Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993. Fræðslufundur Hrun Sovétríkjanna og hinn almenni borgari. Jón Ólafsson fréttamaöur ræðir við fundarmenn um vonir og vonbrigði almennings í Rússlandi. Þriðjudaginn 12. janúar kl. 20.00 í stofu 1 í Miðbæj- arskólanum. Námsflokkar Reykjavíkur Sjúkrahús Siglufjarðar auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa strax eða eftir nánara samkomuiagi. Á sjúkrahúsinu eru 43 rúm sem skiptast á sjúkra- deild, fæðingardeild og ellideild. Að auki er starfrækt skurðstofa, rannsóknastofa og sjúkraþjálfun í nýrri aðstöðu. Hjúkrunin er því afar fjölbreytt og gefandi. Þar að auki er gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingarn- ir séu sjálfstæðir í starfi og taki mikinn þátt í ákvarð- anatöku. Sjúkrahúsið er mjög bjart og rúmgott, góð vinnuað- staða og gott og samhent starfsfólk sem þar starfar. Siglufjörður er í fallegu umhverfi, samgöngur góðar og daglegar ferðir til og frá staðnum. Tómstundir eru fjölbreyttar og líflegt félagslíf, þar á meðal ýmis klúbbastarfsemi, nýtt íþróttahús og góð sundlaug. Skíðasvæðið er með því besta á landinu. Fjölbreyttar gönguleiðir. Gott barnaheimili, sem flyst í glænýtt hús á næstunni, er á staðnum. Hafið samband ef þið hafið spurningar varðandi kaup og kjör eða komið í heimsókn og fáið upplýs- ingar um það sem við höfum að bjóða. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í s. 96-71166 og hs. 96-71417. i Aukablað um tölvur Miðvikudaginn 27. janúar nk. mun aukablað um tölvur fylgja DV. Blaðið verður Qölbreytt og efnismikið en í þvi verður Qallað um flest það er viðkemur töivum og tölvu- notkun. I blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vél- búnað, þróun og markaðsmál. Má hér nefha verðkönnun á einkatölvum, greinar um viðskiptahugbúnað, notkun tölva við auglýsingagerð, tölvunotkun um borð i flskiskip- um, nýja og einfaldari gerð forritunarmála ásamt smálrétt- unum vinsælu. Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í blað- ið er bent á að senda upplýsingar tii ritstjómar DV, ísaks Sigurðssonar, fyrír 19. janúar nk. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í jjessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við Sonju Magnús- dóttur, auglýsingadeild DV, hið lyrsta i sima 63 27 22. Vinsamlegast athugið að siðasti skiladagur auglýsinga er flmmtudagurinn 21. janúar. ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27. Neytendur Ökunámsdeild Umferðarráðs hefur nú umsjón með ökunámskeiðum og eftirlit með öllum prófum. Meiraprófsnám- skeið fara nú fram í þremur einkaskólum sem koma i stað Ökuprófa ríkisins, meiraprófsnámskeiðanna sem lögð voru niður. Kröfurnar i meiraprófum eru töluvert meiri en áður, sérstaklega á fræðilega sviðinu, og námskeiðin eru orðin dýrari. Meiraprófsnámskeið fara fram í þremur skólum: Hafa hækkað um allt að 60 prósent - ítarlegri námskeið og meiri kröfur Ökuskóli fslands Ökuskóli Sig. Gísl. Ökuskólinn í Mjódd -------------------------------------------------------- Grafið sýnir hvað meiraprófsnámskeiðin kosta hjá ökuskólunum þremur. í öllum tilfellum eru prófgjöld innifalin. Við rútuprófsgjaldið getur bæst kostn- aður vegna tveggja leigubilatima og þá bætist einnig við kostnaður vegna læknisvottorða og mynda i skírteini. Meiraprófsnámskeiðin hafa hækk- að töluvert frá því sem áður var eða um allt að 60 prósent. Sú breyting hefur einnig orðið á fyrirkomulagi ökuprófa að ökunámsdeild Umferð- arráðs hefur umsjón með ökunám- skeiðum og eftirlit með öllum próf- um. Meiraprófsnámskeið fara nú fram í þremur einkaskólum sem koma í stað Ökuprófa ríkisins sem lögð voru niður. Þeir skólar eru: Ökuskóli íslands, sem er með nám- skeið í Dugguvogi, Ökuskóh Sigurð- ar Gíslasonar, sem er með námskeið í Tækniskólanum, og Ökuskóhnn í Mjódd sem er með námskeið í Mjódd. Skólamir kenna ahir samkvæmt námskrá sem gefin hefur verið út á vegum ökunámsdehdar Umferðar- ráðs. Kröfumar í meiraprófum em tölu- vert meiri en áður, sérstaklega á fræðilega sviðinu og námskeiðin orð- in dýrari. Ef menn tóku próf á vöm- bfi og leigubU samkvæmt gamla kerf- inu kostaði það 53.000 krónur en 76.000 krónur ef rútuprófiö var .