Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Page 25
LAUGAKDAGUR 30. JANÚAR 1993. 25 f slenski fyrirsætumarkaóurinn harðnar: Vil meiri atvinnu- mennsku í fagið - segir Linda Pétursdóttir sem hefur sett á stofn nýja umboðsskrifstofu fyrirsætna „Þaö má segja að harka hafa kom- ist í markaðinn. En áhuginn er gíf- urlegur hér á landi, jafnt hjá strák- um og stelpum, að komast í fyrir- sætustörf. Til dæmis komu átta strákar einn daginn sem höfðu áhuga á að komast í fyrirsætu- störf. Það kom mér á óvart,“ segir Linda Pétm-sdóttir sem nýlega opn- aði umboðsskrifstofu fyrirsæta hér á landi í samvinnu við breskar skrifstofur, Wild, Elite Premier og Fashion Bureau. í áraraðir voru aðeins starfandi þrjár umboðsskrifstofur hér á landi, Módelsamtökin, Karonsam- tökin og Módel 79. Á undanfömum árum hafa nokkrar bæst við, þar á meðal Icelandic Models og Módel- mynd sem nýlega sameinuðu krafta sína. Linda segir að með tilkomu skrif- stofu hennar hafi komið nokkiu- titringur í þessa atvinnugrein. „Þetta var allt á mjög rólegum nót- um en svo virðist sem einhver skjálfti hafi færst í mannskapinn við stofnun Wild. „Ég legg aðalá- herslu á aö finna fyrirsætur, jafnt kvenkyns sem karlkyns, til að senda til útlanda. Þó ég hafi hafið starfsemina fyrir nokkrum vikum virðist allt vera komið á fullt. Hinar skrifstofumar era með um 120 manns á skrá hjá sér en ég ætla að halda mig við þijátíu manns. Ég vil hafa fáa og góða.“ Linda mun vera meö starfsemi hér heima jafnframt því sem hún leitar að fyrirsætum til að senda til London. Tvær stúlkiu- koma til greina hjá henni núna og munu þær fara utan áður en langt um líður. Áhuginn eykst enn Áhugi á fyrirsætustörfum virðist sífellt vera að aukast hér á landi og hefur þó mörgum þótt nóg um. Linda segist sjálf starfa sem fyrir- sæta þrátt fyrir að hún hafi sett fyrirtæki sitt á laggimar. „Ef mér býðst gott verkefni í London skrepp ég út. Það er lítið mál að ferðast á milli.“ Þeir sem sýna fyrirsætustarfinu helst áhuga em á aldrinum fjórtán ára upp í þrítugt en ekki hafa allir áhuga á að starfa erlendis. „Margir vilja einungis starfa hér á landi,“ segir Linda. „Stelpur sem era í skóla og eiga kærasta vilja alls ekki fara utan.“ Linda segir að nóg sé að gera í fyrirsætuheiminum hér á landi. „Vinnan er fólgin í myndatökum fyrir auglýsingar og tískusýningar. Kaupmenn era alltaf að staglast á að velja íslenskt en staðreyndin er sú að þeir klippa oft út myndir úr erlendum listum og birta í auglýs- ingum í stað þess að fá íslenskar fyrirsætur til að sýna. Mér finnst að þeir ættu að nota tækifærið og nota íslenskar fyrirsætur meira.“ Toppmódel 157smáhæð - En hvað þarf fyrirsæta að hafa til að bera svo hún komist í hópinn? „Það er erfitt að sefja upp ákveðna formúlu. Maður verður að sjá krakkana til að geta dæmt um hvort þeir eigi erindi í þetta starf. Aðalfyrirsætan þessa dagana úti í heimi er bresk og er aðeins 157 cm á hæð. Myndir af henni hafa birst í Vogue og öllum helstu tísku- blöðum. Þar að auki sýnir hún á tískusýningunum í París. Það lítur út fyrir að kröfur til fyrirsæta séu að breytast úti í heimi. Mestu máli skiptir hvemig þær taka sig út en ekki hversu háar þær era.“ Linda segir að hún hafi sett skrif- stofu sína á laggimar vegna þess hversu henni fannst þessi heimur staðnaður hér á landi. „Ég vil fá meiri atvinnumennsku í þetta. Oft era dansarar notaðir í tískusýning- ar en að mínu mati er þaö tvennt ólíkt, fyrirsætur eða dansarar. Ég hef staifað bæði fyrir Módel 79 og Icelandic Models og fannst kominn tími til að breyta þessari starfs- grein. Það var auövitað ekki tekið neitt sérstaklega vel í að ég væri að fara í samkeppni við hinar skrif- stofumar, en nú höfum við stillt saman strengi og verðum með svip- aðar verðskrár. Þannig að ég býst við að við munum vinna frekar saman en á móti hvor annarri," segir Linda. „Undirboð hafa þekkst í þessari starfsgrein og þess vegna hafa menn haldið að þetta væri DV-mynd Brynjar Gauti góðgerðarstarfsemi. Þeirri hugsun verður að breyta. Ég get nefnt sem dæmi að klukkutíma vinna kostar hjá fyrirsætu hér á landi um fjögur þúsund en ekki undir tíu þúsund hjá skrifstofunum í London.“ Ennþá getur enginn lifað af fyrir- sætustarfinu hér á landi en þær sem mest hafa að gera fá ágætis aukapening. -ELA Álafoss í Lopi - band - bömullarpeysur - ullarpeysur værðarvoðir - metravara Opið daglega frá kl. 10.00-18.00, einnig sunnudaga. Sendum í póstkröfu, simi 91-666303.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.