Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1992, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992.
Útlönd
Ástkona ráð-
herrans prédik-
aröruggtkynlíf
Antonia de Sancha, leikkonan
sem var Ilækt í kynlífshneyksli
meö breskum ráðherra í síðasta
mánuði, hefur tekiö þátt í bar-
áttuherferö gegn eyðni og prédik-
aö notkun smokksins.
Lelkkonan kom fram í sérstök-
um skyrtubol á fundi sem góð-
gerðastofnun, sera sér um eyðni-
sjuklinga, skipulagði.
Dagblöð höfðu það eftir henni í
gær að eyðni væri mál sem snerti
alla. Hún var þá spurð hvort hún
kreföist þess að bólfélagar henn-
ar notuðu smokkinn. „Já, alltaf,“
svaraði þá leikkonan.
Baráttamafíu-
hópaum
Moskvu kostar
ellefulrf
Ellefú manns voru drepnir á
einum sólarhring, frá þriðjudegi
til miðvikudags, þegar „mafíu-
hópar“ börðust um yfirráðin í
Moskvu, að því er fréttastofan
Itar-Tass sagði ffá í gær.
Að minnsta kosti fimm hinna
fóllnu voru frá Kákasusfjöllum
þaðan sem voldugustu glæpahóp-
amir koma og þar sem byssur eru
í nær hvers manns vasa.
Rússar kalla alla skipulagða
glæpahópa „mafíur".
Tass hafði það eftir lögreglunni
að glæpagengi með aðsetur í
Moskvu hefðu ráðist til atlögu
gegn Kákasusmönnum til að ná
undir sig stjórn í undirheimum
borgarinnar.
Flestfórnarlömb
hatursglæpaeru
blökkumenn
Flest fórnarlömb hatursglæpa í
Bandaríkjunum eru blökku-
menn, að þvi er háttsettur lög-
gæslumaður sagði á fundi nefnd-
ar öidungadeildar bandaríska
þingsins.
„Tveir af hveijum þremur hat-
ursglæpum eiga rætur sínar að
rekja til kynþáttafordóma. Og
fordómar þessir beinast oftast
gegn blökkumönnum," sagði G.
Norman Christensen, aðstoðar-
forsfjóri bandarísku alrikislög-
reglunnar, FBI, við yfirheyrslur
hjá laganefíid öldungadeildarinn-
ar.
Hann lýsti hatursglæpum
þannig aö þeir væru framdir
vegna kynþáttar, trúarbragða,
kyniífshegðunar eða uppruna
fómarlambsins.
Fyrsta skýrsla FBI um haturs-
glæpi verður gefin út í nóvember.
Atvinnuleysií
Svíþjódmed
mestamóti
Fjöldi atvinnulausra í Svíþjóð 1
lok júlí var um 307 þúsund og
hefúr ekki verið meiri frá lokum
heimsstyrjaldarinnar síöari.
Rúmlega sex af hundraði vinnu-
færra manna em því atvinnu-
iausir. Atvinnulausum fjölgaði
um 40 þúsund frá því í lok júní
og á einu ári hefúr þeim íjölgað
um 152 þúsund.
Þessar tölur koma frá atvinnu-
málaráði félagsmálaráðuneytis-
ins en opinberar atvinnuleysis-
töiur frá sænsku hagstofunni eru
ekki væntanlegar fyrr en undir
miöjan mánuð.
Aö sögn má rekja aukningu at-
vinnuleysis í júlí til árstíðabund-
inna þátta en lika til kreppunnar
í sænsku efnahagslífi.
Formaður ráðsins hvatti stjóm-
völd til aö auka ríkisútgiöldin til
aöskapaatvinnu. Reuter
Mannfall í liði Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo:
Aukist ofbeldið enn
verðum við að f ara
- sagði Mik Magnusson, talsmaður gæsluliðsins í borginni
Króatar hafa sótt gegn Serbum i bæjum við landamæri Króatíu og Bosníu.
