Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Page 4
4
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993.
Fréttir
Skrautlegur ferill Don Feeneys sem nú gistir íslenskt fangelsi:
Með sérsveit hersins í íran,
Beirút, Súdan og Grenada
Anna Bjamason, DV, Flórída;
Donald Michael Feeney, sem nú
situr í gæsluvaröhaldi í Reykjavík
fyrir að hafa skipulagt brottnám
tveggja dætra Emu Eyjólfsdóttur frá
íslandi, hefur skrautlegan feril aö
baki. Hann var í sérsveitum banda-
ríska hersins og tók þá þátt í mis-
heppnuðum leiöangri til að bjarga
bandarísku gíslunum í íran 1980.
Feeney og félagar hans björguðu
fimm bandarískum trúboðum í Súd-
an og í árás Bandaríkjanna á
Grenada var Feeney í herflokknum
sem sendur var til að frelsa pólitíska
fanga úr Richmond fangelsinu og
koma í veg fyrir aftöku þeirra.
Þetta kemur allt fram í bókinni
Rescue My Chiid (Bjargaðu baminu
mínu) sem íjallar um fyrirtæki Fee-
neys, Corporate Training Unlimited,
CTU, og íjórar björgunaraögerðir
sem CTU hefur staðið að.
í slæmum félagsskap
Don Feeney er fæddur og uppalinn
í ítölsku hverfi í Brooklyn. í bókinni
segir hann að fjölskylda hans hafi
verið fátæk þótt hann gerði sér ekki
grein fyrir því þá en matur hafi allt-
af verið nægur.
Hann var í slæmum félagsskap og
stefndi beint í mikil vandræði áður
en hann gekk í herinn. Don hefur frá
upphafi verið hugaður og úrræða-
góður enda þurft á þvi að halda þeg-
ar á reyndi að komast undan lögregl-
imni. I bókinni segir frá því er hann
var eitt sinn á flótta undan lögregl-
unni. Hann stakk sér undir kyrr-
stæðan bíl og faldi sig en þar sem
hann vissi aö lögreglan átti það til
að kíkja undir bíla í nágrenninu til
þess aö gá að þeim sem hún hafði
misst sjónar á hengdu Don og félagar
hans sig upp undir bílana, kross-
lögðu fætuma yfir öxulinn og vonuð-
ust til að bíliinn væri ekki sjóðheitur
effir að hafa nýlega verið ekið. Og
þegar lögreglan leit undir bílana sá
hún ekki tangur eða tetur af pöru-
piltunum sem þeir voru að elta.
í sérsveit hersins
Þegar Don Feeney hafði skráð sig
í herinn kunni hann fljótt vel viö sig.
Donald Míchael Feeney, sem er fertugur að aldri, er hér leiddur fyrir reyk-
vískan dómara sem úrskurðaði hann í gæsluvarðhald. DV-mynd GVA
Hann bauð sig fram sem sjálfboða-
hða í nýstofnaða sérsveit sem hann
raunar vissi ekki þá að var Delta-
Force eða skyndiárásarsveitir land-
Þrír feröamenn fastir í sex klukkustundir:
Skaflar upp á
miðjar rúður
- þegar björgunarsveitin kom
„Þaö var fint veður þegar við lögð-
mn af stað og alveg þar til við vorum
komnir upp á Kerlingarskarðið en
þar var snælduvitlaust veður. Við
keyrðum inn í skafl á miðjum vegin-
um og festum okkur þar. Þegar
björgunarsveitin kom hafði skafið
svo mikið að það voru komnir skafl-
ar upp á miðja bílrúðu,“ segir Sveinn
Friðfinnsson, einn af þremur mönn-
um sem Björgunarsveitin Berserkir
í Stykkishólmi bjargaði úr fólksbíl á
Kerlingarskarði eftír að þeir höfðu
setið þar fastir í sex klukkustundir.
Olía lak í Hafnarfjarðarhöfn þegar
verið var að dæla svartolíu í skip í
gærdag. Yfirfailsrör stíflaöist og rok-
ið olli því að olían úðaöist um allt.
Mennimir voru með bílsíma og
gátu látið lögreglu vita um ferðir sín-
ar. Björgunarsveitin fór með stóran
fjórhjóladrifinn vörubíl og jarðýtu til
að bjarga mönnunum en þaö voru
einu farartækin sem dugðu í veður-
hamnum sem geisaði í gær.
