Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992. íþróttir Leikiðvið Frakkaínýju húsi á Blönduósi íslendingar raæta Frökkum í þrígang í handknattleik á milli jóla og nýárs. Leikimir eru liöur í undirbúningi þjóöanna fyrir heimsmeistarakeppnina í Sví- þjóð. Ákveðið hefur verið að fyrsti leikurinn verði í Laugar- dalshöllinni 27. desember, önnur viðureignin á Blönduósi 28. des- ember og þriðja og síðasta í Höll- inni 29. desember. „Það varö úr að fara með einn leikinn út á landsbyggöina og varð Blönduós fyrir valinu. Þaö ríkir mikill áhugi á Blönduósi fyrir leiknum en nýtt og glæsilegt íþróttahus var tekið í notkun þar í haust,“ sagði Gunnar Gunnars- son, framkvæmdastjóri HSÍ. -JKS Júlíusskoraði sexmörkgegn Dunkerque Július Jónasson er i hópi þeirra markahæstu í franska handbolt- anum. í 11, uraferð um helgina gerði lið hans, Paris St Germain, jafntefli við Dunkerque, 20-20, á heimavelli og skoraði Júlíus sex mörk í leiknum og hefur skoraö 48 mörk í heildina i 1. deild. „Viö klúðruöum enn einum leiknum. Vorum yíir mestallan tíma en misstum unninn leik nið- ur í jafntefli í lokin," sagði Júlíus Jónasson. Paris St. Germain er í sjöunda sæti. -JKS Valdimarskoraði en Heultjetapaði áheimavelli Kristján Beinbuxg, DV, Belgíu: Valdimar Kristófersson skoraði fyrir Heultje en markið dugði ekki til sigurs þegar Heulije tap- aði, 2-3, íyrir Borgerhout í 3. deild. Liðið er í 11. sætí með 13 stíg. Steinar Guðgeirsson, félagi Valdimars úr Fram, lék.með Heultje allan leikinn. Úlffarvalinn goKari ársins Golfsamband íslands hefur val- ið Úlfar Jónsson úr Golfklúbbn- um Keili golfraann ársins 1992. Úifar hefur sýnt stöðugar íram- farir og náðu þær hámarki í sum- ar þegar hann varð Norðurlanda- meistari einstaklinga, fyrstur ís- lendinga, og jafnframt Norður- landameistari í þjóðakeppninni ásamt félögum sínum í íslenska landsliðinu. Úlfar varð íslands- meistari í sjötta sinn og er núna meö + 3 í forgjöf sera er raeð því lægsta sem þekkist hjá áhuga- mönnum í heiminum. -JKS ÓliJötekur viðHaukum Ólafur Jóhannesson hefur ver- ið ráðinn þjálfari 3. deildar liós Hauka í knattspyrnu. Ólafur er ekki ókunnugur félaginu því hann er fæddur og uppalinn Haukamaður og hefur leikið Qöl- marga leiki með liöinu í 1. og 2. deiid. Ólafur hefur fengist viö þjálfún mörg undanfarin ár og hefur náö þar góðum árangri. Hann þjálfaöi lið Þróttar í 2. deild- inni síðasta sumar en stýrði áður FH liðinu í 1. deildinni í 4 ár þar á undan auk þess hann hefur þjálfað lið Skallagríms og Ein- herja. Þrír íslendingar í hópi þeirra bestu: Júlíus valinn í heimsliðið - í staðinn fyrir Svíann Magnus Wislander Júlíus Jónasson, landsliðsmaður í handknattleik, sem leikur með franska liðinu Paris St. Germain, hefur verið valinn í heimsliðið er mætir franska landsliðinu í París á mánudaginn kemur. Heimsliðið var valið fyrir nokkrum vikum en tveir leikmenn, Svíinn Magnus Wislander og Þjóðveijinn Jochen Fraatz, til- kynntu forföll í síðustu viku. Fyrir vikið setti alþjóða handknattleiks- sambandið sig í samband viö Júlíus fyrir helgina og spurði hvort hann væri ekki reiðubúinn að leika fyr- ir hönd heimsliðsins gegn Frökk- um. Júlíus tekur því sæti Wislander en Egyptinn E1 Attal var valinn í staö Fraatz. Þá eiga þrír islenskir hand- knattleiksmenn sæti í heimsliðinu gegn Frökkum á mánudaginn kemur en áður höfðu þeir Geir Sveinsson og Valdimar Grímsson verið valdir. Valið á þessum þremenningum und- irstrikar enn frekar stöðu íslensks handbolta og er mikill heiður fyrir íþióltina. Leik þessum var komiö á fót fyrir tilstilli frönsku sjónvarpsstöðvarinn- ar Canal Plus en allur ágóði af leikn- um rennur til styrktar baráttunni gegn alnæmi í Frakklandi. Mikill áhugi er fyrir leiknum og er þegar orðið uppselt en sjónvarpsstöðin mun ennfremur sýna hann beint um Frakkland. „Mikill heiðurfyrir íslenskan handbolta" „Það er óneitanlega mikill heiður fyrir mig og íslenskan handbolta að vera valinn í heimsliðið. Þetta val kom mér mjög á óvart enda búið að velja liðiö fyrir nokkru. Það verður gaman að hitta gömlu félagana úr Val, þá Geir Sveinsson og Valdimar Grímsson. Ég átti svo sannarlega ekki von á því að hitta þá á þessum vettvangi," sagði Júlíus Jónasson í samtali við DV í gær. Heimsliðið verður því skipað eftir- töldum leikmönnum: Markverðir: Mats Olson................Svíþjóð Andrei Lavrov...........Rússlandi Lorenzo Rico................Spáni Hornamenn: Valeri Gopin............Rússlandi PierreThorson.............Svíþjóð Valdimar Grímsson.........