Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993.
19
Sviðsljós
Lassie í fullu fjöri
Hundurinn Lassie er enn i fullu fjöri þótt hálfrar aldar afmælið sé á næstu
grösum. Sagan hófst 1943 og frá þeim tíma hefur Lassie lent í mörgum
ævintýrum. Eins og gefur að skilja hafa margir hundar verið í hlutverki
Lassie á þessum tíma en vin hans í nýjustu sjónvarpsþáttaröðinni leikur
Will Napper sem var valinn úr hópi 500 umsækjenda.
Sigurður Árni og Haraldur Jónsson skoðuðu listaverkin íbyggnir á svip.
Afmælissýning í
Nýlistasafninu
Afmælissýning var opnuð í Ný-
listasafninu um síðustu helgi en
safnið var stofnsett 5. janúar 1978 og
er því fimmtán ára. Á sýningunni
gefur aö líta verk eftir sex Ustamenn,
þau Elvu Jónsdóttur, Elsu D. Gísla-
dóttur, Pétur Örn Friðriksson, Ólöfu
Nordal, Ingileifu Thorlacius og
Rögnu Hermannsdóttur.
DV-myndh-GVA
Einn fyrir svefninn
Kráaeigendur í Bretlandi hafa löngum verið skilningsrikir gagnvart viðskiptavinum sínum. Einn þeirra tók t.d. allt-
af hestinn sinn með á krána og svo fengu „félagarnir“ sér einn fyrir svefninn. Ekki fylgir sögunni hvar þessi krá
er niðurkomin en af myndinni að dæma er Ijóst að hesturinn kann vel við sig á barnum.
Saraer
hjálpfús
Sara Ferguson skrapp til Póllands
fyrir skömmu og hafði með sér varn-
ing til bágstaddra barna þar í landi.
Angels góðgerðarstofnunin hafði
veg og vanda af sendingunni en
Sara hefur starfað fyrir stofnunina
um langt skeið. Til að vekja ekki of
mikla athygli var hertogaynjan skráð
sem ungfrú Jones í flugi British
Airways sem flutti hana til Póllands
og heim aftur að loknu verkinu.
BYRJENDANÁMSKEID ERU AÐ HEFJAST
/
JUDO
Þjálfari er Michal Vachun fyrrverandi
þjálfari tékkneska landsliðsins.
Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl. 10-22
og 11-16 um helgar
7 ísi™ 627295