Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Page 4
4 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1992. Fréttir Alþýðubandalagið kallar aðra flokka tdl samstarfs í efhahags- og atvinnumálum: Nýjar tillögur sem gera ráð fyrir 12-1800 nýjum störfum - lagðar fram af forystusveit flokksins í dag Samkvæmt nýjmn tillögum Al- þýöubandalagsins um atvinnu- og efnahagsmál, sem kynntar veröa í dag, er gert ráö fyrir að á 8-12 mán- uðum sé hægt að skapa 1200-1800 ný störf verði farið að tUlögimum. Störf- in eru sundurliöuö í átta undirflokka eftir atvinnugreinum. Það er þingflokkm- Alþýðubanda- lagsins, ásamt fleirum úr forystu- sveit flokksins, sem unnið hefur umrætt plagg. Er um að ræða ítarleg- ar tillögm í fjölda Uða þar sem tekiö er á nýrri atvinnuþróunarstefnu og lýst er breytingum á rekstrarskUyrö- um atvinnulífsins, breyttri skatta- stefiiu gagnvart fyrirtækjum og fleiru. Þá er að finna tUlögur um breytingar í ríkisfiármálum, skatt- kerfisbreytingar, aðgerðir ríkis- og sveitarfélaga í framkvæmdamálum, endurskipulagningu í sjávarútvegi, ýmsar aðgerðir í iðnaöi, þjónustu- greinum, skipasmíðum, ferðaþjón- ustu og matvælaframleiðslu. Meðal þess sem er að finna í hinu ítarlega efnahags- og atvinnumála- plaggi alþýðubandalagsmanna eru tUlögur um breytingar innan ríkis- fjármálanna sem myndu skila 5-6 milijörðum króna á 14-24 mánaða tímabili. Enn fremur verulegar skattabreytingar fyrir atvinnulifið sem eiga aö geta bætt rekstrarskU- yrði þess upp á 6-7 mUljarða króna. Er þá einkum horft tU útflutnings- greinanna í því sambandi. í tUlögum Alþýðubandalagsins er gert ráð fyrir ýmsum stórvægUegum skattabreytingum. Er meðal annars lagt tíl að aðstöðugjald verði lagt nið- ur án þess að tíl komi íþyngjandi skattbreyting fyrir fyrirtækin á móti. Eins og áður sagði munu forystu- menn Alþýðubandalagsins kynna tíl- \ lögumar í dag. Að því er fram kom í ávörpum Ólafs Ragnars Grímsson- ar, formanns Alþýðubandalagsins, og Svavars Gestssonar alþingis- manns á stofnfundi kíördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjavík í gær, líta þeir á þessar tiUögur sem grundvöU fyrir umræðu allra stjóm- málaflokka, hvort sem þeir era í stjóm eða stjómarandstöðu. -JSS Stofnfrmdur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjavlk í gær: Alþýðubandalagið blæs til „víðtækrar þjóðarsamstöðu“ Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Reykjavík var stofnaö með formlegum hætti i gær. Meðal þeirra sem sátu stofnfundinn voru alþingismennirnir Svavar Gestsson og Guðrún Helgadóttir. DV-mynd ÞÖK „Það er ekki sjálfgefið að íslending- ar haldi efnahagslegu sjáifstæði sínu. Ef þeir ekki átta sig gæti farið fyrir okkur eins og Færeyingum. Ég mælti slík vamaðarorð tU þeirra fyrir tveim árum og slík vamaðarorð mæli ég aftur í dag. Þess vegna þarf að róa lífróður núna,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, á stofnfundi kjör- dæmisráðs Alþýðubandalagsins sem haldinn var í gær. Að nýstofnuðu kjördæmisráði standa Alþýðubandalagið í Reykja- vfk, Birting og Æskulýðsfylking Al- þýðubandalagsins í Reykjavik. Formaður var kjörinn Ámi Þór Sig- urðsson og varaformaður Arthúr Morthens. í sljóminni eiga sæti Gunnlaugur Júlíusson, Kristinn Karlsson, Matthías Matthíasson, Sig- urbjörg Gísladóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir. Á stofnfundinum flutti Svavar Gestsson alþingismaður ávarp um pólitíkina í Reykjavík. Hann sagði m.a. að ýmislegt hefði þróast á þann veg að ekki væri lengur hægt að segja um Reykjavík að innviðir borgarinn- ar væm sterkir og hún bæri með trúverðugum hætti höfuö og heröar yfir önnur byggðarlög í landinu. í þessu kjördæmi væri við að glíma alvarlegri félagsleg vandamál en nokkurs staöar annars staðar. Mikil- vægt væri að ná sátt um framtíðar- þróun höfuðborgársvæðisins og stöðu höfuöborgarinnar meðal landsmanna. Setja þyrfti skýr markmið í atvinnumálum, félags- málum, þjónustu viö aldraða, skóla- málum o.fl. Hann vék að tillögum þingflokks Alþýðubandalagsins í efnahags- og atvinnumálum sem kyimtar verða í dag. „Ég tel að eins og póliták hefur ver- ið að þróast að undanfömu beri okk- ur alþýöubandalagsmönnum að leita víðtækrar þjóðarsamstöðu. Ég tel það nauðsynlegt að við tökum upp ný vinnubrögð og að menn reyni ekki aðeins að koma fram málum með hefðbundnum hætti, sem stjóm og stjómarandstaða hafa gert. Ég er að tala um að við náum þjóðarsam- nefnara um nýja sfjómarstefnu, að við, stjómarandstæðingar, leggjum fram tillögur til úrbóta og séum reiðubúin til aö standa á framkvæmd þeirra með öllum aðilum í þessu þjóðfélagi. Með gömlu skotgrafapóli- tíkinni leysum við ekki þau vanda- mál sem uppi eru.