Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Page 18
18
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993.
Veiðivon
Þráttfyrir allt:
í fyrra fækkaði útlendingum umtalsvert í veiðián-
um en núna virðist þessi þrónun vera í hina áttina.
Fleiri útlendingar virðast ætla að að renna fyrir fisk
í íslenskum veiðiám þetta sumarið. Við fréttum af
einum leigutaka sem seldi útlendingum fyrir 9 millj-
ónir í fyrra en núna hefur hann selt fyrir 18 milljón-
ir. Hann selur veiðileyfi fyrir 9 mfiljónir meira en
fyrir ári og það þykir gott á þessum markaði.
„Mér sýnist að útlendingamarkaöurinn sé aðeins
betri en fyrir ári, enda höfrnn viö lækkað veiðfieyfin
í dollurum," sagði Friðrik Þ. Stefánsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í vikunni.
„Verðið var orðið of hátt bæði fyrir útlendinga og
íslendinga. Þess vegna lækkuðum við það veru-
lega,“ sagði Friðrik ennfremur.
Þetta sama var að heyra á öðrum sem hafa selt
útlendingum veiðfieyfi í gegnum árin. Þetta gengur
betur núna en áöur. Það gæti líka þýtt að Rússland
sé bara afis ekki eins spennandi og sumir héldu.
Spá fyrir Vopnafjörðinn
Margir eru famir að spá fyrir um veiöina næsta
sumar, eins og í ánum í Vopnafirði. Einn af veiðisér-
fræðingum þjóðarinar var með Vopnafjörðinn á
hreinu í vikunni.
„Hofsá fer í 3000 laxa, Selá í 2000 laxa og Vestur-
dalsá í 700 laxa og ég held að þetta sé upp á fisk,
Bender," sagði veiðisérfræðingurinn ennfremur sem
ætlaði örugglega að veiða oft í Vopnafirðinum í sum-
ar.
Við heyrðum að spáö væri 210 laxa veiði í Set-
bergsá næsta sumar. Reyndar er spáð mjög góöri
veiði í flestum veiðiám næsta sumar. og þá miklu
magni af tveggja ára löxum í ámar.
Glæsilegur bikar fyrir
íslandsmótið í dorgveiði
Undirbúningur fyrir íslandsmótið í dorgveiöi er
hafinn á fullu en mótið verður að öllum Ukindum
sett á Eyrarvatni laugardaginn 6. febrúar. Veittrn-
verður glæsilegur bikar þeim sem vinnur þetta ís-
landsmót.
-G.Bender
Allt virðist benda til að útlendingamarkaðurinn sé allur að koma til í sölu veiðileyfa eftir rýrt ár i fyrra.
DV-myndir G.Bender
Fleiri útlendingar í
veiðiámim í sumar
Þjóðar-
spaug DV
Heimilishjal
„Áður fyrr varstu vanur að
halda í höndina á mér þegar við
vorum komin upp í,“ sagði gamla
konan við mann sinn þar sem þau
lágu saman í hjónarúminu.
Hann teygði út handlegginn og
greip umsvifalaust í hönd henn-
ar.
„Svo varstu líka vanur að kyssa
mig blíðlega,“ hélt sú gamla
áfram.
Maðurinn færði sig nær henni
og rak henni rembingskoss.
„Og svo beistu mig nú líka
stundum í eyrað,“ gall við í kerlu.
Ekki hafði frúin fyrr mælt þessi
orð en maður hennar rauk upp
úr rúminu.
„Hvert ertu eiginlega að fara,
maður?" hrópaði konan þá, stein-
hissa á athæfi bónda síns.
„Ég er nú bara að sækja tenn-
umar mínar," heyrðist þá
þvoglumælt rödd segja.
Gæsin
„Namm,“ sagði gesturinn, „ég
finn lykt af steiktri gæs.“
„Það er skrýtið,“ sagði hús-
bóndinn, „það er bara konan min
sem er að krulla á sér hárið.“
Félagamir
íslenskur stórkaupmaður bauð
konunni sinni í sirkus er þau
voru á ferð erlendis. Meðal
skemmtiatriða voru nokkrir fílar
sem sýndu ýmsar listir, þ.á m.
dans. Þegar dans þeirra stóð sem
hæst lmippti konan í mann sinn
og sagöi:
„Svei mér þá, Siguröur, ef þetta
eru ekki skólabræður þínir úr
dansskólanum."
Eyðimerkurlíf
„Lífið var mér sem eyðimörk
áður en ég kynntist þér, kæra
Brynhfidur."
„Þá skil ég mætavel af hverju
þú dansar eins og kameldýr sé á
ferðinni."
Fmnurþúfimmbreytingai? 189
5172»
Engar áhyggjur, góði, það er annar hver maður í heiminum freknóttur.
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
finim atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimihsfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verölaun: ELTA útvarps-
vekjaraklukka að verðmæti
kr. 5.450 frá versluninni Tón-
veri, Garðastræti 2, Reykja-
vík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Víghöföi,
Sonur Ottós, Kolstakkur og Leik-
maðurinn. Bækurnar eru gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 189
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
áttugustu og áttundu getraun
reyndust vera:
1. Lára Eyjólfsdóttir
Túngötu 24,460 Tálknafirði.
2. Símon B. Bjömsson
Vogageröi 19,190 Vogum.
Vinningamir verða sendir
heim.