Rafmagnslína á Kerlingarskarði
slitnaði í gær og fór rafmagn af
Grundarfirði og Stykkishólmi. Þá
urðu rafmagnsveitumenn fyrir tölu-
verðu tjóni þegar kerra með tveimur
vélsleðum fauk aftan úr bíl þeirra.
-ból
Ekki er vitaö hversu mikið af ol-
íunni fór í sjóinn en talið er að það
hafi verið sáralítíð.
-ból
Akranes:
Vörabretti
rúðubrota
Skemmdarvargar bmtu rúöu í verslun í miðbæ Akraness aðf- aranótt föstudags. Ekki varð séð aö fariö hefði veriö inn i verslun- ina og svo virðist sem skemmdar- fýsnin hafi ein ráöið verkum. Sketnmdarvargamir höfðu tek- ið stórt vömbretti og notað það til að bijóta rúðuna. Verslunin
snyr ao aoaígotu nuousejanns on ekki er vitað til að nokkur hafi
orðið var við verknaðinn. -ból
8 hross köfnui áStokkseyri lu ■
Hitaleiðsla í gólfi hesthi Stokkseyri gaf sig meö þeii ss á n af-
leiðingum að 8 hross köfrn heitri gufu. Alls vora 32 hr hesthúsinu, sem tilheyrir t iðu í oss i amn-
ingastöð, en talið er að þau 24 sem eftir lifa muni aö fullu ná sér eft-
irvolkið. -ból
Olía í Haf narfjarðarhöfn
hersins.
Feeney var í reynd sjötti maðurinn
sem tekinn var inn í sveitina. Hann
kunni afar vel við sig í þessari sér-
stæöu sveit þar sem allir unnu stór-
kostlega vel saman að mjög hættu-
legum verkefnum. Meðal þeirra má
nefna að hann tók þátt í björgunar-
leiðangri gíslanna í íran 1980, hann
var í Beirút árið 1982 þegar sveitín
varð oft fyrir óvinaárás eða að með-
altali fjórum eða fimm sinnum í viku.
Feeney og félagar hans björguöu
fimm bandarískum trúboðum í Súd-
an. í árásinni á Grenada var Feeney
í flokknum sem sendur var til þess
að frelsa pólitíska fanga úr Richm-
ond-fangelsinu og koma í veg fyrir
aftöku þeirra.
Sakaður um svindl
Hann yfirgaf Delta-sveitína árið
1984 er hann neitaði að sætta sig við
refsingu vegna ásökunar um svindl
í sambandi við uppihald herflokksins
í Beirút. Hann var einn af um 70
Delta-hermönnum sem sakaðir voru
um bókhaldssvindl en hann vildi
ekki kannast við að hann hefði að-
hafst eitthvað rangt og sagðist ekki
vilja vera blóraböggull fyrir klúður
í hemum.
Málið var að Delta-hópnum voru
úthlutaðir ákveðnir dagpeningar
sem dugðu engan veginn til framfær-
is í Beirút á þessum tíma. Mikill
skortur var á matvælum í borginni
og því var það htla sem til var selt á
uppsprengdu verði. Herinn greiddi
ákveðið verð fyrir hótelherbergi fyr-
ir Don og félaga hans. Þeir sömdu
hins vegar við hótelið um að tveir
félagar deildu herbergi en hótelið
greiddi þeim til baka sem svarar $10
sem þeir gætu svo notað til þess að
drýgja matarkaup. í bókinni segir að
þetta hafi í raun verið í samræmi við
þá sjálfsbjargarviðleitni sem brýnd
var fyrir félögum Delta-sveitarinnar
en herinn kaus að líta á þetta sem
fjársvik.
Stofnaði dagheimili
Þar sem Don Feeney fór með svo
skjótum hætti úr herþjónustunni
fékk hann hvorki eftirlaun eða hafði
safnað sér y/arasjóðum. Hann og
Judy kona hans stofnuðu dagheimili
í Fayetteville. Það gekk bærilega og
skömmu síðar opnuðu þau annað
heimiii. Það var býsna ólíkt fyrri
störfum Dons í Delta-árásarsveitinni
en veitti þeim fjárhagslegt öryggi og
gaf Don tækifæri til þess að hugsa
hvað hann ætlaði að taka sér fyrir
hendur í framtíðinni.
