Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1992, Síða 30
50 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992. Myndbönd > ★ */* Simon Templar birtist a ný THE BRAZILIAN CONNECTION Útgefandi: Háskólabió. Leikstjori: Jan Toynton. Aöalhlutverk: Simon Dutton og Gayle Hunnicutt. Bresk, 1990 - sýningartími 100 min. Leyfö öllum aldurshópum. í hugum flestra, sem fylgdust meö þáttaröðinni Dýrlingurinn í upphafi sjónvarpsins hér á landi, er aöeins einn leikari sem getur gert Simoni Templar góð skil og þaö er Roger Moore sem síðar geröi garðinn frægan sem James Bond. Aðrir hafa spreytt sig á hlutverk- inu en engum tekist að festa rætur og síðasti leikarinn, sem reynir, er Simon Dutton sem leikur Dýrling- inn i The Brazilian Connection. Mynd þessi er ágæt skemmtun og Dutton kemur vel fyrir og leikur ágætlega en hann er enginn Roger Moore. Þrátt fyrir það gerir Dutton heiðarlega tilraun og mynd þessi, sem fjallar um smygl á vörum frá Brasilíou, auk söiu á börnum, er hin líflegasta. Húmor í myndinni er nokkur sem aðallega skrifast á seinheppinn lögregluforingja sem stendur í þeirri trú að Simon Templar sé hinn versti þrjótur og sé örugglega morðingi sem hann leitar að. THi BRAZILfAN CONNECTION O Skrítnir ferðalangar HOMER & EDDIE Útgefandi Steinar hf. Leikstjóri: Andrei Konchalovsky. Aðalhlutverk Whoopi Goldberg og James Belushi. Bandarisk, 1990 - sýningartími 96 mín. Leyfð öllum aldurshópum. Andrei Konchalovsky, sem á baki margar gæðakvikmyndir, er hér greinilega á villigötum sem leik- stjóri myndarinnar Homer & Eddie sem er svört kómedía. Myndin seg- ir frá tveimur skrítnum ferðalöng- um, Homer, sem er skemmtilega skrítinn eftir að hafa fengi hafna- bolta í hausinn, og Eddie, sem er alvarlega veik, og ferð þeirra á bílskrjóði yfir hálf Bandaríkin í leit að draumum sem ekki fyrirfinnast. Þegar á heildina er htið er sagan sjálf aUra góðra gjalda virði og ætti myndin að vera átakanleg í lokin en þau Whoopi Goldberg og James Belushi eru svo gjörsamlega búin að klúðra persónunum sem þau leika að maður er þeirri stundu fegnastur þegar myndin er búin. ★ Z2 Hefndin er sæt FINAL JUDGEMENT Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: David Robinson. Aðalhlutverk: Michael Beck, Catherine Colvey og Michael Rhoades. Bandarisk, 1989-sýningartimi 90 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Fyrir þrjátíu árum gerðist það í smábænum Baypoint að hjón voru myrt og morðinginn framdi sjálfs- morð eftir verknaðinn. Sumir bæj- arbúar hafa aldrei viljað trúa opin- berri skýringu enda margt sem benti til þess að morðinginn hafi ekki getaö drepið sjálfan sig. í þrjátíu ár hefur hópur manna komið saman á bæjarkránni og fengið sér drykk eins og gengur og gerist. AJlt í einu eru þeir myrtir hver á fætur öðrum og er greinlegt að morðinginn lætur ekki staðar numið fyrr en þeir eru allir dauðir. Það er margt sem má flnna að Final Judgement enda er myndin greinilega gerð af vanefnum. Hún hefur þó eitt sem margar dýrari myndir skortir og þaö er góður söguþráður og er auðvelt að líta fram hjá nokkrum annmörkum og hafa gaman af þessari morðgátu. ★★★ Vinur þeirra sem lítils mega sin DICK TRACY Útgefandi: Bíómyndir. Leikstjóri: Warren Beatty. Aðalhlutverk: Warren Beatty, Al Pacino, Madonna og Glenne Headly. Bandarisk, 1990-sýningartími 101 min. Bönnuð börnum innan 12 ára. Warren Beatty bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í Dick Tracy. Ekki er þetta í fyrsta sinn sem hann gerir slíkt og er skemmst að minn- ast hinnar epísku myndar hans, Red, sem fjallaði um blaðamanninn John Reed sem dvaldist lengst af í Rússlandi. í Dick Tracy er Beatty í gjörólíku hlutverki teiknimynda- hetjunnar Dick Tracy sem ílestir kannast sjálfsagt við en teikni- myndasagan var lengi birt í ís- lenskum blöðum. Og það verður að segjast eins og er að það er mik- ill stíll yflr myndinni. Dick Tracy er sérlega áferðarfalleg mynd og öll tæknivinna stórfengleg en hún líður nokkuð fyrir veikan sögu- þráð. í myndinni er Dick Tracy á slóð glæpaforingjans ógurlega, Big Boy Caprice, og óaldarflokks hans. Með aöstoð tveggja félaga sinna segir Tracy glæpaforingjanum stríð á hendur. Ekkert