Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992.
5
>
)
)
DV
Smáveirusótt í hundum:
Grunur um fjölda
smitaðra hunda
- tveir hundar í hundageymslu hafa þegar drepist
Upp er komin smáveirusótt í hund-
um sem þegar hefur dregið að
minnsta kosti tvo hunda til dauða.
Að sögn Brynjólfs Sandholt yfirdýra-
læknis er ekki vitað hversu útbreidd-
ur sjúkdómurinn er en allt bendir til
að hann sé eingöngu bundinn við
höfuðborgarsvæðið og Suðurnes.
„Við höfum fengið tvö tilfelh til
krufningar og báðir þeir hundar
voru í hundageymslu og veiktust
með viku miliibili. Hundarnir þar
eru í einangrun og við eigum von á
að geta hindrað frekari útbreiðslu
þaðan. Við höfum einnig fengið upp-
lýsingar um einkenni hjá hundum
af höfuðborgarsvæðinu, Ketlavík og
Suðurnesjunum sem geta bent til
þessa sjúkdóms, án þess að viö getum
staðfest að um sambærilega veiki sé
aö ræöa,“ segir Brynjólfur.
Ekki er vitað hvernig veikin barst
til landsins. „Þessi sjúkdómur getur
hafa borist með bólusettum hundum
sem eru smitberar, með skófatnaði
ferðamanna eða hundum sem smygl-
að er til landsins. Það er allt til í
dæminu og ekki hægt að segja mikið
um það,“ segir Brynjólfur.
Hann segir að útbreiðsla sjúkdóms-
ins sé undir hundaeigendum sjálfum
komin. Hundaeigendur ættu að
halda hundunum sem mest heima,
forðast þá staði þarsem mikið er um
hunda og þrífa upp saur sem er að-
alsmitleiðin.
„Þetta er smitsjúkdómur sem getur
farið hratt um. Ef hundaeigendur
halda hundum sínum í einangrun þá
er von til þess aö útbreiðslan verði
hæg. Síðan ættum við að geta stöðvað
þetta á næstu 1-2 mánuðum með
bólusetningum," segir Brynjólfur.
Að sögn Katrínar Harðardóttur,
dýralæknis á Dýraspítalanum, hefur
síminn verið rauðglóandi síðan frétt-
ist af smáveirusóttinni, Hundaeig-
endur eru mjög áhyggjufullir og
spyija mikið um veikina. Sjúkdóm-
urinn lýsir sér fyrst og fremst í því
að hundurinn verður mjög slappur
og algjörlega lystarlaus. Hann fær
skyndileg uppköst og niðurgang og
mjög oft fylgir blóð með.
Kostnaðurvegna
Pálsminni
ensagtvar
Það var ranghermt í DV í gær að
Páll Pétursson, alþingismaður og
eiginmaður Sigrúnar Magnúsdóttur
borgarfuiltrúa Framsóknarflokks-
ins, hefði kostað borgarsjóð rúm 62
þúsund krónur það sem af er þessu
kjörtímabili vegna ferðalaga sem
hann hefur farið með eiginkonu
sinni á reikning borgarinnar. Hið
rétta er að borgarsjóður hefur greitt
33.600 krónur vegna ferða Páls en
hann fór með í opinbera heimsókn
til Færeyja sumarið 1991. í þá ferð
fóru sex borgarfulltrúar og embætt-
ismenn og allir með maka.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi og eiginkona Páls, segir að
borgarendurskoðandi hafi leiðrétt
uppgefinn kostnað vegna Páls en
misskilningur hafi komið upp vegna
ferðar til Akureyrar þar sem haldið
var þing Samband íslenskra raf-
veitna en Páll og Sigrún sóttu bæði
þingið, hún sem fulltrúi í stjórn
Veitustofnana Reykjavíkur og hann
sem stjórnarmaöur í Landsvirkjun.
Borgin greiddi fyrir Sigrúnu og
LandsvirkjunfyrirPál. -sme
„Þetta er mjög smitandi og er sér-
staklega hættulegt fyrir hvolpa.
Þessi sjúkdómur hefur ekki áður
fundist í landinu og því má reikna
með að mótstaða hundanna sé nán-
ast engin. Við ráðleggjum fólki fyrst
og fremst að koma með hundana í
bólusetningu en við eigum von á
bóluefni núna í vikunni. Það eru
bara hundar sem veikjast af þessari
veiru en hún er mjög skyld kattafárs-
veirunni," segir Katrín. -ból
Fréttir
Kona slasaðist:
Ókábrúar-
stólpaáHamra-
borgarbrú
Kona var flutt með sjúkrabíl á
slysadeild eftir að hafa misst
stjórn á bíl sínum á Hafnarfjarð-
arvegi og lent á brúarstöpli undir
svokallaðri Hamraborgarbrú í
Kópavogi á laugardagsmorgun.
Meiðsl konunnar voru ekki tal-
in mjög alvarleg. Áður en komið
er að brúnni er aflíðandi beygja
og var talsvert hált á veginum.
Þessir þættir eru taldir orsök
slyssins, að sögn lögreglunnar í
Kópavogi Þrjú banaslys hafa
orðið á Hafnarfjarðarvegi í Kópa-
vogi það sem af er þessu ári.
-ÓTT
SEX JOLAPAKKATILBOÐ
Á AMBRA TÖLVUM
T
Fjölskyldupakki
AMBRA 386SX 25 MHz
4 MB, 85 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
9 nála prentari
Jólapakkatilboð
Venjulegt verð:116.699.
Fjölskyldupakki
AMBRA 386SX 25 MHz
4 MB, 85 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
Litaprentari
Jólapakkatilboð
rnsno
Venjulegt verð:126.699.
Fjölskyldupakki
AMBRA 386SX 25 MHz
4 MB, 85 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
Litaprentari
Hljóðkort, tölvuleikir
Jólapakkatilboð
msM
Venjulegt verð: 144.699.
Nú færðu jólagjöf heimilisins í Nýherja.
Jólagjöf sem öll fjölskyldan hefur gagn
og gaman af, ekki síst unga fólkið sem
býr sig undir framtíðina. Leggðu leið
þína í Nýherja nú fyrir jólin og nýttu
þér einstakt JÓLAPAKKATILBOÐ á
AMBRA tölvum, prenturum o.fl.
Ef þú kaupir eitthvað á JÓLAPAKKA-
TILBOÐINU máttu velja þér jólapakka
undir Nýherjatrénu. Taktu alla
fjölskylduna með þér. Nýherji er í
Skaftahlíð 24, á milli Laugavegs og
Kringlunnar.
AMBRA 386 tölvurnar eru til afgreiöslu strax.
AMBRA 486 tölvurnar eru til afgreiðslu 18. desember.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 • SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
Fjölskyldupakki
AMBRA 486SX 25 MHz
4 MB, 107 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
9 nála prentari
Jólapakkati Iboð
142.900
Venjulegt verð:156.699.
Fjölskyldupakki
AMBRA 486SX 25 MHz
4 MB, 107 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
Litaprentari
Jólapakkatilboð
140.900
Venjulegt verð:166.699.
Fjölskyldupakki
AMBRA 486SX 25 MHz
4 MB, 107 MB
DOS 5.0, Windows 3.1
Litaprentari
Hljóðkort, tölvuleikir
Jólapakkatilboð
maoG
84.699.
œœ
Venjulegt verð:184.699.
CD
»
Raðgreiðslur
KAUPLEIGU-
SAMNINGAR