Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Page 16
r
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993.
Fordstúlkan 1993 verður valin í
mars en hún mun taka þátt í keppn-
inni Supermodel of the World í Los
Angeles í júlí. Þetta er í sjötta skiptið
sem DV sér um framkvæmd keppn-
innar fyrir Ford Models skrifstofuna
í New York. Áhuginn hefur stööugt
farið vaxandi og á undanfómum
árum hafa um eitt hundrað stúlkur
sent myndir af sér í keppnina. Allar
myndir eru sendar til Eileenar Ford,
eiganda Ford Models, og sér hún um
að velja tíu til tólf stúlkur sem keppa
til úrslita. Fulltrúi skrifstofunnar
kemur síðan hingað til lands og velur
þá stúlku sem tekur þátt í keppninni
Supermodel of the World. í fyrra var
það Vigdís Másdóttir sem fór til Los
Angeles og átti skemmtilega daga þar
þó ekki kæmist hún í úrslit.
Keppnin Supermodel of the World
fór fyrst fram árið 1980 og var hún
þá haldin í Monte Carlo. Þetta var
fyrsta fyrirsætukeppni sinnar teg-
undar í heiminum. Síðan hefur þátt-
takendum sífellt fjölgað og vora í
fyrra frá 36 löndum, þar á meðal
Kína og Rússlandi.
Norska stúlkan Anette Stai var
fyrsta súpermódelið en sú sem hefur
prýtt flestar forsíður er dönsk, Renee
Simonsen, sem valin var árið 1982.
Þær stúlkur, sem hafa sigrað í
keppninni, hafa iðulega veriö á for-
síðum Vogue, Elle, Marie Claire,
Cosmopolitan og Harpers Bazaar og
frá þeim hefur verið sagt í Newsweek
og Time.
Kanadísk stúlka vann
Á síðasta ári sigraði kanadísk
stúlka, Tricia Helfer sem er 18 ára
gömul og 178 cm á hæð. í verðlaun
fékk Tricia samning við Ford Models
skrifstofuna upp á 250.000 dali (kr.
15.700.000). Tricia er bóndadóttir, alin
upp í Donalda í Alberta. Hún hafði
lítillega fengist við fyrirsætustörf í
Alberta. Eftir aö Tricia sigraði í
keppninni skreytti hún forsíðu
stærsta tímarits í Kanada, Toronto
Life Fashion. Þá hélt hún til Mílanó
og starfaði þar sem fyrirsæta um
Vigdis Másdóttir, Fordstúlkan 1992, ásamt norsku stúlkunni Lenu Björn, í Hollywood sl. sumar.
tíma, aðallega hjá tískuhönnuðinum
Giorgio Armani. Þá hefur Tricia
starfað fyrir tímaritið Grazia á Ítalíu.
Síöastliðið haust ferðaðist hún á milli
New York og Parísar og sýndi há-
tískufotin. Fyrir utan módelstarfið
era leikhús og kvikmyndir helstu
áhugamál Triciu. Hún hefur sérstakt
dálæti á leikaranum Sean Connery
og uppáhaldsmyndir era Gorillas in
the Mist og Ghost. í hópi gamalla
kvikmynda er það Casablanca sem
er í mestu uppáhaldi. Tricia hefur
tekið sér frí frá námi til að ferðast
um heiminn og kynnast tískuheim-
inum. Hún ætlar sér að halda áfram
námi eftir nokkur ár.
Margar stórstjömur
Eileen Ford rekur eina elstu og
virtustu umboðsskrifstofu fyrir-
sætna í heiminum. Eileen verður sjö-
tug á þessu ári en hún hefur rekið
skrifstofu sína frá árinu 1948. Á
hveiju ári koma um sjö þúsund
stúlkur til Fordskrifstofunnar og
óska eftir vinnu. Aðrar tíu þúsund
stúlkur senda bréf og mynd af sér
með von um að þær verði uppgötvað-
ar. Eileen Ford hefur fundið margar
sfjömur og má þar nefna Christie
Brinkley, Jerry Hall, Ashley Mont-
ana, Elle Macpherson, Brooke
Shields, Cheryl Tiegs, Margaux
Hemingway, Christy Turlington,
Rachel Hunter, Jane Fonda, Ali
MacGraw og Candice Bergen.
Eileen var spurð að því í viðtali
nýlega hvaö þyrfti til að verða millj-
ón dollara módel. Hún svaraði: „Að
hafa eld í augunum." Hún hefur aldr-
ei getað skilgreint að hvemig útliti
hún leitar en kallar það „X-factor“
sem sóst er eftir hveiju sinni.
Mikið braut-
ryðjendastarf
Þó Eileen eigi sér skæða keppi-
nauta í bransanum era allir sam-
mála um að hún hafi unnið mikið
brautryðjendastarf á sviði iðnaðar
Ert þú fyrirsæta ársins?
Nafn..
Aldur
Heimili............
Símanúmer....
Póstnr. og staður
Hæö.................
Staða.....
.þyngd.
Hefur þú starfaö við fyrirsætustörf?
Fylliö í réttan reit já □ nei □
Ef svarið er játandi þá hvar.
Myndirnar sendist til:
Ford-keppnin, Helgarblað DV, Þverholti 11,105 Reykjavík
i,li i i.-.ul • /.;, - 7 /• .....
Gleymið ekki að senda myndir með.
Fordstúlkan 1993 valin í mars:
Leitað að heilbrigðu
og klassísku útliti
- sigurvegari tekur þátt í Supermodel of the World í sumar