Serbar ráða bænum Odzak þar sem þessi kirkja var sprengd í loft upp í
átökum um bæinn. Simamynd Reuter
Vinsældir Bush aldrei miimi:
Nær útilokað talið að
hann nái endurkjöri
Vinsældir George Bush Banda-
ríkjaforseta meðal þjóðar sinnar hafa
hrapað svo að undaníomu að nær
útilokað er fyrir hann að ná endur-
kjöri ef eitthvað er að marka söguna..
Samkvæmt skoðanakönnun ABC
sjónvarpsstöðvarinnar og blaösins
Washington Post í gær nýtur Bush
nú ekki trausts nema 33 prósenta
bandarískra kjósenda. Bush hefur
Líkur á endurkjöri Bush Bandaríkja-
forseta fara sífellt minnkandi.
Simamynd Reuter
hrapað meira í áliti en nokkur maður
annar í sögu skoðanakannana
vestra. Þegar vinsældir hans vom
sem mestar, eftir sigur bandamanna
í Persaflóastríðinu, naut hann stuðn-
ings 90 prósenta kjósenda. Vinsældir
hans hafa því hrapaö um 57 prósent
á sautján mánuðum. v
Rúmlega 64 prósent fullorðinna em
ekki sátt við hvernig Bush stendur
sig í forsetaembættinu, að þvi er
kemur fram í könnuninni.
Aðeins þrír forsetar hafa notiö
minni vinsælda í sögu skoðanakann-
ana, Harry Truman árið 1951, Ric-
hard Nixon árið 1974 og Jimmy Cart-
er 1979. Að sögn ABC hefur enginn
náö endurkjöri meö svona lítinn
stuðning í vegarnesti.
Skoöanakönnunin var birt á sama
tíma og Bush var að biðla til gamalla
hermanna. Hann bað þá um að kjósa
sig en ekki nýliðann Bill Clinton,
frambjóðanda demókrata.
„Stöndum saman,“ sagöi Bush á
þingi fatlaðra fyrrum hermanna í
Reno í Nevada. Hann lofaði þeim
sterkum landvömum og sagöi aö
þingið fengi ekki að breyta heilsu-
gæslukerfi hermanna.
Clinton er lagður upp í aðra rútu-
ferð sína um landið og heimsækir
miðvesturríkin að þessu sinni.
Reuter
„Sá tími er kominn að við verðum
að meta stöðu okkar hér að nýju.
Aukist ofbeldið enn er starf okkar í
hættu og við verðum að fara,“ sagði
Mik Magnusson, talsmaður gæslu-
liðs Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo
í gærkveldi, eftir að átök höfðu stað-
ið í borginni allan daginn.
Mik Magnusson, sem árum saman
starfaði á íslandi áður en hann gekk
í þjónustu Rauða krossins og síðar
Sameinuðu þjóðanna, sagði að einn
maður úr gæsluliðinu hefði fallið í
átökunum í gær og sex væru alvar-
lega særðir.
Mik sagði þó að liðsmenn Samein-
uðu þjóðanna gæfust ógjaman upp
en ástandið væri nú orðið slíkt að
gæslustarfinu yrði vart haldið
áfram. „Við viljum halda áfram
starfi okkar ef það er hægt,“ sagöi
Mik.
Serbar neita harðlega ásökunum
um að þeir hafi á annað hundrað
þúsund andstæðinga sinna í haldi í
fangabúðum. Fregnir hafa borist um
að í það minnsta 17 þúsund íslamar
og Króatar hafi verið myrtir í búðun-
um.
Andstæðingar Serba í Bosníu segja
að þeir þurfi nú umfram allt að fá
meiri og betri vopn til að stöðva
framgöngu Serba. Þeir segja að við-
skiptabannið á landið bitni lítt á
Serbum því þeir hafi engu að síður
greiðan aðgang að vopnum og fá nóg
eldsneyti á vígvélar sínar.