Don vissi að í Fayetteviile var sam-
ankominn einhver stærstí hópur sér-
þjálfaðra hermanna í öllum Banda-
ríkjunum. Sumir voru hættír störf-
um eins og Don og hann vissi að þeir
höfðu svo lítil eftírlaun að illmögu-
legt var að lifa af þeim og myndu því
grípa fegins hendi tækifæri til þess
að vinna sér inn aukapeninga við að
gera það sem þeir voru þjálfaðir til
og kunnu best.
CTU stofnað við eldhúsborðið
CTU, Corporate Training Unlim-
ited, var stofnað viö eldhúsborðið hjá
Judy og Don áriö 1985 af Don og fjór-
um öðrum fyrrverandi Delta-mönn-
um. Daginn eftir flutti Don sófann
úr stofunni þeirra inn í svefnher-
bergið og breytti stofunni í skrifstofu.
í fyrstu gekk starfsemin út á að
markaðssetja fyrirtækið en eftir sex
mánuði var svo komið að þeir félagar
leigðu sér húsnæði í lítilli verslana-
samstæðu. Við hliðina var verslun
The Bow Hunter. Eigandi hennar var
David Chateliier. Eftír sex mánuði
hafði hann lokað verslun sinni og
gengið til liös við CTU. Hann átti 24
hektara búgarð skammt fyrir utan
borgina sem var gerður að skotæf-
ingasvæði CTU.
Dave hafði aldrei verið félagi í
Delta-sveitunum. Hann hafði verið í
leyniþjónustu hersins og í 20 ár verið
þátttakandi í átökum kalda stríðsins
áður en kommúnisminn riðaði til
falls.
CTU sérhæfði sig í fyrstu í þjálfun
manna fyrir margvísleg öryggisstörf.
Síðar sýndi fyrirtækið áhuga á að
bjarga fólki úr háska með öllum þeim
afleiðingum sem það gat haft. Loks
kom að því að þeir tóku að sér að
bjarga bömum bandarískra foreldra,
bömum sem orðiö höfðu innlyksa í
öðrum löndum.
Samkomulag í vinnudeilu veðurfræðinga:
Boðin 400 þúsund fyrir
vinnu á Grænlandi
Danska veðurstofan hefur boðiö
íslenskum veðurfræðingum störf við
veðurspár í Syðri-Straumfirði á
Grænlandi og eiga launin þar að vera
um 400 þúsund krónur á mánuði.
„Ég veit ekki til þess að nokkur
hafi tekið þessar stöður. Ég held aö
allir hafi ákveðið að bíða átekta og
sjá hvemig gengi í samningaviðræð-
urnun og hvaða ákvörðun yrði tekin
varðandi framtíöina. Við vitum að
eins og stendur er mikill skortur á
veðurfræðingum í Danmörku og
jafnvel í Noregi líka þannig að ef við
hefðum áhuga þá gætum við útvegað
okkur vinnu erlendis,“ segir Hörður
Þórðarspn veöurfræðingur.
Veðurfræðingar sátu í gærkveldi á
fundi með veðurstofustjóra og náðist
þar samkomulag í vinnudeilunni. Er
því búist við að veðurfræðingar dragi
uppsagnir sínar til baka. -ból
Danir vilja selja Galileo
Breytingar á eignaraðild umboðs-
skrifstofu Galileos á íslandi standa
fyrir dyrum samkvæmt heimildum
DV. Galileo er skráningarkerfi sem
flugfélög og ferðskrifstofur nota.
Skrifstofan hér á íslandi hefur verið
rekin sem deild frá danska Galileo
og nú vilja Danimir fara út úr starf-
seminni. Óvissa ríkir því um framtíð
kerfisins hér.
Helstu eigendur Gaiileo-kerfisins í
heiminum em Britísh Airways og
IUJVI. Mjög fáar skrifstofur nota
kerfið hér á íslandi lengur en meðal
þeirra em Samvinnuferðir-Landsýn
og Ferðskrifstofa Reykjavíkur og
Flugleiðir að hluta til. -Ari