Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992. óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SiMI (91)63 27 00 SiMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Áfram án Sviss Slæmt er, aö Svisslendingar skuli hafa hafnaö aðild aö Evrópska efnahagssvæðinu, EES. En þaö breytir engu um þá stööu, aö hagsmunir okkar eru aö halda ótrauð áfram í átt til aðildar aö EES. Naumur meirihluti kjósenda í Sviss, 50,3 prósent, greiddi atkvæði gegn aðild aö EES. Jafnframt var samn- ingurinn felldur í 16 kantónum landsins af 23. Hvort tveggja heföi þurft að koma til, að meirihluti þjóðarinn- ar og einnig meirihluti kantónanna heföi samþykkt samninginn. Hin aldagamla einangrunarstefna Sviss- lendinga réö úrshtum. Þeir reynast ekki reiöubúnir til að taka svo virkan þátt í samstarfi þjóða. Þeir hafa jafn- an viljað standa utan við fjölþjóðastofnanir, eins og til dæmis Sameinuðu þjóðimar. Þýzkumælandi Svisslend- ingar era um þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar. Það voru þeir, sem felldu samninginn, meðan frönskumælandi Svisslendingar samþykktu hann. Hinir þýzkumælandi Svisslendingar hafa verið íhaldssamari, og þeir hafa ríghaldið í gamla tímann. Þessi niðurstaða mun vafa- laust reynast svissnesku þjóðinni dýr. Svisslendingar eiga um þessar mundir við nokkra efnahagsörðugleika að etja. Atvinnuleysi er um Qögur prósent. í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu kemur án efa fram ótti við aðkomumenn, sem kynnu að taka vinnu frá landsmönmnn, ef yrði af EES. Ástandið í Þýzkalandi bætir ekki úr. í Þýzkalandi er upplausn eins og kunn- ugt er vegna deilna um aðkomumenn. Svisslendingar vilja standa sem lengst frá þeim vanda. Því hafa þeir kosið að vera utan við Evrópska efnahagssvæðið. En hætt er við, að vegur Sviss sem miðstöðvar viðskipta- lífs verði ekki hinn sami og áður eftir þessa atkvæða- greiðslu. Óhætt mun að spá því, að ríki eins og til dæm- is Lúxemborg muni brátt hirða talsvert af þeim ávinn- ingi, sem Sviss hefur haft á því sviði. Hver eiga að verða viðbrögð okkar, íslendinga? Andstæðingar Evrópska efnahagssvæðisins segja, að niðurstaða þjóðaratkvæðisins í Sviss gjörbreyti málinu. Ekki sé ástæða til að staðfesta samning, sem sé „út úr heiminum“. Alþingismenn eigi að snúa sér að öðrum verkefnum. Fjarri lagi sé að taka í lög hér á landi samn- ing, sem fyrir hggi, að verði ekki í þeirri mynd, sem rætt er um. Sumir segja, að nú þurfi að gera alveg nýj- an samning um EES. Þó breytist EES-samningurinn í raun ekkert í efnis- atriðum, að öðra en því að Sviss dettur út og hugsan- lega kemur upp spuming um, hvað verði um hlut, sem Sviss átti að greiða í Þróunarsjóð EB. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra lýsti í DV í gær, að í grein 129 í EES-samningnum og bókun við þá grein segi, hvemig bregðast skuh við, ef eitthvert eitt ríki staðfesti samninginn ekki. Þar segir, að hin ríkin muni þá koma saman á svokahaða ríkjaráðstefnu til að meta, hvaða tæknilegar breytingar þurfi að gera og möguleikana á því að semja um þær breytingar í viðauka. Síðan verði hvert land út af fyrir sig að ráða, hvernig það fer með staðfestingu á þeim viðauka, það er hvort máhð fer aft- ur fyrir þing, að sögn utanríkisráðherra. Sú er skoðun utanríkisráðherra, að Alþingi verði að hafa lokið fuh- gildingu EES-samningsins fyrir áramót, th þess að við eigum áfram aðild að málinu. Hagsmunir íslands era, að ekki verði slakað á heldur unnið áfram að aðild að EES með öllum nauðsynlegum hraða. Haukur Helgason höfundur m.a. Fríverslun við alla nema Evrópuríki? Eitt sinn henti þaö að ég fékk heimsókn af prúðbúnum mönnum sem sögðust vera í tilteknum trúar- söfnuði og vildu endilega ræða við mig. Þó ég sé yfirleitt fremur tregur til ákvað ég að slá til í þetta sinn því ég var dálítið forvitinn. Þetta hefði ég átt að láta ógert því þessir sendiherrar almættisins voru óstöðvandi í sínum málflutn- ingi. Boðskapurinn varð æ ótrú- legri eftir því sem á leið en þó tók fyrst steininn úr þegar sendimenn hótuðu því að ef ég ekki samþykkti allt sem þeir segðu og gengi í þeirra raðir biðu mín óskemmtileg örlög að lokinni þessari jarðvist. Þessi heimsókn rifjaöist upp fyrir mér þegar mér varö ljóst aö nú