Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993.
Fréttir
Guðlaugur Þorleifsson vélsleðamaður:
„Ég hugsaöi mjög vel heim og mér
datt strax í hug að fjölskyldan mín
væri vakandi um nóttina og hugsaði
bara mn að komast heim. Ég hafði
trú á því nema alveg í restina þegar
ég þurfti aö ganga til Þorlákshafnar
því þá var ég orðinn svo kalinn á
höndunum," sagöi Guðlaugur Þor-
leifsson, tvítugur vélsleðamaöur frá
Seltjamamesi, sem fannst á þriðja
tímanum síðdegis í gær þegar sumir
voru orðnir harla vonhthr rnn að
hann væri enn á lífi - þá hafði ekk-
ert spurst til hans í Bláfjöllum í tæp-
an sólarhring.
„Við vorum búnir að heyra af
spánni en bjuggumst ekki við þess-
um skafrenningi. Þetta átti bara að
vera skottúr í 10-20 mínútur um
svæðið. Við keyrðum upp að Litlu
kaffistofu, þaöan yfir í Jósepsdalinn
og síðan upp að Bláfjöllum. Þegar við
vorum komnir handan við fjölhn
skah á stórhríð, um þijúleytið. Við
ætluðum yfir Bláfjöllin á sleðunum
en þaö vom svo miklar hengjur þar
að við snemm við og skhdum sleðana
eftir þegar við komum lengra. Við
gengum yfir fjall í átt að Bláfjöllum."
Ekki hægt að grafa sig
„Það var mjög óþæghegt þegar við
urðum viðskha á sunnudeginum. Ég
hafði óvart gengið aðeins á undan
og svo týndist hann bara. Þaö var svo
mikill bylur að maöur hvorki heyröi
né sá neitt. Ég reyndi að leita að fé-
laga mínum en þegar ég fann hann
ekki hélt ég bara áfram í kringum
og á bak við fjölhn og gekk svo yfir
heiðina. Þegar leið á nóttina gerðist
veðrið ennþá brjálaðra. Skyggnið var
um hálfur metri.
Það var ekki hægt aö grafa sig
neins staðar niður í fónn því það var
svo mikið harðfenni undir. Ég gat
hvílt mig í svona kortér á þriggja
tíma fresti. Annars var htið hægt að
hvíla sig því það var svo kalt og
Guðlaugur Þorleifsson komlnn á Landspítalann i gærkvöldi með bróður sínum Eyjólfi, til vinstri, og vini þeirra
Haraldi Leónardssyni. Þremenningarnir höfðu allir vakað meira og minna frá því á sunnudagsmorgun - Guðlaugur
í hrakningum í Bláfjöllum en hinir biðu á milli vonar og ótta heimavið. DV-mynd GVA
hvergi skjól, engir klettar th að fela
sig á bak við og hvergi hægt aö grafa
sig í fonn.
Ég sá leitarljósin af og th ahan tím-
ann og reyndi að ganga á móti þeim
en það var ekki hægt vegna bylsins.
Gahinn minn var í lagi en skómir
fóru í gegn - það kom gat á stórutána
þannig að ég var með hana út fyrir
í einhvem tíma.“
Fannst þetta vera
Bláfjallaafleggjarinn
„Klukkan hálfehefu í morgun
(gærmorgun) fann ég veg. Mér fannst
þetta fyrst vera Bláfjallaafleggjarinn.
Svo sá ég að ég var kominn að
Strandarkirkju og Selvogi. Mér
fannst mjög skrýtið að vera kominn
þangað. Ég átta mig ekki á þessu. Ég
fylgdi veginum og gekk inn að
Strandarkirkju. Ég ætlaði að fara
Krísuvíkurveginn en hætti við og
gekk á móti vindinum aftur. Það tók
mig mjög langan tíma og mér leið
mjög illa. Þó leið mér vel að hafa
fundið veginn. Ég var ekkert þreytt-
ur en mér var iht í náranum - það
vora svo margir skaflar sem ég fór í
gegnum.
Um 20 mínútum áður en björgun-
arsveitarmennimir úr Mannbjörg
frá Þorlákshöfn fundu mig tók ég af
mér hanskana því það var svo mikhl
klaki inni í þeim og ég orðinn bólg-
inn. Það var svo ólýsanleg tilfinning
þegar ég mætti björgunarmönnun-
um. Þeir voru hissa á að sjá mig en
tóku vel á móti mér og ég fékk hlý
fot og fékk að borða. Ég vil skha góðri
kveðju th þeirra.
Ég fékk 2. stigs kal í fæturna - sér-
staklega þar sem táin fór í gegnum
skóna. Það var mikh urð og ég datt
líka stundum niður í gjótur."
Bróðirinn gaf
aldrei upp vonina
„Ég á ekki orð til en vh skha öllu
því besta þakklæti sem hugsast getur
th allra þeirra sem stóðu að björgun
sonar míns. Þetta er kraftaverki hk-
ast. Læknarnir segja það líka,“ sagði
Þorleifur Gíslason, hrærður faðir
Guðlaugs, viö blaðamann DV á
Landspítalanum í gærkvöldi. Móðir-
in, Þorbjörg Finnsdóttir, tók í sama
streng: „Það er ómetanlegt starf sem
þessir menn vinna. Það er þó ægilegt
að þyrlan skyldi ekki hafa verið th-
tæk. Við vissum fyrst að strákamir
hefðu fariö í þessa ferð klukkan sjö
í gærkvöldi (á sunnudagskvöld). Þá
var aht sett í gang og klukkan hálf-
átta var beðið um hjálp.“
Eyjólfur, bróðir Guölaugs, var lítið
sofinn í gærkvöldi þegar hann fagn-
aði bróður sínum. Hann sagðist aldr-
ei hafa gefið upp vonina um að Guð-
laugur kæmi aftur - hvorki í fyrri-
nótt né þegar höa tók á daginn í gær
þegar ekkert spurðist th Guðlaugs.
