Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1993, Page 9
ÞRiÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993.
Utlönd
PaulWatson:
Norðmenneru
„Hvalimir hugsa til Norð-
manna með sama huga og gyð-
ingar hugsa til nasista. Þetta eru
fjöldamoröingjar. í augum hval-
anna er litill munur á Noregi og
Þriðja ríki Hitlers," segir hval-
friðunarmaðurinn Paul Watson.
Watson lét þessi orð falla í bréfi
til dagblaðsins Norðurfióss í
Tromsö. Þar hefur hann í heiting-
um við Norðmenn og segist vera
sendiherra hvalanna í mann-
heimum. Hann boðar komu sína
á hrefnumiðin á næsta ári en nú
um áramótin gerðu menn hans
tilraun tii að sökkva hvalbát á
Lófóten en mistókst.
Lögreglumaður
tekinn fyrir ölv»
unviðakstur
Búið er aö svipta lögreglumann
í Rönne á Borgundarhólmi öku-
réttindum vegna ölvunar við
akstur í Svíþjóð um jólin. Sviar
vísuðu málinu heim til Rönne og
þar var dæmt í máli mannsins.
Bftir því sem dagblað þeirra á
Borgundarhólmi segir var iög-
reglumaðurinn dauðadrukkinn
undir stýri. Þar segir að vin-
anadamagnið í blóði mannsins
hafi reynst vera þijú prómill en
heljarmenni þarf til að lifa slíkt
af, hvað þá aka.
Barentssvæði
stofnaðánorð-
urslóðum
Stofnun svokallaðs Barents-
svæðis úr norðurhéruðum Nor-
egs, Svíþjóðar, Finnlands og
Rússlands er í höín og standa
vornir til að íbuar á þessum slóð-
um hafi með sér nána samvinnu
í atvinu- og menningarmálum á
komandi árum.
NTB og Ritzau
Breskir vísindamenn hafa fundið leyndarmál aMieimer:
Prótín í heilanum
orsök elliglapa
Breskir vísindamenn telja að þeir
hafi fundið orsökina fyrir alzheim-
er-sjúkdómnum og hvers vegna hann
tengist efri árunrnn að því er fram
kemur í grein sem birtist í gær.
Þeir sögðust hafa rekið upphaf
þessarar ólæknandi heilabilunar til
endurvaxtar taugafrumna í heila
sem sem kemur fyrir hjá öllum þegar
þeir komast á sextugsaldurinn.
Uppgötvunin sem birt er í janúar-
hefti ritsins Neuroreport er fyrsta
heildarskýringin á alzheimer og
tengir efnafræði heilans og líffæra-
fræði við aldurinn.
í greininni er skýrt frá því að
taugafrumum í heilanum fari fækk-
andi þegar árin færast yfir. Tauga-
frumumar sem eftir eru reyna að
bæta þær upp með því vaxa á nýjan
leik og fylla í sköröin sem dauðu
frumumar skildu eftir sig. Sérstakt
prótín auðveldar þennan endurvöxt
og of mikið magn þess veldur alz-
heimer.
„Endurvöxturinn gerist hjá öll-
um,“ sagði leiðtogi rannsóknarhóps-
ins, dr. Gareth Roberts, við lækna-
skóla sjúkrahúss heilagrar Maríu í
London.
„Þegar við eldumst deyja sumar
taugafrumur en þær sem eftir lifa
fara í gegnum annað vaxtarstig og
koma okkur í gegnum síðustu ára-
tugi lífsins. Við getum okkur til um
aö þessi endurvöxtur sé tvíeggjað
sverð þar sem nokkrir reynast við-
kvæmir fyrir auknu magni prótíns-
ins sem auðveldar endurvöxtinn.
Mikill meirihluti alzheimer-tilfell-
anna virðist því vera leiðinleg auka-
afurð,“ sagði Gareth Roberts. Reuter
Perot ætlar að gæta Clintons
Bandaríski auðkýfingurinn Ross Perot hefur stofnað flokk úr grasrótarsamtökum sinum og segist nú ætla að hafa
nákvæmt eftirlit með Bill Clinton, verðandi forseta, allt næsta kjörtímabil. Simamynd Reuter
Norðmennbúa
sig undirstór-
flóðvegna lægð-
arinnar miklu
Norska veðurstofan varar við
stórflóði og sjávargangi við sunn-
an- og vestanveröan Noreg í dag
þegar lægöin mikla, sem gert hef-
ur mikinn usla á Norður-Atlants-
hafi síðustu daga, kemur að
ströndum landsins.
Fólk í bæjum við ströndina er
varað við að sjór geti gengið á
land á háflóðinu enda er stór-
streymt um þessar mundir. Byij-
að var aö loka höfnum á þessum
slóðum í gær og búast monn við
hinu versta.
Danirsaka
Norðmenn um
„heimsvalda-
stefnu“
Sendiherra Ðana í Hollandi
deildi hart á Norðmenn þegar
hann fylgdi úr hlaði kæru stjórn-
ar sinnar á hendur þeirri norsku
vegna yfirráða á hafsvæöinu
milli Grænlands og Jan Mayen.
Málið var tekið fyrir hjá Alþjóða-
dómstólnum í Haag í gær.
Sendiherrann sagði aö Norð-
menn hefði farið með yfirgangi
um noröurhöf í marga áratugi og
teidu sig eíga þar allt sem einhver
slægur væri í. Þeir hefðu byijað
árið 1931 á þessari „heimsvalda-
stefnu“ með því að krefjast yfir-
ráða á Austur-Grænlandi.
Sviarerualveg
húmorslausir
Danir segjast«hafa fengið end-
anlega sönnun fyrir því að frænd-
ur þeirra handan viö Eyrarsund-
iö séu alveg húmorslausir. Þetta
hafi berlega komið i ljós með við-
brögðum við garaansemi um að
sprengja upp kjarnorkuverið í
Barsebáck. Svíar svöruðu með
því að henda kæstri síld í Danl
NTB Ritzau
sorpframleidendur
SORPA kemur til móts viö óskir fyrirtækja
um aö losa farma af flokkuðum
úrgangi á gámastöövum. Frá og meö 16. janúar verður fyrirtækjum heimilað til
reynslu aö losa farma allt aö 2m3gegn greiðslu fyrir hverja losun.
Gámastöövar taka ekki á móti spilliefnum frá fyrirtækjum.
2 sem gildir fyrir 6 losanir kostar 10.500 kr.
Greiðsla fyrir hverja losun er 1.750 kr meö vsk (bvst. 189,6stig ). Ekki verður hægt
aö greiða fyrir einstaka losun. Kortin eru seld á skrifstofu SORPU í Gufunesi,
öllum sendibílastöövum á höfuðborgarsvæðinu og Snælandsvídeó, Háholti, Mosfellsbæ.
er möguleg hjá mörgum fyrirtækjum,
Aukin hagkvæmni í förgun úrgangs
s.s. meö því aö:
■ Nýta sér lækkandi gjaldskrá móttökustöövarinnar með aukinni þyngd.
■ Nýta sér þjónustu gámafyrirtækja og annarra flutningsaðila.
■ Fyrirtæki innan svæöa eöa meö svipaða starfsemi vinni saman.
SORPA er fús til aö aðstoða fyrirtæki viö val á aðferðum.
ALMENNINGUR ÞARF EKKI AÐ GREIÐA FYRIR LOSUN Á GÁMASTÖÐVAR.
S0RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77 Upplýsingar um þjónustuaðila hjá Gulu línunni sími 626262