er ég aftur kominn í svipaða aðstöðu og farinn að skrifast á við dr. Hann- es Jónsson fv. sendiherra. Hann hoðar hörmungar fyrir iðnaöinn og þjóðina í heild ef ekki verði hætt við EES aðild. Semjum við alla nema gömlu nýlenduveldin! í fyrri grein sinni talar Hannes um brostnar vonir manna um auk- inn útflutning iðnaðarvara við inn- gönguna í EFTA og samningana við EB. Hann segir þessa samninga ekki hafa leitt til annars en minnk- andi markaðshlutdeildar íslensks iðnaðar. Ég reyni að malda í móinn og halda því fram að örðugt sé að byggja upp iðnað á áratugum óða- verðbólgu, gjaldeyris- og verðlags- hafta, lánsíjárskorts, vitlausra skattalaga og örgustu óstjómar í efnahagsmálum. Ég vil ekki kenna fríverslun um okkar heimatilbúnu vitleysu. Ekki stendur á svari frá Hannesi. Nú segir hann það misskilning minn að hann sé á móti fríverslun og EFTA, þvert á móti: „Fyrir okk- ur íslendinga er hagkvæmara að KjaUarinn Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda beita okkur fyrir ómengaðri frí- verslun í hnattrænu samhengi með 108 ríkjum GATT, án takmarkaðs fullveldisafsals, heldur en að ein- angra okkur innan tollmúrs með 18 gömlum nýlenduveldum Evrópu í EES.“ Heimatilbúnir tollmúrar Enn verð ég að gera athugasemd- ir. Ég fæ ekki séð hvemig EES er um að kenna ef við erum að ein- angra okkur innan tollmúra þegar við ráðum sjálf hvaða tolla við höf- um gagnvart löndum utan EES svo sem Bandaríkjunum og Japan. Ég fæ heldur ekki séð hvemig er hægt að vera á móti EES samn- ingnum sem ætlað er að ryðja í burtu flestum hindrunum í við- skiptum og samskiptum okkar við okkar helstu viðskiptalönd í Evr- ópu, en hvetja til þess að í staðinn verði gerðir samningar um frí- verslun við Bandaríkin, Kanada, Mexíkó, Japan, Rússland auk Asíu- og Afríkulanda. Ætla mætti að all- ur heimurinn bíði í ofvæni eftir að gera við okkur samninga um frí- verslun. Hnattrænt samhengi Því miður held ég að andstæðing- ar EES-samningsins geri sér of há- ar hugmyndir um möguleika okkar til að gera fríverslunarsamninga við hinar og þessar þjóðir. Það er ekki auðvelt að sjá hvemig við ís- lendingar, einangraðir frá okkar nágranna- og viðskiptalöndum (gömlu nýlenduveldum Evrópu), ætlum okkur að takast á við það verkefni að koma á „ómengaöri frí- verslun í hnattrænu samhengi". Þegar umræðan er komin á þetta stig fer nú heldur að fara um mig líkt og forðum þegar sendiherrar almættisins litu inn hjá mér og fóru að útskýra fyrir mér sití hnattræna samhengi. Sveinn Hannesson „Því miður held ég að andstæðingar EES-samningsins geri sér of háar hug- myndir um möguleika okkar til að gera fnverslunarsamninga við hinar og þessar þjóðir.“ Skodanir aimarra Vakning gegn verðhækkunum „í kjölfar þjóðarsáttarsamninganna í febrúar 1990 má segja að vakning hafi orðið meöal þjóðarinnar um að koma í veg fyrir verðhækkanir. Þeir sem hækkuðu verð á vöru og þjónustu fundu fyrir þunga almenningsálitsins. Það skapaðist raimveruleg trú á að hægt væri að ná verðbólgunni niður. Nú er hætta á að við missum þessa trú. Hver einasta frétt um verðhækkun grefur undan þeirri trú. Þess vegna eiga stjómvöld ekki að samþykkja beiðni Landsvirkj- unar um hækkun á gjaldskrá umyrðalaust, heldur á að fara fram á rækilega athugun á því hvort kost- ur er á frekari spamaði eða annars konar hagræð- ingu í rekstri fyrirtækisins." Úr forystugrein Mbl. 5. des. Veiðigjaldið er kjánaskapur „Fiskiþing gekk svo langt, að samþykkja að togar- ar skyldu fá að veiða upp að 6 mílna grunnhnu fyrir Vestfjörðum. Þetta er helstefna, sem enga framtíð leyfir fyrir byggðir landsins. Það era blindir menn, sem ekid sjá þetta... Útiloka ætti strax alla veiði tog- skipa innan 200 milna lögsögunnar, nema þeirra, sem leggja upp til vinnslu í landi, þau fengju heimildir til að veiða upp að 50 mílna grunnlínunni um takmark- aðan aðlögimartíma, t.d. 5 ár, og þá aðeins í afmörk- uðu hólfi viðkomandi vinnslustöðvar í landi. Ef menn ætla að lifa áfram á fiskveiðum í þessu landi, þá verður að velja síðari kostinn. Hinn kostur- inn er ekki dl. Veiöigjaldið er hara kjánaskapur, sem aldrei getur komið til framkvæmda." önundur Ásgeirsson, fyrrv. forstj. Olís. - í Mbl. 5. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.