Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992.
25
íþróttir
Sportkom
iain i Frakklandi. Hann leikur með gömlu
imar Grímssyni, í heimsliðinu.
DV-mynd GS
ís-
>n,
ik-
ið-
Er
)V
dð
'g-
im
)0.
ar
iu
11-
111
,m
!S-
tH
í bílslysi
Tveir leikmenn úr þýska hand-
boitaliðinu Wallau Massenheim,
sem mætir FH-ingum í Evrópu-
keppni meistaraliða í janúar,
lentu í bílslysi þegar þeir voru á
leið til fundar fyrir leik liðsins
gegn Hameln um helgina. Bifreið
þeirra fór þrjár veltur og hafnaði
utan vegar.
Annarleikmannanna, sem leik-
ur í stöðu vinstri homamanns,
fékk heilahristing og liggur á
sjúkrahusi og hinn, sem er einn
besti varnarmaöur liösíns, fékk
slæman hnykk á hálsinn og geng-
ur með hálskraga. FH og Wallau
eiga að leika fyrri leikinn ytra 10.
janúar og það er ekki víst að þess-
ir tveir leikmenn verði búnir að
ná sér af meiðslunum fyrir þann
tíma.
-GH
Beardsleysáum
Everton vann mjög mikilvægan
sigur á erkiíjendunum í Liverpo-
ol, 2-1, á Goodison Park í gær-
kvöldi í ensku úrvalsdeildinni í
knattspymu.
Everton veitti ekki af sigrinum,
liðið var í þriðja neðsta sætinu
fyrir leikinn en vippaði sér upp
um tvö sæti. Fyrri hálfleikur var
markalaus en á 62. mínútu náði
Mark Wright forystunni fyrir Li-
verpool. Mínútu síðar jafnaöi Mo
Johnston fyrir Everton. Það var
svo Peter Beardsley sem skoraði
sigurmark Everton sex mínútum
fyrir leikslok en hann lék með
Liverpool áður en hann gekk til
liðs við Everton.
-SK
Þríríkvöld
Þrir leikir fara fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í kvöld.
Grindavík og Skallagrímur mæt-
ast í Grindavík, Valur og KR á
Hliðarenda og Tindastóll og
Haukar á Sauðárkróki. AUir leik-
imir hefjast klukkan 20.
Tim Harvey rekinn frá Snæfelli í gær:
Evrópu-
meistarií
Hólminn
- Daimon Lopez með um næstu helgi
Tim Harvey, bandaríski körfu-
knattleiksmaðurinn sem leikið
hefur með úrvalsdeildarliði Snæ-
fells frá Stykkishólmi í vetur og
fyrravetur, var í gær rekinn frá
félaginu. Við stöðu hans tekur
gífurlega sterkur júgóslavneskur
leikmaður, Daimon Lopez að
nafni, og kemur hann til Stykkis-
hólms á morgun og verður orðinn
löglegur með Snæfellingum er
þeir mæta Val í bikarkeppninni í
Hólminum um næstu helgi.
Ríkharður Hrafnkelsson hjá
Snæfelli sagði í samtali við DV í
gærkvöldi að nokkur óánægja
hefði verið með leik Tim Harvey
í vetur: „Hann virkaði oft áhuga-
laus og leikur hans allur var mjög
köflóttur. Hann átti ágætisleiki
inn á milli en svo týndist hann
algerlega," sagi Ríkharður í gær-
kvöldi.
Lopez er 24 ára gamall og lék í
fyrra með hinu heimsþekkta fé-
lagi Júgóplastika og var leikmað-
ur með félaginu er það varð Evr-
ópumeistari. Hann er 2,05 metrar
á hæð og er mjög sterkur varnar-
leikmaður sem hirðir jafnan mik-
ið af fráköstum. Lopez reyndi fyr-
ir sér með NBA-liði fyrir nýhafið
keppnistímabil en komst ekki að.
Eftirþað lá.leið hans í CBA-deild-
ina. A dögunum fékk hann tilboð
um að koma á ný til Júgóplastika
en hann afþakkaði boöið vegna
ástandsins heima fyrir.
