Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992.
3
Fréttir
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmis hækka útfarir um 22.500 krónur:
Utfararþjónustan niðurgreidd
um 19 milljónir í fyrra
- fá mánaðarlega 140 krónur úr vasa hvers Reykvíkings
Stjóm Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæmis ákvað nýverið að
hækka útfararþjónustu á sínum veg-
um um 22.500 krónur. Að undan-
fómu hefur stjómin verið gagnrýnd
af Verslunarráði, Verðlagsstofnun og
samkeppnisaöilum í útfararþjónustu
fyrir að greiða niður þjónustuna með
kirkjugarðsgjaldi, sem almenningur
greiðir og innheimt er af hinu opin-
bera. Að jafnaði er útfararkostnaður
nú 90 til 120 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum úr íjár-
málaráðuneytinu fá kirkjugarðamir
tæplega 140 krónur frá hveijum
Reykvíkingi á mánuði. Þar af fara
ríflega ll krónur í Kirkjugarðssjóð,
en í hann hafa Kirkjugarðamir í
Reykjavík ekki sótt fjármuni.
Alls greiða Reykvíkingar rúmar
140 milljónir á ári til kirkjugarðanna
og að auki um 12,3 milijónir í sjóð-
ínn. Auk þessa fá kirkjugarðamir
»V .i .XU
Alls greiða Reykvíkingar rúmar 140 milljónir á ári til kirkjugarðanna.
Forstjóri Kirkjugarða Reykjavikur:
Brjótum ógjarnan
lögin viljandi
„Útfararþjónustan hefur verið rek-
in á núlli og upp á síðkastið undir
því. Því höfum við gripið til þess að
niðurgreiða þjónustuna að hluta með
kirkjusjóðsgjaldinu. Sú skerðing,
sem við höfum orðið fyrir á undan-
fömum ámm, gerir hins vegar það
að verkum að gjaldið stendur ekki
undir rekstrarkostnaði kirkjugarð-
anna,“ segir Ásbjöm Björnsson, for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavíkurpróf-
astsdæmis.
Að sögn Ásbjöms er nú útlit fyrir
að kirkjugarðamir verði af umtals-
veröum tekjum þegar aðstöðugjaldið
verður fellt niður. Fái kirkjugarð-
arnir ekki niðurfelhnguna bætta
verði rekstyr þeirra í mikilh óvissu
þegar á næsta ári.
Asbjöm segir að sú ákvörðun
stjómar Kirkjugarðanna að hætta
niðurgreiðslum á útfararþjónustu
byggist fyrst og fremst á því að menn
álíti það ólöglegt að kirkjugarðs-
gjöldin séu notuð til þessa. Versnandi
fjárhagur kirkjugarðanna spih þó
einnig þar inn í.
„Við vhjum ógjaman brjóta lög
viljandi. Menn hafa viljað hta á þetta
sem einhvern glæp hjá okkur þó
þetta viðgangist um aht land. í mörg
ár hefur nýtt frumvarp um sjóðinn
verið að velkjast í kerfinu. Sam-
kvæmt því yrði heimilt að nýta gjald-
ið til útfararþjónustu. í því sambandi
ætti það sama að gilda um okkur og
samkeppnisaðilana. Við höfum ekki
nokkra tilhneigingu til að níðast á
þeim. En auðvitað hljótum við að
viðurkenna að við erum sjálfseignar-
stofnun safnaöanna í Reykjavík og
greiðum ekki skatta eins og þessi
fyrirtæki. Að því leytinu er sam-
keppnisstaðan ójöfn." -kaa
Verslunarráö íslands:
Ólögleg starfsemi
verði stöðvuð
„Samkvæmt þeim upplýsingum
sem nú liggja fyrir orkar það tæpast
tvímæhs að samkeppnisrekstur
Kirkjugarða Reykjavíkurprófast-
dæma á sviði líkkistusmíði og -sölu
og almennrar útfararþjónustu, eins
og hann hefur verið og er rekinn, á
sér ekki lagastoð."
Svo segir m.a. í bréfi Verslunarráðs
íslands til Þorsteins Pálssonar dóms-
málaráðherra. í bréfinu segir enn
fremur að það hggi fyrir að stórfehd
úthiutun fjár af skatttekjum tfl
Kirkjugarða Reykjavíkin-prófasts-
dæma tfl Kirkjubyggingasjóðs hafi
verið innt af hendi í trássi viö lögin.
Beinir Verslunarráð þeim ein-
dregnu tflmælum tfl ráðherra og
ráðuneytis hans að hlutast tfl um að
„þegar verði tekið fyrir öll undan-
brögð frá gildandi kirkjugarðslögum
og aö ólögleg starfsemi viðkomandi
aðfla verði stöðvuð."
Jafnframt að vísað verði til réttra
aðfla rannsókn á starfsemi og þ.á
m. skattalegri rannsókn á rekstri
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma utan kirkjugarðslaga undan-
farinár. -JSS
um 40 milljónir af innheimtu að-
stöðugjaldi í Reykjavík. Gera má ráð
fýrir að látinn Reykvíkingur um sjö-
tugt hafi greitt á þennan hátt á annað
hundrað þúsund krónur til kirkju-
garðanna fyrir andlátið.
Á síðasta ári voru samtals 833 út-
farir á vegum Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæmis. Samkvæmt því
fóru tæplega 19 mifljónir í niður-
greiðslu á útfararþjónustu, einkum
líkakstur til og frá kirkj u. -kaa
Panasonic
SD-BT55P
BRAUÐGERÐARVÉL
JAPIS3
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
S. 62 52 00
JÓLATILBOÐSVERÐ
26.980,-
frá 19.580,
Með nýju Panasonic brauðgerðarvélinni getur þú bakað brauð með
lítilli fyrirhöfn. Þú setur hráefnið í vélina og ákveður bökunartímann,
og á meðan þú sefur hnoðar hún og bakar brauð, þú vaknar síðan við
ilm af nýbökuðu brauði.
VERÐ ÁÐUR KR. 33.600
JÓLATILBOÐSVERÐ
NN-5252 & NN-5452
ÖRBYLGJUOFNAR
Nettir og fyrirferðalitlir 800 w. 21 lítra Panasonic örbylgjuofnar,
NN-5452 er með alsjálfvirkri affrystingu.