þreytt. í báðum tilfeUum eru próf- gjöld (11.000 krónur) innifahn í verð- inu. í dag getur kostnaður manna vegna námskeiðanna farið upp undir 120 þústmd krónur. Námskeiðunum skipt niður í dag er meiraprófsnámskeiðunum skipt meira niður. Þó eru ákveðin grunnnámskeið sem alhr taka, það er umferðarfræði, bifreiðatækni 1 og skyndihjálp. Við bætast námskeiðin bifreiðatækni 2, ferða- og farþega- fræði, sljómun stórra ökutækja og fleiri, aht eftir því hvaða próf menn ætla að hafa upp á vasann. Prófgjöld era ahs staðar hin sömu, 12.000 krónur. Hér á eftir fer verð fyrir meira- prófsnámskeið hjá ökuskólunum þremur í Reykjavík. Hjá Ökuskóla Islands, sem er til húsa í gamla meiraprófshúsnæöinu við Dugguvog og fer af stað 13. janúar, kostar vöm- bílsnámskeið 62.800 krónur, leigu- bflsnámskeið 66.200 krónur og rútu- námskeið '100.000 krónur. í Ökuskóla Sigurðar Gíslasonar, sem kennir í Tækniskólanum og fer af stað 12. janúar, kostar vömbíls- námskeið 66.000 krónur, leigubíls- námskeið 52.000 krónur og rútunám- skeið 115.800 krónur. í Ökuskólanum í Mjódd, sem er á vegum Ökukennarafélags ísíands og byijar 18. janúar, kostar vömbfls- námskeið 71.000 krónur, leigubíls- námskeiö 52.200 krónur og rútunám- skeið 113.00 krónur. Þar á bæ var DV tjáð að greiða þyrfti 5000 krónur aukalega, fyrir leigubílatíma, á rútu- námskeiðinu tfl að fá stimplað í reit- inn fyrir leigubfla á ökuskírteininu. Við hefldarkostnaðinn bætast loks gjöld fyrir læknisvottorð og mynda- tökur. Misjafnt er hve margir komast að á námskeið í hveijum skóla, frá 24-35, og því rétt að nemendur kynni sér hámarksfjölda nemenda þegar þeir meta námskeiðagjöldin. Hægt er að fara ýmsar leiðir til að ná sér í aukin ökuréttindi. Það er sammerkt með öhum skólunum að nemendur fá mest út úr því að taka rútuprófið því þá hafa þeir um leið aflaö sér réttinda til að aka bæði vömbfl og leigubfl (inni í gjaldinu fyrir rútupróf eru tvö prófgjöld á 12 þúsund krónur hvort). Bæti menn til dæmis leigubflanámskeiði ofan á vömbflsnámskeiðið kostar það hins vegar í kringum 100 þúsund krónur. Mismunandi útfærsla Hér verður ekki lagt mat á gæði námskeiðanna hjá skólunum en mis- mundandi útfærsla er á námskránni í hverjum skóla fyrir sig og kennslu- gögn, sem enn em af skomum skammti, em einnig mismunandi. Námskeiðin standa í 5-6 vikur með prófum. Hið nýja fyrirkomulag gerir ráð fyrir að nemandi gangi tfl prófs eigi síðar en tveimur árum eftir að hann hefur námið. Þannig geta menn til dæmis betur klofið kostnaðinn við námskeiðin ef þeir taka bóklega hlut- ann fyrst og þann verklega síðar. Meiri kröfur „Við emm ekki með neitt verðeftir- ht vegna námskeiðanna. Aðalatriðið vegna hækkunarinnar eru hinar auknu kröfur sem gerðar eru á nám- skeiðunum. Hins vegar er erfitt að meta hækkunina nákvæmlega þar sem prófgjöld og kennslugjöld voru ekki að öhu leyti aðskihn í gamla kerfinu á sama hátt og nú. Prófgjöld hafa að öllum líkindum hækkað um þriðjung og námskeiðin um 15-20.000 krónur," sagði Ingólfur Á. Jóhannes- son, deildarstjóri í ökunámsdeild Umferðarráðs, við DV. Ingólfur segir að til að byrja með verði lögö meiri áhersla á umferðar- fræði og ferða- og farþegafræði en minni á bifreiðatæknifræðina, í bih að minnsta kosti. „Allir skólamir uppfyha skilyrði til starfsemi en það var ekki metið hvort eða hver þeirra uppfyhti þau betur en hinir. Við ákváðum að fara af stað með nýja meiraprófskerfið eftir áramót í stað þess að byija með það hálfbúið í haust. Ég held að allir verði ánægðari með það, þá þarf ekki að vera að krukka endalaust í það.“ -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.