-ÓTT
Trúdi að hann kæmist heim
þar til alveg í lokin
- komst lífsafúr sólarhrings hraknlngum
Framsókn sameinast
Nú er umræðunni um EES-máhð
loksins lokið. Atkvæðagreiðslur og
útvarpsumræður og maraþonum-
ræður hafa leitt í ljós að meirihluti
alþingisnjanna styður samkomu-
lagið um Evrópska efnahagssvæð-
ið. Það var raunar ljóst fyrir ahn-
okkra en stjómarandstöðunni
þótti engu aö síöur nauðsynlegt að
tala sig dauða í málinu og þá aðal-
lega vegna þess að Framsóknar-
flokkurinn varð ná einhverri lend-
ingu.
Nú hefur verið sagt að Framsókn
hafi ahs ekki náð lendingu og það
hafi komið fram í atkvæðagreiðsl-
um á þingi. Fimm framsóknar-
menn sátu hjá og mundu hafa orð-
ið sex ef ahir hefðu veriö mættir.
Hinir greiddu atkvæði á móti. í
hópi hjásetumanna var Hahdór
Ásgrímsson, varaformaður flokks-
ins, en meðal þeirra sem greiddu
atkvæði gegn samningnum var
formaður flokksins, Steingrímur
Hermannsson.
Þessi afstaöa hefur verið túlkuð
sem klofningur í Framsókn. Rétt
er að leiðrétta þetta strax. Fram-
sókn klofnaöi ekki. Það sést vel í
útvarpsumræðunni þar sem Stein-
grímur talaði í fyrstu umræðu,
annarri umræðu og þeirri þriðju.
Aðrir komust ekki að. Þess var
heldur ekki nauðsyn, vegna þess
að Steingrímur talar fyrir flokkinn
og með því að Steingrímur talar
fyrir flokkinn er flokkurinn sam-
stiga um að láta Steingrím tala fyr-
ir sig og þess vegna er flokkurinn
samstiga í málinu.
Þaö fer vel á því að láta Steingrím
tala. Hann var forsætisráöherra
þegar viðræður um EES-máhð hó-
fust. Það var hans ríkisstjóm sem
lagði hnumar og Jón Baldvin var
utanríkisráðherra í ríkisstjóm
Steingríms og sendi Jón Baldvin
út af örkinni th að semja um það
sem nú er búið að semja um. Þaö
eina sem hefur breyst er það að
Steingrímur er ekki lengur forsæt-
isráöherra. Það er ekki Steingrími
að kenna heldur kjósendum sem
vhdu nýja ríkisstjóm og úr því
kjósendur vora svo vitlausir að
vhja nýja ríkisstjóm og nýjan for-
sætisráðherra gátu þeir heldur
ekki ætlast th þess að Steingrímur
segði það sama í stjómarandsöðu
sem hann sagði í ríkisstjóm.
Steingrímur hefur verið bæði
með og á móti samningum og hann
er því ákjósanlegur ræðumaður af
hálfu Framsóknar þegar Framsókn
þarf að útskýra samstööu sína sem
felst í því að vera bæði á móti og
með.
Jón Kristjánsson, ritstjóri Tí-
mans, var einn þeirra sem sat hjá
við atkvæðagreiðsluna um EES.
Jón er glöggur maður og mikhl
framsóknarmaður og gerir ekkert
annað en það sem flokkurinn segir
honum að gera. Jón hefur ritað
grein í blað sitt th að útskýra að
Framsókn var samstiga í málinu
þrátt fyrir ágreininginn. Fram-
sóknarflokkurinn vhdi tvíhhða
viðræður. Þær fengust ekki sam-
þykktar. Framsóknarflokkurinn
vildi þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún
fékkst ekki samþykkt. Framsókn-
arflokkurinn vhdi breyta stjómar-
skránni th að gera samþykkt EES.
Stjómarskránni var ekki breytt.
Af þessum sökum segir Jón að
það komi engum á óvart þótt sumir
hafi greitt atkvæði á móti meðan
aðrir sátu hjá. í raun og vera vora
menn að greiða atkvæði með samn-
ingnum sem þeir voru með, með
því að sitja hjá, en þeir sem greiddu
atkvæði á móti vora ekki að greiða
atkvæði á móti samningnum held-
ur að láta í Ijós óánægju sína með
að ekki skyldu teknir upp tvíhhða
samningar og þjóðaraktvæða-
greiðsla án þess þó að það hefði
áhrif á afstöðu Framsóknar.
Afstaöa Framsónarflokksins er
því á hreinu. Hann er ekki á móti
samningum að öðru leyti en því að
öðruvísi átti að standa að samning-
unum og það hefði veriö gert ef
Framsókn hefði mátt ráöa. Sumir
framsóknarmenn sættu sig ekki
við að fá ekki að ráða án þess að
þaö hefði breytt neinu um samn-
ingana. Öðru máh gegndi um hina
sem sátu hjá. Þeir vora líka með
samningunum ef þeir hefðu mátt
ráða og hka þótt þeir hefðu ekki
fengið að ráða og um það snerist
atkvæðagreiðslan.
Framsókn bregst ekki í svona
stórmálum. Hún hefur verið sam-
stiga og framsóknarmenn era allir
sammála um aö þetta hafi farið vel
og flokkurinn hafi komið hehl út
úr umræðunni eins og í ljós kom
þegar Steingrímur talaði einn á
móti máhnu sem Framsókn var
með.
Dagfari