Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1992. Spumingin Ert þú hjátrúarfull(ur)? Eiður Páll Birgisson garðyrkjunemi: Já, ég er hjátrúarfullur. Lárus Guðjónsson flugmaður: Svona mátulega en þó ekki þannig að það stjómi lífi mínu. Ragnhildur Ægisdóttir nemi: Nei, alls ekki. Lilja Ægisdóttir, starfsmaður á aug- lýsingastofu: Nei, hreint ekki. Hafdís Sveinbjörnsdóttir nemi: Nei, ég er alveg laus við það. Stefán Höskuldsson nemi: Nei, ég er bara hjátrúarfulíur þegar ég segi að ekkert komi fyrir mig, 7-9-13. Lesendur Símaskrá í tölvu- tæku formi Björn Björnsson skrifar: Nýverið birtist frétt í DV þess efnis að Póstur og sími ætli fljótlega að markaðssetja símaskrána í tölvu- tæku formi. Ekki er nema gott eitt um þetta framtak að segja þar sem tölvuvæðing er orðin svo mikil sem raun ber vitni. En þá kom reiðarslagið. Hvert ein- tak átti aö kosta 60.000 krónur - og eitthvað til viðbótar fyrir læsingu! Nú vill svo til að prentunarkostn- aður hverrar símaskrár er um 1000 krónur hvert eintak. Fyrirtækið sem ég starfa hjá fær um það bil 220 ein- tök á hverju ári. Með því að gefa okkur eitt eintak af tölvutæku skránni, sem sett yrði á tölvunetið okkar, kæmumst við af með um 50 eintök af prentuðum skrám. P&S myndi því spara sér um 170.000 á ári. Ég sjálfur fæ tvö eintök inn á mitt heimili. Ég myndi afsala mér báðum eintökunum. Árleg uppfærsla yrði eflaust aðeins á einum disklingi og færi dreifingarkostnaður P&S því lækkandi með árunum. P&S gæti einnig selt hvert eintak fyrir fjölföld- unarkostnaði og látið almenning um að að fjölfalda eftir vild og/eða notað sama eintakið á margar vélar. Og í stað þess að hver símnotandi fengi eina símaskrá á hvert númer sjálf- krafa, eins og verið hefur, þá fengju þeir sem þess óskuðu að kaupa hana á t.d. 1000 krónur. Sá hluti fasta- gjaldsins sem hingað til hefur greitt prentunarkostnað þeirra eintaka sem sparast gæti þá greitt fyrir frek- ari þjónustu viö viðskiptavini P&S. Umhverfissinnar munu eflaust Upplag prentaðrar sfmaskrár myndi minnka til muna ef símaskrá í tölvu tæku formi væri einnig til staðar. taka undir þetta sjónarmið um að minnka verulega pappírssóunina. Ef P&S gæti á fyrsta ári minnkað upp- lagið sitt um 10-20.000 eintök með því að dreifa ókeypis tölvutækri síma- skrá þá spöruðust u.þ.b. 10-20 millj- ónir króna en ef á aö selja þessa framleiðslu þá spái ég því að P&S fengi varla inn fyrir kostnaði eins og áður sagði. Gaf ekki franska símamálastjómin mörgum miUjónum símnotenda tölvuútstöð og sparaði með því ómældar fjárhæðir og minnkaði skógareyðingu og umhverfisspjöll? Skrípaleikur í menntamálaráði ívar B. hringdi: Það er undarlegur skrípaleikur sem hefur átt sér stað í menntamála- ráði að undanfomu. Öllum er kunn- ugt um stjómarbyltinguna sem gerð var en varð síðan að engu. Enn lætur þó núverandi minnihluti til sín taka og fór fram á, á dögunum, að ftmdi yröi frestað þar sem átti að ákveða hvaða tilboði yrði tekið í útgáfurétt Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Þóttist minnihlutinn ætla aö athuga laga- lega stöðu sína í menntamálanefnd. Meirihlutinn harðneitaði frestun- inni og ætlar nú aö leiða þetta undar- lega mál til lykta. Nú er yfirlýst að það eigi aö leggja Menningarsjóð niður í núverandi formi. Aörar breytingar eru á döfinni sem gera þaö að verkum að mennta- málaráð verður lítið nema nafniö eitt nái þær fram að ganga. Þetta veit minnihlutinn mætavel. Samt lætur hann eins og hann sitji í ríkis- stjórn og berst með kjafti og klóm fyrir að halda sæti sínu í ráðinu. Skilur þetta fólk ekki hvað er að gerast í kringum það? Þaö er að berj- ast í samkundu sem er svo gott sem dauö. Næsta skref minnihluta full- trúanna ætti því að vera að reyna að pota sér í einhveija aðra nefnd eða ráö úr því að þeim finnst svona gaman. Meirihlutinn má þó eiga það aö hann skilur að vitjunartími bókaút- gáfu menningarsjóðs er runninn upp. Útgáfan er úr takt við tímann og því ber aö leggja hana niður. Það er ekkert vit í því að vera að halda úti fyrirtækjum sem eru skuldug upp fyrir haus og eiga enga framtíð fyrir sér. Undarlegar ráðstafanír Einar Vilhjálmsson skrifar: í haust