getur komið í veg fyrir þá ætlun hans að hreinsa borgina af glæpum, nema kannski ást hans á kærustunni, Tess True- heart. Að vísu reynist honum erfitt að halda tryggð við kærustuna þeg- ar hann verður fyrir miklum áhrif- um frá þokkagyðjunni og söngkon- unni Breathless Mahoney en hún Dick Tracy (Warren Beatty) kennir drengnum (Charles Korsmo) lífsregl- urnar. er ákveðin í að spilla hinum heiðar- lega Tracy. í hinni heilögu baráttu sinni fyrir réttlælinu rekst Tracy á ungan dreng sem hann tekur upp á arma sína og kemur stráksi nokk- uð við sögu. Öll er myndin í anda teikni- myndasagna og er glæpaflokkur Big Boy Caprice sérlega vel heppn- aður en hann er eins og khpptur út úr hasarblaði. A1 Pacino, algjör- lega óþekkjanlegur, leikur Big Boy af mikilli snilld og eru atriðin, sem hann kemur fram í, þau bestu í myndinni. Einnig er gaman aö fylgjast með Madonnu sem er mik- ill senuþjófur eins og fyrri daginn og fer hún einkar vel með góð lög sem prýða myndina. Aðrir leikarar standa sig einnig vel og Beatty tekst ágætlega að túlka Tracy þótt hann hafi oft verið betri. í heild er Dick Tracy góð skemmtun en ég er ekki frá því að það hefði verið hægt að gera hana skemmtilegri. -HK ★★ ★★ Skólastrákar í byssuleik TOY SOLDIERS Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Daniel Petrie jr. Aðalhlutverk: Louis Gossett jr., Sean Astin og Denholm Elliott. Bandarisk, 1991 - sýningartími 115min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Eftir að hin mikla þíða í sam- skiptum austurs og vestur varð að veruleika hafa skæruhðahópar af ýmsum gerðum og stærðum orðið að óvini númer eitt í bandarískum kvikmyndum og er þeir yfirleitt taldir mjög miskunnarlausir. í Toy Soldier er að finna slíka skæruliða sem hika ekki við að drepa saklausa borgara þegar þeim hentar. Þessi hópur hefur aðeins einn tilgang, að frelsa foður skær- uliðaforingjans Luis Cali hvað sem það kostar. Til að fá hann lausan ræðst flokkurinn á heimavistar- skóla. Þar á að vera í námi sonur dómarans sem á dæma 1 máli föð- urins en þeir koma of seint. Búið er að flytja drenginn burt. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Cali en hann sér fljótt að hann hefur undir hönd- um ágæta skiptimynt. í skólanum eru vandræðadrengir sem allir eiga það sameiginlegt að vera synir ríkra og áhrifamikiUa foreldra. CaU heldur því drengjunum í gísl- ingu og til að sýna fram á alvöru málsins drepur hann einn kennar- ann. Það sem CaU hefur ekki reiknað með er að drengirnir eru ekki að- eins vandræðaunglingar heldur mjög uppreisnagjamir og eru aUs ekki tilbúnir að gefast upp. Hefst T0Y ■ M nú skæruhemaður skólapilta gegn skæruUðum. Söguþráðurinn í Toy Soldier er vægast sagt nokkuð ótrúlegur og er ekki laust við að sumt sem taka á með fullri alvöru sé broslegt en myndin er hröð og spennandi og ágætlega gerð. Yfirleitt er persónu- sköpun góð þegar þeir fuUorðnu eiga í hlut, bæði skæruUðar og kennarar, en drengimir em hreint út sagt einum of klárir. Þegar á hólminn kemur kunna þeir öU brögð skæruUðanna, auk þess sem það er ekkert mál fyrir þá að hand- leika vélbyssur og búa til sprengj- ur. Fyrir spennuþyrsta áhorfendur er Toy Soldier ágæt skemmtun en verðurseinttaUnmerkUeg. -HK ar LIONHEART Útgefandi: Bergvik. Leikstjóri: Shelton Lettich. Aðalhlutverk: Jean-Claude Van Damme og Deborrah Rennard. Bandarisk, 1990, sýningartimi 102 min. Bönnuö börnum innan 16 ára. Jean-Claude van Damme ieikur í Lionheart Uðsmann í útlendinga- hersveitinni frönsku sem strýkur þegar hann fréttir af bróður sínum helsærðum á spítala eftir að hafa lent í greipum eiturlyfjasala. Gerist myndin síðan í New York og Los Angeles þar sem Van Damme sýnir sniUi sína í sjálfsvarnaríþróttum með því að keppa við aUa þá bestu um leið og hann reynir eftir fremsta megni að hjálpa ekkkju og barni bróður sína. Það er ekkert sem kemur á óvart í Lionheart. Stór skammtur af slagsmálum er það besta og heldur spennunni í hámarki. Van Damme er takmarkaður leikari sem lætur það best að tala sem minnst en veitir slagsmálaþyrstum áhorfend- um góða skemmtun. bkærunoarnir syna enga miskunn þótt skólastrákar eigi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.