-SK/-KS Stykkishólmi
Héðinn skoraði 14
- þegar Diisseldorf sigraði Schutterwald, 24-21
Héðinn Gilsson átti stórleik með
liði sínu Turu Dússeldorf í þýsku
úrvalsdeildinni í handknattleik á
sunnudaginn. Héðinn skoraði 14
mörk, þar af 5 úr vítaköstum, þegar
Dússeldorf lagði Schutterwald að
velli, 24-21, þrátt fyrir að hafa verið
tekinn úr umferð kafla úr leiknum.
Héöinn hefur átt mjög gott tímabil í
vetur, er í hópi markahæstu manna,
hefur skorað 83 mörk í 13 leikjum
liðsins.
„Þetta gekk loksins upp hjá okkur
eftir frekar dapurt gengi að undan-
förnu og vonandi er þetta vísirinn
að einhverju betra. Mér gekk allt í
haginn í þessum leik. Ég hef æft vel
og er í góðu formi og er að spila mitt
besta tímabil í Þýskalandi," sagði
Héðinn í samtali við DV í gær.
Með þessum sigri hoppaði Dússel-
dorf upp um tvö sæti og er í 14. sæti
með 9 stig. Sigurður Bjarnason og
félagar hans í Grosswallstadt áttu fri
um helgina en leika á miðvikudag.
Essen tapaði
en Wallau vann
Essen, andstæöingur Vals í Evrópu-
keppni meistaraliöa, tapaði fyrir Kiel
á útivelli, 30-27, en heldur toppsæt-
inu. Gamla kempan Jochen Fraatz
skoraði 11 mörk fyrir Essen og Alex-
ander Tuchkin, sem farinn er að
leika að nýju eftir meiðsli, var með
8 mörk.
Wallau Massenheim, sem leikur
gegn FH í Evrópukeppni meistara-
liða, sigraði Hameln á útivelli, 21-24.
Stephan Schöne skoraði 6 mörk fyrir
Wallau og frnnski landsliðsmaðurinn
Mikael Kállmann gerði 5 mörk.
Essen er í efsta sæti með 20 stig
eftir 14 leiki en Wallau Massenheim
ermeðl9stigeneftirl21eiki. -GH
Blikar steinlágu
- en Njarövíkmgar mega hugsa sinn gang
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta hrundi allt hjá okkur í síð-
ari hálfleik en við notum jólafríið til
að snúa hlutunum við og byrjum upp
á nýtt,“ sagði Pétur Guðmundsson,
leikmaður Breiðabliks, við DV eftir
að lið hans hafði steinlegið fyrir
Njarðvík í úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi, 114-85, eftir 56-43 í hálfleik.
Leikurinn var hreint ömurlegur á
að horfa og það hefði verið sann-
gjarnt að endurgreiða áhorfendum
miðaverðið.
Ef Njarðvíkingar ætla að leika
svona gegn Keflvíkingum á flmmtu-
daginn munu Keflvíkingar valta yfir
þá frá byijun. Einstaklingsframtak
og skotkeppni milli leikmanna ræður
ríkjum hjá Njarðvík en hðsheildin
er ekki til staðar. Leikmennirnir
þurfa að fara að hugsa sinn gang,
þeir hafa getuna en sýna hana ekki
í dag. Atli Árnason var bestur Njarð-
víkinga.
Hjá Breiðabliki var Pétur yfir-
burðamaður en aðrir sem eitthvað
geta sáust ekki í leiknum og virðist
ekki á þá að treysta.
4-0, 13-4, 18-13, 24-13, 34-25,
43-30, 49-34, 49-43 (56-43), 60-43,
67-47, 78-55, 99-68, 106-76, 114-85.
Stig UMFN: Teitur 22, Robinson
22, Atli 16, Rúnar 14, Jóhannes 14,
Gunnar 12, Sturla 6, Brynjar 4, ís-
ak 2, Ástþór 2.
Stig UBK: Pétur 23, Brynjar 14,
Eiríkur 13, Hjörtur 12, Grissom 7,
Starri 5, ívar 4, Hjörleifur 3, Kristj-
án 2, Björn S. 2.
3ja stiga körfur: UMFN 12, UBK
Villur: UMFN 16, UBK 21.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Einar Þór Skarphéðinsson, sæmi-
Ahorfendun Um 100.
