og bað hann að koma til fundar vegna fyrrum sjúklings hans, Ruth Leftwich. Þegar þeir hittust, rannsóknar- lögreglufulltrúinn og læknirinn, sagði McCradle við hann: „Ég hef rökstuddan grun um að Ruth Leftwich hafi kúgaö af þér fé.“ „Ég skal vera hreinskilinn," sagði þá Straughn læknir. „Hún kúgaði af mér fé og hún er búin að tæma bankareikninginn minn. Ég er næstum þvi orðinn gjaldþrota. En ég myrti hana ekki.“ Skýringin „Hvemig kúgaði hún af þér fé?“ spuröi McCradle. „Ég var búinn aö hafa hana til meðferðar um nokkurn tíma vegna mígrenekasta þegar hún hringdi til mín síðdegis dag einn og sagðist þurfa aðstoð. Þegar ég kom heim til hennar var hún ein heima. Hún lá í rúminu klædd næstum gagnsæjum náttkjól og ég var nógu heimskur til að láta freistast. Eins og þú veist missi ég réttindin til að starfa ef það kemur fram að ég hafi staðið í nánu sambandi við sjúkling. Og ég missi ekki bara rétt- indin, heldur konu mína, böm og heimili." „Og þegar ekkert virtist blasa við nema gjaldþrot þá misstirðu stjóm á þér og myrtir hana?“ sagði McCradle. „Ég skal viðurkenna að mér kom það til hugar en ég er ekki morð- ingi og réð ekki þessa konu af dög- um,“ svaraði læknirinn. „Hvar varstu milli klukkan sex og tólf að kvöldi dagsins þegar Ruth Leftwich var myrt?“ spurði McCradle næst. „Ég var kallaður heim til frú Leftwich klukkan fimm síðdegis. Við ræddum stuttlega um peninga- málin og ég bað hana um frest því ég væri algerlega félaus. Hún féllst á að veita hann. Ég fór frá henni um tuttugu mínútur fyrir sjö og hélt þá beint heim.“ „Getur nokkur staðfest það?“ „Já, konan mín... nei, annars. Hún var í heimsókn hjá móður sinni.“ Nýjar grunsemdir Þegar Staughn læknir var farinn af fundinum með McCradle gekk fulltrúinn inn til félaga sinna en þeir höfðu þá veriö aö rannsaka ýmislegt varðandi hina læknana en þeir höföu ekki verið í borginni daginn sem morðið var framið. „Og þeir höfðu tekið konur sínar með,“ sagði einn rannsóknarlög- reglumannanna sem haföi rætt við þá. „Af hveiju tekurðu það fram?“ spurði McCradle. „Getur ekki allt eins verið að kona hafi framið morðið?“ „Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki gert mér grein fyrir þeim möguleika," sagði þá McCradle. Rannsóknarlögreglumennimir ákváðu nú að ræða við frú Edythe Straughn. „Frú Straughn," sagði McCradle, þegar hún hafði boðið þeim inn í stofu og sæti. „Við vitum að frú Leftwich var myrt vegna þess að hún kúgaði fé af manninum þínum. Við vorum að yfirheyra hann áðan og þá kom fram að þú hefðir verið í heimsókn hjá móður þinni kvöld- ið sem morðið var framið og því gætirðu ekki staðfest hvenær mað- urinn þinn kom heim. Hefurðu nokkuð á móti því að láta okkur fá símanúmer móður þinnar svo við getum fengið staðfestingu hennar á því að þú hafir verið hjá henni á umræddum tíma?“ Játningin „Það er óþarfi.“ svaraði frú Straughn. „Ég var alls ekki hjá móður minni. Það var ég sem myrti frú Leftwich og ég sé ekki eftir því.“ Það varð nokkur þögn en síðan kvaðst frú Straughn skyldu segja sögu sína og það gerði hún rólega. „Mér varð ljóst fyrir nokkru að maðurinn minn var í ástarsam- bandi við frú Leftwich og að hún kúgaði af honum fé. Sömuleiðis varð mér þá ljóst aö hún var að eyðileggja hjónaband okkar og líf. Ég sá því aðeins eina leið til að leysa vandann. Ég fór heim til hennar og tók með mér leikfanga- byssu sem ég notaði til að neyða hana til að hleypa mér inn af því hún vildi ekki ræða við mig. Er inn kom reyndi ég að koma vitinu fyrir hana en það er ekki hægt aö rökræða við glæpamenn. Hún hló bara að mér þegar hún sá að það var leikfangabyssa sem ég hafði notað til að fá hana til að hleypa mér inn. En ég haföi líka tekið með mér hníf. Ég stakk hana með honum og til þess aö vera viss um að hún væri dáin batt ég um hálsinn á henni. Síðan fór ég með hkið út í bfi og ók því á þann stað þar sem það fannst.“ Dómurinn Máhð vakti verulega athygh því ljóst var hvað hafði fengið frú Straughn til að fremja morðið. Hún haföi óttast um framtíö hjónabands síns og lífshamingu sína og sinna eftir að Ruth Leftwich haföi náð því taki á manni hennar að hún gat kúgað af honum svo til allt það fé sem hann haföi með höndum. Frú Straughn var dæmd fyrir lagabrot sem þung refsing fylgir ekki. Rétturinn tók tillit til að- stæðna hennar og dómurinn kvað á um að hún skyldi sitja í fangelsi ekki skemur en eitt ár og ekki leng- ur en fimm ár. Þegar dómurin var kveðinn upp hafði hún setið í varðhaldi í þijá mánuði og heildartími hennar í fangelsi varð eitt ár. Níu mánuðum eftir að réttarhöldunum lauk var frú Straughn því látin laus. Þá biðu hennar við dyr fangelsis- ins maður henar og eldri sonur þeirra hjóna. Saman óku þau til annarrar og ónefndrar borgar þar sem Straughn læknir hafði komið sér fyrir. Og þar hófu þau nýtt líf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.