Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993.
3
Fréttir
SH verktakar:
Leggja fram
beiðni um
greiðslustöðvun
- mikiö rætt um sameiningu byggingarverktaka
Á fundi stjómar SH verktaka hf.
’sl. sunnudag var ákveöiö aö hefja
endurskipulagningu á starfsemi og
fjármálum félagsins og jafnframt
hefur verið lögð fram beiðni um
greiðslustöðvun.
Sljóm félagsins hefur ákveðið að
meirihluti eigenda selji hlutabréf sín
nýjum aðilum er tryggi nýtt rekstr-
aifé að fjárhæð 30 milljónir króna.
Stærsti hlutinn verður í eigu Silfur-
þings hf. sem er eignarhaldsfélag
Péturs H. Blöndal. Pétur átti fyrir
hlut í félaginu. Nýtt rekstrarfé verð-
ur notað til reksturs verkefna á
greiðslustöðvunartímabihnu. Jafn-
framt á að nota tímann til að afla nýs
hlutafjár, samhliða samningum við
lánardrottna félagsins eftir því sem
segir í fréttatilkynningu frá stjóm
félagsins.
Samkvæmt heimildum DV keypti
Pétur sinn hlut á lægra gengi en Jó-
hann Bergþórsson, forstjóri Hag-
virkis, bauð fyrir helgina. Jóhann
bauð 6 milljónir í allt hlutaféð, það
samsvarar genginu 0,1.
Mikið er rætt um sameiningu verk-
taka á byggingarmarkaðnum um
þessar mundir. Taiið er að allt að
fjórðungssamdráttur hafi verið hjá
verktökum í fyrra. Viðræður em þó
hvergi komnar langt á veg. Hagvirki
og Byggðaverk hafa átt viðræður og
ekki alls útilokað að SH geti kpmið
þar inn. Nánast er útilokað að ístak
og Hagvirki sameinist. Lítið er vitað
um hin stóru fyrirtækin, Ármanns-
fell og Álftárós, í þessu sambandi.
-Ari
Bryggjan, þar sem Akraborgin leggur að í Reykjavíkurhöfn, sökk snemma
í gærmorgun vegiia óveðursins sem gekk yfir. í dag mun Akraborgin einung-
is flytja farþega en á morgun verður bryggjunni haldið uppi með krana til
að þjóna Akraborginni. Viðgerð mun fara fram strax og veður leyfir.
DV-mynd S
Borgarjgarðarhérað:
Veitustof nanir í eitft
verði orkuverð lækkað
Veitustofnanir í Borgarfjarðarhér-
aði ætla að fara fram á viðræður við
iönaðarráðuneytiö um aðgerðir til
að draga úr orkukostnaði. I því sam-
bandi hafa forsvarsmenn stofnan-
anna huga á að viðra framkomnar
hugmyndir um sameingu veitnanna.
Undanfarin ár hafa Hitaveita
Akraness og Borgamess ásamt Raf-
magnsveitum Akraness, Borgamess
og Hvanneyrar átti í viðræöum sín á
milh um sameiningu og þykir ljóst
að nokkur ávinningur hlytist af því.
Samkvæmt samkomulagi 1987 við
ríkið eiga þessar veitustofnanir að
hefja afborganir á um 300 mihjóna
króna láni við sameiningu en semja
ella við ríkið um greiðslumar.
-kaa
Alþýðubandalagið:
Vildifresta
öllum umræðum
Kristinn H. Gunnarsson, alþingis-
maðm- fyrir Alþýðubandalagið, ósk-
aði þess, fyrir höns síns þingflokks,
þegar fundur var settur í Alþingi í
gær, að umræðum um sjávarútvegs-
samninginn yröi frestað þar sem
nokkrir þingmenn höfðu þá ekki
komist til þings sökum ófærðar.
Salome Þorkelsdóttir, forseti Al-
þingis, féllst ekki á að fresta umræð-
unum, hún sagöist viija nýta tímann
og óskaði þess að þeir þingmenn, sem
vom mættir og vom á mælendaskrá,
tækju th máls. Það varð úr. Kristinn
H. Gunnarsson sagðist sættast á
sjónarmið forseta en sagði að tilgang-
ur innræðna sé ekki aðeins að ræðu-
menn tah heldur einnig að þeir geti
hlustað á aðra ræðumenn.
-sme
i
ÞEIR SEMÆTLA
AÐÁVAXTA
UM 30 MILUARÐA
TAKAAUÐVHAD
ENGAÁHÆTTU
KJÖRBÓK
LANDSBANKANS
GAF
3,0;5,0%
RAUNAVOXTUN
ÁRK) 1992
Innstæöa á tæplega 100 þúsund Kjörbókum í Landsbankanum
er nú samtals um 30 milljarðar. Kjörbókin er því sem fyrr
langstærsta sparnaðarform í íslenska bankakerfinu.
Ástæöan er einföld: Kjörbókin er traust, óbundin og áhættulaus
og tryggir eigendum sínum háa og örugga ávöxtun.
Ársávöxtun á árinu 1992 var 4,6-6,6%.1
Raunávöxtun á grunnþrepi var því 3,0%,
á 16 mánaða innstæðu var hún 4,4%
og á 24 mánaða innstæðu var raunávöxtunin 5,0%.
Kjörbókin er einn margra kosta sem bjóöast í RS,
Reglubundnum sparnaði Landsbankans.
Landsbankinn óskar landsmönnum vaxandi gæfu
og góös gengis á árinu 1993.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna