Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 30. JANTJAR 1993. 19 John Major, forsætisráðherra Breta, ákvað að ráðast gegn blöðunum vegna söguburðar: Matarást eða meira í Downingstræti 10? - sakaður um framhjáhald með „eldabusku" en ætlar ekki að láta flekka mannorð sitt „Hann vill þjóðlegan mat. Eins og flestir stjómmálamenn er hann ekki hrifmn af tilraunum í matargerð enda neyðist hann til að borða svo- leiðis í flestum veislum," segir Claire Latimer, kunnasti kokkur Bret- landseyja nú um stundir, um matar- smekk Johns Major forsætisráð- herra. Hún ætti að vita það öörum betur því Major leitar jafnan til hennar þegar halda þarf veislu í Downing- stræti 10. Þar er helst borinn fram enskur matur nema helst ef útlend- ingar eru í boðinu. Ensk matargerð- arlist er ekki hátt skrifuð, jafnvel þótt annar eins eðalkokkur og Lati- mer eigi í hlut. Nei, ég sagði það ekki En nú vilja menn vita hvort Major hafi meira en matarást á eldabusk- unni Latimer. Gamalt barátturit vinstrimanna, The New Statesman, hefur skrifað ítarlega fréttaskýringu um málið og fær að öllum líkindum bágt fyrir. Bæði Major og frú Lati- mer hafa kært ritstjóra blaðsins svo og ritstjóra háðsblaðs fyrir meiðyrði. Hætt er við að ritstjórunum gangi illa að veija mál sitt fyrir rétti. Viðbrögð Majors koma á óvart því allajafna kjósa breskir stjórnmála- menn að ráðast ekki til atlögu við pressuna enda vekja málaferli af þessu tagi ekki minni athygli en kjaftasögumar sjálfar. Karl prins afréð til dæmis á dögunum að láta kyrrt liggja þótt blöðin velti sér dag hvem upp úr sögum um ástarsam- band hans og Camillu Parker Bow- les, giftrar konu. The New Statesman var vart komið á götuna þegar lögmönnum í Lund- únum var falið að höfða mál. Steve Platt ritstjóri ætlar að byggja vöm- ina á að í raun hafi ekki verið um meiðyrði að ræða heldur vandaða umfjöllun um kjaftasögur - með dæmum. Hann segist aldrei hafa full- yrt að Major hafi haldið framhjá heldur aðeins fjallað um sögur um framhjáhaldið. Óvíst er hvort dóm- urum þykir þessi greinarmunur merkilegur. Hættir á mikið umtal vegna framhjáhalds Major tekur þó þessi skrif það al- varlega að hann hættir á að vera milli tannanna á fólki næstu mánuði vegna meints framhjáhalds. Umtalið er verst þótt ósatt sé. Gróa á Leiti hefur reynst mörgum stjórnmála- manninum þung í skauti þótt hún hafi ekki merkilegar heimildir fyrir sögum sínum. Mgjor var í Óman við Persaflóa þegar boðin um málsókn bárust. Hann þvemeitaði þar að segja nokk- uð um málið og ætlar greinilega að láta öllum spumingmn um það ósvarað þar til dómur fellur. árangur. Nú er svo komið að útgáfan rambar á barmi gjaldþrots og falh þungar sektir á blaðið vegna skrif- anna um Mgjor er eins víst að blaðið leggi upp laupana - á áttatíu ára af- mælinu. Háðblaðið Scahywag kann að sleppa betur frá málinu. Simon Reg- an ritstjóri er vígreifur og ætlar að snúa vöm í sókn þegar kemur í rétt- arsahnri og kaha Major tíl vitnis. Það gæti reynst forsætisráðherranum erfið raun - bæði að bera vitni og neita því. Ógifta eldabuskan fylgir ráðherranum En á meðan menn bíða dóms held- ur eldabuskan Claire Latimer áfam að vekja forvitni. Hún er 41 árs eða átta ámm yngri en Major. Þjóðholhr Bretar hæla trúnaði hennar við enskar matarvenjur og margir ráða- menn vilja að hún framreiði fyrir þá veislumat. Latimer er ógift og barn- laus. Latimer byijaði á veisluþjónustu sinni fyrir fiármálaráðuneytið og þar kynntist Major henni þegar hann varð fjármálaráðherra í tíð Margrét- ar Thatcher. Mgjor baö Latimer síð- an að fylgja sér í forsætisráðuneytið enda búinn að fá matarást á henni. Aðrir segja að Latimer hafi fundið leiðina að hjarta forsætisráðherrans í gegnum magann. Latimer segist hafa hsta yfir aha ráðherrana og skrá hjá sér hvað þeir vhja. Einn aðdáandinn var David nokkur Mehor menningarráðherra en hann er nú fallinn af hstanum. Vöffiur með ijóma em ofarlega á óskahstanum í kaffihléi á ríkis- stjórnarfundum. Latimer hefur sér- staktlag á þeim og hefur gefið bresk- um blöðum þessa uppskrift: Rjómavöfflur fyrir fjóra að hætti Claire Latimer: Notað er hefðbundið vöftludeig. Vöfflumar eru bakaðar þar th þær eru guhnar og stökkar. Efni í meðlæti: /2 htri af ijóma 4 litlir bananar 4 teskeiðar af avokado Flórsykur Vel þvegin myntulauf til skrauts Rjóminn er léttþeyttur og settur á vöfflumar. Bananamir skomir nið- ur í þunnar sneiöar og raðað eftir smekk á ijómann. Teskeiðarfylh af avokado er sett á miðja vöfflu og flór- sykri stráð yfir. Aö endingu skreytt með myntulaufinu. -GK Claire Latimer hefur áunnið sér aðdáun breskra ráðherra fyrir trúnað sinn við enskar matarvenjur. Hún hefur fylgt John Major milli ráðuneyta og nú er svo komið að menn grunar að á milli þeirra sé meira en matarást. Simamynd Reuter Þessi forsiða kann að verða banabiti The New Statesman. Ritstjórinn, Steve Platt, segist ekki hafa fjallað um framhjáhald heldur sögur um framhjáhald. Á þennan greinarmun reynir nú fyrir dómi. kröggum að auka söluna með slúðri um forsætisráðherrann. Grimmasta pressa heims lafhrædd Enn sem komið er á Major samúð þjóðarinnar og viðbúið er að önnur blöð fari sér hægt við umfjöllun um forsætisráðherrann þegar hann bregst svo hart við. Major hefur líka sagt að hann eftir- láti það lögmönnum sínum að ákveða hvort fleiri fjölmiðlar verða kærðir fyrir að segja frá því sem sagði í The New Statesman. Bretar verða þvi enn um sinn að láta sér nægja sögu- burð manna á meðal um ástarmál Majors. The New Statesman hefur undan- farin ár lifað á fomri frægð. Salan hefur dregist saman og tilraunir th að snúa vöm í sókn hafa ekki borið John Major kom á óvart með því að reiða til höggs um leið og blöðin hófu að slúðra um hann. Major er þriðji forsætisráðherra Bretlands á þessari öld sem kærir meiðyrði. David Lloyd-George og Harold Whson reyndu þetta báðir og höfðu sigur en lítinn sóma. En nú kunna mál að horfa öðmvísi við. Bresku blöðin hafa undanfarin misseri fariö hamfórum í skrifum um einkahagi áhrifamanna. Svo virðist sem The New Statesman hafi gripið til þess örþrifaráðs í íjárhags- ISLANDSMEISTARAKEPPNIN í gömlu dönsunum og rock’n’roll 1993 [«■m Haldin sunnudaginn 31. janúar í íþróttahusi Hafnarfjarðar við Strandgötu. Keppnin hefst kl. it. Miðasala opnuð kl. 9.30 - Húsið opnað kl. 10.00. Allir velkomnir. Dansráð Islands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.