íslandi E1 Attal..............Egyptalandi Línumenn: Per Carlén................Svíþjóð GeirSveinsson.............íslandi Leikstjórnendur: Talant Douitsjebaev.....Rússlandi Júlíus Jónasson...........íslandi Skyttur: Frédéric Volle.........Frakklandi Mikhail Jakimovitsj.....Rússlandi Jae-Won Kang..............S-Kóreu Robert Licu...............Rúmeníu Þjálfari heimsliðsins verður Bengt Johannsson, þjálfari heimsmeistara Svíaíhandknattleik. -JKS Júlíus Jónasson í leik með Paris St. Germ félögunum úr Val, Geir Sveinssyni og Vald Jóna Gisladóttir, starfsmaður DV, er hér með verðlaunin glæsilegu í kjöri iþróttamanns ársins 1992, sjónvarpið, bókina og AKAI kassettutækið, sem einnig hefur að geyma útvarp og geislaspilara. DV-mynd Brynjar Gauti íþróttamaður ársins 1992 Nafn íþróttamanns: íþróttagrein: Nafn: Sími: Heimilisfang:. Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11 - 105 Reykjavík. Lesendur DV velja íþróttamann ársins 1992: Glæsileg verðlaun til heppins lesanda -frestur til hádegis 30. desember Lesendum DV gefst næstu daga tæki- færi til að kjósa íþróttamann ársins 1992. í blaðinu í dag birtist fyrsti atkvæðaseðill- inn og er lesendur hafa gert upp hug sinn á að senda seðlana til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Glæsileg verðlaun verða í boði að vanda og til mikils að vinna. Frestur til að skila atkvæðaseðlunum rennur út kl. 12 á hádegi þann 30. desemb- er. Þá verða atkvæði talin og nafn eins heppins lesanda verður dregið út. Hinn heppni fær í verðlaun glæsilegt hljóm- flutningstæki frá AKAI. Hér er um aö ræða kassettutæki af fullkominni gerð, einnig útvarp og í tækinu er geislaspilari að auki. Hljómco, Fákafeni 11, gefur þessi glæsilegu verðlaun en tæki sem þetta kost- ar um 20 þúsund krónur. íþróttamaður ársins fær tvenn verðlaun: Glæsilegt rit, Sögu Ungmennafélags : lands 1909-1990 eftir þá Viðar Hreinssc Jón Torfason og Höskuld Þráinsson. Bc in er einkar fróðieg og samtals 540 blaðsí ur meö mörgum myndum. Að auki f; íþróttamaður ársins að mati lesenda I ferðasjónvarp sem komið getur sér vel \ hinar ýmsu aðstæður, til dæmis í ferðalc um, bílnum og víða annars staðar. Frestur til að skila inn atkvæðaseðlu er til kl. 12 á hádegi miðvikudaginn ; desember. í DV mánudaginn 4. janú verður síöan^reint frá úrslitum í kjörii í máli og myndum. Fyrsti atkvæðaseði inn birtist í blaðinu í dag og mun seð birtast á íþróttasíðum DV fram að loku kjörsins og sá síðasti þriðjudaginn 29. de ember. -SK/-JKS/-VS/C 1. deild kvenna 1 handknattléik: Vesna er markahæsf - Armann vann Hauka í síðasta leik 10. umferðar Vesna Tomajek, júgóslavneska stúlkan sem leikur með Armanni, skoraði 7 mörk í gærkvöldi þegar Ármann vann Hauka örugglega- í l. deild kvenna, 18-14. Hún er nú markahæst í deildinni. Mörk Ármanns: Vesna Tomajek 7, María Ingimundardóttir 4, Margrét Hafsteins- dóttir 4, Ásta Stefánsdóttir 2 og Elísabet Albertsdóttir 1. Mörk Hauka: Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Harpa Melsted 4, Kristín Konráösdóttir 2 og Heiðrún Karlsdóttir 2. Staðan í 1. deild kvenna Víkingur............10 9 1 0 198-144 19 Stjarnan............10 8 0 2 211-147 16 Valur...............10 8 0 2 232-191 16 Selfoss.............10 6 0 4 192-188 12 Fram................10 6 0 4 174-177 12 ÍBV.................10 5 0 5 192-189 10 Grótta..............10 4 2 4 187-189 10 KR..................10 4 0 6 169-178 Ármann..............10 3 0 7 196-205 FH..................10 3 0 7 169-208 Fylkir...............10 1 1 8 158-220 Haukar...............10 1 0 9 161-203 Markahæstar Vesna Tomajek, Ármanni..............77/ Laufey Sigvaldadóttir, Gróttu.......67/ Hanna Katrín Friðnksen, Val.........62/ Andrea Atladóttir, ÍBV..............61/ Judith Ezstergal, ÍBV...............58/ Halla M. Helgadóttlr, Víkingi.......54/ Hulda Bjamadóttir, Selfossi.........52/ Una Steinsdóttir, Stjörnunni........51/ SigríðurPálsdóttir, KR..............47/ Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi......47/ Sigrún Másdóttir, Stjömunni.........46/ AuðurÁ. Hermannsdóttir, Selfossi....46/ írena Skorborgatyhk, Val............45/ -HS/S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.