Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993.
Uflönd
Woody Allen vill að Mia Farrow
fari i geðrannsókn.
Allenbergeð-
veiki á Farrow
Lögfræðingar leikstjórans
Woody Allen segja óixiákvæmi-
legt að senda Miu Farrow í geð-
rannsókn áður en málarekstur
þeirra sambýlinganna heldur
áfram.
Að sögn vill Allen fá úr því
skorið af fagmönnum hvort Mia
sé hæf til að ala upp börn. Með
þessum ásökunum um geðveiki
minnka enn vonir manna um að
Mia og Allen nái sáttum.
Lögreglan yfirheyrði Allen fyr-
ir helgina vegna ásakana um að
hann haíi leitað kynferöislega á
sjö ára fósturdóttur sína. Ekkert
hefur spurst út um hvað leik-
stjóranum og lögreglunni fór á
milh.
Siberiusprengj-
an árið1908var
loftsteinn
Rússneskir vísindamenn segj-
ast hafa ráðið gátuna um hvað
gerðist í Tunguska-skógi í Síheríu
áriö 1908. Gífurleg sprenging varö
þar í andrúmslofmu um 8 kíló-
metra yfir jörðu. Sprengingin var
á við þúsund kjarnorkusprengjur
af sömu gerð og varpað var á
Hiroshima.
Vísindamennirnir segja aö loft-
steinn hafi sprungið yfir skógin-
um og valdið eyðileggingu sem
líktist mjög áhrifum.kjarnorku-
sprengju. Allur skógur eyddist á
þúsund ferkílóraetra svæði og
má enn sjá þessa merki. Loft-
steinninn var 30 metrar í þver-
mál.
araðréttasinn
Dan Quayle, fráfarandi vara-
forseti Bandaríkjanna, sest við
skriftir þann 20. janúar þegar
hann og George Bush forseti
víkja úr embættum sínum. Til-
gangur varaforsetans er að rétta
hlut sinn eftir að hafa verið skot-
spónn háðfugla allt frá því hann
lagði upp í kosningabaráttuna
með Bush áriö 1988.
Quayle reiknar meö að Ijúka
verkinu fyrir sumarið. Hann
veröur í Washington þann tíma
enda þurfa börnin aö klára skóla-
göngu vetrarins áður en íjöl-
skyldan hverfur á ný heim til
Indiana.
Konur i omistu-
Sean O’Keefe, fráfarandi flota-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á dögunum að eðlilegt væri
að konur geröust orrustuflug-
menn, kafbátasjómenn og lantl-
gönguliðar. Tfl þessa hefur;
bandarískum konum ekki verið
treyst fyrir þessum verkum.
Ráðherrann sagði að ekkert
væri því til fyrirstöðu að konur
mönnuðu árásarskip og réðust til
landgöngu við hhðina á körlum.
O'Keefe víkur senn úr embætti
og hafa orö hans takmörkuö
áhrif.
dv
Látlaust óveður hamlar hreinsun olíunnar við Hjaltlandseyjar:
Eyjarskeggjar hefna
strandsins með galdri
- Gissur jarl fer með seiðinn samkvæmt fornum hefðum frá víkingatímanum
Hjaltlendingar eru búnir að gefa
upp alla von um að ráðum þessa
heims verði beitt til að hindra frek-
ari mengun frá olíuskipinu Braer,
sem strandaði við Dynrastarnes á
suðurodda eyjanna fyrir viku. Nú er
helst til ráða aö hefna strandsins með
galdri sem framinn veröur í höfuð-
staðnum Leirvík síðar í mánuðinum.
Galdurinn er í því fólginn að
brennd verður eftirhking af víkinga-
skipi á hátíð sem eyjarskeggjar halda
ár hvert til að minnast yfirráða nor-
rænna manna á Hjaltlandi.
„Ég held að hátíðin muni dreifa
huga fólksins og fá þaö til aö gleyma
ohuslysinu um stund,“ segir Ronnie
Gair, sem stjórnar galdrinum í hlut-
verki Gissurar jarls. Það er náungi
sem alltaf kemur fram á víkingahá-
tíðum Hjaltlendinga.
Þúsundir ferðamanna koma ár
hvert á víkingahátíðina og búist er
við fjölmenni aö þessu sinni enda
hefur sviðsljós fjölmiðlanna sjaldan
beinst svo lengi að Hjaltlandi sem
nú í byrjun árs.
Hefð er fyrir því að útnefna Gissur
jarl til að stjórna víkingaátíðinni meö
nefnd manna sem kann til verka.
Nafn jarlsins er sótt til íslands er
margt í siðum og máli eyjarskeggja
minnir á valdatíma víkinganna.
Flak ohuskipsins er enn í fjörunni
þar sem það strandaði. Enn lekur
olía úr því og þaö hefur brotnað mik-
ið. Undanfama daga hefur staðið til
að dæla því sem eftir er í tönkunum
yfir í flutnignapramma en veður hef-
ur hamlað öllum aðgerðum. Veð-
urspá er líka á þann veg að ekki er
að búast við að nokkru verði bjargað
af farmi skipsins.
Reuter
Flak oltuskipsins Braer liggur í fjörunni við suðurodda Hjaltlandseyja og eru vonir mjög farnar að dofna um að
nokkru verði bjargað af farmi þess. Eftir þvi sem best er vitað er einhver olia eftir í tönkunum enda bætist stöðugt
við olíuflekkinn á strandstaðnum. Útgerð Hjaltlendinga og fiskeldi hefur orðið fyrir miklum busifjum og kann að
liða langur tími áður en sjávarfang þaðan verður talið heilnæmt. Símamynd Reuter
GRÆNI jkAMA SMÁAUGLÝSINGA
SÍMINN QQ_h777 SlMINN FYRIR
þjónustu! Wfcl ■■ LANDSBYGGÐINA
Fimmtíu Frakk-
ar ákærðir fyrir
ólöglegar veiðar
Kanadísk yfirvöld ákærðu fimmtíu
sjómenn og stjórnmálamenn frá
frönsku eyjunum St. Pierre og Miqu-
elon fyrir ólöglegar veiðar í gær eftir
að lagt var hald á tvo togara sem
voru á mótmælaveiðum undan aust-
urströnd Kanada í síðustu viku.
Mennimir lýstu allir yfir sakleysi
sínu fyrir rétti á Nýfundnalandi í
gær.
Togararnir tveir voru vísvitandi að
ólöglegum veiðum innan kanadísku
fiskveiðilögsögunnar til að mótmæla
veiðikvótum. Þeir veröa í vörslu
kanadísku stjórnarinnar þar til
tryggingafé upp á rúman hálfan
milljarð verður reitt fram.
Frakkar og Kanadamenn hafa átt
í deilum frá því í október er samn-
ingaviðræður um fiskveiðiheimildir
fóru út um þúfur og Kanadamenn
ákváðu kvóta eyjaskeggja einhliöa.
Eyjamar tvær era undan austur-
strönd Kanada.
Fyrstahanagal
veldurerjum
Ástralskur lögfræðingur hefur
stefnt nágrönnum sínum og krefst
skaðabóta fyrir meinta streitu sem
gahð í hana þeirra veldur.
Eigendur hanans vom undrandi á
kærunni þar sem þau töldu aö deilan
hefði verið leyst fyrir ári. Þá var
ákveðið að loka hanann inni á kvöld-
in eftir kvörtun frá lögfræðingnum.
Reuter
Við erum öll....