Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Síða 5
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1992. 5 Landlæknir um mengaða brjóstamjólk: Fé vantar til mælinga á blýi og díoxíni - mælir þó með brjóstagjöf „Margt bendir til að það sé ekki jafn mikið af blýi í bijóstamjólk ís- lenskra kvenna og kvenna í ná- grannalöndunum. Blýmagn í and- rúmslofti hér er verulega lægra og hefur farið minnkandi frá því að mælingar hófust. Nú er það 0,1 I míkrógramm," segir Ólafur Olafsson landlæknir og bendir á að banda- ríska vinnueftirlitið telji leyíilegt blýmagn í lofti vera 50 míkrógrömm. Ölafur mælir óhikað með því að íslenskar konur hafi börn sín á bijósti en tekur fram að landlæknis- embættið hafi í hyggju að athuga blý- innihald brjóstamjólkur. Hins vegar vanti til þess fé. Fyrir nokkrum árum varð að hverfa frá slíkri könnun vegna mikils kostnaðar. Greining á hverju sýni kostar um 10 þúsund krónur. Auk blýs geta krabbameinsvald- andi díoxínefnasambönd sest að í móðurmjólk. Mælingar á díoxínefna- samböndum, sem myndast við brennslu á sorpi, hafa aldrei farið fram á íslandi. Alls eru til 210 mismunandi díoxín- efnasambönd. Fimmtán þessara efnasambanda eru talin mjög hættu- leg og töluvert hættulegri en strikn- ín. Díoxín berst með fæðukeðjunni. Á írlandi hefur díoxínmagn í kúa- mjólk mælst tífalt á við það sem eðli- legt getur talist. Ástæðan reyndist sú að kýr voru á beit í nágrenni við sorpbrennslustöð. „Það er alveg rétt að viss hætta stafar af opnum sorpbrennslum," segir landlæknir. „Það er meiningin að reyna að skoða þetta þó við höld- um ekki að þetta sé vandamál. Hins vegar verður að viðurkenna það að viðvitumþaðekkiörugglega." -IBS Landlæknir mælir óhikað með þvi að íslenskar konur hafi börn sin á brjósti. Fjárlagafrumvarpið fyrir 1993: Ungirstóðhestarfá einkavætt uppeldi - selja á Stóðhestastöð ríkisins að Gunnarsholti „Fyrirhuguð sala leggst ekki vel í mig og ég á ekki von á að það gangi vel. Stofnunin fékk fjárveitingar frá ríkinu til byggingarframkvæmda og fleira en rekstrarlega hefur hún stað- ið undir sér. Til skamms tíma borg- aði ríkið tapið en undanfarin tvö ár hefur hún skiiað hagnaði. Stöðinni er því gert að standa undir sér,“ seg- ir Eiríkur Guðmundsson, forstöðu- maður Stóðhestastöðvar ríkisins. í íjárlagafrumvarpinu fyrir 1993 er gert ráð fyrir að Stóðhestastöð ríkis- ins að Gunnarsholti verði seld. Síð- astliðið haust lauk framkvæmdum við nýtt hesthús fyrir stöðina sem kostaði um 40 milljónir krónur. Ár- lega fá á sjötta tug ungra stóðhesta uppeldi og dóm í stöðinni. Eiríkur er eini starfsmaður stöðvarinnar allt árið en yfir vetrarmánuðina vinna hjá honum tveir aðstoðarmenn. -kaa Fréttir Norðurá í Borgarfirði: 15% lækkun á leigunni Samningaviðræður um leigu á veiðiánum fyrir næsta sumar eru að komast á fuRt þessa dagana og leigan á hverri ánni af annarri að veröa tilbúín. Lækkun verður í mörgum fengsælum veiðiám. „Við náðura 15% lækkun á leig- unni í Norðurá og það var nauö- synlegt. Markaðurinn tekur ekki við hærra verði á veiðileyftun,“ sagði Jón G. Baldvinsson, form- aður Stangaveiðifélags Reykja- víkur. „Við eigum von á að betur gangi að selja í ána þegar veiði- leyfin lækka,“ sagði Jón enn- fremur. „Þessar lækkanir eru eðliiegar miðað við ástandið, veiðUeyfi seldust ekki fyrir tugi milljóna í sumar. Þaö hlaut að koma að þessu eins og gerst hefur í Norð- urá og Laxá í Kjós,“ sagði Grettir Gunnlaugsson, formaður Lands- sambands Stangaveiðifélaga. Það er mikið skrafáð þessa dag- ana og margir leigutakar hafa farið fram á lækkun. Einfaidlega vegna þess að leiga á veiðiám hefur ekki gefið krónu af sér síð- ustu sumur. -G.Bender Ólafsíjarðargöngin: Sjö árekstrar á þessu ári Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta hlýtur að stafa af því að menn aka of hratt í göngunum," seg- ir Jón Konráðsson, lögreglumaður á Ólafsfirði, en það sem af er árinu hafa 7 árekstrar orðið í jarðgöngun- um í Ólafsíjarðarmúla. Sá síðasti þeirra varð fyrir nokkr- um dögum en þá mættust tvær bif- reiðar á milli útskota sem til þess eru ætluð. Önnur þeirra lenti í ganga- veggnum öðrum megin en fólk í bif- reiðunum slapp án meiðsla. Það að of hratt sé ekið í göngunum styðja menn einnig með þeirri staðreynd að fyrsta árið sem þau voru í notkun og menn að venjast því að aka þar um varð þar ekkert umferðaróhapp. RETTIR A Ð HAUSTI — ú r n ýj u o g Ijú ffe n g u lambakjöti Það er á haustin sem kostur gefst á að matbúa úr nýju lambakjöti. Hvort sem þú kýst að elda eitthvað einfalt og fljótlegt eða glíma við margbrotna sælkeramatreiðslu er hægt að treysta því að nýtt lambakjöt er eitt besta hráefni sem hægt er að fá. Nýtt lambakjöt, náttúrulega gott. SAMSTARFSHÓPUR UM SÖLU LAMBAKJÖTS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.