“ Ólafur Ragnar sagði að leiða þyrfti saman að einu borði til umræðna stjómvöld, atvinnulíf, samtök launa- fólks og sveitarfélög tíl samvinnu og samhæfingar. Umræddar tillögur ættu að vera grundvöllur mnræðu milli allra flokka í landinu þar sem þeir mættust á jafiiréttisgrundvelli. „Það verður að mínum dómi próf- steinn á forystu ríkisstjómarflokk- anna hvort hún er reiðubúin að koma að umræðuborðinu," sagði Ól- afur Ragnar. JSS í dag mælir Dagfari Sighvatur gerir það ekki enda- sleppt. Nú er hann búinn að opna Sogn með pompi og pragt. Það munaði ekki miklu að ekkert yrði úr. Menn muna enn orrahríðina þegar svokallaðir sérfræðingar í geðafbrotinn fundu það út að Sogn væri ómögulegur staður af því að staðurinn væri svo langt frá Reykjavík. Svo komu innansveit- armenn og hikstuðu á að taka þessa minnstu meðbræður sína í hrepp- inn og að lokum gerðist það svo þegar vistmennimir vom á leið til landsins að væntanlegir starfs- menn neituðu að .mæta og heimt- uðu hærri laun til að taka að sér starfið. Þá varð Sighvatur reiöur. Alveg ógurlega reiður. Hann fór í símann og skammaði starfsmennina fyrir blakkmeil og hótaði að talca að sér starfið sjálfur. Sighvatur sagðist ekki líða það aö hafa vistmenn en enga starfsmenn enda var aldrei meiningin að vistmennimir gengju lausir um á Sogni. Ráðherrann var líka búinn að hafa mikið fyrir því að ná í vistmennina. Þeir höfðu verið geymdir í mörg ár úti í Sví- þjóð og höfðu beðið þess lengi að komast heim. Ráðherrann fór sjálfur út á flug- völl til að ná í þá. Gott ef hann dró ekki fram rauða dregilinn og ávarpaði þá við komuna. Allavega var sú móttökuathöfn með ráð- herrann í broddi fylkingar einstæð í sinni röð. Það var í fyrsta skipti sem löggiltir afbrotamenn fá opin- bera móttöku og ráðherra til að bjóða sig velkomna heim sem sýnir hvað ráðherranum þykir vænt um þessa vistmenn sína. Það er út af fyrir sig skiljanlegt. Sighvatur ráðherra hefur barist fyrir því frá fyrstu tíð að reisa rétt- argeðdeild að Sogni. Loksins þegar það mál var í höfn, hafði hann uppi á nokkrum íslenskum afbrota- mönnum sem höfðu nánast gleymst í útlöndum. Ef þeir hefðu ekki komið heim, hefði ekkert Sogn verið til og enginn þurft á Sogni að halda og ráðherrann hefði misst af því réttlætisbaráttumáli að reisa réttargeðdeild að Sogni. En þegar vistmennimir em fundnir og komnir heim, taka starfsmenn upp á þeim fjandskap að neita að mæta til vinnu. Neita að fara austur, rétt eins og ætlunin hafi verið að stinga þeim inn en ekki vistmönnunum. Var nema von að Sighvatur ærðist? Helst var að heyra að reka ætti starfsmennina á stundinni enda hefði ráðherran- um ekki munaö um að gæta vist- mannanna sjálfur, svo mikill vinur þeirra sem hann er. Búinn að heilsa upp á þá á flugvellinum og aka þeim austur á leið. Hver var sekur? Hver var að hrella kerfið? Ekki vistmennimir sem komu heim eins og ljúf lömb, ekki ráðherrann sem hefur barist svo hatrammlega fyrir þessu hæli að enginn sérfræðingur fæst til að taka þar til starfa? Nei, sökudólg- amir í málinu, vandræðagemsam- ir í þessu Sognarmáli era starfs- mennimir sjálfir sem þó eiga að ganga lausir á staðnum! Er þetta nokkur hemja? Nú er búið að semja við starfs- mennina. Þeim tókst sem sagt að blakkmeila ráðherrann. Þeim tókst að hækka kaupið, sem þeir vora búnir að semja um viö ráðherrann, en vildu svo hækka, þegar þeir átt- uðu sig á því að það vom ekki vist- mennimir sem létu verst heldur ráðherrann sem sótti vistmennina. Hreppsbúar í grenndinni viö Sogn hafa verið með böggum hildar út af þessu máli. Einkum þá af ótta við ósakhæfa en hættulega afbrota- menn sem þar eiga að gista. Þær áhyggjur em óþarfar. Heimamenn eiga þess í stað að hafa gætur á ráðherranum annars vegar þegar hann kemur í heimsóknir austur og svo starfsmönnunum hins veg- ar. Þeir síðastnefndu geta tekiö upp á því að leggja niöur vinnu og gæslu og þá er fjandinn laus. Þá er ráðherrann laus og allt getur farið í bál og brand og vistmennim- ir geta þurft að stilla til friðar og hvað gerist þá? Sighvatur er reiður og það að vonum. Hann var búinn að lofa vistmönnunum þægilegri heim- komu sem lenda svo í klónum á þessum hættulegu starfsmönnum. Og ráðherrann var búinn að ákveða að reka starfsmennina ef þeir létu ekki af blakkmeilinu en situr svo uppi með starfsmennina sem em honum illir viðureignar. Við skulum fylgjast með atburðun- um á Sogni. Ékki vegna vistmann- anna heldur starfsmannanna sem era greinilega hættulegir umhverfi sínu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.