Maður leiksins: Atli Árnason,
UMFN.
Ragnar líklega kyrr
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Ragnar Margeirsson, landsliðs-
maður í knattspymu, leikur að
öllum líkindum áfram með KR-
ingum í 1. deildinni næsta sumar.
Til stóð að hann sneri heim til
Keflvíkinga, sem unnu sér sæti í
1. deild, en samkvæmt heimildum
DV eru nú hverfandi líkur á að
af því verði. Það heföi oröið slæmt
fyrir KR-inga að missa Ragnar
sem lék n\jög vel með þeim síð-
asta sumar og endurheimti sæti
sitt í landsliðinu í haust.
á völlinn
Liðliolungar-
víkurogÍA
léku tvo leiki i
l.deildinnii
körfuknattloik
íBolungarvík
fyrirskömmu.
l'aöerckkifrá-
sögumfærandi
noma fyrir það
atviksem henti
isíðarileikn-
um. Körfu-
spjaldiðbrotn-
aði í spað þegar 11 mínútur voru til
leikslokaþegar Bandaríkjamaðurinn
í liði ÍA, Terrence Acox, tróð með til-
þrifúm. Hinn röggsami dómari og
formaður dómaranefndar KKÍ, Leif-
ur Garðarsson, sem dæmdi leikínn,
varekkiiengiaðákveða hvað gera
skyldi. Hann lét liðin klára leikrnn
með því aö spila þvertá völlinn, kall-
aði tíl leikmanna beggja liða og sagði:
„Það er bannað að troða.“
Felumót í
Kópavoginum
Islandsmótiðí
rilftlskotiimi
fórframíbyri-
un nóvember.
Mótiðvaraug-
lýstmeðaðeins
11 dagafyrir-
varaentmörg
árhafaíslands-
mót veriðaug-.
lýstmeð
minnst 2 mán-
aðafyrirvara
ogcrskyltað .
gera það samkvæmt mótareglum ÍSÍ.
Hins vegar vissi Skotfélag Kópavogs
af þessu móti, enda mótshaldari, en
lét ekki spyijast út til nærri allra
fyrr en of seint Einn af bestu skot-
mönnum landsins, Carl J, Eiríksson,
var i hópi þeirra sem fengu að vita
um mótið með 11 daga fyrirvara og
tókþarafleiðandiekkiþáttvegna
æfmgarleysis. Carl keppti fyrir ís-
lands hönd á ólympíuieiktmum i
Barcelona. Harrn náði sér ekki á strik
en samt heíði stigatala hans þar nægt
til sigurs á íslandsmótinu.
Stutt í báða enda
beina útsendingin
Húnvarstuttí
báðaenda
beina útsend-
inginístón-
varpinuáiaug-
ardaginn frá
leikKeflavíkur
ogllaukaí
toppsiagúr- : v
valsdeildarinn-
aríkörfuknatt-
leik. Aðbeiðni
íþróttadeúdar
sjónvarpsvar
Jeikurinn feröur fram til laugardags
klttkkan 16.30 en hann átti að fara
fram á sunndagsk völdið. Eftir beina
útsendingu frá ensku knattspym-
unni fengu sjónvarpsáhorfendur að-
eins að sjá síðustu 7 mínúturnar í
fyrri hálfleik. Menn sættu sig svo við
þaö en þegar leikurinn stóö sem hæst
í síðari hálfleik var útsendingin rofln
til að koma að barnaefni. Þetta barna-
efni var síðan endurtekið tveimur
tímum siðar. Hefði nú ekki verið nær
að hafa leikinn á upphaflegum tíma
ogsýna hann á sunnudagskvöldið
þegar dagskráin er ekki upp á marga
fiska?
Náði ekki að lyfta
byrjunarhæðinni
Mönnumvcfst
ofttungaum
tönn, iþrótta-
fréttamönnum
semogoöriun
góðummónn-
um. Hér er eitt
(fj'ini. Á dög-
lumm varkoll-
greinnfra
kraftlyfringa-
mótfsemhald-
iðvarerlendis.
i Hann sagði orðrétt: „ Jón féll úr
keppniþar sem hann náði ekki að
lyfta byrjunarhæðiimi."
Umsjón: Guómundur Hilmarsson