Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Síða 17
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993.
17
\
ÁK * ■ftAÉX / . > \; - Jfr
Sigurvegari keppninnar i fyrra, Tricia Helfer frá Kanada, ásamt Eileen Ford.
og auglýsinga. Fegurðin selur vörur
fyrir milljarða í Bandaríkjunum, t.d.
bíla, rafmagnsvörur, fatnað, snyrti-
vörur og ilmvötn svo eitthvað sé
nefnt. Eileen segir aö tískan sé ekki
bara nauðsynleg efnahagslega séð,
hún er bráðnauðsynleg fyrir konur
vegna þess að konum líður best ef
þær eru vel klæddar og öruggar með
sig. „Það getur haft mikil áhrif á at-
vinnulíf þar sem konur vinna orðið
meira úti en áður var,“ segir hún.
Eileen Ford er farin að líta mjög til
austurs, t.d. Rússlands, Kína og Pól-
lands varðandi tískuiðnaðinn. „Ég
sé mikla framtíð í Kína,“ segir hún.
„í Kína er vaxandi markaður fyrir
tísku og þegar sá markaður opnast
þá verður frekari þörf á fyrirsæt-
um,“ segir hún.
Um nokkurra ára skeið hafa vest-
rænar fyrirsætur verið mjög vinsæl-
ar í Japan og hefur Eiieen Ford verið
með eigin skrifstofu í Tokyo. í fyrsta
skipti í fyrra var stúlka frá Japan
með í Supermodel-keppninni.
Þegar Eileen Ford fór af stað með
keppnina árið 1980 var það gert til
að finna ný andlit og ekki síður til
að auðvelda ungum stúlkum að kom-
ast í fyrirsætustarfið sem var og er
mjög erfitt og dýrt. Fyrstu árin var
leitað að „amerísku“ úthti en hin síð-
ari ár hefur athyglin beinst fremur
að því að fyrirsætur hafi heilbrigt og
klassískt útht. Þær þurfa að hafa
langan háls, beint nef, há kinnbein,
frekar breiðar varir, stór augu og
langa fótleggi, sérstaklega frá hné og
niður. Þannig htur uppskriftin út.
Fyrirsætan á að taka sig jafn vel út
í klassískum vinnufatnaði, sam-
kvæmisklæðnaði og sportfatnaði.
Útlitið
leyndardómsfulla
Dóttir EUeenar Ford, Katie sem
rekið hefur umboðsskrifstofu í nafni
móður sinnar í París, telur að bestu
andhtin í myndatökur hafi komið frá
Tékkóslóvakíu, Póllandi, Ungveija-
landi og Spáni að undanfornu.
Eileen Ford segist ekki vita hvaða
útht það verður sem vinnur keppn-
ina í sumar. „Ég bara veit það þegar
ég sé það og þá læt ég það ekki
sleppa," segir hún.
Ford Models er fyrirtæki sem veltir
mihjónum dollara árlega. Fordfjöl-
skyldan hefur unnið samhent í
rekstri fyrirtækisins. Hún ferðast
um allan heim, auk starfsfólks, við
að leita að hinu eina rétta úthti. Víðs
vegar um heiminn eru haldnar Ford-
keppni og eru það iðulega tímarit,
dagblöð eða sjónvarpsstöðvar sem
sjá um framkvæmdina.
Eileen segir að þó íjölskyldan hafi
aldurstakmörk lág í keppnina þá sé
óskaaldur hennar á fyrirsætum 18
og 19 ára. Hún vih þó hafa aldurs-
mörkin breið ef hún skyldi finna
„stjörnu" sem annaðhvort væri
yngri eða eldri. „Þegar stúlkurnar
eru 18 ára vita þær frekar hvað þær
vilja og hafa lokið nauðsyniegu námi
til að halda út í heim,“ segir hún. „Ég
vil leggja áherslu á að ahar mínar
stúlkur eru vandaðar og góðar og ég
tek ábyrgð á þeim meðan þær stíga
fyrstu skrefin til frægðar," segir
Eileen Ford.
Sendið myndir
Þær stúlkur, sem áhuga hafa á að
spreyta sig í Fordkeppninni og jafn-
vel vinna ferð til Los Angeles í sum-
ar, ættu að senda myndir af sér sem
fyrst til helgarblaðsins. Senda á tvær
myndir, eina í fullri stærð og andhts-
mynd. Best er að senda myndir sem
teknar eru af atvinnuljósmyndara en
það er ekki skhyrði. Fylhð út með-
fylgjandi seðh og látið fylgja mynd-
unum. Skhafrestur er th 19. febrúar.
Sendið myndirnar til:
Fordkeppnin
helgarblað DV
pósthólf 5380
125 Reykjavík
-ELA
Stúlkurnar, sem tóku þátt í Supermodel of the World í fyrra, fyrir framan
innganginn í Disneyland.
Simpson-
fjölskyldan
snýr aftur
-birtist á skjánum 15. febrúar
Hin vinsæla Simpson-fjölskylda
mun birtast landsmönnum aftur á
skjánum mánudaginn 15. febrúar.
Án efa verða margir glaðir við þær
fréttir enda hefur vart stoppað sím-
inn hjá Sjónvarpinu þar sem spurt
er um fjölskylduna.
Simpson-fjölskyldan hefur ekki
einvörðimgu náð slíkum vinsæld-
um hér á landi heldur um allan
heim þar sem þættirnir hafa verið
sýndir. Þættimir virðast eiga aðdá-
endur á öllum aldri.
í Simpson-fjölskyldunni eru
heimihsfaðirinn Hómer, eiginkon-
an Marge, hth óþekktaranginn
Bart, trompetleikarinn Lísa og sú
htla með snuðið, Magga. Sú yngsta
hefur aldrei talað í þáttunum en í
nýjustu þáttmn breytist það því sú
stutta er látin segja: Mamma. Það
er engin önnur en Ehsabet Taylor
sem talar fyrir Möggu htlu.
Simpson-fi ölskyldan virðist stöð-
ugt lenda í einhvers konar klúðri
og er heimihsfaðirinn Hómer afar
seinheppinn náungi. Má nefna
dæmi þegar hann uppgötvaði að
hann ætti ríkan hálfbróður. Hómer
var ekki lengi að gera hann gjald-
þrota með sínum fáránlegu hug-
myndum. En þannig er einmitt
Hómer, hann stígur vart í vitið,
vosalingurinn, og fyrir það hefur
hann öðlast frægð. Bart, sonurinn,
var th skamms tíma frægasta per-
sónan en svo virðist vera sem aðrir
fj ölskyldumeðlimir hafi sótt veru-
lega í sig veðrið. Þannig hefur Lísa
náð að bræða hjörtu áhorfenda og
fær venjulega fuha samúð þeirra
þegar hún á í bash með bróður sinn
eða fóður.
Það verður fróðlegt að vita upp á
hveiju fjölskyldan tekur í þessari
nýju þáttasyrpu en hún á vafalaust
eftir að gleðja margan manninn.
-ELA
Simpson-fjölskyldan á marga aðdáendur hér á landi. Þeir eiga eftir að kætast því nú styttist i að fjölskyldan
birtist á skjánum á nýjan leik.
Utsölunni lýkur mánudaginn 1. febrúar
Nú er tækifærið að fá sér glæsileg
husgögn á góðu verði
Opið alla daga kl. 10-19
Húsgagnaverslun sem kemur á óvart
GARÐSHORN
Húsgagnadeild
v/FossvogsklrkJugarð, sfmar 16541 og 40500