Yfirmaður sveita Bosníumanna í
Sarajevo segir að þeir hafi mikinn
mannskap til að berjast en aðeins
vopn fyrir tíunda hvern mann. Ræt-
ist ekki úr komist Serbar upp með
þjóðarmorð í landinu.
Talið er að Serbar hafi tvo þriðju
Bosníu á valdi sínu. Viðurkennt er
að átta þúsund menn hafi látið lífið
í átökum síðustu mánaða en Bosníu-
menn segja að tala látinna sé miklu
hærri.
Talsmenn Bosníumanna segja að
þjóðir heims hafi brugðist þeim og
láti viðgangast aö Serbar leggi undir
sig fjálst og fullvalda ríki. Alþjóðleg-
ar stofnanir geri ekkert raunhæft
landsmönnum til hjálpar.
Reuter
Blökkumenn í Suöur-Afríku mótmæla:
Auknar líkur á
viðræðum Mandela
og de Klerks
ríkisstjómin segði af sér og léti völd-
in í hendur bráðabirgðastjórn allra
kynþátta. .
Lögreglan sagði að 630 mótmæl-
endur hefðu verið handteknir víðs
vegar um landið fyrir að setjast að í
stjómarbyggingum.
Leiðtogar Afríska þjóðarráösins
sögðust vera himinlifandi og hissa á
þessum mikla stuðningi við mót-
mælaaðgerðirnar eftir tveggja daga
allsherjarverkfall fiögurra milljóna
blökkumanna til aö leggja áherslu á
kröfur um endalok stjórn hvítra
manna.
Fréttaskýrendur sögðu að mót-
mælagöngurnar afsönnuöu fullyrð-
ingar stjórnvalda um að fjöldaað
gerðir þjóðarráðsins byggðust á
þvingunum.
Nelson Mandela, leiðtogi þjóðar-
ráðsins, sagði að hann mundi taka
að nýju upp samningaviöræður við
stjórnvöld um leið og de Klerk for-
seti féllist á kröfur um lýðræði í land-
inu.
De Klerk skýrði síðar frá því að
stjórnvöld hefði rætt við þjóðarráðið
um „ákveðin mál“ á undanförnum
fimm dögum. Hann sagði frétta-
mönnum að hann væri reiðubúinn í
samningaviðræður hvenær sem
væri.
Stjórnmálaskýrendur segja að það
sé aðeins vikuspursmál hvenær
samningaviðræður þjóðarráðsins og
stjórnvalda um lýðræöi í landinu
hefjÍSt aðnýju. Reuter
Eitt hundrað þúsund stuðnings-
menn Nelsons Mandela og Afríska
þjóðarráðsins fóru í kröfugöngur að
stjómarsetri Suður-Afríku í Pretoríu
og að þinghúsinu í Höföaborg til að
lýsa andstöðu sinni við minnihluta-
stjóm hvítra manna í landinu.
Þúsundir manna til viöbótar komu
saman í Jóhannesarborg, Durban og
fleiri borgum til að krefjast þess að
F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku,
segist reiðubúinn að hefja á ný við-
ræður við blökkumenn um stjórnar-
farsbreytingar i iandinu.
Teikning Lurie
Krónprins Japana í konuleit
Japanskeisari hefur krafist þess
af fjölmiðlum þar í landi aö þeir segi
ekki orð um leit krónprins landsins
að konu. Bannið var sett á í febrúar
og nú er búið að framlengja það til
haustsins. Þetta er að sögn gert til
að vemda væntanleg konuefni fyrir
óþörfu umtaii.
Naruhito krónprins er 32 ára gam-
all og virðist honum og fjölskyldu
hans ganga illa að finna konu sem
uppfyliir allar kröfur sem gerðar era
til keisaraynju. Á meðan skemmta
Japanir sér við sögur af bresku kon-
ungsfjölskyldunni.
Reuter