seldi landbúnaðarráðu- neytið jörðina Garða á Álftanesi á 50 mifijónir króna og afhenti Kristni- sjóðið andviröið, fyrir hönd ríkis- sjóðs. Kaupandi var Garðabær. Hvers konar ráöstafanir eru þama aö fara fram á almannafé? Þarf Al- þingi ekki að fjalla um þvílíkar ráð- stafanir á tímum þegar þarfar stofn- anir lamast vegna fjárskorts, til dæmis sjúkrahús, löggæsla á sjó og landi, slysavamir og skólar? Geta ráðherrar ráðstafað ríkiseignum á þennan hátt, eða andvirði þeirra, án þess aö fyrir liggi heimild frá Al- þingi? Það nátttröll í nútímanum, sem kirkjan og hvers konar trúar- brögð em, vekur undrun og óhug, ekki sfst þegar hugsað er til írlands og Júgólavíu þar sem trúairuglið kyndir eldana. Það er eitthvað bogið við mennta- kerfi þjóðar þar sem slíkar stofnanir þrífast. Þegar foreldrar hafa gefið bömum sínum nafn er nánast regla að af- henda þau kirkjunni. Þaö er kafiað skím. Þar með hefur kirkjunni bæst nytsamur sakleysingi. í bamaskóla byijar síðan heila- þvottur kirkjunnar á sakleysingjun- um sem oftast endar með fermingu. Sú athöfn er til þess að láta bamið staöfesta að það tilheyri kirkjunni. Altarisgangan er síðan þátttaka í leiknu mannsblóti þar sem drukkið er af hlautbolla og etiö af fóminni. Fermingu ætti ekki að leyfa fyrr en við kosningaaldur. Þá fyrst má ætla að von um gjafir ráði ekki ákvörðuninni. Hringið í síma 632700 milli kl. 14 og 16 -“eða skrifið ATH.: Nafnog súmanr. verður að fylgja bréfúm Tek ofan fyr- irSighvati Þórður hringdi: Ég tek ofan fyrir Sighvati Björg- vinssyni hefibrigöísráðhen-a vegna Sognmálsins. í staö þess að láta fámennan klíkuhóp beija sig niður hélt hann sínu striki. Árangurinn er nú kominn í ljós, fullbúiö meðferöarheimili fyrir geðsjúka afbrotamenn að Sogni. Þetta heimili er betra en gerist og gengur með önnur sams konar á Norðurlöndum, að því er kunn- ugir segja. Tveggjaþrepa virðisauki Helgi Sigurðsson hringdi: Enn em sfjórnarflokkamir famir að gæla við 2ja þrepa virð- isaukaskatt á vörur og þjónustu. Þeir eru aö reyna aö slá ryki í augu fólks, þannig að þaö átti sig ekki fyllilega á því sem verið er að ræða um. Aðalkjörorð ráöherranna er aö það skipti höfuðmáh í hvaða flokki einstakir vöruflokkar og þjónustuþættir lendi. En það er ekki aðalatriðiö. Aöalatriðið er að þama er verið að þenja virðis- aukaskattinn yfir á fleiri þætti en áður var. Við erum að tala um 4 prósent annars vegar og 22 pró- sent hins vegar. Kjami málsins er sá að þetta er aukin skatt- heímta - ekkert annaö. Hvíti víkingur- innáskjánum Jóna Guðmundsdóttir skrifar: Ég er ein þeirra fjölmörgu sem beið spennt eftir að sjá Hvíta vik- inginn hans Hrafns Gunnlaugs- sonar á skjánum. En raikfi urðu vonbrigði mín þegar hann loksins birtist Rennandi blóö svína og manna, misþyrmingar, rudda- Iiáttur, öskur og óhijóö eru aðals- merki þessarar myndar. Sögu- þráöurinn týnist aö mestu í öllum þessum aðgangi. Ekki dettur mér í hug að halda að víkingar fyrri tíma hafi verið eins og Lúsíustúikur á aðvent- unni. En þetta er einum of mikið af því góöa. Synd, því Hrafn getur fariö á kostum ef harrn vill það viö hafa. Fjölmiðlarog fíkniefni Ásgeir Magnússon hringdi: Mig langar að minnast á um- fjöllun fjölmiðla varðandi fikni- efhi. Þegar einhver er tekinn með fíkniefhi í fórum sínum er sagt frá þvf eins og um smádreitil af bruggi hafi verið að ræða. Hér áður var gert úr þessu mikiö mál með stórura fyrirsögnura og til- heyrandi. Þykir þetta kannski enginn sér- stakur glæpur lengur? Verða menn aö vera með fleiri kíló i fórum sínum til þess að það þyki eitthvað athugavert við það? Þessi breyttí hugsunarháttur gagnvartfikniefnum er hættuleg- ur, Fiolniiðlar eiga að taka fastar á þessum málum. heimsmælikvarda Eiín S. hringdi: Frammistaða Sigrúnar Hjálm- týsdóttur söngkonu i íslensku óperunni er fagnaöarefni. Það er gott til þess aö vita að við skulum eiga enn einn söngvarann á heirasmælikvarða. Þaö er svo aftur á móti synd aö við skulum tapa öllum okkar bestu söngvurum til útlanda af því aö þeir geta ekki lifað af list sinni hér heima. Við hljótum að geta búiö betur að þessu fólki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.